Morgunblaðið - 07.04.1979, Side 18

Morgunblaðið - 07.04.1979, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1979 Maður í nútíma Annar hluti ráðstefnunnar um manninn og umhverfið Maður í nútíma var heiti annars hluta ráðstefnu samtakanna Líf og land á Kjarvalsstöðum. Þá hafði verið hugað að fortíðinni með erindaflokki. Var nú komið að því að líta á og meta nútímann, áður en hugað yrði að því hvert skuli haldið. í þessum miðhluta ráðstefnunnar um nútímann fluttu 12 manns erindi mjög fjölbreytt og út frá mismunandi forsendum. Verður drepið niður í þau í þessari grein. • Með átakanlega tilhneigingu til offitu Magnea Matthíasdóttir rithöfundur reið á vaðið með erindi, sem hún nefndi Grænt maibik eða gulrófnagarður. Eftir að hafa gert eilítið háðslega grein fyrir mismunandi skoðunúm á borginni, sagði hún: En Reykjavík er kannski ekki svo slæm eftir allt saman, svona þegar á heildina er litið. Hún ætti eiginlega að hafa eitthvað uppá að bjóða öllum til hæfis, ef fullrar sanngirni er gætt. Þarna hefur hún vinaleg miðaldra hverfi með gróna garða og settleg- an svip, grjótaþorpið fyrir bóhem- ana og listamennina, miðbæinn, tjörnina og vísindaskáldsöguhúsin öll í Breiðholtinu, nýgiftan virðu- leika Árbæjarhverfis og ótal margt annað. Hún minnir kannski einna mest á táningastelpu, svo ósamkvæm er hún sjálfri sér — hlutar hennar fullorðnir og þrosk- aðir, aðrir í örri mótun og þróun ogennþá börn. Ef líkingin er teygð lengra, þá má líka segja, að hún sé bólugrafin hér og hvar og með hreint alveg átakanlega tilhneig- ingu til offitu. Hún er líka daður- gjörn — lítið bara á, hvað hún gefur þeim gróflega undir fótinn, strákunum í Kópavogi og Hafnar- firði — fer eflaust að „vera með“ þeim fyrr en varir og kannski verður hjónaband úr á endanum. En þá verða þær nú kannski horfnar, bólurnar í Beiðholtinu. Offitan er verri viðfangs — Reykjavík blessunin er orðin svo umfangsmikil að varla verður Við getum nú til að byrja með hætt að halla okkur afturábak í stólnum og kvarta. Reynt að koma einhverju í framkvæmd sjálf, ein- hverju því, sem við viljum að sé gert fyrir okkur og okkar, í stað þess að bíða eftir því, að einhverj- um öðrum detti í hug að færa okkur það á silfurbakka. Ef við getum það ekki ein — nú, þá eru áreiðanlega fjölmargir aðrir hver í sínu horni einhversstaðar, sem hefur dottið eitthvað svipað í hug, en hugsa líka sem svo, að þeir geti ekkert gert á eigin spýtur. Sköpum líf, þar sem við viljum hafa líf. Gróðursetjum þar sem grænt get- ur þrifist. • Skortir heiðarleika og sjálfsgagnrýni Ernir Snorrason rithöfundur nefndi erindi sitt hugmyndafræði og borgarskipulag. Leitaðist við að tengja hugtökin hugmyndafræði, borgarskipulag og umhverfi og leiða rök að því að þessi þrjú hugtök væru nátengd. Hann lauk erindi sínu með þessum orðum: Þar sem verið er að vinna að borgarskipulagi, er verið að skipu- leggja persónulegt rými og um- hverfi einstaklinga. Upp á síðkast- ið hefur þetta starf verið unnið af svokölluðum „sérfræðingum" í borgarskipulagi. I framhaldi af því er borgurunum talin trú um að einhver innri eða ytri nauðsyn ieiði þetta eða hitt skipulagið af sér. Ekkert er meira villandi. Raunverulegir möguleikar á því að raða húsum og gera götur á auðu svæðin eru nánast ótakmarkaðir. tal um frelsi og lýðræði hjómið eitt. Tii að umræða geti hafist þarf að vera fyrir hendi heiðarleiki og sjálfsgagnrýni, sem Islendinga skortir í ríkum mæli. • Markmið ferðamála og umhverfismála Ileimir Hannesson hdl. fjallaði um þróun umhverfislöggjafar og alþjóðlegt samstarf. M.a. ræddi hann um ferðamál: Stundum hefur verið sagt að hagsmunir ferðamanna og um- hverfisverndarmanna fari lítt saman — ferðaþjónustan sé einsog hver önnur viðskipti, sem stefni að auknum umsvifum og hagnaði en hirði ekkert um það sem hann selur: umhverfið, hér og þar. Víst má finna dæmi þess og sum nær- tæk, að þeir sem hafa atvinnu af ferðamönnum hafi hugsað meir um skjótfenginn hagnað