Morgunblaðið - 18.04.1979, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 18.04.1979, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1979 3 5 Undankeppni íslandsmótsins í bridge: Austfirðingar með Alla ríka í fararbroddi komust í úrslit UNDANKEPPNI íslandsmóts- ins í sveitakeppni var spiluð um bænadagana og hófst sl. miðvikudagskvöld. Spilað var í fjórum sex sveita riðlum og komust tvær efstu sveitirnar úr hverjum riðli í úrslitakeppnina sem íram fer í Domus Medica dagana 27. apríl tii 1. maí nk. Fimm sveitir af 8 eru úr Bridgefélagi Reykjavíkur. ein af Suðurlandi, ein af Austfjörð- um og ein af Suðurnesjum. Eftirtaldar sveitir komust í úrslit: Hjalti Elíasson Rvík, Aðal- steinn Jónsson Austurl., Sveit óðals Rvík, Halldór Magnús- son Suðurl., Sævar Þorbjörns- son Rvík, Þorgeir Eyjólfsson Rnes. Það sem vakti mesta athygli í undankeppninni var slakur árangur sveitar Sigurjóns Tryggvasonar sem varð í þriðja sæti á Reykjavíkurmótinu sem lauk fyrir skömmu. Varð sveitin í fimmta sæti í sínum riðli. Þá kom skemmtilega á óvart sveit Aðalsteins Jónssonar af Austur- landi sem m.a. vann sveit Stein- bergs Ríkarðssonar og Ólafs Lárussonar. Þá var mótið mjög friðsamt — lítið um kærur en að þessu sinni var 5000 kr. kærutrygging sem ekki hefir áður verið. Hér á eftir verður reynt að skýra frá gangi keppninnar. 1. UMFERÐ: Úrslit í A-riðli: Hjalti Elíasson — Ólafur Lárusson 12-8 Vilhjálmur Vilhjálmsson — Steinberg Ríkarðss. 11-9 Aðalsteinn Jónsson — Jónas Magnússon 18-2 Engin óvænt úrslit. Úrslit í B-riðli: Sveinn Sigurgeirsson — Kristj. Kristjánss.AL 17-3 Sævar Þorbjörnsson — Þorgeir Eyjólfsson 12-8 Armann J. Lárusson — Halldór Sigurbj.ss. 20-0 Engin óvænt úrslit. Úrslit í C-riðli: Halldór Magnússon — Jógi Björn 20-0 Helgi Jónsson — Sigurjón Tryggvas. 20-Í-3 Sigfús Arnason — Alfreð Viktorss. 19-1 Jógi var 29 stigum undir í hálfleik og átti sér ekki viðreisn- ar von gegn Halldóri og varð að þola 0 er yfir lauk. Þá kom á óvart stórtap Sigurjóns en þeir fengu 3 mínusstig, eftir að hafa verið 8 punktum yfir í hálfleik en tapað þeim síðari 90-0! Úrslit í D-riðli: Þórarinn Sigþórsson — Albert Þorsteinss. 19-1 Einar V. Kristjánss. — Ingimundur Árnason 18-2 Óðal - Kristj. Kristj.ss. R 20—i-3 Engin óvænt úrslit. 2. UMFERÐ: Úrslit í A-riðli: Hjalti — Steinberg 15-5 Jónas — Ólafur 18-2 Vilhjálmur — Aðalsteinn 18-2 Jónas vinnur Ólaf nokkuð óvænt og ungu strákarnir í sveit Vilhjálms eru ekki með neina minnimáttarkennd gegn kemp- unum á Austfjörðum og vinna örugglega. Úrslit í B-riðli: Sævar — Kristján 18-2 Ármann — Þorgeir 20-0 Sveinn — Halldór 17-3 Ármann vinnur annan leikinn í röð 20—0 og virðast þeir félagar í miklum ham. Höfðu þeir gert út um leikinn strax í fyrri hálfleik og voru þá með 33 punkta yfir. Úrslit í C-riðli: Halldór — Sigurjón 20-0 Helgi — Alfreð 20-0 Sigfús — Jógi 19-1 Enn fær sveit Sigurjóns skell og nú gegn Halldóri sem hefir unnið báða sína leiki 20—0. Sveit Helga er einnig með 40 stig og sveit Sigfúsar með 38 stig. Skemmtileg keppni í riðlin- um. Úrslit í D-riðli: Albert — Ingimundur 12-8 Óðal — Einar Valur 20-0 Þórarinn — Kristján 18-2 Það skemmtilegasta í þessari um- ferð var að Albert var 42 punkt- um undir í hálfleik gegn Ingi- mundi en vann leikinn 12—8. 