Morgunblaðið - 18.04.1979, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1979
Matthías Bjarnason um mógrafir stjórnarliðsins:
„Einn mokar upp á bakk-
ann - annar ofan í aftur”
Þegar þingflokkur Alþgðuflokksins missti málið
HÉR FARA á eftir örfá
efnisatriði úr ræðu Matth-
íasar Bjarnasonar, 1. þm.
Vestfirðinga, við síðustu
umræðu um efnahagsfrum-
varp forsætisráðherra, en
umræður um frv. í neðri
deild Alþingis vóru all-
harðar á köflum og krydd-
aðar bæði glettni og bar-
áttugleði.
Mógrafir
stjórnarliösins
Ólafur Jóhannesson, forsætis-
ráðherra, sagði, að andstaða sjálf-
stæðismanna við efnahagsfrum-
varpið hefði ekki verið hörð. Þessi
niðurstaða er e.t.v. skiljanleg í
munni forsætisráðherra, sem setið
hefur undir hávaðaroki og rifrildi
um þetta frumvarp á stjórnar-
heimilinu mánuðum saman. Mál-
efnaleg gagnrýni stjórnarandstöðu
er honum önnur í eyrum en sam-
búðarsöngur samstarfsflokkanna.
Eg get einnig tekið undir þá
áskorun okkar ágæta forseta, Gils
Guðmundssonar, þegar hann skor-
aði á stjórnarliða að koma upp úr
mógröfum efnahagsmálanna og
fara að sinna vorverkunum. Vinn-
an í mógröfum stjórnarliðsins
hefur verið með þeim hætti, að það
sem einn flokkurinn hefur kastað
upp á bakkann, hefur hann fengið
í hausinn aftur frá samstarfsaðila.
Þeir eru því nokkuð subbulegir
útlits stjórnarliðar þegar okkar
varfærni forseti hvetur þá til að
binda enda á svoddan móverk.
Sigurvegarar í skjóli
hins sigraöa
Sigurvegarar síðustu kosninga,
Alþýðuflokkur og Alþýðubanda-
lag, gátu hvorugur unað hinum
forystu í ríkisstjórn. Þess vegna
leituðu þeir til formanns Fram-
sóknarflokksins, sem minnstur
kom út úr kosningunum. Hann var
beðinn að vera húsbóndi á stjórn-
arheimilinu, svo skemmtilegt hlut-
verk sem það hefr nú verið honum.
„Verkalýðsleiðtogi" Alþýðu-
flokksins, maðurinn sem kemur
við í pylsuvagninum þegar hann er
búinn að snæða á Borginni, hélt
því fram hér áðan, að fiskiskipa-
stóllinn hafi verið kominn í rekstr-
arlega stöðvun þegar hann var
kjörinn á þing. Sannleikur málsins
er hins vegar sá, að rekstrarhorfur
fiskiskipa, á heildina litið, hafa
ekki um langt árabil verið betri en
á sl. hausti. Hitt er rétt, að
fiskvinnslan stóð höllum fæti. Það
átti fyrst og fremst rætur í þeim
I j
FLÓKAGÖTU1
SÍMI24647
Einbýlishús
í Hafnarfiröi. 6 herb. Auk þess
er í húsinu einstaklingsíbúð.
Ræktuð lóð.
Einbýlishús
3ja herb. í vesturbænum, sem
þarfnast standsetningar. Laust
strax.
Viö Miöbæinn
4ra herb. nýleg íbúð á 3. hæð í
steinhúsi. (Efsta hæð). 3 svefn-
herbergi, suðursvalir.
Borgarholtsbraut
4ra herb. nýleg og vönduð
jarðhæð. Sér hiti. Sér inngang-
ur. Ræktuð lóö.
Helgi Olafsson,
löggiltur fasteignasali,
kvöldsími 21155.
á 2. hæö viö Njálsgötu. Laus
strax. Verð 3 milj.
Hraunbær
2ja herb. falleg íbúö á 2. hæö
viö Hraunbæ. Suöursvalir. Laus
1. sept.
