Morgunblaðið - 07.04.1979, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1979
Akureyrarhlaupið:
Hnnjótn keppni
um fyrsta sætið
Víðavangshlaup Akureyrar fór
fram um síðustu helgi og tók
fjöldi keppenda þátt í hlaupinu,
þ. á m. margir af sterkustu
hlaupurum landsins. Iílaupið
hófst og endaði á íþróttasvæði KA
við Lundsskóla. Fremur hvasst
var og kalt þegar hlaupið fór
fram. Keppnin var þó hörð og
skemmtileg í öllum flokkum.
Einkum var hörð keppni um
fyrsta sætið í karlaflokki, en
dómarar treystu sér ekki til að
Sigurður P. Sigmundsson, FH.
Sigurður háði harða baráttu við
Ágúst Þorsteinsson, UMSB í
Akureyrarhlaupinu á dögunum.
Sigurður stundar nám við
Edinborgarháskóla í Skotlandi,
en dvelur hérlendis í páskafríi
um þessar mundir.
úrskurða einn sigurvegara og
þeir Ágúst Þorsteinsson UMSB
og Sigurður P. Sigmundsson
dæmdir hnífjafnir. Er það í
fyrsta sinn í vetur sem hlaupari
skákar Ágústi í víðavangs-
hlaupunum, en hann hefur verið
algjörlega ósigrandi.
Vel var vandað til þessa hlaups,
den það fór fram undir röggri
stjórn Haraldar Sigurðssonar og
Garðars Ingjaldssonar sem lagði
brautirnar. Bókabúð Jónasar gaf
veglega bikara fyrir sveita-
keppnirnar og gullsmiðirnir Pétur
og Sigtryggur gáfu alla verðlauna-
peninga. Víðavangshlaup Akur-
eyrar er fyrsta frjálsíþróttamótið
sem fram fer á íþróttasvæði KA.
En lítum þá á úrslitin:
Karlar, vegalengd 4,6 kílómetrar:
1.—2. Sigurður P. Sigmundsson, FH 14:51,8
I. —2. Ágúst Þorsteinsson, UMSB 14:51,8
3. Steindór Tryggvason, KA 15:13,9
4. Mikko Háme, IR 16:09,0
5. Guðmundur Sigurðsson, ÍMA 16:23,0
6. Steindór Helgason, KA 17:11,7
7. Haraldur Bjarnason, ÍMA 17:17,8
8. Árni Jónsson, ÍMA 17:29,2
9. Jónas Clausen, KA 18:21,1
10. Sigurbjöm Tryggvason, KA 19:42,0
II. Friðrik Stefánsson, KA 21:02,8
12. Geir Baldursson, KA 21:02,9
Flokkur 12-14 ára:
1. Halldór Gunnarsson, UMSE 3:05,4
2. örn Traustason, UMSE 3:06,7
3. Arnar Snorrason, UMSE 3:11,9
Flokkur 15—16 ára:
1. Stefán ólafsson, KA 3:19,5
2. Guðmundur Stefánsson, KA 3:23,0
Stúlkur:
1. Inga Júlíusdóttir, UMSE 3:17,5
2. Auður Aðalsteinsd., ÍMA 3:24,0
3. Sigríður Víkingsd., UMSE 3:26,0
Sveit KA sigraði í 3ja manna sveitakeppni
í karlaflokki.
Sveitin hlaut 18 stig, en sveit Menntaskól-
ans á Akureyri hlaut 20 stig.
— ágás.
Víðavangs-
hlaupífí
HIÐ árlega Víðavangshlaup ÍR
fer fram á sumardaginn fyrsta að
venju, eða hinn 19. apríl næst-
komandi. Hlaupið verður þá háð
64. árið í röð.
Víðavangshlaup ÍR verður að
þessu sinni um fjórir kílómetrar,
og hefst sem fyrr í Hljómskála-
garðinum klukkan 14.00 en hlaup-
inu lýkur svo við Alþingishúsið í
Kirkjustraeti eftir að keppendur
hafa lagt að baki hring í Vatns-
mýrinni eins og sl. ár.
Keppt verður um einstaklings-
verðlaun karla og kvenna auk
bikara fyrir sveitakeppnir. í
sveitakeppninni verður keppt í
þriggja, fimm og tíu manna sveit-
um í karlaflokki, þriggja kvenna
sveit, þriggja drengja sveit, elztu
fimm manna sveit og syeit þriggja
manna yfir 30 ára aldri.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast til Guðmundar Þórarins-
sonar eða Ágústar Ásgeirssonar í
síðasta lagi 14. apríl.
-
..
Æm
m
• Þetta er nú reyndar ekki mynd af hollenska landsliðinu, en áhuginn er greinilega ekki minni. Og varla
færu Hollendingar að leika knattspyrnu í vaðstígvélum. Mynd þessi er nokkurra ára gömul og innlend.
Þótt hún sé gömul, er hún táknræn fyrir ástand sumra valla sem verið er að leika á knattspyrnu þessa
dagana.
Boltinn rútiar
um helgina
ygi
bæði í Reykjavík og á Suðurnesjum. I Keflavfk leika heimamenn við
bikarmeistara ÍA og er leikurinn liður í Meistarakeppni KSÍ, sem
Skagamenn unnu einmitt í fyrra. ÍBK er hins vegar það lið sem oftast
hefur unniö keppnina frá því að hún hófst og hafaþeir fullan hug á að
rífa tignina af Skagamönnum. Þeir Einar Ásbjörn og Rúnar
Georgsson eru mættir í slaginn úr hinum erlendu æfingabúðum og
munu leika með ÍBK.
