Morgunblaðið - 07.04.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1979
23
lendinga", hrepptu færri at-
kvæði en svo að þeim tækist að
fá mann kjörinn.
Þingkosningarnar fóru fram
minna en þremur mánuðum
eftir að þjóðaratkvæðagreiðsla
leiddi í ljós að þorri landsmanna
aðhylltist sjálfstjórn. Munu
fimmtíu þúsund Grænlending-
ar, þar af tíu þúsund manns
danskrar ættar, nú smám sam-
an taka stjórn landsins í eigin
hendur; átta hundruð og fjöru-
tíu þúsund ferkílómetra af
grjóti og ís, sem þeir stoltir
kalla „kaladit nunat" eða „land-
ið okkar".
Tuttugu og níu þúsund manns
greiddu atkvæði og er það 69,2
af hundraði atkvæðisbærra
manna. Siumut-flokkurinn fékk
46,6 af hundraði atkvæða,
Assut-flokkurinn 42,1 af hundr-
aði, Sulissartut-verkamanna-
flokkurinn 5,7 af hundraði og
Inuit-flokkurinn 4,6.
Það var Atassut-flokkurinn
sem áður hafði ráðið lögum og
lofum í grænlenzka héraðsráð-
inu, en ráð þetta var dönskum
stjórnvöldum til ráðgjafar. Þeg-
ar Siumut-flokkurinn tekur nú
við stjórntaumunum má vænta
þess að ferskar tilraunir verði
gerðar til að vinna bót á því
félagslega og menningarlega
hnjaski, sem Grænland hefur
óumdeilanlega orðið fyrir í þeim
hvirfilbyl danska velferðarríkis-
ins, sem dunið hefur þar yfir á
síðustu tveimur áratugum.
Þjóðvemdarstefna
boðuð á Grænlandi
Godthaab, Grænlandi, 6. aprfl. AP.
HÆGFARA vinstri menn, sem
binda vilja enda á aðild Græn-
lcndinga að Efnahagsbanda-
lagi Evrópu og sjá til þess að
þeir hafi sjálfir stjórn á nátt-
úruauðlindum stærsta eylands
í heimi, unnu hreinan meiri-
hluta í kosningum til græn-
lenska þjóðþingsins á miðviku-
dag. Á þinginu situr tuttugu og
einn fulltrúi, og munu þeir búa
jarðveginn undir heimastjórn
frá og með 1. maí næstkom-
andi.
Þegar svo til öll atkvæði
höfðu verið talin hafði hinn
sósíaliski Siumut-flokkur unn-
ið a.m.k. 12 og e.t.v. 13 þingsæt-
anna, en afgangurinn kom f
hlut hins sósíal-demókratíska
Atassut-flokks, sem barizt hef-
ur fyrir aðild að Efnahags-
bandalaginu og áframhaldandi
tengslum við Danmörku. Tafir
hafa orðið á atkvæðatalningu
sökum lélegra talsambands-
skilyrða við afskekkta
landshluta.
Með tilliti til úrslitanna má
öruggt telja að fyrsti forsætis-
ráðherra Grænlands verði séra
Jónatan Motzfeldt, hinn fertugi
leiðtogi Siumut-flokksins og um
sjö ára skeið ötulasti brautryðj-
andi heimastjórnar á Græn-
landi. Nýju flokkarnir tveir,
Sulissartut-verkamannaflokk-
urinn, sem er mjög vinstri sinn-
aður, og marxistaflokkurinn
Inuit „Grænland-fyrir-Græn-
Eftir að úrslitin lágu fyrir
sagði talsmaður Siumut-flokks-
ins að haldin yrði þjóðarat-
kvæðagreiðsla um veru í Efna-
hagsbandalaginu áður en sér-
samningur Grænlendinga við
bandalagið rennur út 1982.
Grænlendingar greiddu lang-
flestir atkvæði gegn því að
ganga í EBE 1972 en urðu að
fylgja Dönum eftir engu að
síður. Þrátt fyrir að Efnahags-
bandalagið hafi á undanförnum
árum greitt Grænlendingum um
hundrað milljónir Bandaríkja-
dala til að greiða fyrir byggða-
þróun er Siumut-flokkurinn
reiðubúinn til að færa fjárhags-
legar fórnir til að fá viðskipta-
samning við bandalagið í staf
aðildar.
Kosið í Rhódesíu
17.—21. apríl n.k.
London, 6. apríl. Reuter.
NIÐURSTÖÐUR skoðanakann-
ana, er birtust í Bretlandi í dag,
eru fjarri því að vera samhljóða
um forskot íhaldsflokksins nú
þegar mánuður er til þingkosn-
inga.
