Morgunblaðið - 07.04.1979, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.04.1979, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1979 Tðnilst eftir JÓN ÁSGEIRSSON Tónleikar kammer- músikklúbbsins Sinfóníutónleikar Efnisskrá: Rossini/ Forleikur að óperunni Semiramide. Prokoffáff/ Fiðlukonsert nr. 1, op. 19. Beethoven/ Sinfónía nr. 8. Einleikari: Einar Sveinbjörnsson. Stjórnandi: Jean-Pierre Jacquillat. Það er einkennilegt að þrátt fyrir staðhæfingar um að tónlist Rossini sé lítilfjörleg, er hún gædd þeim töfrum er hlustendur fá ekki staðist. Snögg umskipti í styrk, sem ramma inn kvikar einleikslag- línur, vaxandi spenna byggð upp með síendurstyrktum stefmyndum og hvass grunnb'-ynur, er magnar andstæður hryns og lags, eru einkennandi fyrir rithátt Rossinis. Stjórnandanum tókst merkilega vel að magna spennuna í forleik Rossinis, en það hefur einmitt verið sérkenni Sinfóníuhljómsveit- ar íslands, að jafnvel heilir hópar innan sveitarinnar hafa haft til- hneigingu til að „koma hægt inn“. Slíkt rænir tónlistina allri spennu og mátti heyra þessi „rólegheit" að nokkru í eftirslögum blásaranna í einum mögnunarþættinum. Einar Sveinbjörnsson lék einleikshlut- verkið r fiðlukonsert Prókofféffs, en hann hefur starfað í Svíþjóð síðan 1964. Einar er frábær fiðlu- leikari og lék konsertinn af mikíu öryggi. Verkið er sérkennilegt að gerð, þar sem skiptast á lang- dregnir tónbogar, eins og í uþphafi verksins, skarpar hrynur í „Skér- sóinu", sérkennilegt tvíferli laga- hugmynda, ásamt rómantískum stemmningum í síðasta þættinum. Allt kom þetta greinilega fram í leik Einars en aldrei oftekið á neinu. Síðasta verkið á efnis- skránni var sú „áttunda" eftir Beethoven og var flutningur henn- ar bæði góður og slæmur, einstaka þættir tókust vel en aðrir hljóm- uðu miður. Fyrir smekk undirrit- aðs var fyrsti þátturinn ekki nógu skýrt afmarkaður hvað snertir andstæður. Þar er teflt saman sterkum hrynstefjum og einkenni- legum lagabrotum, sem ekki voru nægilega aðgreind í blæ og hraða. „Taktstokks" kaflinn hefði mátt vera ögn hærri, til að ná fram sérkennilegu og hamrandi hljóð- fallinu. Þannig má halda áfram að tíunda ýmis konar viðhorf til túlkunar almennt, en hér er aðeins um persónulega afstöðu að ræða, og þó skilningur hlustanda og stjórnanda falli ekki saman, er ekki þar með sagt að flutningur verksins hafi verið slæmur. Fyrir undirritaðan var mótun verksins ekki nógu skörp, eða heldur um of slétt og felld. Sem ábendingu til forráða- manna hljómsveitarinnar, er rétt að geta þess, að hafi oft tekist illa til með „prógram" gerðina eru öll fyrri met á því sviði nú slegin. Þó „textúr" og „Stríðið við Vittoríu" séu í rauninni smámunur, er það alvarlegur hlutur að fela reynslu- lausum manni jafn vandasamt verk. Svona verk á ekki að afgreiða með því að þýða úr erlendum bókum og auk þess móðgun við hljómleikagesti að eigna sér text- ann án skýringa. Kórsöngur Þessa dagana dvelur hér á landi kór er kallast Der Niedersáchsische Singkreis og lýtur stjórn Willi Traders. í sambandi við komu kórsins er haldið námskeið í kór- stjórn á vegum Tónlistarskólans í Reykjavík, en Willi Trader er heimsfrægur fyrir starf