Morgunblaðið - 18.04.1979, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1979
17
Opið bréf til blaðst jórn-
ar og ritstjórnar Mbl.
Löngum hefur verið talið óskyn-
samlegt að svara nafnlausum
skrifum manna, enda ætla ég ekki
beint að gera það í þessu skrifi
mínu til ykkar háu herrar. Hins
vegar hefur nú birzt í blaði ykkar
nafnlaus grein, sem tekið er fram
að birt sé í nafni blaðsins, og er
með þeim endemum, að ég má til
að koma á framfæri við ykkur
nokkrum athugasemdum. Þarna á
ég við greinina kirkjuritið og
Kohmeini í blaði ykkar þann 10.
apríl síðastliðinn.
I þessari grein er ráðist að
mannorði eins manns, sr.
Guðmundar Óla Ólafssonar, af
þvílíkri dómsýki og subbuskap að
það dæmir sig sjálft, hlýtur óhjá-
í dymbilviku birtist næsta
óvenjuleg forustugrein í Morgun-
blaðinu. Hún var óvenjuleg fyrir
illmæli, sem þar er að finna.
Tilefnið er öllum þeim kunnugt,
er lesið hafa endurprentun
Morgunblaðsins á kafla úr „Orða-
belg“ Kirkjuritsins (3/1978). Var
efni þessa kafla langt frá því að
vera með þeim hætti, að rétt-
lætanleg séu svo óskynsamleg og
öfgafull viðbrögð höfundar og
forustugreinarinnar. Einhvers
staðar annars staðar hlýtur fiskur
að liggja undir steini.
Það nær ekki nokkurri átt að
segja, að Kirkjuritið liggi hund-
flatt fyrir málgagni kommúnista,
Þjóðviljanum, vegna þess að nefnt
var „trúmálaafturhald", sem
trónaði á fremstu síðum Morgun-
blaðsins, en Árni Bergmann talin
viðræðuhæfur um mál er varða
kirkju og kristni.
Sem betur fer eru fleiri ritstjór-
ar viðræðuhæfir. Ég nefni þar til
Árna Gunnarsson fyrrum ritstjóra
Alþýðublaðsins og Jón Sigurðsson
ritstjóra Tímans, sem hefur bæði
ritað og flutt erindi, er varða
kristni og kirkju með miklum
ágætum og meta margir hann
mjög mikils fyrir það.
Það hefur ekkert smáræði farið
aflaga í hugsunarhætti manns,
sem getur leyft sér að setja á blað
önnur eins brigzlyrði og í forustu-
grein þessari er að finna. Þar er
ritstjóri Kirkjuritsins lýttur
mörgum löstum og hann sagður
hættulegur kristnihaldi ásamt
sálufélögum sínum. Þeir munu
hvorki landið erfa né nefnast Guðs
synir. Hvaðan kemur þessum
manni vald til slíks dómsáfellis?
Hverjum er ætlað að hlakka yfir
slíkum örlögum? Þetta éru þó
smámunir einir miðað við að líkja
honum við Khomeini og segja, að
hann sé „Khomeini Krikjuritsins",
að Khomeini stjórni „guðlegum
fjaðrapenna Guðmundar Óla“ auk
þess sem guðsmenn Kirkjuritsins
rækti nú ofstækið í anda
Khomeinis.
Getur það verið, að höfundur
þessarar forustugreinar hafi verið
sjálfráður og vitað hvað hann var
að aðhafast með þessari sam-
líkingu? Ég hygg að flestum sé það
ljóst, að ofstæki Khomeinis birtist
í böðulsverkum.
Hver stjórnar „fjaðrapenna"
höfundar? Þessi skrif minna helzt
á fasistaskrif. Markmiðið virðist
að niðurlægja heiðursmann og
traðka á honum. Ég ætla að vart
muni finnast sambærileg dæmi
um níð í rituðu máli á íslandi. svo
er að skilja á ritsmíð þessari, að í
henni birtist afstaða Morgun-
blaðsins til kirkju og kristni. Það
er staðhæfing höfundar hennar.