3. UMFERÐ: Úrslit í A-riðli: Steinberg — Ólafur 12—8 Aðalsteinn — Hjalti 5—15 Jónas — Vilhjálmur 4—16 Engin óvænt úrslit. Úrslit í B-riðli: Sævar — Sveinn 16-4 Ármann — Kristján 9-11 Halldór — Þorgeir Engin óvænt úrslit. 1-19 Úrslit í C-riðli: Sigurjón — Jogi 11-9 Alfreð - Halldór 6-14 Sigfús — Helgi Engin óvænt úrslit. +3-20 Úrslit í D-riðli: Ingimundur — Þórarinn 12-8 Óðal — Albert 20—+2 Kristján — Einar V. 0-20 Sveir Ingimundar vinnur sveit Þórarins nokkuð óvænt eftir að Þórarinn hafði haft 23 punkta yfir í hálfleik. Stefán Guðjohn- sen var ekki með í sveit Þórarins en í hans stað spilaði eina konan sem tók þátt í undankeppninni, Halla Bergþórsdóttir. Brídge Umsjón» ARNÓR RAGNARSSON 4. UMFERÐ: A-riðill: Hjalti — Jónas 15—5 Steinberg — Aðalsteinn 7—13 Ólafur — Vilhjálmur — 15—5 Sveit Vilhjálms tapaði sínum fyrsta leik í mótinu en átti þó bezta möguleika að ná öðru sætinu í riðlinum. Sveit Hjalta var efst og talið líklegt að hún ynni riðilinn. Þessar sveitir áttu að spila saman í síðustu umferð- inni. 5 sveitir áttu möguleika á að komast áfram í þessum riðli. Úrslit í B-riðli: Kristján — Halldór 15—5 Sævar — Ármann 20—0 Sveinn — Þorgeir 0—20 Sveit Ármanns missir flugið og tapar með 0 á meðan annar helzti keppinautur þeirra, sveit Þorgeirs, vinnur 20—0. Sveit Sævars var örugg áfram en 3 sveitir kepptu um annað sætið. Úrslit í C-riðli: Halldór — Sigfús 9—11 Sigurjón — Alfreð 19—1 Jogi — Helgi 11—9 Sveit Helga sem hafði unnið með 20 stigum þrjá fyrstu leikina, tapaði fyrir Jóga nokkuð óvænt. Þó má ætla að Helgi og félagar hafi ekki spilað eins nákvæmlega og áður þar sem þeir voru öruggir um að komast áfram. Sveit Halldórs var nokkuð örugg um annað sætið eða hvað??? Úrslit í D-riðli: Albert — Kristján +4—20 Ingimundur — Óðal 2—18 Þórarinn — Einar V. 17—3 Úrslit í þessum riðli voru ráðin. Sveit Óðals og Þórarins voru öruggar í úrslitin og áttu að spila saman í síðustu umferð. LOK AUMFERÐIN: Úrslit í A-riðli: Aðalsteinn — Ólafur 20—0 Jónas — Steinberg 13—7 Vilhjálmur — Hjalti +4—20 Sveit Vilhjálms tapaði illa fyrir Hjalta og á meðan vinnur sveit Aðalsteins 20—0 mjög óvænt. Þar með var sveit Aðal- steins Jónssonar (Alla ríka) af Austurlandi komin í úrslitin. Ánægjulegt fyrir Aðalstein og félaga hans, Sölva Sigurðsson, en þeir voru meðal elztu spilar- anna í keppninni og spila sitt gamla og góða vínarkerfi. Úrslit í B-riðli: Ármann — Sveinn 15—5 Halldór — Sævar 0—20 Þorgeir — Kristján 19—1 