Morgunblaðið - 10.05.1979, Síða 1
48 SÍÐUR
104. tbl. 66. árg.
FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Marchais á flokksþingi:
Mildari í garð Sovét en hafn-
ar samstarfi við sósíalista
ParÍH, 9. maí. ,»r. Reuter.
GEORGE Marchais, leiðtoKÍ franskra kommúnista. réðst harkalega á sósíalista við upphaf þings
kommúnistaflokksins í daK, um leið ojf hann var mun mildari í garð Sovétstjórnarinnar en verið hefur um
langa hríð. Þessi breytti tónn er greinileg afleiðing ósigurs kosningabandalags kommúnista og sósíalista
fyrir ári, en fyrir þingkosningarnar höfðu þessi stjórnmálaöfl lagt áherzlu á að jafna ágreining sinn, að
minnsta kosti í orði kveðnu. í ræðu sinni í dag þvertók Marchais fyrir það að kommúnistar gengju til liðs
við sósíalista í náinni framtíð, og má því ólíklegt telja að vinstri öflin gangi sameinuð til forsetakosninga,
sem fram eiga að fara í Frakklandi eftir tvö ár.
Marchais sakaði sósiálista og hægri öflin í landinu frá ósigrin-
um í fyrra, en kommúnistar hefðu
hins vegar ekki gleymt uppruna
sínum og mundu eftir sem áður
sækja styrk sinn í raðir verka-
manna. Hlyti hreyfing kommún-
leiðtoga þeirra, Francois Mitter-
and, um að dylja annarlegan tilgang
sinn og raunverulega hægri stefnu
með vinstri hjali. Kvað hann
sósíalista sífellt hafa nálgazt
ista að lúta stjórn verkamann-
anna sjálfra, enda yrðu engar
framfarir í þjóðfélaginu án stétt-
arbaráttu gegn auðvaldinu.
Marchais kvað Evró-kommún-
ismann síður en svo liðinn undir
lok, enda lægi leiðin til sósíalisma
um lýðræðið. Þá mætti ekki
gleyma því að í sósiálistaríkjunum
væri mikið djúp staðfest milli
raunveruleikans og þess, sem
sósíalískt lýðræði gæti verið og
ætti að vera.
Á síðasta flokks-
þingi, sem haldið var 1976, var
langtum dýpra tekið í árinni í
gagnrýni á Sovétríkin og önnur
kommúnistaríki, og var Stalínism-
inn þá harðlega fordæmdur.
"
Ljófim. Emilía.
Við Ægisíðu er lífið grásleppa þessa svölu vordaga og það er um að gera að koma góðmetinu spriklandi í hendur kaupandans.
Carter
Brezhnev
Undirrita nýjan
SALT-samning
Wafihington. 9. maí. — AP. Reuter.
TILKYNNT var í Washington í dag. að nýr samningur um takmörkun
gereyðingarvopna — SALT II — hefði tekizt milli stjórna Bandarikjanna
og Sovétríkjanna, og mundu forsetar ríkjanna. Jimmy Carter og Leonid
Brezhnev. undirrita hann í V.-Evrópu um miðjan júní. Samningurinn hefur
enn ekki verið birtur, en hann kveður aðeins á um óverulega fækkun
árásareldflauga og sprengjuflugvéla og er mikilvægi hans helzt fólgið í
ákveðnum hámarksfjölda eldflaugapalla og sprengjuflugvéla, auk þess
sem frekari fullkomnun eldflauga, sem þegar eru framleiddar. eru
takmörk sett.
Samningurinn verður lagður fram
í öldungadeild Bandaríkjaþings til
staðfestingar eftir að Carter og
Brezhnev hafa undirritað hann, og
er talið að þar muni Carter eiga við
ramman reip að draga. Því fer fjarri
að samstaða sé um þá skoðun að hér
sé um að ræða mikilvægustu tilraun
til þessa til að draga úr kjarnorku-
vopnakapphlaupið. Meðal helztu
andstæðinga SALT II er Henry
Jackson, öldungadeildarþingmaður
demókrata, sem segir að samningur-
inn þjóni ekki öryggishagsmunum
Bandarikjanna en taki um of tillit til
hagsmuna Sovétríkjanna, auk þess
sem hann sé i raun óframkvæman-
legur. Þá er það fundið samningnum
til foráttu, að hernaðarleg staða
Bandaríkjanna verði mun flóknari
en áður, og útilokað sé að fylgjast
með því að Sovétmenn hafi ekki
rangt við eftir að eftirlitsstöðvar í
íran fóru forgörðum á dögunum.
