Morgunblaðið - 10.05.1979, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.05.1979, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1979 -------------------------------------------------------------------r.. -. BettMÍ Bjmrnatton Leikrit L; vikunnar fi kl. 21.05: „Einum ofaukið” Á dasskrá útvarps í kvöld kl. 21.05 verður flutt leikritið „Einum ofaukið". Höfundur leik- ritsins er Joll Brooke Árnason, sem jafnframt er leikstjóri. Þýðinguna gerði Benedikt Árna- son. Mavis og James Thompson lifa hvorki í betra né verra hjóna- bandi en gengur og gerist. Þau eiga tvö börn, búa í þægilegu borgarhverfi og láta hverjum degi nægja sín þjáning, ef svo mætti segja. En dag nokkurn kemur kona í heimsókn. Hún segist heita Rose McNally, og það verður fljótlega ljóst, að hún er enginn venjulegur gestur. Þetta er gamansamt verk, en þó er kannski meiri alvara á bak við en margur hyggur. Jill Brooke er borin og barn- fædd í Englandi. Hún stundaði leiklistarnám í RADA og vann síðan hjá útvarpi, sjónvarpi og leikhúsum og einnig við kvik- myndir. Hún lék, leikstýrði, sá um sviðsetningu o.m.fl. Eftir að Jill flutti til Islands með manni sínum, Benedikt Árnasyni leik- ara, hefur hún sett á svið nokkur leikrit: „Við eins manns borð“ eftir Terence Rattigan hjá Leik- listarskóla íslands, „Hunangs- ilm“ eftir Shelagh Delaney hjá Leikfélagi Akureyrar, þar sem hún er nú að setja upp verk eftir bóra FrfðríknóAttlr Guðrin t>. Stephennen Útvarp í kvöld kl. 20.30: Bein útsending frá tónleikum Sinfóníu- hl j ómsveitarinnar Jill Brooke Árnason höfundur og leikstjóri Alan Ayckburn, og „Ærsla- draug“ Cowards í Hveragerði. „Einum ofaukið“ er fyrsta verk hennar í Islenzka útvarp- inu, en hefur áður verið flutt í BBC. Með aðalhlutverk fara Þóra Friðriksdóttir, Guðrún Þ. Stephensen og Bessi Bjarna- son.Flutningur leiksins tekur 37 mínútur. Á dagskrá útvarps í kvöld kl. 20.30 er bein útsending frá áskritartónleikum Sinfóníu- hljómsveitar ísiands í Háskóla- bíói. Af efnisskrá tónleikanna verður útvarpað tveimur verk- um: a. „Oberon", óperuforleikur eftir Carl Maria von Weber og b. „Rokkoko-tilbrigðin op. 33 eftir Pjotr Tsjaíkovsky. Stjórnandi á þessum tónleik- um er Páll P. Pálsson. Hann er fæddur í Graz í Austurríki árið 1928. Naut hann þar víðtækrar tónlistarmenntunar, en að henni lokinni hlaut hann sæti í óperu- hljómsveitinni í Graz, þá aðeins 17 ára að aldri. Árið 1949 tók hann tilboði frá Islandi um að gerast stjórnandi Lúðrasveitar Reykjavíkur. Hann lék í Sinfóníuhljómsveit Islands fram til ársins 1959, en fór þá til Hamborgar til frekari tónlistar- náms, aðallega í hljómsveitar- stjórn. Hann er nú fastráðinn hljómsveitarstjóri Sinfóníu- hljómsveitarinnar. Árið 1964 gerðist hann stjórnandi Karla- kórs Reykjavíkur. Páll er einnig afkastamikið tónskáld sem hefur samið mörg verk fyrir hljóm- sveit, kóra og ýmsa hljóðfæra- flokka. Einleikarinn Erling Blöndal Bengtsson er af dönsku og íslensku foreldri, fæddur í Kaup- mannahöfn 8. mars 1932. Hann hóf barnungur að leika á selló. Stundaði nám við Curtis Institute of music í Fíladelfíu og hefur starfað sem kennari við þá stofnun svo og Konunglega Tónlistarháskólann í Kaup- mannahöfn og Tónlistarskóla Sænska utvarpsins. Hann er nú fastráðinn kennari í sellóleik við Tónlistarháskólann í Köln. Erling Blöndal Bengtsson hefur ferðast til tónleikahalds um nær allan heim og hefur honum verið sýndur margvís- legur heiður m.a. verið veitt Dannebrog-orðan og Stór- riddarakross hinnar íslensku Fálkaorðu. Hann hefur leikið sellókonsert Lutoslavskis 29 sinnum á tónleikum, þar af í fjögur skipti undir stjórn höfundarins og er þetta því í 30. sinn sem hann leikur verkið. Útvarp Reykjavík GARÐYRKJUÁHÖLD SKÓFLUR, allskonar RISTUSPAÐAR, KANTSKERAR, GARÐHRÍFUR, GREINAKLIPPUR, GRASAKLIPPUR, GREINASAGIR, GARÐSLÖNGUR, SLÖNGUVAGNAR, SLÖNGUTENGI, SLÖNGUKRANAR, VATNSDREIFARAR, GARÐKÖNNUR, GIRÐINGAVÍR, GALV. HANDSLÁTTUVÉLAR SLÖNGUKLEMMUR nota hinir vandlátu. Stæröir frá V« „—12„ Einnig ryðfríar. Gúmmíslöngur