Morgunblaðið - 18.04.1979, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 18.04.1979, Blaðsíða 44
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1979 Skíðalandsmótið frh. »>«> Sveit Akureyrar 221.15. Sveit ísafjarðar 234.73 A sama tíma og flokkasvigið var fór fram keppni í 30 km göngu 20 ára og eldri og 15 km göngu 17 til 19 ára. Einnig var í fyrsta skipti keppt í göngu kvenna og áttu þær að ganga 5 km. Ekki voru þær margar sem vildu leggja á sig labbið og voru aðeins þrjár stúlkur mættar til leiks. Allar frá Isafirði. Varð Anna Gunnlaugsdóttir þeirra hlutskörpust og því fyrsti Islandsmeistari kvenna í skíða- göngu. Gekk hún á 23.50 mín. Ekki voru Ólafsfirðingar síður sigur- sælir þennan daginn og sigraði Haukur Sigurðsson í 30 kílómetr- unum, en bræðurnir Gottlieb og Jón í 15 kílómetra göngunni. Haukur hafði allmikla yfirburði í göngunni og var hann réttum sex mínútum á undan næsta manni, Magnúsi Eiríkssyni frá Siglufirði. Sagði Haukur þá Ólafsfirðinga æfa stíft, eða tvisvar sinnum á hverjum degi auk þess sem þeir stunduðu langhlaup yfir helgar. Hafa þeir m.a. hlaupið til Siglu- fjarðar og til annarra nærliggj- andi byggða. 30 km ganga 20 ára og eldri. 1. Haukur Sigurðsson Ól. 92.20 2. Magnús Eiríksson Sigl. 98.20 3. Trausti Sveinsson Fljótum 98.25 4. Halldór Matthíasson Reykjav. 99.43 5. Kristján R. Guðmundsson ís 105.28 15 km ganga 17 til 19 ára 1. Gottlieb Konráðsson Ól. 42.48 2. Jón Konráðsson Ól. 45.14 3. Jón Björnsson ís. 46.12 4. Hjörtur Hjartarson ís. 48.55 5. Ingvar Ágústsson ís. 50.20 í samræmdum greinum urðu úrslit þessi: Alpatvíkeppni kvenna. 1. Steinunn Sæmundsdóttir Rvík. 2. Ása H. Sæmundsdóttir Rvík. 3. Guðrún Leifsdóttir Ak. Alpatvfkeppni karla. 1. Haukur Jóhannsson Ak. 2. Karl Frímannsson Ak. 3. Sigurður J. Jónsson ís. Norræn tvíkeppni 20 ára og eldri. 1. Björn Þ. Ólafsson Ól. 2. Þorsteinn Þorvaldsson Ól. 3. Haukur Snorrason Ól. 17 til 19 ára. 1. Gottlieb Konráðsson Ól. 2. Valur Hilmarsson Ól. Tvíkeppni í göngu. 20 ára og eldri 1. Haukur Sigurðsson Ól. 2. Magnús Eiríksson Sigl. 3. Trausti Sveinsson Fljótum. 17 til 19 ára. 1. Gottlieb Konráðsson. 2. Jón Konráðsson. 3. Jón Björnsson Is. Verðlaunaafhending fór fram á páskadagskvöld í hófi sem Bæjar- stjórn ísafjarðar hélt. Það voru Ólafsfirðingar sem flest fengu gullin, eða samtals 11. Steinunn Sæmundsdóttir færði Reykvíking- um 3 gull auk þess sem það fjórða bættist við fyrir flokkasvigið. ís- firðingar fengu tvö í sinn hlut og Akureyringar 1. Ólafsfirðingar mega því vera ánægðir eftir vel heppnað landsmót. Á annan páskadag fór að lokum fram keppni í aukagrein mótsins, skiðagöngu 35 ára og eldri. Þar varð hlutskarpastur Páll Guð- björnsson frá Reykjavík og fylgdi bróðir hans Hermann á eftir í annað sætið. Var elzti keppandinn 61 árs gamall, en það var Ásgeir Sigurðsson, ísafirði. Þar með er lokið þessu 41. Skíðamóti Islands, sem þrátt fyrir að illa horfði framan af, hefur farið hið bezta fram. Þeir voru ekki öfundsverðir sem áttu að sjá um framkvæmd mótsins þegar snjóaði og blés, en þeim tókst með miklum dugnaði að leysa alla erfiðleika og ef litið er yfir farinn veg er ekki annað að sjá en að vel hafi tekist. Siggi Gríms. • Veður setti svip sinn á göngukeppnina fyrsta daginn. • Sigursveit ísfirðinga í flokkasvigi karla. Frá vinstri: Sigurður Jónsson, Valdimar Birgisson, Gunnar Jónsson og Einar Valur Kristjánsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.