Gallup-könnun í dagblaðinu
Daily Telegraph sýnir að yfir-
burðir íhaldsflokksins hafa auk-
ist og fengi hann nú 10,5 af
hundraði atkvæða meira en
Verkamannaflokkurinn. Gallup
sýndi hinn 30. mars að yfirburðir
Thatchers og íhaldsmanna næmu
þá sjö af hundraði.
Önnur skoðanakönnun, sem
birtist í Daily Express, á vegum
NOP, sýnir hins vegar að íhalds-
flokkurinn hefur aðeins sex hundr-
aðshluta fram yfir flokk Callag-
hans. Sami aðili gaf upp átján
hundraðshluta meirihluta fyrir
íhaldsmenn í febrúar.
Samkvæmt þessum tveimur
skoðanakönnunum féllu atkvæði
þannig: A. Gallup: íhaldsflokkur
49 af hundraði, Verkamannaflokk-
ur 38,5 af hundraði, Frjálslyndir 9
af hundraði, aðrir 3,5 af hundraði.
B. NOP: íhaldsflokkur 48 af
hundraði, Verkamannaflokkur 42
af hundraði, Frjálslyndir 8 af
hundraði, aðrir tvo af hundraði.
Öllum skoðanakönnunum, sem
birtar hafa verið, kemur saman
um að flokkur Thatchers sé í
forystu og leiða rök að því að hún
megi enn gera sér vonir um að ná
Þetta gerðist
hreinum þingmeirihluta í kosning-
unum 3. maí. Flokksleiðtogunum
báðum, Margaret Thatcher og
James Callaghan, hefur verið séð
fyrir vopnuðum lífverði vegna ótta
um tilræði ofstækisafla.
Salisbury, 6. aprfl. AP
ÁKVEÐIÐ hefur verið í Rhódesíu
að kosningar skuli fara fram í
landinu dagana 17, —21. apríl
n.k., þar sem hvítir menn og
svartir munu í fyrsta sinn ganga
að kjörborðinu saman með jafnan
rétt.
betta mun verða í fyrsta sinn
sem allir landsmenn hafa rétt til
að ganga að kjörborðinu sam-
tímis til að kjósa sér stjórn sem
mun verða undir forsæti svarts
manns í fyrsta sinn í sögu
landsins. Sá mun taka við af Ian
Smith núverandi forsætisráð-
herra sem lét þau ummæli falla
fyrir aðeins þremur árum að
stjórn svartra myndi ekki komast
á í Rhódesiu næstu þúsund árin.
Skipting á þinginu eftir kosn-
ingar mun ekki að öllu leyti ráðast
af hlutfalli atkvæða hvítra og
svartra því að í samkomulaginu
Afskipti af
stjómmálum
harðbönnuð
Nouakchott, Máritaníu, 6. aprfl. AP.
FORSETI Máritaníu,
Mohamed Ould Salek, hefur
bannað alla stjórnmála-
starfsemi í landinu.
Forsetinn hefur sakað
fulltrúa blökkumanna-
minnihlutans í landinu um
að reyna að veikja herstjórn
landsins.
Nítján blökkumenn í
nýrri þjóðráðgjafarnefnd
neituðu að sækja fund
hennar á fimmtudag þar
sem þeir telja kynþáttum
mismunað.
sem gert var í marz á s.l. ári var
kveðið svo á að af eitt hundrað
þingsætum skyldu hvítir fá 28,
burtséð frá því hvert atkvæða-
magn þeir fengju. Má í því sam-
bandi geta þess að hvítir menn eru
aðeins um 3% landsmanna.
Veður
víða um heim
Akureyri 0 alskýjað
Amsterdam 8 rigning
Apena 21 heiðakírt
Barcelona 14 léttskýjaó
Berlín 12 mistur
Brussel 6 skýjað
Chicago 12 heiðskírt
Frankfurt 6 rigning
Genf 6 skýjað
Helainki 6 heiðskírt
Jerúsalem 19 skýjað
Jóhannesarb. ' 27 léttskýjað
Kaupmannah. 4 skýjað
Lissabon 18 heiðsklrt
London 9 heiðskírt
Los Angeles 28 skýjað
Madríd 13 heiðsklrt
Malaga 19 skýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Miami 27 skýjað
Moskva 5 heiðskírt
New York 13 rigning
Osló 6 skýjað
Parfa 8 skýjað
Reykjavík 2 léttskýjað
Rio De Janeiro vantar
Rómaborg 15 skýjað
Stokkhólmur 4 skýjað
Tel Aviv 22 skýjað
Tókýó 16 skýjað
Vancouver 14 heiðskírt
Vínarborg 11 rigning
Ber ekki saman um
forskot Thatchers
Hershöfdingi fer
með dómsmálin í
stjórn Suarezar
Madríd. 6. aprfl. Reuter.
