Morgunblaðið - 18.04.1979, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1979 \ 3
Sjö stelpur — Frá vinstri: Ásta, Inga, Jóhanna, Þórný,
Ingibjörg, Kristín og Guðný.
Sjö stelpur
í Garðinum
Garði 11. apríl
LITLA leikfélagið frum-
sýndi sl. sunnudag leikritið
Sjö stelpur við mög góðar
undirtektir gesta sem troð-
fylltu samkomuhúsið.
Þótti sýningin takast
með ágætum og voru
leikarar og leikstjóri hyllt-
ir í leikslok. Voru leik-
stjóranum Sigmundi Erni
Arngrímssyni færð blóm og
páskaegg.
Mörg stór hlutverk eru í
leiknum en tvö stærstu
hlutverkin eru í höndum
Ástu Magnúsdóttur og
Ingu Stefánsdóttur. Aðrir
leikarar eru: Kristín
Eyjólfsdóttir, Ingibjörg
Eyjólfsdóttir, Þórný
Jóhannsdóttir, Jóhanna
Helgadóttir, Guðný H.
Jóhannsdóttir, Sigfús Dýr-
fjörð, Guðrún Steinþórs-
dóttir, Sigurjón Kristjáns-
son, Þórarinn Eyfjörð og
Hólmberg Magnússon.
Þetta er þriðja verk Litla
leikfélagsins í vetur og er
starf félagsins í miklum
blóma.
Leikritið Sjö stelpur er
nokkuð langt og stendur
sýningin í tæpa tvo og
hálfa klukkustund.
Fréttaritari.
Ásta Magnúsdóttir í
hlutverki Barböru
Nilson.
dagurinn
fyrsti
ÁRBÆJARSÓKN
Fermingarmessa í safnaðar-
heimilinu kl. 11 árd. Séra
Guðmundur Þorsteinsson.
FELLA- OG HÓLASÓKN:
Fermingarmessur í Bústaða-
kirkju kl. 11 árd. og ki. 2. síðd.
Séra Hreinn Hjartarson.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Sumarfagnaður kl. 20.30. Að
samkomu lokinni veitingar sem
Heimilissambandssystur taka
þátt í.
GARÐAKIRKJA:
Skátaguðsþjónusta kl. 11 árd.
Séra Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐASÓKN:
Fermingarmessa í kapellunni í
Hrafnistu kl. 10 árd.
Fermingarmessa í Hafnar-
fjarðarkirkju kl. 14. Séra
Sigurður H. Guðmundsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA:
Skátaguðsþjónusta kl. 11 árd.
Frú Jóhanna Kristinsdóttir
talar. Skátar aðstoða. Sóknar-
prestur.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Kirkjuvígsla kl. 14. Biskup ís-
lands, hr. Sigurbjörn Einars-
son, vígir kirkjuna og flytur
vígsluræðu. Vígluvottar sr.
Björn Jónsson, Friðrik
Valdimarsson, Birna Gísla-
dóttir og sr. Bragi Friðriksson.
Séra Ólafur Oddur Jónsson.
FRONSK
VIKA
á la Francaise
17-25 APRÍL 1979
Prentvillur
í páskablaði
í VIÐTALI við Astrid S. Hannes-
son í páskablaði urðu þrjár prent-
villur. Svo sem sjá má á um-
mælum í textanum átti að standa í
millifyrirsögn: Nú opnað fyrir
Kóka-kóla, svo fyrir Jesúítum
(ekki Jesú). Þá hafði Astrid S.
Hannesson verið forstöðukona á
Hrafnistu í 13 ár — ekki 15. Og
loks var ruglingur í síðustu
setningunni. Átti að standa: Það
er gott að eldast, þegar maður
finnur að enn er tekið við á
hverjum degi! Ekki „talað við,“
eins og stendur í blaðinu.
Kvikmyndir í Regnboganum
Bílasýning og Vórukynning
í Sýningahöllinni
Frönsk matreiósla
Franskir listamenn
Frönsk feróakynning
á Hótel LoftleiÓir