Sævar varð örugglega í fyrsta sæti en sveit Þorgeirs Eyjólfs- sonar varð önnur eftir mjög slaka byrjun. Töpuðu þeir félagar tveimur fyrstu leikjun- um í mótinu en unnu vel 3 síðustu leikina. Sveit Ármanns varð að láta sér nægja þriðja sætið eftir að hafa þjófstartað með tveimur 20 stiga sigrum. Kátína varð mikil í sveit Þorgeirs er úrslit voru ráðin en glaðastur allra varð þó sveitar- stjórinn í Sandgerði sem spilaði hafði í sveitinni. Úrslit í C-riðli: Alfreð — Jógi 5—15 Sigfús — Sigurjón 13—7 Helgi — Halldór 20—+4 Sveit Halldórs fékk stóran skell og sveit Sigfúsar vann sveit Sveins 13—7. Það varð til þess að báðar sveitirnar höfðu 59 stig. Eftir mikið japl og jaml og fuður í sveit Sigfúsar sem reyndi með öllum tiltækum ráð- um að finna einn punkt í bók- haldinu sem hefði nægt þeim til sigurs, 14—6, úrskurðaði keppnisstjóri að sveit Halldórs Magnússonar af Suðurlandi væri í öðru sæti með betra punktahlutfall. Úrslit í D-riðli: Óðal — Þórarinn 6-14 Kristján — Ingimundur 11-9 Einar Valur — Albert 20-0 Úrslitin voru þegar ráðin í þessum riðli eftir 4 umferðir. Óðal og sveit Þórarins. LOKASTAÐAN: A-riðiII: Hjalti Elíasson 76 Aðalsteinn Jónsson 59 Vilhj. Vilhjálmsson 46 Jónas Magnússon 42 Steinbérg Ríkharðsson 40 Ólafur Lárusson 33 B-riðill: Sævar Þorbjörnsson 86 Þorgeir Eyjólfsson 66 Ármann J. Lárusson 64 Sveinn Sigurgeirsson 43 Kristján Kristjánss. 32 Halldór Sigurbjörnss. 9 C-riðill: Helgi Jónsson 89 Halldór Magnússon 59 Sigfús Árnason 59 Jógi Björn 36 Sigurjón Tryggvason 34 Alfreð Viktorsson 13 D-riðill: Sveit Óðals 84 Þórarinn Sigþórsson 76 Einar Valur Kristjánss. 61 Ingimundur Árnason 33 Kristján Kristjánss. Rv. 30 Albert Þorsteinsson 7 Undirritaður fylgdist nokkuð með mótinu og þar sem ég hefi oft talað um að bridgespilarar væru geðstirðir og þungir við spilaborðið tel ég að mjög ánægjuleg breyting sé að verða á þessu. Yfir þessu móti var miklu léttara en undanfarin ár og vil ég sérstaklega nefna tvo spilara þar sem glaðværðin var oft mikil, kanski of mikil stund- um. Það voru þeir félagar að austan, Aðalsteinn Jónsson og Sölvi Sigurðsson. Þá var og stundum erfitt að vera áhorfandi. Eitt sinn sat ég við hliðina á einum spilaranna þegar hann sveik lit. Mér var í lófa lagt að hnippa í hann en það er algjörlega bannað og komu litasvikin upp strax í öðrum slag á eftir og spilarinn fékk sína refsingu. Keppnisstjóri var Agnar Jörgensen en í framkvæmda- stjórn mótsins voru Jón Páll Sigurjónsson, Ragnar Björns- son, Jón Hilmarsson og Kristmundur Halldórsson. Afmæliskveðja: Gunnólfur Einars son frá Þórshöfn Gunnólfur Einarsson fyrrum útgerðarmaður frá Þórshöfn varð áttræður 13. apríl s.l. Fyrir rúmum fimmtíu árum lá leið ungs bóndasonar undan Eyjafjöllum að Skálum á Langanesi og hugðist hann eyða þar sumrinu við sjó- róðra, en hann hafði sótt sjóinn frá Vestmannaeyjum. Það teygðist