SPÆNSKI forsætisráðherrann, Adolfo Suarez, batt í gærkveldi anda á
fimm vikna óvissutímabil í stjórnmálalifi landsins er hanr: birti
ráðherralista fyrir tuttugu og fjögur ráðuneyti. Vakti mesta athygli
útnefning hershöfðingja til að fara með embætti dómsmálaráðherra.
Tíu nýir menn eiga sæti í stjórn
forsætisráðherrans, sem sigraði í
kosningunum hinn 1. mars. Þetta
verður þriðja kjörtímabil Suarezar
og hafa fjórir af fyrri ráðherrum
hans verið látnir hætta störfum. í
hópi þeirra er Rodolfo Martin
Villa dómsmálaráðherra og Frans-
isco Fernandez Ordonez fjármála-
ráðherra. Martin Villa lét ráðu-
neyti sitt af hendi að eigin ósk en
búist hafði verið við að hann
myndi eftir sem áður eiga sæti í
stjórninni. Dómsmálaráðherrann
nýi er Antonio Ibanez Freire,
sextíu og sex ára gamall, fyrrver-
andi yfirmaður varðliðasveita og
náinn trúnaðarmaður Suarezar.
Örðugasta verkefni Freire hers-
höfðingja verður án efa baráttan
gegn hermdarverkamönnum úr
röðum Baska, sem fellt hafa meira
en þrjá tugi manna á árinu.
7. apríl
1976 — Teng Hsiao-ping steypt
af stóli í Kína og Hua Kuo-feng
tekur við.
1975 - Loftárás á höll Thieu
forseta sem sakar ekki.
1971 — Bandarísku borðtennis-
liði boðið til Kína.
1967 — Mesta loftorrusta
ísraelsmanna og Sýrlendinga í
19 ár.
1%6 — Bandarísk vetnis-
sprengja finnst við strönd
Spánar.
1953 — Dag Hammarskjöid
kosinn framkvæmdastjóri SÞ.
1948 — WHO verður ein af
sérstofnunum SÞ.
1945 — Bandarískar flugvélar
sökkva „Yamato", stærsta
hersipi Japana.
1941 — Herlið Wavells hörfar
frá Benghazi.
1939 — ítalir gera innrás í
Albaníu — Spánn gengur í
Andkominternbandalagið.
1936 — Zamora forseta steypt á
Spáni.
1934 — Mahatma Gandhi
hættir óhlýðniaðgerðum á
Indlandi — Griðarsáttmáli
Rússa og Finna framlengdur í
tíu ár.
1926 — Fyrsta banatilræðið við
Mussolini.
1906 — Ráðstefnunni í
Algeiciras um Marokkó lýkur.
1897 — Tyrkir segja Grikkjum
stríð á hendur.
1862 — Orrustunni um Shiloh
lýkur.
1831 — Pedro I leggur niður
völd í Brazilíu.
1652 — Van Riebeck stofnar
Höfðaborg í Suður-Afríku.
Afmæli. St. Framcis Xavier,
jesúíta-trúboði (1506—1552) —
William Woedsworth, brezkt
skáld (1770-1850) - Sir David
Low, nýsjálenzkur skipmynda-
teiknari (1891—1964) — James
Garner, bandarískur leikari
(1928-)
Andlát. Ei Greco, listmálari,
1614 — Anton Diabelli, tón-
listarútgefandi, 1858 — Henri
Ford, bifreiðaframieiðandi,
1947.
Innlent. Ingvarsslysið á
Viðeyjarsundi (20 fórust) 1906
— f. Jörgen Jörgensen 1780 —
Trampe greifa veitt amtmanns-
embætti í Ringköbing 1860 —
Tilkynnt að fyrstu verkamanna-
bústöðum í Reykjavík sé lokið
1932 ’ — Laugarnesspítaii
brennur 1943 — Kanada semur
um sögulegan rétt á hafréttar-
ráðstefnunni í Genf 1960 —
Eltingarleikur „Óðins“ við
„Milwood" 1963 — Hvítabjörn í
hafís við norðfjörð 1968 —
Áfengissmyglið í „Lagarfossi"
1973 — f. Ingimar Eydal 1873 —
d. Bjarni pr. Arngrímsson 1881
— f. Jón Vestdal 1908 — Einar
Bragi 1921.
Orð dagsins. Fuilkomnun næst
stig af stigi. hún þarfnast hald-
leiðslu tímans — Voltaire,
franskur rithöfundur
(1694-1778).