en góða sambúð manns og umhverfis. En á síðari árum hafa yfirvöld ferða- mála og fleiri stjórnvöld í Evrópu gert sér gleggri grein fyrir því, að ef ferðamál eru illa eða ekki skipulögð, getur af því hlotist langvarandi skaði fyrir umhverfið og náttúruna. Ferðamálaráð Evrópu (ETC) gerðist til dæmis stofnfélagi árið 1963 í samtökum Evrópu Nostra, sem hafa að mark- miði að varðveita menningarlega og náttúrulega arfleifð Evrópu- landa og bæta og fegra umhverfið. I samtökum þessum eru félög bæði lærðra og leikmanna frá 23 Evrópulöndum, svo sem félög bif- reiðaeigenda borgarfélög, félag landverndarmanna og áhugamenn áætlunargerðar af starfsmönnum hagdeildar Framkvæmdabanka Is- lands með aðstoð frá Norðmönn- um. Með tilkomu Efnahagsstofn- unar fóru landshlutaáætlanir í nokkuð annan farveg, sem fékk sitt fasta form í áætlanadeild Framkvæmdastofnunar ríkisins. Hún tók til starfa árið 1972. Sama ár tók Byggðasjóður til starfa, en hann hefur verið aðalverkfæri hins opinbera til að hafa áhrif á byggðaþróun í landinu síðan, ásamt áætlununum. Þessi áætlunargerð hófst á brauðfótum og er enn í mótun. I fyrstu var lögð áhersla á gerð áætlana um þróun byggðar og atvinnu í heilum landshlutum þess, kjördæmunum. Til þess að mögulegt sé að gera sér nokkra grein fyrir þróunarþörfum og möguleikum heils landshluta þarf að safna og vinna úr miklu magni af upplýsingum. Með þeim tak- markaða mannafla sem þessi starfsemi hafði yfir að ráða komst áætlunargerðin ekki mikið lengra en á söfnunarstigið. Utlánastarf- semi Framkvæmdastofnunar gegnum Byggðasjóð þróaðist því með mjög lauslegri hliðsjón af þeim upplýsingum, sem þá var komið á framfæri. Með tilkomu byggðadeildar Framkvæmdastofn- unar urðu engar stökkbreytingar á starfseminni. Frá þeim tíma hafa vinnubrögð þó þróast nokkuð. Þannig hafa þau landsvæði, sem tekin hafa verið til áætlunargerð- ar, orðið verulega minni en áður var. Sem dæmi má nefna Rangár- vallasýslu eða Vestmannaeyjar. Samskipti við heimamenn eru veigamikill þáttur áætlunargerð- arinnar. Þess vegna hefur lang- mestur hluti starfseminnar verið framkvæmdur af starfsmönnum byggðadeildar. Áður var veruleg vinna aðkeypt við áætlunargerð- ina. in skall á hættu eriendir togarar að veiða á íslandsmiðum, veiðar íslenskra skipa jukust og verðlag á útfluttum fiski hækkaði gífurlega. Þannig bötnuðu viðskiptakjör þjóðarinnar um tæp 40% á tveim- ur árum frá 1939 til 1941. Jafn- hliða þessu kom ný atvinnugrein til skjalanna, Bretavinnan. Við þessar framfarir sem voru að mestu leyti bundnar við Reykjavík og stærstu kaupstaði landsins risu upp atvinnufyrirtæki fyrir fjölda fólks, sem þá bjó í þéttsetnum sveitum landsins. Frá 1940 hafa breytingar á búsetu landsmanna verið helstar þær að geysilegur fjöldi fólks hefur flutzt allsstaðar af landinu til þéttbýlisins við Faxaflóa og jafnframt hefur fjöldi fólks flutt úr sveitum í nálæg þorp og bæi um allt land. Þannig fjölg- aði íbúum Reykjavíkur og í Reykjaneskjördæmi úr 47.460 í 130.573 árið 1976 eða úr 39,1% af íbúum landsins í 59,2% af íbúum landsins. Jafnframt fækkaði í sveitum á sama tíma úr 33,0% í 12,3% þjóðarinnar. Ofangreindar breytingar á búsetunni má skýra nánar með samspili nokkurra þátta. Síðan gerði Sigfús grein fyrir þeim. • Umhverfismála- fræðin ný fræðigrein Erindi Bjarna Reynarssonar um manninn í borgarhverfi sam- anstað mikið af myndum og línu- ritum, sem ekki verður gerð grein fyrir hér. í upphafi ræddi hann um nýja fræðigrein, sem mikill vöxtur er hlaupinn í, umhverfissálar- fræði. Hann sagði m.a.: Rætur hugmynda og hugtaka um tengsl mannsins við umhverfið ná langt aftur í aldir, en aðalhvat- inn að þessum nýja áhuga er aukin Macnea J. Matthtadóttir Ernir Snorrason Heimir Hannesson Sigurður GuAmundsson Sigiús JónHHon Bjarni Reynarason aftur snúið úr þessu, þrátt fyrir hugsanlega stranga megrunar- kúra. En það situr ekki á okkur uppal- endum hennar að vera gagnrýnin og leiðinleg og skilningslausir