Morgunblaðið - 18.04.1979, Síða 5

Morgunblaðið - 18.04.1979, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1979 5 Guðni Hermansen Listahátíð norðursins í Grænlandi: / Tveir Islendingar með málverk og þjóðlagasöng NORRÆN listahátíð verður haldin á Grænlandi í tilefni af heimastjórn Grænlend- inga 1. maí n.k. Listahátíð norðursins í Grænlandi heitir dagskráin og verða þar kynntir listmálarar frá Islandi, Danmörku, Færeyj- um og Grænlandi og vísna- söngvarar frá Danmörku, Noregi, Grænlandi, íslandi, Færeyjum og eskimóa- byggðum Kanada. Þeir listmálarar sem sýna þarna eru Bodil Kálund frá Danmörku, Hans Linge frá Grænlandi, Guðni Hermansen frá íslandi, Zakarías Heinesen frá Færeyjum og einnig grænlenzku málararnir Thue Christiansen, Aka Höegh, Arnaguaq Höegh, Esaja Isaksen og Marianna Jessen. Á þjóðlagatónleikum í Godtháb munu syngja vísnasöngvararnir Birgitte Grimstad frá Noregi, Lars Pele Berthelsen frá Grænlandi, Árni Johnsen frá íslandi, Trille frá Danmörku, Per Berthelsen frá Grænlandi ásamt heimamönnun- um Magdalene Berthelsen, Birthe Olsen og Rasmus Lyberth, sem er kunnastur grænlenzkra þjóðlaga- söngvara. Þá verða einnig tónleik- ar í Holsteinsborg og Sykurtoppn- um með þessum söngvurum. Málverkasýningarnar verða einnig á fleiri stöðum en í Godtháb og þar á meðal eru 13 málverk eftir Guðna Hermansen frá Vest- mannaeyjum, en hann mun fylgja sýningunum í boði listahátíðarinn- ar. Féll milli skips og bryggju Hilmir Bjarnason. LÍK Hilmis Bjarnasonar, Illíðar- vegi 46, Kópavogi, stýrimanns á ólafi Gísla, sem áður hét Goða- nes, fannst í Örfirisey um pásk- ana. en Hilmis hafði verið saknað frá því á föstudag 6. apríl, er hann sást á Lækjartorgi eins og skýrt var frá í Morgunblaðinu á skírdag. Er talið að Hilmir hafi fallið milli skips og bryggju, en skip hans lá við Grandagarð. Hilmir Bjarnason var fæddur 6. desember 1949 og var því tæplega þrítugur og ókvæntur. Skemmdir unnar á sölu skála á Hellissandi BROTIZT var inn í söluskála Oiíufélagsins hf. á Hellissandi í fyrrinótt. Var stolið tóbaki og sælgæti og mikið tjón unnið, m.a. brotnar sex stórar rúður og spjöll unnin á innanstokksmunum og bensfndæiu fyrir utan. Að sögn lögreglunnar í ólafsvík er tjónið áætlað á aðra milljón króna. Lögreglan handtók í gær tvo 16 ára pilta, annar er heimamaður á Hellissandi en hinn gestkomandi, og játuðu þeir að hafa verið þarna á ferð og aðkomupilturinn að hafa brotizt inn en þýfið fannst hjá honum. Pitarnir voru undir áhrif- um áfengis. Húsvíkingar of bœnheitir IlÚHavík. 17. aprfl. LÍTILL snjór hefur verið hér í vetur. Fyrir páskana lögðust menn þvf á bæn og báðu um meiri snjó til að hægt yrði að leika sér á skfðum í páskafrfinu. Mönnum varð meira en nóg af bænum sfnum því að fyrir skírdagshelgarnar snjóaði meira en áður hefur gert í vetur, en jafnframt gerði ófært til Húsavíkur bæði í lofti og á landi svo að páskagestirnir. sem ætluðu að koma á miðvikudag og fimmtudag, komust ekki fyrr en á laugardag. Hótel Húsavfk var fullbókað, en vegna tafarinnar hættu margir við að koma, en þeir sem komu hafa fengjð hér hið bezta veður og skíðafæri og notið kennslu Valdimars Örnólfssonar. Margir, sem ætluðu heim í gær, hættu við það og ætla að dvelja hér fram cftir vikunni. Fréttaritari. Jón Guðbjartsson forstjóri látinn JÓN Guðbjartsson, íor- stjóri fyrirtækisins Kristjáns ó. Skagfjörð, varð bráðkvaddur að morgni annars í páskum 65 ára að aldri. Jón var fæddur 23. október 1913. Jón var sonur hjónanna Guðbjarts Ólafssonar hafn- sögumanns og um skeið for- manns Slysavarnafélags ís- lands og konu hans Ást- bjargar Jónsdóttur. Hann var sjálfmenntaður, hóf fyrst störf við Efnalaug Reykjavíkur, vann síðan um skeið hjá Bifreiðastöð Steindórs, síðan í verzlun- inni Geysi eða þar til hann gerðist sölustjóri hjá 0. Johnson & Kaaber, þar sem hann starfaði í 12 ár. Hinn 1. ágúst 1954 hóf Jón Guð- bjartsson störf hjá Kristjáni Ó. Skagfjörð og undir stjórn hans blómgað- ist hagur fyrirtækisins mjög. Eftirlifandi kona Jóns er Unnur Þórðardóttir og eiga þau tvö börn, Jónínu Guð- rúnu, sem starfar við fyrir- tæki föður síns, og Stein lækni. Sauðárkróki, 17. aprfl. HÉR ER bezta veður, reglulegt vor í lofti og menn vona að nú sé veturinn loks fluttur í fjöll. Með sumarkomunni fáum við hingað góðan gest, Rögnvald Sigurjóns- son píanóleikara, sem heldur tónleika í Safnahúsinu á sumar- daginn fyrsta klukkan 20:30 á vegum tónlistarskólans og tón- listarfélagsins á Sauðárkróki. Sama dag verða kvenfélagskonur með kaffisölu í Bifröst. Kári. Jón Guðbjartsson. Tónleikar á Sauðárkróki Austursti'cUti 10 'simi: 27211 Herrafatnaöur í sérflokki ★ Ein- og tvíhneppt föt ★ meö- og án vestis ★ Terelyne- og Tweed ullarefni Verð frá 56.200 ★ Skyrtur frá kr. 3.750 ★ Bindi Jl&lllPÍ frá kr. 1.995 ★ Treflar frá 1.950

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.