Morgunblaðið - 21.04.1979, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. APRÍL 1979
Tvær umsóknir um
Nj ar ðví kurpr estakall
Runninn er út umsóknar-
frestur um 7 prestaköll sem
auglýst voru fyrir nokkru síðan.
Umsóknir hafa aðeins borizt um
eitt prestakallanna, Njarðvíkur-
prestakall. og voru umsækjendur
tveir: Sr. Þorvaldur Karl Helga-
son æskulýðsfulltrúi þjóðkirkj-
unnar og sr. Gylfi Bjarnason
sóknarprestur f
Bjarnarnesprestakalli.
Þau prestaköll, sem umsóknir
bárust ekki um, eru Árnespresta-
kall, Bíldudalsprestakall,
Sauðlauksdalsprestakall, Staðar-
prestakall, annað prestsembættið í
Vestmannaeyjum og Þingeyrar-
prestakall. Þá hafa verið auglýst
laus eftirfarandi prestaköll með
umsóknarfresti til 15. maí, en
þeim þjóna nú settir prestar:
Miklabæjarprestakall, Raufar-
hafnarprestakall, Reykhólapresta-
kall, Reykholtsprestakall og
Seyðisfjarðarprestakall.
Bensínhækkunin:
Stjóm FÍB skorar á stjóm-
ina að mæta erlendum hækk-
unum með lækkun skatta
STJÓRN Félags íslenzkra bifreiða-
eigenda samþykkti eftirfarandi
ályktun á fundi sfnum miðvikudag-
inn 18. aprfl s.l. og hefur sent hana
til Ólafs Jóhannessonar forsætis-
ráðherra:
Stjórn Félags íslenzkra Bifreiða-
eigenda skorar á stjórnvöld að halda
hækkunum á eldsneyti bifreiða í
lágmarki, enda er það viðurkennt að
eldsneytishækkanir flutningatækja
er stór verðbólguvaldur hér á landi.
Full ástæða er til að benda á, að
nálægt helmingur þessara umbeðnu
hækkunar mun ekki mæta erlendri
verðhækkun eða gengissigi heldur
renna í ríkissjóð sem auknar tolla-
tekjur og söluskattstekjur. Slíkt hið
sama hefur gerst við fyrri hækkanir
benzíns að nálægt helmingur
hækkunarinnar hefur runnið til ríkis-
sjóðs.
Einnig er ástæða til að benda á enn
einu sinni, að 59.22 krónur af verði
hvers benzínlítra rennur sem sér-
skattur til Vegasjóðs, en síðan er
þessi sérskattur aukinn með sölu-
skatti um krónur 11.85. Þannig hefur
ríkið um árabil innheimt söluskatt af
skattlagningu sinni, rétt á sama hátt
og fjármálaráðuneytið drýgði tekjur
sínar á komandi sumri með því að
bæta söluskatti ofan á tekjuskatt.
Stjórn F.I.B. er ljóst að erlendar
verðhækkanir verða ekki umflúnar,
en telur þess að þær komi fram í
hækkuðu útsöluverði, ef ríkisvaldið
vill aðeins láta af þeim leiða sið að
grípa erlendar olíuhækkanir fegins
hendi sem forsendu til öflunar auk-
inna toll og skatttekna.
Stjórn F.I.B. skorar þess vegna á
ríkisstjórnina að heimila ekki þessa
umbeðnu hækkun, heldur mæta
þessum erlendu verðhækkunum með
því að lækka skattlagninguna.
Gunnar örn listmálari (t.h.) og Sigurgeir Sigurjónsson Ijósmyndari
opna f dag sýningu á verkum sfnum f FÍM-salnum að Laugarnesvegi 112
í Reykjavfk. Gunnar Örn sýnir 20 málverk en hann hefur haldið 9
einkasýningar og tekið þátt f samsýningum hérlendis og erlendis.
Sigurgeir sýnir 40 Ijósmyndir teknar f Danmörku, Grænlandi og
portrettmyndir, en hann stundaði nám í Svíþjóð og hefur unnið við
ljósmyndun f 17 ár. Rekur hann nú auglýsingamyndastofu. Sýningin er
opin kl. 14 - 22 og lýkur 6. maí. Ljósm. Emilía.
Úthlutun barnabókaverðlauna Rvíkurborgar:
Berjabítur og Leikhús-
morðið beztu bækumar
Borgarráð afhenti í gær
verðlaun fyrir bestu frum-
sömdu og þýddu barnabókina
sem gefin var út hér á landi á
síðastliðnu ári. Páll H. Jóns-
son hlaut verðlaun fyrir bestu
frumsömdu bókina, Berjabít-
ur en Þórarinn Eldjárn hlaut
verðlaun fyrir þýðinguna á
Leikhúsmorðinu eftir Sven
Wernström.
Verðlaunaafhendingin fór fram
í Höfða að viðstöddum gestum
Sigurjón Pétursson forseti bæjar-
stjórnar bauð gesti velkomna en
Jenna Jónsdóttir rithöfundur
gerði grein fyrir verðlaunahöfun-
um en auk hennar voru í dóm-
nefnd Helga Möller og Teitur
Þórleifsson. Páll H. Jónsson er
fæddur árið 1908 og er næst elstur
verðlaunahafa en þetta var í
sjöunda skipti sem þessi verðlaun
eru afhent. Þórarinn Eldjárn er
hins vegar sá yngsti sem hlýtur
þessi verðlaun en hann er fæddur
árið 1949. Páll hefur sent frá sér
tvær ljóöabækur en stærsta rit-
verk hans er „Úr Djúpadal að
Arnarhóli" — ævi og athafnasaga
Hallgríms Kristinssonar.
