Morgunblaðið - 10.05.1979, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MAI 1979
11
í húsi þessu aö Skaftahlíö 24 er nú
þegar til leigu 1. hæö hússins og
hluti af kjallara.
Húsnæöiö á 1. hæö er um 415 m2,
lofthæð 3.80 m og rými í kjallara er
um 190 m2 og lofthæö 2.80 m.
Lyfta er á milli 1. hæöar og kjallara.
Húsnæöiö leigist tilbúið undir
tréverk eöa lengra komið eftir
nánara samkomulagi.
Húsnæöiö hentar vel til verslunar-
rekturs og þjónustustarfsemi. Lóö
hússins er fullfrágengin. Viö húsiö
er malbikuö bifreiöastæði fyrir um
100 bíla. Húsnæöiö leigist í einu
lagi eöa í hlutum. Um ieigu til langs
tíma getur veriö aö ræöa.
Nánari upplýsingar veitir Einar I.
Halldórsson á skrifstofu félagsins.
S.L. SUNNUDAG 6. maí, lauk firmakeppni Taflféiags Kópavogs.
Sigurvegarði varð verzlunin Heimakjör með 23.5 vinn. af 27
mögulegum. Þeir sem tefldu fyrir Heimakjör voru Egill Þórðarson,
Þröstur Einarsson og Stefán Bjarnason.
í öðru sæti með 19.5 vinn. kom síðan byggingarfyrirtækið Karl
Einarsson sf. Fyrir það tefldu þeir Jón Pálsson, Jörundur
Þórðarson og Einar Karlsson. í þriðja sæti varð Skoda-umboðið,
Jöfur, með 16.5 vinn. Fyrir þá tefldu þeir Jón Þór Jóhannsson,
Hjalti Karlsson og Eggert Kaaber.
Röð þeirra sem á eftir koma er þessi: 4. Rannsóknarlögregla
ríkisins 16 v., 5. Blikksmiðjan Vogur 12.5 v., 6. Málning h/f 11 v.,
7.-8. Sparisjóður Kópavogs 10 v., 7.-8. Kársnesskólinn 10, 9.
Hjálparsveit skáta 9,10. Snælandsskólinn 7.
Firmakeppni TK lokið
1
LAUGAVEGI 178 - SÍMI 21120
Sigursveit Heimakjörs. F.v. Þröstur Einarsson, Egill Þórðarson og
Stefán Bjarnason.
Grafík í Norræna húsinu
Nú stendur yfir í anddyri
Norræna hússins sýning á grafík-
myndum eftir sænska listamann-
inn Svenrobert Lundquist. Hann er
einn þekktasti grafíklistamaður
Svíþjóðar, fæddur 1940 í
Atvidaberg, og stundaði nám við
Valands konstskola í Gautaborg
1963—67. Frá 1967 hefur hann
haldið 15 einkasýningar Svíþjóð.
Verk hans eru á mörgum sænskum
söfnum og á listasafni Norður-Jót-
lands.
Á sýningunni í Norræna húsinu,
sem standa mun allan maímánuð,
eru 27 myndir, sem allar eru til
sölu.
Sóknir Reykjavíkurprófastsdæmis:
Fjöldi sóknarbarna 2500
til 8000 á hvern prest
Safnaðarráð Reykjavíkurprófastsdæmis kom fyrir nokkru saman
til fundar, en ráðið skipa sóknarprestar, formenn sóknarnefnda og
safnaðarfulltrúar þeirra 15 söfnuða sem í Reykjavík eru, eða alls 39
manns. Fundir þessir eru haldnir minnst einu sinni á ári. Sr. ólafur
Skúlason dómprófastur gaf á fundinum yfirlitsskýrslu um starfsemi
safnaðanna.
Fram kom að nýlega var haldinn fundur með organistum,
söngstjórum og formönnum sóknarnefnda þar sem rætt var um
kirkjusöng og kórstarf. Þá er væntanleg ráðstefna um starf
meðhjálpara og kirkjuvarða í samvinnu Reykjavíkur og Kjalarnes-
prófastsdæmis þar sem fjallað verður um störf og stöðu þeirra.
