Morgunblaðið - 21.04.1979, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. APRÍL 1979
15
Ragna á Laugabóli
og Reykjanesskóli
Nokkrar athugasemdir vegna grein-
ar í Morgunblaðinu 5. apríl sl.
annað að hugsa en að gjalda
íbúum þessara staða einhverja
rauða belgi fyrir gráa. Mðr er vel
kunnugt, að sjómenn á Vestfjörð-
um kæra sig ekki um að sitja yfir
hlut Sunnlendinga eða Suður-
nesjamanna. Það eina sem þeir
ætlast til er að fá að nota kunn-
áttu sína og hæfni til þess að
bjarga sér og sínum og draga
björg í bú til jafns við aðra.
Ef nauðsynlegt er talið að tak-
marka veiðar á þorski, þá stendur
ekki á Vestfirðingum að bera sinn
hluta þeirrar byrðar, enda hefur
ríflegur baggi verið lagður á þeirra
bök. En einhver hemja verður að
vera á tilætlunarseminni. Það er
ekki réttlátt, að á sama tíma og
vestfirskir togaramenn og verka-
fólk í landi taka á sig jafnstórfellt
tekjutap og ætlast er til, þá skuli
aðrir, sem eiga ýmsa aðra úrkösti
beinlínis ætlast til þess, að þeir
geti bætt sinn hlut í þorskveiðun-
um og lagt kostnaðinn af því ofan
á þær klyfjar, sem fyrir eru. Slíkt
væri að hlaða órétti ofan á mis-
rétti og þannig tilraunir er af-
farasælast að láta eiga sig, ef
menn vilja þá ekki kasta björg
þeim samkomulagsvilja, sem ríkja
verður um svo viðkvæm mál. Pæri
svo gæti verið að mönnum þætti
verr af stað farið en heima setið.
Að hreykja
sér yfir
áfalli annarra
Eins og ég áðan sagði fólst í
þeim auknu friðunaraðgerðum í
þorskveiðum, sem ráðherra boðaði
fyrr í vetur, fyrst og fremst
stóraukinn niðurskurður á afla-
möguleikum togaranna, sem ekki
aðeins leiðir til mikillar tekjurýrn-
unar togarasjómanna heldur ekki
síður til fjárhagslegs áfalls fyrir
lágtekjufólk í landi — verkafólk í
fiskiðnaði. Þá sáu hagsmunahópar
sumir hverjir sunnan og suð-vest-
anlands, sem engu var þá ætlað að
fórna, ástæðu til þess að gera
ályktanir þar sem sérstakri
ánægju var lýst með aðgerðirnar.
Eg varð var við, að mönnum í
mínu kjördæmi og víðar þótti, sem
í þessum samþykktum gætti þó
nokkrar meinfýsi: Loksins fenguð
þið það, sem þið þurftuð; lands-
byggðalýður! Mörgum kunningjum
mínum meðal sjómanna og fisk-
verkafólks á Vestfjörðum sárnaði
þessi meinfýsistónn. „Hvaða
ánægju finna sjómenn og útvegs-
menn á Suðurnesjum í því bók-
staflega að velta því á tungu sér
hvernig kreppt er að starfsbræðr-
um þeirra annars staðar?", spurði
mig vestfirskur skipstjóri.
Vonandi hefur þetta aðeins ver-
ið misskilningur. Ánægjan með
aðgerðirnar hafi ekki stafað af því
gegn hverjum þær beindust heldur
af einlægum verndunar- og friðun-
aráhuga. En hvernig stendur þá á
því, að þeir hinir sömu aðilar, sem
fundu hjá sér sérstaka hvöt fyrir
þremur vikum síðan til þess að
hrósa þeirri fiskveiðistefnu að
reyna að halda þorskveiðum innan
marka 280—290 þús. tonna á árinu
1979, ætla nú bókstaflega af göfl-
unum að ganga? Síðustu aðgerð-
irnar eru ekki annað en rökrétt
framhald af fyrri stefnumótun.
Eða á að skilja fagnaðarsam-
þykktirnar frá því fyrir páska svo,
að þar hafi menn ekki verið að
fagna friðunarstefnunni heldur
því, að togaramenn á Vestfjörðum,
Norðurlandi og Austfjörðum væru
nú ærlega teknir í karphúsið um
leið og menn sjálfir slyppu, sem
samþykktirnar gerðu? Hver er
skýringin?
Þótt vera megi, að togaramönn-
um og landverkafólki vestan, norð-
an og austan hafi sárnað sá
meinfýsistónn, sem því þykir um
of gæta í afstöðu sumra hér syðra í
fiskveiðimálum á ég ekki von á því,
að þetta fólk svari nú í sömu mynt.
Ég á ekki von á því, að það taki sig
nú til og geri samþykktir þar sem
það opinberlega eða undir rós
hlakki yfir skertum afkomumögu-
leikum annarra. Enda er það illt
verk a ala á slíkri úlfúð og telja
það bæta eitthvað sinn hlut að
geta glaðst yfir óförum annarra.
Sá skammvinni fengur, sem' menn
e.t.v. kunna að gera sér vonir um
að fá með slíkum aðförum, er illur
fengur — og illur fengur illa
forgengur.