Skyldi mönnum þá ekki þykja
hann ofdirfskufullur, að telja
Morgunblaðið skjöld kristindóms
á Islandi? Hafi sá skjöldur nokkru
sinni verið í höndum þess, er
kvæmilega fyrirlitningu hvers
heiðarlegs lesanda, og virðist
raunar í fljótu bragði geta varðað
við íslenzk lög. Því ætla ég ekki að
snúast til varnar mannorði séra
Guðmundar, heldur benda á
nokkrar ranghugmyndir sem
hljóta að liggja til grundvallar
slíkum skrifum og kvarta yfir
þessari nafnleynd, sem hlýtur að
skipa blaðinu í hóp slúðurblaða.
Þegar greinin er skoðuð, er ljóst
að í henni felst hrokafull bannfær-
ing á skoðunum sr. Guðmundar
Óla og svonefndra sálufélaga hans.
Menn eru með ógnunum varaðir
við að láta nokkuð slíkt sér um
munn fara. Blað allra landsmanna
hefur sveiflað bannfæringar-
svipunni og við einfaldir þinga-
Arngrímur Jónsson.
forustugreinina reit, þá hefur
hann með vissu kastað honum frá
sér. Það er makalaust að láta sér
detta í hug, hvað þá að staðhæfa,
að Morgunblaðið eða nokkurt
annað blað — geti talist skjöldur
kristindóms á Islandi. Ekki er
vitað til, að kristni á íslandi hafi
verið berskjalda áður en Morgun-
blaðið kom til sögunnar.
Ekki vantar að vitnað sé í
ritninguna og reiðilestur Jóns
biskups Vídalíns. Höfundur
forustugreinar hefði betur heim-
fært slíkar tilvitnanir um vonina,
hógværðina, trúna, náunga-
kærleika, fátækt í anda,
sæluboðanir og „sá, sem er reiður
er vitlaus" til sjálfs sín og hugsað
sig betur um áður en hann lét
þessa stefnuyfirlýsingu Morgun-
blaðsins frá sér fara og hina
fáheyrðu samlíkingu.
Er hægt að vænta þess, að
höfundur téðrar forustugreinar
hafi kjark og drengskap til að taka
orð sín aftur umyrðalaust og biðja
afsökunar á sama vettvangi?
Arngrímur Jónsson.
Skuttogari til
Táiknafjarðar
NÝR 400 tonna skuttogari,
Tálknfirðingur, kom til Tálkna-
fjarðar á laugardaginn. Eigandi
er Hraðfrystihús Tálknafjarðar
hf. og sagði Pétur Þorsteinsson
framkvæmdastjóri þess í samtali
við Morgunblaðið, að togarinn
hefði verið smíðaður f Kristians-
sand í Noregi og er kaupverð
hans 1124 milljónir króna miðað
við núverandi gengi.
Pétur sagði að Tálknfirðingar
hefðu fagnað nýja skipinu með
hófi í samkomuhúsinu á laugar-
dagskvöld. Skipstjóri á Tálknfirð-
ingi er Sölvi Pálsson, stýrimaður
Jón Þorbergsson og 1. vélstjóri
Kristján Friðriksson. Togarinn
átti að halda til veiða í nótt.
prestar eigum að skilja hvað til
okkar friðar heyrir.
Þarna kem ég að fyrrnefndum
ranghugmyndum. Höfundur
greinarinnar virðist halda að allt
kennivald kirkjunnar og beiting
gamals kirkjuaga sé nú komið í
hendur Morgunblaðsins. Ofan á
þetta virðist höfundur álíta sig
hafa náð styrku taki um lykla
himnaríkis, þegar hann skýrlega
gefur í skyn að Guðmundur Óli og
t.d. ég sem sálufélagi hans getum
varla vænzt þess að eiga heimvon
góða í himninum. Islenzkir prestar
eru nú vanir því að vera vændir
um asnaskap og lítið trúmálavit.