3ja herb. m. bílskúr
3ja herb. falleg og rúmgóð íbúö
á 1. hæð viö Æsufell. Bílskúr
fylgir.
Sérhæö
4ra herb. falleg íbúð á 1. hæð á
Högunum. 110fm. Sérinngang-
ur. Sérhiti. Bílskúr.
Selásblettur
ca. 130 fm. íbúðarhús meö
bílskúr og miklum útihúsum og
hálfum hektara lands.
Skipti
óvenju falleg og vönduö 4ra
herb. íbúð í Kópavogi í skiptum
fyrir stærri eign með 4—5
svefnherbergjum og bílskúr
eða bílskúrsrétti.
Seljendur athugiö
Höfum fjársterka kaupendur að
2ja — 6 herb. íbúöum, sérhæð-
um, raðhúsum og einbýlishús-
um. í mörgum tilfellum getur
verið um makaskipti að ræöa.
Mátflutnings &
L fasteignastofa t
Lignar fiústafsson, hrl.i
I Hatnarslrætl 111
B Símar 12600. 21750 Æ
Utan skrifstofutíma
B —41028 M
„skemmdarverkum í þjóðfélaginu
á sl. vori og sumri", sem „sjálf-
skipaðir landsfeður unnu“. Það
vóru mennirnir, sem börðust fyrir
„samningum í gildi", eins og það
var kallað, stöðvuðu útflutning
landsmanna og börðust gegn lög-
gjöf, sem þá var sett til að hamla
gegn verðbólgu og tryggja at-
vinnuöryggi. Verðbólgan komst
niður í 25% um mitt ár 1977, áður
en „árangur" af baráttu núv.
stjórnarflokka tveggja hitaði
undir henni á ný. Nú telja þeir
höfuðverkefni sitt, þegar þeir
mega vera að líta upp úr innbyrðis
baráttu, að kveða niður þann
dýrtíðardraug, er þeir sjálfir vöktu
upp.
Lögfesting 40%
veröbólgu
Það virðist ætlun þessara „bar-
áttumanna" að lögfesta 35—40%
AÐALFUNDUR Sparisjóðs vél-
stjóra var haldinn fyrir nokkru
og í skýrslu Jóns Júlíussonar
formanns stjórnar er hann
flutti á fundinum kom fram, að
rekstur hefði gengið vel á sl.
ári, umsvif vaxið ört og nýjum
viðskiptavinum farið fjölgandi.
Mætti rekja vöxt hans m.a. til
Hafnarfjörður
til sölu m.a.
Víöihvammur
120 ferm. íbúð ásamt bílskúr,
tilboð óskast.
Suöurgata
5 herb. íbúö í skemmtilegu
timburhúsi sem er í mjög góðu
ástandi. Bílskúr fylgir.
Hrafnkell Ásgeirsson, hrl.,
Austurgötu 4, Hafnarfirði,
sfmi 50318.
verðbólgu í ár. Það hlýtur að
hryggja einlægan vinstri mann,
eins og Gils Guðmundsson, að
horfa upp á, hvernig að verðbólgu-
viðnámi er staðið með öfugum
klónum. Og nú er ekki einungis
búið að lyfta launaþakinu. Það er
hreinlega fokið af. Það var árang-
ur þess slyss, er vinstri meirihluti
tók völdin í höfuðborginni. Eg vil
ekki taka undir það með hæstvirt-
um forsætisráðherra, að þar hafi
Guðrún Helgadóttir, borgarfull-
trúi, ráðið ein stefnumörkun. Þar
hljóta fieiri að hafa komið við
sögu.
Og sameiginleg er ábyrgð
vinstri flokkanna í þeirri þaklyft-
ingu, sem varð forsendan í dómi
kjaradóms síðar. Og nú koma
þessir blessaðir englar með laga-
frumvarp, hvar stendur, grunn-
kaup þetta skal haldast óbreytt
unz nýir kjarasamningar hafa
verið gerðir. Ákvæði þessara laga
breyta í engu rétt til samninga,
hvorki um grunnlaun né verðbæt-
ur á laun. Og samtímis er staðið í
því að ein „láglaunastéttin", flug-
menn, hækka mánaðarlaun sín um
þetta 50—210 þúsund krónur, eftir
starfsaldri.
