Morgunblaðið - 07.04.1979, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 07.04.1979, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1979 27 Tónmenntaskóli Reykjavíkur: Tvö íslenzk tónverk frum- flutt íHáskólabíói í dag Opin fyrir nýjungum — segir Atli Heimir TÓNMENNTASKÓLI Reykjavíkur heldur nemendahljómleika í Iláskólabíói í dag. Á efnisskránni eru tvö ný verk, sem sérstaklega voru samin fyrir skólann. og eru þau eftir Átla Heimi Sveinsson og Þorkel Sigurbjörnsson. Auk þess eru á efnisskránni verk eftir Haydn, Smetana og Strauss. I skólahljómsveit Tónmenntaskólans eru 45 hljóðfæraleikarar. en þar að auki er starfandi í skólanum 30 manna lúðrasveit undir stjórn Sæbjörns Jónssonar. Stjórnandi skólahljómsveitarinnar er Gígja Jóhannsdóttir. Tónleikarnir hefjast k!. 14, og er aðgangur ókeypis og öllum heimill. — Þetta er lítil sinfónía, sagði Atli Heimir Sveinsson tónskáld þegar við spurðum hann um hljómsveitarverk hans, sem frumflutt verður á tónleik- unum í Háskólabíói í dag. — Ég hef æft verkið með skólahljóm- sveitinni og hafði ekki síður gaman af að vinna þannig í beinu sambandi við krakkana en að skrifa verkið. Á sínum tíma óskaði Stefán Edelstein eftir því að verkið yrði í nútímalegum stíl, þannig að nemendur skól- ans kynntust honum af eigin raun með því að glíma við verkefni, sem væri á þeirra færi. Kannski er ég ekki rétti maður- inn til að dæma um áranguririn af þessu starfi, en mér finnst það hafa gengið fyrirtaks vel, enda er þetta myndarhljóm- sveit: Þetta er rétt eins og að vinna með venjulegri hljóm- sveit, það er stigsmunur á því sem ráðizt er í en ekki eðlismun- ur því að auðvitað er ekki hægt að ætla svo ungu fólki verkefni á borð við þau sem hljómsveitir reyndra atvinnumanna færast í fang. Mér fannst afskaplega gaman að fylgjast með því hvað krakkarnir tóku vel við sér. Það stóð þeim greinilega ekki fyrir þrifum að þetta verk er að forminu til frábrugðið því, sem þau hafa aðallega fengizt við. Þeim þótti þetta greinilega nýstárlegt, og kannski er það nú einmitt það skemmtilegasta við börn, að þau eru svo opin fyrir nýjungum, sagði Atli Heimir. Atli Heimir Þorkell Sigurbjörnsson: Gígiuleikur sam- inn fyrir Gígju — Þetta verk er skrifað fyrir Gígju Jóhannsdóttur og strengjasveitina hennar, og heitir þess vegna Gígjuleikur, sagði Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld þegar við.báðum hann að segja frá verki sínu sem hljómsveit Tónmennta- skólans frumflytur í dag. — Þetta er stutt verk, sem skiptist í marga smákafla og litlar melódíur. Ég hef dundað mér við það áður að semja tónlistarverk fyrir börn, og hef ákaflega gaman af því. Gígja hefur alveg séð um að æfa verkið, — ég ákvað að láta henni og hljómsveitinni eftir allar áhyggjur í því sambandi eftir að ég hafði gengið frá mínu, og er ekki í vafa um að í sameiningu gera þau verkinu góð skil. Þorkell Sigurbjörnsson. Stefán Edelstein: Áherzluatriði að nemendur séu virkir í öllum þáttum námsins Skólahljómsveitin hefur að undanförnu æft af kappi undir stjórn GígjuJóhannsdóttur.en myndirnar voru teknar á æfingu fyrir nokkrum dögum. (Ljósm. Kristján) — AÐ nemendurnir séu sem allra virkastir í náminu, — það er kjarni þeirrar fræðslu, sem hér fer fram, sagði Stefán Edelstein, skólastjóri Tón- menntaskóla Reykjavíkur, þegar við ræddum við hann um tónlistarmenntun og starfsemi skólans nú í