sitt að söngmálum, bæði í Þýzkalandi og um allan heim með aðild að stofnun Europa Cantat. Tónleikarnir hófust á tveimur lögum eftir Purcell, Hear my Prayer, o Lord og Lord, how long wilt Thou be angry. Nokkuð gætti þreytu í söng kórsins en dagskráin hjá honum undanfarna daga hefur verið mjög ströng. Annað verkefni var Jesu, meine Freude eftir Bach. Mótetta þessi er ekki sem auðveldust í meðförum og Tðnllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON NAUÐUNGARUPPBOÐ Eftir kröfu skattheimtu ríkissjóös í Kópavogi, skattheimtu ríkissjóös í Hafnarfiröi, Landsbanka ísiands, Siguröar Sigurjónssonar hdl., Sveins H. Valdimarssonar hrl., Jóns Finnssonar hrl., Tóm- asar Gunnarssonar hdl., Hafsteins Sigurössonar hrl., Kristins Björnssonar hdl., Benedikts Sigurös- sonar hdl., Axels Kristjánssonar hrl. og Guöjóns Steingrímssonar hrl., veröa eftirtaldir lausafjár- munir seldir á nauðungaruppboöi, sem haldiö veröur á bæjarfógetaskrifstofunni aö Auðbrekku 57, Kópavogi, miövikudaginn 18. apríl 1979 kl. 14.00. Veröur uppboði síöan fram haldiö á öörum stööum. 1. Húsgögn og heimilistæki: Skápasamstæður, 5 sófaborö, leöurstóll, Husquarna saumavél, Zanussi ísskápur, Elcold frystikista, 2 Candy þvottavélar, 3 sófasett, 2 Ignis ísskápar, Nordmende sjónvarp, AEG þvottavél og Beka ísskápur. 2. Leikmunir. 3. Olíublöndunarstöö. 4. Edwards vélsax, Roberwishney beygjuvél, Lockformer lásavél og Kristen Andersen trésmíðavél. Uppboösskilmálar liggja frammi á skrifstofu uppboöshaldara. Greiösla fari fram viö hamarshögg. Bæjarfógetinn í Kópavogi áttu sópranraddirnar erfitt upp- dráttar í fyrri hluta verksins. Seinni hlutinn og einkum Gute nacht kaflinn, var meistaralega vel útfærður og þar nutu raddirnar sín sérlega vel og man undirritaður ekki eftir því, að hafa oft heyrt eins fallegar alt-raddir og í þessum kór. Fyrir og eftir Mótettuna lék einn af söngvurunum í kórnum einleik á orgel og var leikur hans heldur svona göslulegur en hressilegur og drífandi. Næstu verkefnin voru rómantísk og þar var flutningur kórsins sér- lega glæsilegur. Den er hat seinem Engeln befohlen úber dir, eftir Mendelssohn og Warum ist das Licht gegeben dem Múhsenligen?, eftir Brahms, eru bæði falleg verk og voru mjög vel sungin. Tvö síðustu verkin, Mótettan Wachet auf eftir Distler og Hinunter ist der Sonnen Schein, eftir Pepping, voru vel flutt en það er einkennilegt hversu tónstíll Distlers verður sí- fellt bragðminni, sem oftar er hlýtt á hann. Heimsókn Der Nieder- sachsische Singkreis og Willi Trád- ers er skemmtilegur viðburður og á eftir að verða íslensku sönglífi mikil lyftistöng, hvetja menn til dáða, efla tækni og gagnrýni kór- stjóra og kenna íslensku söngfólki, að af litlu tré vaxa oft viðir miklir. ÍSLENSKI blásarakvintettinn er skipaður Manuelu Wiesler, Kristjáni Þ. Stephensen, Sigurði I. Snorrasyni, Stefáni Þ. Stephensen og Hafsteini Guðmundssyni og að frádregnum flautuleikaranum og fagottleikaranum, skipaður sama fólki og Blásarakvintett Tónlistar- skólans í Reykjavík. Þessir tón- listarmenn hafa verið duglegir við að kynna fólki blásna kammertón- list svo að nú orðið er slík tónlist almennt hlutgeng sem hlustunar- efni á