Þórarinn Eldjárn hefur einnig
sent frá sér tvær ljóðabækur.
Þórarinn er nú búsettur í Stokk-
.
Tveir nemenda Fossvogsskóla við eitt verkefnanna sem á sýningunni verða.
Ljósm. EmiUa.
Sérstök barnaársverkefni á
nemendasýningu í Fossvogsskóla
FOSSVOGSSKÓLI hefur sýningu
á vinnu nemenda í dag, laugar-
daginn. 21. aprfl, og á morgun,
sunnudaginn 22. aprfl, kl.
13.30 — 18 báða dagana. Sýnd
verður almenn vinna nemenda
auka sérstakra barnaársverk-
efna. Einnig verða sýningar úr
hand- og myndmenntadeild. í
leikfimisa! verða leiksýningar
þar sem leiknir verða þættir úr
námsefni nemenda. Sýningasvæð-
ið eru stofur og það svæði sem
börnin vinna á og er vinna eldri
nemenda og 6 ára f aðalskólanum
en yngri nemenda f lausum stof-
um.
Efni barnaársins er barnið
sjálft og það umhverfi sem það vex
í. Fjallað var um þetta efni bæði
hvað snertir íslensk börn og börn í
öðrum löndum. Löndin voru valin
með tilliti til ólíkra uppeldis- og
umhverfisaðstæðna. 6 ára
3 skip seldu
í Bretlandi
nemendur unnu með líkamann, 7
ára .með fjölskylduna og heimilið,
8 og 9 ára með Fossvoginn og
nánasta umhverfi, 10 ára með
umhverfi íslenskra barna fyrr og
nú, 11 ára með umhverfi barna á
líkum stöðum í Evrópu og 12 ára
með sýnishorn frá öðrum heims-
álfum.
Ókeypis er á sýningarnar en
tekið verður við framlögum í
sundlaugarsjóð sem stjórn for-
eldra- og kennarafélagsins hefur
ákveðið að stofna við skólann.
Hafsteinn Baldvinsson hrl., Halldór Ámundason stjórnarmaður í
Stálvík hf., Hans Lindberg stjórnarmaður í Stálvík hf., Jón
Sveinsson forstj. Stálvíkur hf., Björgvin Guðmundsson form.
útgerðarráðs B.Ú.R. og Vigfús Aðalsteinsson framkv.stj. B.tJ.R.
í frétt frá B.Ú.R. og Stálvík
segir að smíði þe'ssa togara hjá
Stálvík marki tímamót í stefnu
B.Ú.R. í togarasmíði þar sem fyrir
tækið hefur látið smíða 12 togara
erlendis, sá 13. sé nú í smíðum í
Portúgal og þessi hinn 14. sé nú
smíðaður innanlands. Segir einnig
í fréttinni að smíðin hafi þýðingu
fyrir atvinnumál í borginni þar
sem um 70 manns taki beinan þátt
í henni auk ýmissa þjónustuaðila.
ÞRJÚ fslenzk fiskiskip scldu afla
í Bretlandi á fimmtudaginn og
var meðalverð aflans 284 til 375
krónur fyrir kflóið.
Ársæll Sigurðsson seldi 97,9
tonn fyrir 28,5 milljónir króna,
meðalverð 291 króna. Stálvík seldi
127,4 tonn fyrir 47,8 milljónir,
meðalverð 375 krónur. Loks seldi
Sæborg 47,8 milljónir, meðalverð
375 krónur. Loks seldi Sæborg 47,4
tonn fyrir 13,5 milljónir, meðal-
verð 284 krónur kílóið.
Stálvík smíðar
togara fyrir BÚR
UNDIRRITAÐIR hafa verið og var hann samþykkur í borgar-
samningar milli Stálvíkur hf og ráði hinn 14. aprfl sl. Umsamið
Bæjarútgerðar Reykjavíkur um verð er kr. 1.929 milljónir og
smíði á nýjum Stálvíkurtogara, verður smíði skipsins hafin í
haust og væntanlega lokið í
ársbyrjun 1981. en samningur
þessi er háður samþykki Fisk-
veiðasjóðs.
Ólöf Eldjárn, Sigurjón Pétursson, Fanney Sigtryggsdóttir kona Páls
og Páll H. Jónsson eftir verðlaunaafhendinguna í gær.
Ljósm. Emilía.
hólmi og var hann ekki viðstaddur Er Jenna hafði lokið máli sínu
verðlaunaafhendinguna en systir afhenti Sigurjón verðlaunin og
hans, Ólöf, veitti verðlaunum Páll þakkaði þau fyrir hönd
viðtöku fyrir hans hönd. verðlaunahafa.
Togarinn hefur verið hannaður
af íslenzkum tæknifræðingum
undir stjórn Sigurðar Ingvars-
sonar skipatæknifræðings og
hefur verið tekið tillit til þeirra
atriða einkum að skipið henti við
íslenzkar aðstæður, að skipslagið
leiði til olíusparnaðar og betri
hönnunar í heild er leitt gæti til
vinnusparnaðar og betri rekstrar-
afkomu útgerðarinnar.