Þá fer fram á Melavellinum einn
leikur í Reykjavíkurmótinu í fót-
bolta. Fer hann fram í dag og hefst
klukkan 14.00. Er það viðureign
KR og Þróttar. Bæði hafa liðin
leikið einn leik í mótinu, Þróttur
tapaði, naumlega fyrir Val og KR
vann Ármann meðlitlum mun. KR
vann mót þetta í fyrra og ætlar sér
slíkt
félögum. Þá nota þjálfarar mót
þessi gjarnan til þess að reyna
nýja unga leikmenn og fá margir
strákar sína fyrstu eldskírn með
meistaraflkokki í mótum þessum.
Þeim leikjum sem lokið er hefur
lyktað þannig:
Reykjavíkurmótið:
Ármann — KR
Þróttur — Valur
Fram — Fylkir
Fvlkir — Víkingur
Meistarakeppmn:
IBK — Haukar
Haukar — IA
Meistarakeppnin
fyrir skpmmu).
1978
1-2
1-2
2-1
1-1
3-0
1- 4
(lauk
2- 3
Auk þess má geta úrslit æfing-
arleiks IBK og Fram. Fram vann
2—0 og sýndi þá mjög strerkan og
góðan leik. gg.
að sjálfsögðu
þessu sinm.
hið sama að
Vorboltinn hefur verið eins og
vænta mátti af revnslu fyrri ára
stórkarlalegur. En pað er fíka ekki
öfundsvert að leika á meira eða
minna óleikhæfum malarvöllum
meðan enn ríkir vetur. Ef vellirnir
eru ekki beinfreðnir, þá eru þeir á
kafi í for og spurning er hvort
knattspyrnuvertiðin eigi að hefj-
ast svona snemma hérlendis. Þrátt
fyrir slæm skilyrði, eru þó vormót
þessi forvitnileg fyrir ýmsar sakir.
T.d. hefur í vetur verið óvenjumik-
ið um flutning leikmanna á milli
félaga og er athyglisvert að sjá
fyrstu leiki þeirra með sínum nýju
Stórleikir
i blakinu
í DAG er stórblakdagur. Úrslita-
leikurinn í bikarkeppni kvenna
fer fram í Ilagaskólanum og hefst
hann klukkan 16.30. Þá draga
saman lið sín íslandsmeistarar
Völsunga frá Húsavik og ÍS.
Reikna má með baráttuleik.
■r i f 8 í 1 r
!\uit\nr.
iiuiiir
Sunderland
i
baud
TomLund
Enska knattspyrnuliðið
Sunderland, sem leikur í 2.
deild og er þar nú í þriðja
sæti, gerði fyrir skömmu
tilboð í Tom Lund, einhvern
snjallasta knattspyrnu-
mann Norðmanna fyrr og
síðar, en Lund leikur með
Lilleström. Engar fjárupp-
hæðir voru nefndar opin-
berlega, en Lund hafði ekki
áhuga og sagði nei takk.
Að loknum leik Völsungs og ÍS
leika síðan karlalið ÍS og UMFL í
undanúrslitunum í bikarkeppninni
og ætti það ekki síður að geta orðið
hörkuleikur. Laugdælir eru ný-
krýndir Islandsmeistarar, frekar
óvænt meira að segja, og stúdent-
ar hafa fullan hug á að sjá um að
UMFL vinni ekki tvöfalt. Sam-
kvæmt mótanefnd blaksambands-
ins á leikurinn að hefjast klukkan
18.00.
Klukkan 14.00 í dag fer einnig
fram hinn leikurinn í undanúrslit-
unum í bikarnum, þá mætast í
Skemmunni á Akureyri UMSE og
Víkingur, en Víkingar tryggðu sér
nýlega 2. deildar titilinn og leika
því í 1. deild næsta vetur.
• Hið sigursæla lið Týs f Vestmannaeyjum, með 3. deildar bikarinn að loknum sfnum sfðasta leik f
deildinni. Týr vann 3. deildina með nokkrum yfirburðum, tapaði ekki leik f mótinu.
Handboltinn hefur verið mjög f sviðsljósinu f Eyjum sfðustu árin, þannig vann Þór sig upp f 3. deild f
fyrra og hafnaði þar í öðru sæti nú. Og nú er Týr kominn f 2. deild og þykir lfklegur til stórræða. Myndina
tók Sigurgeir Jónasson.
Þórsarar
i ströngu
EKKI verður með sanni sagt, að
helgin sé að kafna í handbolta.
Aðeins tveir leikir eru á dagskrá í
1. deild kvenna, enginn leikur í
nokkurri hinna deildanna. Það eru
Þórsstúlkurnar sem leika í báðum
leikjunum, léku einnig í gærkvöldi
við UBK. Strembin helgi það.
I dag leika Þórsarar við FH í
Hafnarfirði og hefst leikurinn
klukkan 17.00. Á morgun leika
Þórsstúlkurnar síðan í Laugard
alshöllinni gegn Val og hefst
leikurinn klukkan 20.00.