Nú er ráð, að menn spari heit-
ingarnar og stóryrði, leggi til
hliðar öfund og illgirni en reyni að
koma sér saman um réttláta og
friðsamlega lausn á þeim vanda,
sem skiptir sköpum um afkomu
þjóðarinnar — hagnýtingu fiski-
miðanna, sem er mikilvægasta
auðlind landsins.
AUGI.YSINCASIMINN ER:
22480
/ JH*r0unl»I«biö
Frá þvi grunnskólapróf voru
tekin upp fyrir tveim árum hefur
skólinn ekki verið fullsetinn.
Munar mest um það að gagn-
fræðadeildin var felld niður og
jafnframt hefur börnum á skóla-
skyldualdri fækkað til muna í
héraði. Flestir hinna héraðs-
skólanna hafa svipaða sögu að
segja.
Hér eru ekki framhaldsdeildir
og verður því meginþorri nemenda
í 9. bekk en 7. og 8. bekkur
skyldunáms er í flestum skólahér-
uðum.
Ragna telur að ef nemendur
sæki skóla utan héraðs sé það
merki þess að heimaskólar þéirra
séu lélegir. Hér í skóla eru
nemendur víða að af landinu, oft
þeir sömu ár eftir ár, og engum
dettur í hug að það sé vegna þess
að skólar í þeirra heimahéruðum
séu lélegir.
Ragna talar um háa
brottrekstrartíðni í skólanum. Níu
nemendur hafa hætt námi af
ýmsum ástæðum á skólaárinu,
einn nemandi var sendur heim í
tíu daga en einum nemanda hefur
verið vikið úr skóla, og þessi
nemandi er sonur Rögnu. Það er
alltaf neyðarúrræði að vísa
nemanda úr skóla en til þess
verður þó, því miður, einstaka
sinnum að grípa. Hegðunarvand-
kvæði drengsins hófust ekki í
vetur eins og Rögnu er vel kunnugt
um. Oftar en einu sinni sýndi hann
kennara áreitni og ógnandi fram-
komu en sá atburður, er varð til að
binda enda á veru hans hér, var sá
Aðstaða Ferðamiðstöðvarinnar í Miðbæjarmarkaðnum var
nýlega endurbætt. Hefur miðstöðin nú aðsetur á báðum hæðum
hússins.
að hann kastaði blautum gólfklút í
höfuð kennara. Þegar kennari vildi
fá drenginn tii viðtals við mig
kastaði drengurinn honum upp við
vegg og spurði hvort hann gæti
sannað nokkuð. I þeim orðum fólst
ekki afsökunarbeiðni né bera þau
vott um að um óviljaverk hafi
verið að ræða. Þegar ákvörðun var
tekin um að víkja drengnum, sem
var í 9. bekk og því ekki í skyldu-
námi, úr skóla, lá fyrir að honum j
stóð til boða skólavist á Núpi og
fór hann þangað. !
Þegar eldri sonur Rögnu
slasaðist fyrir 8 árum var ekki um
aðra leið að ræða þann dag til
Isafjarðar en með Djúpbátnum.
Með aukatíma handa honum er
það að segja að þá hefur hann
fengið í lestímum eins og aðrir, en
tveir kennarar eru tvo tíma á dag
við að aðstoða nemendur við
heimanám og hjálpa þeim er af
einhverjum ástæðum hafa dregist
aftur úr í námi.
Ásökunum um mesbeitingu
valds og ofsóknir kennara á
hendur nemendum vísa ég á bug
sem fjarstæðu, einnig því að hér
þrífist ekki venjulegt mannlíf og
að skólinn skili ekki af sér góðum
mannsefnum.
Kristmundur Hannesson
skólastjóri.
Efna til
tveggja
Kínaferða
í sumar
KÍNVERSK-ÍSLENZKA menn-
ingarfélagið efnir í ár til tveggja
ferða til Kína og stendur fyrri
ferðin yfir í um mánuð. en hin
síðari í rúmar 2 vikur. Lagt
verður af stað í fyrri ferðina 23.
júní og farið með lest frá Kaup-
mannahöfn til Moskvu eftir flug
frá Reykjavík. en gist verður í
Moskvu í eina nótt. Þaðan verður
haldið með lest til Peking og
komið þangað 2. júlí. í Kína
verður aðallega ferðast um norð-
anvert landið og komið til Shang-
hai.
Seinni ferðin verður frá 23.
september til 8. október og verður
þá flogið til Peking um Moskvu og
dvalið i Kína í tvær vikur. Verður
m.a. ferðast til Shanghai, Kanton
og Hangchow. Verð ferðanna er
frá kr. 620 búsund.
Bílasýnirig.
fl98® €Bfl<siflB®nÐ
Hin nýja kynslóð frá General Motors.
Kynnt samtímis í Evrópu og Ameríku, hér Ármúla 3.
Fimmtudaginn 19.apríl til sunnudagsins 22.apríl.
nrví^i allo rl^nanci trl 1Í1-1P7
@ VÉLADEILD SAMBANDSINS