Við þessar aðstæður væri rétt að
viðurkenna og segja: Þetta frum-
varp hefur verið svo útþynnt að
það kemur í engu að gagni. Rétt er
að taka það aftur að huga að
marktækari aðgerðum. Stjórnar-
flokkarnir eru í raun allir jafn
hundóánægðir með frv. í þeirri
óánægju náðu karlar saman loks-
ins.
þess, að hann fluttist á árinu í
nýtt húsnæði að Borgartúni 18.
Vaxtatekjur námu 252 m.kr.
og hækkuðu um 132 m.kr. og
námu aðrar tekjur 32,6 m kr. og
hækkuðu um 114% frá fyrra ári.
Rekstrarkostnaður hækkaði um
31 m.kr. eða 73,3%, en rekstrar-
afkoma var góð og var hagnaður
fyrir afskriftir 24 milljónir.
Innstæður námu í árslok 1.367
m.kr. og er aukningin 62,9% frá
fyrra ári og var mest aukning á
vaxtaaukareikningum eða um
146%. Heildarútlán námu í árs-
lok 844 m.kr. og jukust um 66%.
Mestur hluti útlána er í formi
vixla og voru alls 13.000 víxilaf-
greiðslur á árinu, en þeir eru
jafnt og þétt að þoka fyrir
vaxtaaukalánum, er námu í árs-
lok 234 m.kr. og höfðu aukizt frá
fyrra ári um 237 m.kr.
Innstæða sparisjóðsins hjá
Seðlabanka nam kr. 417 milljón-
um og jókst frá fyrra ári um 183
m.kr. Lausafjárstaðan var góð
þrátt fyrir mikla útlánaaukn-
ingu.
Stjórn sparisjóðsins skipa Jón
Júlíusson formaður, Jón Hjalte-
sted og Emanúel Morthens.
Sparisjóðsstjóri er Hallgrímur
G. Jónsson.
(Úr fréttatilk).
Siglufjörður
Til sölu fokhelt einbýlishús með tvöföldum bílskúr á
góöum staö á Siglufirði.
Hugsanleg skipti á íbúö á Reykjavíkursvæðinu.
Uppl. í síma 76203 (R-vík) eöa í síma 96-71405
(Sigluf.).
Tilkynning
um lóðahreinsun í
Reykjavík, vorið 1979
Samkvæmt ákvæðum heilbrigöisreglu-
geröar, er lóöaeigendum skylt aö halda
lóöum sínum hreinum og þrifalegum og
aö sjá um aö lok séu á sorpílátum.
Umráöamenn lóöa eru hér meö minntir á
aö flytja nú þegar brott af lóðum sínum
allt sem veldur óþrifnaði og óprýöi og
hafa lokiö því eigi síöar en 14. maí n.k.
Aö þessum fresti liönum veröa lóöirnar
skoöaöar og þar sem hreinsun er ábóta-
vant veröur hún framkvæmd á kostnaö
og ábyrgö húseigenda, án frekari viö-
vörunar.
Þeir sem kynnu aö óska eftir sorptunnum
og lokum, hreinsun, eöa brottflutningi á
rusli, á sinn kostnað, tilkynni þaö í síma
18000 eöa 13210.
Úrgang og rusl skal flytja á sorphauga viö
Gufunes á þeim tíma sem hér segir:
Alla virka daga frá kl. 8.00—21.00
Á helgidögum frá kl. 10.00—18.00
Rusl sem flutt er á sorphauga skal vera í
umbúðum eöa bundiö. Ekki má kveikja í
rusli á sorphaugunum og hafa ber samráö
við starfsmennina um losun.
Sérstök athygli skal vakin á því, aö
óheimilt er aö flytja úrgang á aöra staöi í
borgarlandinu. Veröa þeir látnir sæta
ábyrgö sem gerast brotlegir í því efni.
Gatnamálastjórinn í Reykjavík.
HreinsunardeUd.
Aðalfundur Sparisjóðs vélstjóra:
Innstæðuaukning frá
fyrra ári varð um 70%