Þá fjallaði sr. Ólafur Skúlason í
skýrslu sinni um ýmsar tölulegar
upplýsingar. Utan trúflokka í
Reykjavík eru nú 1.953, en í
Þjóðkrikjunni 87.677 íbúar að
meðtöldum íbúum í Kópavogi og
Seltjarnarnesi. Ibúar eru alls
99.173 á þessu svæði og eru því um
10 þúsund manns sem tilheyra
öðrum söfnuðum. Stór hluti
sóknarbarna er undir 15 ára aldri,
t.d. 40,4% í Fella- og Hólasókn þar
sem ru samtals 9.714 sóknarbörn
og kvað sr. Ólafur það segja til sín
í sóknargjöldum þegar allt að
helmingur sóknarbarna greiddi
ekki gjöldin. Hlutfall barna yngri
en 15 ára í Dómkirkjusöfnuði er
um 17% og kvað hann því ljóst að
aldurssamsetning innan safnað-
anna væri mjög misjöfn. Þá kom
fram í skýrslu dómprófasts að nú
eru 4.615 sóknarbörn á þá 19
presta sem starfa í Reykjavík, en
skiptingin væri ójöfn þar sem í
sumum prestaköllum væru tveir
prestar með t.d. 5.357 sóknarbörn,
eins og væri í Langholtspresta-
kalli, og í Hallgrímsprestakalli
5.650 þar sem einnig eru tveir
prestar, en milli átta og níu
þúsund á Fella- og Hólasókn,
Breiðholtssókn, Bústaðasókn og
Digranessókn þar sem einn
prestur væri starfandi.
Sr. Ólafur Skúlason kvað lög
gera ráð fyrir að hver prestur
hefði 5.000 sóknarbörn innan sinn-
ar sóknar og þyrfti því að huga að
flutningi presta milli sókna eftir
því sem íbúatala þeirra breyttist,
en til þess þarf lagabreytingar.
Aðalumræðuefni þessa safnaða-
ráðsfundar sagði sr. Ólafur hafa
verið kirkjugarðamálefni. Hefur
t.d. verið unnið að breytingum í
Fossvogskirkju og er þar nú
kistulagningarkapella þar sem
fámennar jarðarfarir geta farið
fram og viðtalsherbergi fyrir
prest og biðsalur fyrir aðstand-
endur. Þá kom fram að í Gufunesi
þar sem nýr kirkjugarður verður
staðsettur hafa verið reist tvö hús
og er áætlað að taka hann í
notkun á næsta ári og að hann
dugi til ársins 2030. Þá fjallaði sr.
Bernharður Guðmundsson frétta-
fulltrúi kirkjunnar um boðskipti
og tóku fundarmenn þátt í
æfingum sem hann lagði fyrir þá.
Skipuð var fjármálanefnd Reykja-
víkurprófastsdæmis og eiga sæti í
henni Ottó Michelsen, Hermann
Þorsteinsson og Salómon Einars-
son og til vara Magnús Þórðarson
og Gunnar Petersen.
Vortónleikar Tónmennta-
skólans á laugardag
TÓNMENNTASKÓLI Reykjavíkur er nú að ljúka 26. starfsári sínu.
í skólanum voru 420 nemendur í vetur. Kennarar voru alls 29.
Meðal annars starfaði hljómsveit við skólann með 45 meðlimum og
einnig lúðrasveit með 25 meðlimum. Mikið hefur verið um
tónleikahald á vegum skólans í vetur og vor.
Síðustu vortónleikar Tónmenntaskólans verða haldnir í Austur-
bæjarbíói n.k. laugardag, 12. maí kl. 2 e.h. Á þessum tónleikum
koma einkum fram eldri nemendur skólans. Á efnisskránni verður
einleikur, samleikur og hópatriði.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
TIL LEIGU