Hitt erum við óvanir að heyra að
við eigum fyrir asnaskapinn að
hafna í helvíti. Hvað skyldi svo
þýða yfirlýsingin um að slíkir
menn muni ekki landið erfa. Er í
vændum einhver útlegðardómur
eða eru dagar slikra manna brátt
taldir? Ef til vill meinar höfundur-
inn ekki nákvæmlega þetta, en
hvað meinar líka maður, sem
heldur því fram, að orð Jesú í
fjallræðunni um það að vera
Sigurður Sigurðsson
fátækur í anda þýði það sama og
að vera tómur í kollinum.
Höfundurinn segir að Morgun-
blaðið sé skjöldur kristninnar í
landinu. Um það má sannarlega
segja, að þá girnist þið Morgun-
blaðsmenn fagurt embætti. Hins
vegar vil ég upplýsa það ykkur til
hugarhægðar, að kristnin í land-
inu reiðir sig ekki á neina verald-
lega stofnun sem skjöld sinn og
verju. Kristnin á sinn skjöld og
sitt sverð í Guðs orði og verki
Heilags anda. Til að skilja þessa
fullyrðingu mína gæti verið gott
að lesa sálm Marteins Lúthers:
Vor Guð er borg á bjargi traust.
Það sem höfundur á eflaust við er
að Morgunblaðið hefur um margt
verið jákvæður fjölmiðill gjagnvart
trúarsamfélögum. Sjálfur hefi ég
fengið ágæta fyrirgreið^lu hjá
Morgunblaðinu í sambandi við
starf mitt og vil nú nota tækifærið
til að þakka hana þó að ég verði
jafnframt að gera ykkur ljóst að
ég get ekki farið að tilmælum
greinarhöfundar og goldið þakkar-
skuld mína með skilyrðislausri
hlýðni.
Ég geri mér ljóst að þetta
tilskrif mitt getur orðið til þess að
kalla fram nýtt bannfæringarbréf
og þá fyrir mig sjálfan. Ekkert
kvíði ég því og síðastur manna vil
ég láta banna einum eða neinum
að ausa úr sjóði hjarta síns á
prenti. Hins vegar bið ég ykkur
háu herrar að hugleiða það áður
en þið innsiglið bréfið, hvort ekki
væri rétt að höfundurinn kæmi
undan brekáninu og skrifaði undir.
Ég vil um leið og bréfið berst vita
hvort ég á í höggi við skoðanir eins
manns eða einhverrar kliku, eða
hvort steininum er kastað úr
glerhúsinu sjálfu við Aðalstræti.
Með kærri kveðju.
Sigurður Sigurðsson.
Selfossi.
Skjöldur
kristindómsins
INSTANT
pxj
vinnupallar
Hinir velþekktu Instant ál-vinnupallar voru
fyrst framleiddir áriö 1947 og hafa því veriö
notaöir yfir 30 ár meö góöum árangri.
Instant ál-vinnupallar eru settir saman úr
einingum, sem vega 25 kg hver. Tvær geröir
eru af hjólum er nota má eftir undirlagi.
Samskeyti eru öll kaldpressuö, er gefa
þrisvar sinnum meiri styrkleika en soöin
samskeyti. Engar lausar súlur, skrúfur eöa
rær. Grindin er opin og auöveldar þaö
flutning á efni. Samsetning þaö fljótleg aö
tveir menn geta slegiö upp 10 m turni á
hálftíma. 15 cm öryggislisti um fótpall.
Einstaka hluti sem slitna, má auöveldlega
skipta um.
Instant ál-vinnupallar eru viöurkenndir af
norska, sænska og danska öryggiseftirlitinu.
Okkar vinnupallar tryggja fullkomiö öryggi.
OPIN GRIND
SAMSKEYTI OPIN
SAMSKEYTI LOKUO
ENGAR LAUSAR STENGUR, SKRÚFUR EÐA RÆR. ÞEGAR GAFLARNIR ERU KOMNIR I LÓD"
RÉTTA STÖOU LÆSIST HORNSTAGIO MEÐ FJÖÐUR.
pflLmn/on & vni/xon lml
Ægisgötu 10. Sími 27745.