tónleikum. Sú ánægja er Tðnlist eftir JÓN ÁSGEIRSSON hlustendur í vaxandi mæli sækja í slíka tónlist, er ekki minnst að þakka því hversu góðum blásurum við höfum á að skipa og er af það sem áður var, er ekki var hægt að manna eina hljómsveit íslenskum blásurum. Tónleikar íslenska blásarakvint- ettsins hófust á kvintett eftir Carl Nielsen, skemmtilegu verki, sem sveiflast milli hefbundinna tóntil- tekta og skemmtilegra frávika, er mynda eina samofna heild, en kemur hlustandánum ávallt á óvart. í fyrsta þættinum og Menu- ettinum skýtur upp gömlum stefj- um en í síðasta þættinum eru vinnubrögðin sjálfstæðari, þar sem hugmyndalegum þverstæðum, sem grípa athygli hlustandans, er teflt saman á meistaralegan hátt. Flutningurinn var víða mjöggóður en einnig við þau mörk sem telja verður óþægileg. Annað verkefnið var Kvartett eftir Rossini og er alltaf gaman að heyra hann, með sín sérkennilegu stef, sem öll virðast spunnin úr einu frumstefi. Eftir Jacques Ibert lék kvintettinn þrjú stutt verk. Þar mátti heyra, að víða vantaði á að flokkurinn í heild réði yfir nægilegum tóngæð- um, til að hjómbrigði verksins nytu sín nógu vel. Næst síðasta verkið var Dúo fyrir klarinett og fagott eftir Beethoven og er það verk, sem þó er góð tónsmíð, ekki skemmtilegt nema meistaralega flutt. Síðasta verkið var hins vegar mjög vel flutt og mátti heyra hvers okkar ágætu tónlistarmenn eru megnugir, þegar tekist er á við stóra hluti. Kvintett (en forme de Choros) eftir Villa-Lobos er stór- kostleg tónsmíð, bæði villtur og agaður og var flutningurinn með því besta, sem hér hefur heyrst á tónleikum. Bæði kvintettinn eftir Carl Nielsen og eftir Villa-Lobos eru verkin sem skipta máli og þau voru vel flutt. Ljósm.: Kristján. Grétar Hjartarson forstjóri og Gunnar Árnason sýningamaður við hlið hátalaranna átta er settir hafa verið upp sérstaklega fyrir sýningu myndarinnar „Vígstirnið“. Nýhljóðtækni við sýningu myndarinnar „Vígstimið” í DAG hefur Laugarásbíó sýningar á Universal-myndinni „Vígstirnið“ — Battlestar Galatica. Við sýningu myndarinnar er beitt nýrri hljóðtækni, svokallaðri „sensurroundtækni“. „alhrif" á íslenzku er í aðalatrið- um fólgin í hljóðbylgjum með mjög lágri tíðni, sem hefur þau áhrif á áhorfendur að þeir finna áhrif hljóða um leið og þeir heyra þau. I Laugarásbíói hefur verið komið upp átta hátölurum, sem settir hafa verið upp fyrir fram- an áhorfendur og fjórum að auki aftast í salnum. Hátalarar þess- ir eru knúnir með þremur 600 watta aflmögnurum. Til saman- burðar má geta þess, að við sýningar á venjulegum myndum er aldrei notast við meira en 60—80 wött. Vígstirnið er flugstöðvarskip úti í geimnum á stærð við borg, og segir myndin frá flótta íbúa stirnisins undan eyðingarsókn Cylona, vélmenna, er engu eira. í aðalhlutverkum í myndinni eru Richard Hatch, Dirk Benedikt og Lorne Greene. Til þess að unnt væri að gera myndina vel úr garði var Universal að koma sér upp nýjum fullkomnum rafeinda- búnaði, sem kostaði hvorki meira né minna en 3 milljónir dollara — nærri milljarð króna. Tækni þessa, sem kalla má Gwnalf M Jr II m I I !| tolkgeng urjs 4 htti|cif

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.