úr sumrinu hjá þessum unga sjómanni undan Eyjafjöllum, því þar á Langanesi hitti hann fyrir lífsförunaut sinn, bóndadóttur frá Heiði á Langanesi, Guðlaugu Lár- usdóttur, sem var elst fjórtán systkina auk fósturbróður þess fimmtánda, barna þeirra hjóna Arnþrúðar Sæmundsdóttur og Lárusar Helgasonar bónda á Heiði. Guðlaug og Gunnólfur gengu í hjónaband 1926 og hófu búskap í Kumlavík á Langanesi, fluttu síð- an í Heiðarhöfn og byggðu þar stórt steinhús, en fluttu síðan til Þórshafnar og bjuggu þar í far- sælu hjónabandi þar til Guðlaug lést 1967. Þeim varð sex barna auðið og eru þau öll á lífi. Gunnólfur Einarsson mun sam- ferðarmönnum sínum flestum minniststæður maður. Hann er maður glettinn og spaugsamur, þrautseigur og framsækinn, verð- ugur fulltrúi aldamótakynslóðar þeirrar sem nú er óðum að hverfa af sjónarsviðinu. Æfistarf Gunnólfs var lengst af bundið fiskvinnu og útgerð og lét hann sér fátt óviðkomandi sem að þeirri atvinnugrein laut. Hann verkaði grásleppuhrogn, rauðmaga, saltfisk, freðfisk og var lengi verkstjóri í frystihúsi Kaup- félags Langnesinga á Þórshöfn. Einnig fékkst Gunnólfur við útgerð árum saman og átti meðal annars hluti í m.b. Tý, 18 lesta báti, sem þá þótti mikið skip á Þórshöfn. M.b. Tý átti hann og rak í félagi við þá Guðmund Kristjáns- son skipstjóra frá Skoruvík og Ragnar Jóhannsson frá Skálum. Einnig rak Gunnólfur útgerð með sonum sínum. Gunnólfur Einarsson hefur allt- af verið maður einkaframtaksins, ódeigur við að leggja á brattann, þótt ætla megi að í litlu sjávar- plássi þar norður við Dumbshaf hafi stakkurinn verið þröngt skor- inn til athafnasemi á þessum árum. Gunnlaugur hefur ætíð ver- ið árrisull vormaður í fyllstu merkingu. Þeir munu fáir vor- morgnarnir sem þeir Gunnólfur og Ingimar Baldvinsson fyrrum bóndi og póstmeistari á Þórshöfn voru ekki á fótum fyrir allar aldir á morgnana, hittust, buðu hvor öðr- um í nefið og nutu kyrru og fögru vormorgna, þar sem ríkir hin nóttlausa voraldarveröld. Á þessum merka áfanga í lífi Gunnlaugs Einarssonar eru vafa- laust margir sem vildu eiga þess kost að geta lyft glasi með þessum aldna heiðursmanni, en oft er vík milli vina. Gunnólfur hefur hin síðari ár dvalist á Hrafnistu í Reykjavík. Með þessum fáu línum langar mig að færa Gunnólfi Einarssyni alúð- arþakkir fyrir svo margt sem leitar á hugann þegar horft er til baka. Þó sérstaklega alúð hans og hugulsemi í garð systur minnar sem hann og kona hans sáluga, móðursystir mín, voru svo einstak- lega góð. Heill þér áttræðum Gunnólfur. T.G. Tollvörugeymslan h.f. Aóalfundur Aöalfundur Tollvörugeymslunnar h.f. veröur haldinn aö Hótel Loftleiöum, Kristalsal, föstudaginn 20. apríl 1979 kl. 17.00. DAGSKRÁ: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Lagabreyting (Hlutafjáraukning) 3. Önnur mál. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.