Vængjadælur TOGVÍR 11/4“, 11/2“, 1%“, 2“, 21/4“, 21/2“, í 300 fm ri. Dragnótavír 1Vb“ í 480 fm ri. Vinstra og hægra snúin. HANDFÆRAVINDUR HANDFÆRAÖNGLAR NÆLONLÍNUR HANDFÆRASÖKKUR PIKLAR M. ÚRVAL. SIGURNAGLAR HÁKARLAÖNLAR SKÖTULÓÐAÖNGLAR GRÁSLEPPUNET RAUÐMAGANET K0LANET SILUNGANET • BJÖRGUNARVEST' ÁRAR ÁRAKEFAR TÓGKEFAR ÁTTAVITAR BATADÆLUR BÁTADREKAR BÁRUFLEYGAR DRIFAKKERI RADARSPEGLAR BÁTASAUMUR BÁT ALANTERNUR SEGULDÚKAR BATALAKK NETANÁLAR VÉLATVISTUR í 25 KB BÖLLUM HVÍTUR OG MISLITUR Ánanaustum OPIÐ LAUGARDAGA KL. 9—12. FIIVI4ITUDKGUR 10. mai MORGUNNINN 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar. 7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn. 7.25 Morgunpósturinn. Umsjónarmenn: Páll Heiðar Jónsson og Sigmar B. Hauksson. (8.00 Fréttir). 8.15 Veðurfregnir. Forustugr.dagbl. (útdr.). Dagskrá. 8.35 Morgunþulur kynnir ýmis Iög að eigin vali. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: Ármann Kr. Einarsson heldur áfram að lesa ævintýri sitt „Margt býr í fjöliunum“ (3). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Morgunþulur kynnir ýmis lög; frh. 11.00 Verzlun og viðskipti. Umsjón: Ingvi Hrafn Jónsson. Litið við hjá „kaup- manninum á horninu". 11.15 Morguntónleikar: Kjell Bækkelund leikur Píanósónötu nr. 3 eftir Christian Sinding/ Ralph Holmes og Eric Fenby leika Sónötu nr. 3 fyrir fiðlu og píanó eftir Frederick Delius. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Verðurfregnir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. SÍÐDEGIÐ__________________ 14.30 Miðdegissagan: „Þorp í dögun“ eftir Tsjá-sjú-lí Guðmundur Sæmundsson les þýðingu sína (3). 15.00 Miðdegistónleikar: Fílharmoníusveitin í Berlín leikur Hátíðarforleik „Til nafnfestis“ op. 115 eftir Ludwig van Beethoven; Herbert von Karajan stj./ Daniel Barenboim og Nýja fílharmoníusveitin í Lundún- um leika Píanókonsert nr. 1 í d-moll eftir Johannes Brahms; Sir John Barbirolli stj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Tónleikar. 17.20 Lagið mitt: Heiga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. KVÖLDIÐ 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tiikynningar. 19.35 Daglegt mál Árni Böðvarsson flytur þáttinn. 19.40 íslenzkir einsöngvarar og kórar syngja 20.00 „í nóttinni brennur ljósið“. Fyrsti þáttur um danskar skáldkonur: Tove Ditlevsen. Nína Björk Árnadóttir og Kristín Bjarnadóttir lesa Ijóð í eigin þýðingu og Helga J. Halldórssonar — og greina auk þess frá listferli skáld- konunnar. 20.30 Tónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar íslands í Háskólabíói; — beint útvarp. Stjórnandi: Páll P. Pálsson. Einleikari: Erling Blöndal Bengtsson. a. „Oberon“, óperuforleikur eftir Carl Maria von Weber. b. Rokkoko-tilbrigðin op. 33 eftir Pjotr Tsjaíkovský. 21.05 Leikrit: „Einum ofaukið" eftir Jill Brokke Árnason Þýðandi: Benedikt Árnason. Leikstjóri: Jill Brooke Árnason. Persónur og leikendur: Mavis/ Þóra Friðriksdóttir, Rose/ Guðrún Þ. Stephensen, James/ Bessi Bjarnason. 22.10 Sönglög eftir Mozart Dietrich Fischer-Dieskau syngur; Daniel Barenboim leikur á píanó. 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.50 Víðsjá: Friðrik Páll Jónsson sér um þáttinn. 23.05 Áfangar Umsjónarmenn: Asmundur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson. 23.50 Frcttir. Dagskrárlok. FÖSTUDAGUR Bresk bíómynd frá árinu 1968, byggð á leikriti eftir John Osborne. Aðalhlutverk Nicol Williamson. Lögfræðingurinn Bill Mait- ’and á við margvfsieg eigin- vandamál að stríða; hann á erfitt með að taka ákvarð- anir, er geisamlega háðn öðrum, drekkur óhóflega ! og er óþolandi íjölskyldu- ——— faðir. 22.10 Ohæfur vitnisburður Jþýðarídi Heba JúK ^ (Inadmissible Fvirtence) | 23.40 Dagskiárlok. V—...................... ■■ ■ * 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dag- skrá 20.40 Skonrok(k) Þorgeir Ástvaldsson kynn- ;r iý dægurlög. 2’ *s> Kastljós Þáttur um innlend málefni. Umsjónarmaður Ómar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.