foreldrar. Því auðvitað erum við foreldrar hennar. Án okkar hefði hún ekkert líf, ekki satt. Væri bara draugaborg með dauðar götur og auð hús. Einn allsherjar rusla- bingur. Það er okkur að kenna, ef hún dóttir okkar getur ekki lynt við fólk eða það ekki við hana. Við verðum að sjá til þess, að það komi ekki til. Hvers konar fólk er þetta svo, sem hún þarf að lynda við. Jú, því ætti að vera auðsvarað. Það erum nefnilega þú og ég, konan á móti og maðurinn uppi, krakkastóðið á róló og táningarnir á Halló, morgunfúla fólkið allt í strætó og ótalmargir aðrir. Og hvað getum við svo gert, til að skapa okkur gott umhverfi? Til að finna fyrir alvöru, að þetta er borgin okkar og við fólkið hennar? Að eitthvert ákveðið skipulag verði ofan á helgast einvörðungu af hugsunarhætti þeirra, sem skipuleggja það. Þessi hugsunar- háttur er oftast ósjálfráður eða óvitaður af skipuleggjandanum. Ekki síst þar, sem markmið skipu- lagsins er ekki skilgreint með eðli málsins í huga: þ.e. því sem skiptir máli fyrir hugmyndafræði skipu- leggjandans. Komandi kynslóðir Reykvík- inga, sem fluttir verða upp að Korpúlfsstöðum og búa þá í þýsku eða dönsku úthverfi, verður ef til vill einhvern tíma ljós hugmynda- fræði þeirra sem skipulögðu Breið- holtið. En þá verður það orðið um seinan, því að heii kynslóð Islend- inga hefur gert að sínu þröngt og ljótt umhverfi, sem þeir áttu engan þátt í á móta. Slíkt er afleiðing þess að gleyma vegna hroka, sljóleika eða metnaðar að skilgreina markmið og forsendur umhverfismótunar. Án skil- greindra markmiða, skýrrar vit- undar um hugmyndafræði, er allt um fornar minjar, svo og hin ýmsu ferðamálafélög, opinber jafnt sem önnur, og mörg fleiri — sem samtals telja tugi milljóna félags- manna. Því má segja að þeir sem hafa ferðamál með höndum vinni nú hönd í hönd með þeim, sem hafa umhverfismál og varðveislu menningarverðmæta efst á stefnu- skrá sinni: markmiðin eru orðin að hluta hin sömu. • Áætlanagerð vegna byggðaþróunar Sigurður Guðmundsson skipulagsfræðingur fjallaði um skipulag og áætlanagerð. Um áætlanagerð af þeim toga sem nefnd hefur verið byggðaáætlanir, sagði hann m.a.: Slík áætlunargerð á rætur sínar að rekja til aðgerða ríkisvaldsins til viðnáms þeirri búseturöskun sem átt hefur sér stað hér á landi meirihluta þessarar aldar. í upp- hafi voru Vestfirðir teknir til • Viðskiptakjörin bötnuðu um 40% á 2 árum Sigfús Jónsson landfræðingur talaði um búsetuþróun frá 1940 og þær stórfelldu breytingar, sem hafa orðið á búsetu í landinu síðustu áratugi. Samtímis mestu fólksfjölgun í sögu landsins hefur fólk flutt úr sveitum í þorp og bæi, samfara breyttum atvinnuháttum þjóðarinnar, eins og hann sagði. Kom m.a. fram í erindi hans: Fram til 1940 byggðust þorp og bæir utan Reykjavíkur aðallega upp vegna framfara í sjávarútvegi, en einnig að einhverju leyti vegna aukinnar verzlunar. Á árunum 1930 og 1940 varð kreppuástand í íslenzkum sjávarútvegi, sem þá var undirstaða atvinnulífs í þétt- býli. Án efa dró það mjög úr flutningum fólks úr sveitum í þorp og bæi, þar sem aðdráttaraflið vantaði. Um leið og heimsstyrjöld- þekking á atferli mannsins, sér- staklega frá sálarfræði, og eins hið „ónáttúrulega" umhverfi manna í stórborgum nútímans. Ekki er það síður mikilvægt í sambandi við hinn aukna áhuga á þessum fræð- um, að umhverfisfræðingar telja að þekking á athöfnum manna og tengslum þeirra við umhverfi sitt sé nauðsynleg undirstaða fyrir vel heppnaðri hönnun borga og um- hverfi mannsins yfirleitt. Hin nýja umhverfisfræði tilheyrir ekki neinni einni grein hugvísinda, heldur hafa fræðimenn í ölium fræðigreinum er fást við að skýra athafnir mannsins, lagt sitt af mörkum, þ.e. arkitektar, félags- fræðingar, landfræðingar, mann- fræðingar, sagnfræðingar, sál- fræðingar og skipulagsfræðingar. • Tekur tíma að koma heim Þorvaldur S. Þorvaldsson arkitekt ræddi fegurð, smekk og arkitektúr. Hann sagði m.a.:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.