vikunni. — Tón- leikar á borð við þá, sem við ætlum að halda í Háskólabíói, eru að okkar mati mikilvægur liður í starfseminni og þeirri alhliða tónlistariðkun, sem hér á sér stað. — Hér í skólanum er veitt fræðsla, sem segja má að sé þríþætt. Við viljum ekki mata nemendurna, — teljum að slíkar kennsluaðferðir þjóni hvorki tilgangi né skili þeim árangri sem æskilegt er að ná. I staðinn er lögð megináherzla á, að nemendurnir séu virkir þátttak- endur í því að flytja tónlist, hlusta á tónlist og semja tónlist. í virkri hlustun felst til dæmis, að jafnframt því að hlusta á margvíslega tónlist eru nemendurnir þjálfaðir í því að greina hana og gagnrýna. Slík vinna fer eingöngu fram í hóp- um og sama er að segja um sköpunarþáttinn. Auk þess að semja lög tjá börnin sig með því að túlka texta, atburði og hugar- ástand með látbragði, söng og tónlist. Markmiðið með þessu er að hver nemandi kynnist þeirri tónlist, sem við erum að fást við, af eigin raun og frá sem flestum hliðum. í þessu sambandi er hópvinnan ómetanleg. Það gefur auga leið, að meiri vitneskja fæst með því að fá fram mörg sjónarmið og ræða þau en að sitja og skiptast á skoðunum við sjalfan sig, og með þessu móti einbeita nemendur sér betur en þegar þeir glíma við verkefnin upp á eigin spýtur. — Það er engin hætta á að árangurinn verði einhver stöðl- uð hópsál. Bæði eru hóparnir fámennir og samaldir, sem tryggir það að hægt er að veita hverjum nemanda athygli og leiðbeina honum sérstaklega og eins gerir þessi vinnutilhögun kröfur til þess að hver og einn leggi sitt af mörkum. Þannig er hópvinnan í senn hvetjandi og krefjandi. — En hópvinna á ekki alltaf við. Kennsla í hljóðfæraleik fer að mestu leyti fram í einka- tímum, en tilsögn í einkatímum og hópkennslan eru að sjálf- sögðu samverkandi þættir í starfi skólans, hélt Stefán áfram. — Kennsla á hljóðfæri hefst ekki fyrr en nemandinn hefur fengið undirbúnings- fræðslu í svokölluðum forskóla, því að við teljum mikilvægt að 'börnin fái ráðrúm til að átta sig og öðlast grundvallarþekkingu áður en þau velja sér ákveðið hljóðfæri til að leika á. Það er síður en svo gefið mál hvaða hljóðfæri er ákjósanlegast í hverju tilviki, enda eru börnin flest svo ung þegar þau koma hingað að þau valda ekki flókn- um og viðkvæmum tækjum eins og hljóðfærum til að leika á þau. Þau þurfa að byrja á því að kynnast og þjálfast í ýmsum öðrum þáttum tónlistar áður en þau geta farið að leika á hljóð- Stefán Edelstein færin í bókstaflegri merkingu. Það, sem boðið er upp á í Tónmenntaskólanum, er auðvitað allt annað en það sem var algilt að heita má fyrir tiltölulega fáum árum, þegar barn var einfaldlega sent í spilatíma og byrjaði strax að reyna við sjálft hljóðfærið. Stefán Edelstein var spurður álits á almennri tónlist- arfræðslu í grunnskólum, og sagði: — Ef vel ætti að vera þyrfti að leggja miklu meiri áherzlu á tónlistarfræðslu í almennum skólum, en á þessu sviði miðar tvímælalaust í rétta átt þótt hægt fari. Tónlistarfræðslu þarf auðvitað að skipuleggja eins og allt annað, og ég er þeirrar skoðunar að þeim málum sé vel borgið. Þótt sá tími, sem ætlaður er til tónmennta í grunnskóla, þyrfti að vera meiri en nú er, þá hefur hann verið lengdur, og það er mikils um vert, að í þessum málum miðar fram á við, þótt mikið vanti á að allir séu ánægðir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.