Morgunblaðið - 18.04.1979, Page 41

Morgunblaðið - 18.04.1979, Page 41
 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1979 21 Ólafur H. Jónsson: „Kem alkominn heim í sumar" „ÉG ER búinn að ákveða mig. ég kem alkominn heim í sumar.“ sagði Óiafur H. Jónsson hand- knattleiksmaður hjá Dankersen, þegar Mbl. hafði samband við hann. Ólafur kvaðst ákveðinn í því að leika handknattleik eftir að hann kæmi heim en ekki kvaðst hann vera búinn að ákveða hvort hann gengi í Val aftur eða yrði þjálfari og leikmaður með einhverju öðru liði. „Það kemur ekki í ljós fyrr en í sumar hvað verður," sagði Ólafur. Ekki hafði Ólafur heyrt um það hvað aðrir íslenzkir leikmenn í Þýzkalandi ætluðu að gera, nema hvað Björgvin Björgvinsson verður örugglega a.m.k. einn vetur enn ytra. „Axel Axelsson er ekki búinn að ákveða sig ennþá og ég veit ekki hvað Gunnar Einarsson og Þorbergur Aðalsteinsson ætla að gera.“ Hlé hefur verið í þýzka hand- boltanum og lítið leikið. Hofweier, Groswallstadt og Gummersbach berjast um titilinn en íslendinga- liðin Dankersen og Göppingen eru í 4.-5. sæti. Dankersen er komið í 8-liða úrslit bikarkeppninnar eftir að hafa unnið Groswallstadt 20:13. Gummersbach gaf leik sinn gegn Rintheim, leikmenn liðsins voru ekki í skapi til að spila eftir slysið í Ungverjalandi, þar sem félagi þeirra, Joacim Deckarm, slasaðist lífshættulega. Hann liggur ennþá meðvitundarlaus á sjúkrahúsi þar í landi. - SS. Ólafur H. Jónsson. • Skíðalandsmótið fór fram á ísafirði um páskana og tókst vel þótt ekki væri útlitið of gott fyrstu dagana vegna óveðurs. En þ*að rættist úr veðrinu og á næstu þremur síðum segir nánar frá mótinu. Geir Hallsteinsson, „Markakóngur íslandsmótsins 1979“. ólafur Benediktsson. „Leikmaður íslandsmótsins 1979“. Olafur og Geir verðlaunamenn Morgunblaðsins TVEIR af okkar þekktustu handknattleiksmönnum hljóta verðlaun Morgunblaðsins fyrir nýliðið íslands- mót. Ólafur Benediktsson markvörður íslandsmeist- ara Vals var valinn „Leikmaður íslandsmótsins af íþróttafréttamönnum blaðsins og Geir Hallsteinsson FH varð „Markakóngur íslandsmótsins“. Þeir eru báðir mjög vel að sigurlaunum sínum komnir. Ólafur Benediktsson átti einna drýgstan þátt í því að Valsmenn unnu íslandsmeist- aratignina á handknattleik þriðja árið í röð og hann var tvímælalaust bezti maður Vals- liðsins í úrslitaleiknum gegn Víkingi á dögunum. Hann hefur sýnt mjög jafna og góða leiki í vetur bæði með Val og landslið- inu. Ólafur varð langhæstur í stigagjöf Mbl., hlaut 37 stig í 12 leikjum eða 3.08 stig að meðal- tali, sem er mjög góð útkoma. Næstur Ólafi varð Andrét Kristjánsson, Haukum, með 40 stig í 14 leikjum eða 2.86 stig að meðaltali og rétt á eftir honum komu þeir jafnir Bjarni Guð- mundsson, Val, Viggó Sigurðs- son, Víkingi, og Jens Einarsson, ÍR, með 37 stig í 13 leikjum eða 2.85 stig að meðaltali. I næstu sætum komu Geir Hallsteins- son, FH, Jón Gunnarsson, Fylki, Páll Björgvinsson, Víkingi, Jón Pétur Jónsson, Val, Atli Hilm- arsson, Val, Hörður Harðarson, Haukum, Ólafur Jónsson, Vík- ingi, Árni Indriðason, Víkingi og Erlendur Hermannsson, Vík- ingi. Ólafur Benediktsson hefur ekki áður unnið til verðlauna Morgunblaðsins en hins vegar hefur Geir áður hreppt þau. Hann varð markakóngur síðast 1972 eða fyrir 7 árum og hlaut þá markakóngsverðlaunin og einnig var hann þá kjörinn „Leikmaður Islandsmótsins". Geir skoraði 95 mörk í 14 leikj- um á nýloknu Islandsmóti. Næstir komu Stefán Halldórs- son, HK, 79 mörk (13 leikir> og Hörður Harðarsson 79 mörk (14 leikir). Atli Hilmarsson Fram skoraði 72 mörk í 14 leikjum og þeir Gústaf Björnsson, Fram og Viggó Sigurðsson, Víkingi. 