Tæp sjö ár eru liðin síðan við-
ræður um SALT II hófust. Fundar-
staður Carters og Brezhnevs er enn
óákveðinn. Sovétmenn leggja kapp á
að undirritun fari fram í Helsinki og
Bandaríkjamenn vilja að Vín verði
fyrir valinu, en önnur ríki utan
NATO og Varsjárbandalagsins koma
einnig til greina. Leiðtogafundurinn
hefur jafnframt þann tilgang að
bæta sambúð ríkjanna á öðrum
sviðum en hernaðar.
Pravda var-
ar Rússa við
ÓlympíufóM
Moskvu. 9. maí. AP.
MOSKVUBÚAR hafa verið
varaðir við því að láta erlenda
gesti á Ólympíuleikunum í
borginni á næsta ári spilla sér
með „fjandsamlegum hug-
myndum“, að því er Pravda
skýrir frá í dag.
Það er formaður
Moskvu-deildar kommúnista-
flokksins, Viktor Grihin, sem
hefur tekizt á hendur þessa
sálgæzlu, en hann hvetur
borgarbúa til að sýna gestrisni
en vera jafnframt á verði fyrir
áróðri fyrir stjórn- og hug-
myndakerfi, sem séu fjandsam-
leg sósíalisma. Hann kvað
nauðsynlegt að huga sérstak-
lega að siðferðilegum styrk
ungu kynslóðarinnar, svo' hún
gæti brynjað sig gegn fláttskap
og hættulegum áróðri heims-
valdasinna.
Þessi ummæli endurspegla
ótta sovézkra yfirvalda við þau
áhrif sem þúsundir útlendinga
á Ólympíuleikunum hafa óhjá-
kvæmilega á heimamenn, en
liður í herferð gegn slíkum
áhrifum er brottflutningur
andófsmanna í fjarlæga lands-
hluta.
Bandaríkin:
öldungadeild féllst á
skömmtun á eldsneyti
WashinKton — 9. maí — AP.
ÖLDUNGADEILD Bandaríkjaþings samþykkti í kvöld frumvarp Carters forseta um
skömmtun á eldsneyti með 66 atkvæðum gegn 30. Tvísýnt var um samþykkt
frumvarpsins fram á síðustu stundu, en forsetinn veitti verulegar tilslakanir á
upphaflegum tillögum sínum um neyðarskömmtun, og hét því meðal annars að við
slíkar aðstæður skyldu bændur og framleiðslufyrirtæki ganga fyrir um bensín og
olíu. Þá féllst forsetinn á að íbúar strjálbýlla fylkja ættu rétt á meira eldsneyti en
íbúar þar sem vegalengdir eru minni.
Bágt eiga Bretar
Lundúnum — 9. maí — AP.
VÍÐTÆK opinbcr könnun í Bretlandi hcfur lcitt í ljós að meira en
hclmingur brczku þjóðarinnar kennir stöðugs sjúkleika, og cru
konur mun sóttkaldari cn karlar.
Könnunin tók til 25 þúsund
manns. 56% karla töldu sig búa við
varaniegan heilsubrest og 70%.
kvenna höfðu sömu sögu að segja.
Aðeins 23%. þeirra karla, sem rætt
var við, og 15%. kvennanna töldu
að heilsufarið væri í lagi.
Um það bil helmingurinn hafði
notað meðul og sjúkravarning af
ýmsu tagi síðustu tvær vikurnar
áður en könnunin fór fram, en um
20%. sögðust að jafnaði þurfa á
lyfjum að halda.
Frumvarpið verður lagt fyrir
fulltrúadeild þingsins á fimmtu-
dag, en afgreiðsla þess í öld-
ungadeildinni átti sér stað um
leið og gripið var til bensín-
skömmtunar í Kaliforníu. Þar
hefur skömmtunin valdið hinu
mesta írafári, en er kvöldaði var
þó mesti móðurinn runninn af'
bensínkaupendum, sem lent
hafa í handalögmálum við ben-
sínstöðvar út af dropanum dýr-
mæta.
Sjá frétt á bls. 26.