71 mark í 13 leikjum. Jón Pétur Jónsson, Val, kom næstur með 67 mörk í 13 leikjum. Verðlaunin verða afhent í haust, en þá afhendir Mbl. verð- laun til handknattleiksmanna, knattspyrnumanna og körfu- knattleiksmanna, en verðlaun fyrir þá íþróttagrein veröa nú veitt í fvrsta skipti. - SS. „Fæ vonandi að leika áfram á miðjunni" „í SÍDUSTU leikjum hef ég fengið aft fara meira inn á miðjuna en áður og Þar finn ág mig miklu betur en á kantinum. Mér hefur gengið vel að skora í peasari stöðu svo ég vona að ég fái að spreyta mig Þar áfram,“ sagði Pétur Pétursson knattspyrnu- kappi Þegar Mbl. hafði tal af honum úti í Rotterdam í Hollandi á mánu- dagskvöldið. Pétri og félagi hans Feyenoord hefur gengið allt i haginn upp á síðkastið, félagið lék tvo leiki um helgina og vann Þá báða, 2:0 fyrst og síðan 3:0, og af Þessum 5 mörkum skoraöi Pétur 3 og hefur nú skorað 7 mörk í hollensku úrvalsdeildinni sem er afbragðsgott hjá nýjum manni i deildinni. Báöir leikir Feyenoord um heiglna voru gegn MVV Maastricht og var sá fyrri á útivelli á laugardaginn og sá seinni á heimavelli á mánudaginn. „Ég skoraði bæöi mörkin á laugar- daginn," sagöi Pétur. „í fyrra markinu fókk ég stungubolta inn fyrir vörnina og skoraöi framhjá úthlaupandi markmanninum og seinna markiö haföi svipaöan aödraganda. Stungu- bolti kom inn fyrir vörnina og ég náöi honum og átti bara eftir úthlaupandi markmanninn. í staöinn fyrir aö skjóta stoppaöi ég boltann og vippaöi honum svo rólega yfir mark- manninn og í markiö. Þetta var nokkuö skemmtilegt mark.“ Pétur sagöi aö 30 þúsund manns heföu komið á völlinn á mánudaginn þegar Feyenoord lék á heimavelli viö þetta sama liö. Feyenoord vann 3:0 og heföi getað skorað fleiri mörk, m.a. brenndi Jan Peters af víta- spyrnu. Wlm van Till skoraöi fyrsta markiö en Pétur skoraöi síöan annaö markiö í seinni hálfleik. Peters haföi skotiö aö markinu, markvöröurinn variö en boltinn barst til Péturs sem þakkaöi gott boð og skoraöi. Jan Peters skoraöi síöan þriöja markiö. Pétur sagöi aö Jan Peters væri alnafni hins fræga landsliösmanns, en sá leikur meö AZ ‘67. Peters þessi, sem er 24 ára gamall, var keyptur til Feyenoord í haust og hefur síöan átt hvern stórleikinn eftir annan og er nú kominn í hollenska lands- liöshópinn. Hafa þeir tveir Pétur og Peters skipzt á um aö leika á miöjunni og kantinum í sföustu leikjum. Feynoord er nú komiö í 2. sæti á eftir Ajax. Feyenoord hefur 36 stig en Ajax 39 stig. „Viö eigum eftir aö leika viö öll toppliðin á heimavelli og eigum því talsveröa möguleika. Viö spilum Pétur skoraöi 3 mörk um helgina við Ajax um aðra helgi, 29. apríl, og verður þaö örugglega þrumuleikur," sagöi Pétur. Hann kvaöst vera mjög ánægður með dvöl sína hjá Feyenoord, hann væri kominn í mjög góöa æfingu en aftur á móti væri hann ekki búinn aö venjast enn þeirri hörku, sem viögengist í hollensku knattspyrn- unni. „Viö spilum geysilega mikiö og maður er því orðinn nokkuö þreyttur. Þegar viö spilum ekki í deildinni eru oft spilaöir vináttuleikir og t.d. eigum viö aö spila viö portúgalska landsliö- iö annaö kvöld (þriöjudagskvöld). Þegar keppnistímabilinu lýkur í júní veröur farið í keppnisferö til Banda- ríkjanna og Kanada en síöan fáum viö frí í 3—4 vikur og þá ætla ég aö vera heima á íslandi og slappa af,“ sagöi Pétur aö lokum. - SS.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.