Morgunblaðið - 10.05.1979, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MAÍ1979
15
Karpov náði Tal
á endasprettinum
ANATOLY Karpov, heimsmeistari í skák. tókst að komast upp að hlið landa síns Mikhails Tal með því
að sigra Ljubomir Ljubojevic í næstsíðustu umferð skákmótsins í Montreal. í síðustu umíerðinni. sem
tefld var á sunnudaginn. gerðu þeir Karpov og Tal sfðan báðir stutt jafntefli, Karpov við Kavalek og
Tal við Timman. Þeir félagar skiptu þannig með sér fyrstu verðlaununum. en hvor um sig hlaut
jafnvirði sjö milljóna fslenzkra króna.
Margir urðu hins vegar fyrir vonbrigðum með þessa kyrrlátu síðustu umferð eftir spennandi og
tilþrifamikið mót. Snemma mótsins tók Karpov forystuna. en tap fyrir Larsen gaf Tal færi á að
skjótast fram úr. Tal fylgdi fyrsta sætinu samt ekki eftir af mikilli hörku og eftir sigur Karpovs yfir
Ljubojevis jöfnuðust metin.
Sovézku stórmeistararnir voru
óneitanlega báöir mjög vel að sigr-
inum komnir. Tal náði sínum bezta
árangri frá því að hann vann
heimsmeistaratitilinn af Botvinnik
árið 1960 og skákir hans frá þessu
móti hafa hlýjað mörgum gömlum
aðdáendum hans um hjartaræturn-
ar, því að þegar Tal nær sér á strik
teflir enginn skemmtilegar. Karp-
ov, heimsmeistari, sýndi á sér nýjar
hliðar á Montreal-mótinu og hann
tók meiri áhættu í skákum sínum
en oft áður. Skákirnar sem birtast í
þessum þætti eru glögg dæmi um
þetta.
Lokaröðin á mótinu varð þessi:
1.—2. Karpov og Tal 12 vinningar
af 18 mögulegum. 3. Portisch 10‘/2
v. 4. Ljubojevic 9 v. 5.-6. Timman
og Spassky 8V2 v. 7.-9. Hort.
Kavalek og HUbner 8 v. 10. Larsen
5V4 v.
Ágætur árangur byrjanasérfræð-
ingsins Portisch kemur vafalaust
fáum á óvart. Með þessum árangri
sínum hefur hann sýnt og sannað
að hann er sterkasti skákmaður
utan Sovétríkjanna í dag, að þeim
Fischer og Korchnoi undanskildum.
Undrun vekur hins vegar ágætur
árangur Ljubojevics. Hann hefur
um árabil verið langefnilegasti
skákmaður Júgóslava, en ekki fylli-
lega uppfyllt þær vonir sem við
hann hafa verið bundnar.
Eini ljósi punkturinn við árangur
Bents Larsens er sigur hans yfir
Karpov. Larsen fór mjög illa af stað
á mótinu og eftir það tefldi hann
djarft til vinnings í hverri einustu
skák. Andstæðingar hans nýttu sér
þetta til fullnustu og Larsen varð
að gera sér enn fleiri töp að góðu,
jafnvel þó að herbragð hans hafi
heppnast nokkrum sinnum, eins og
t.d. gegn Karpov, sem hann lagði að
velli með svörtu.
Slakur árangur Spasskys kemur
nokkuð á óvart, sérstaklega þar sem
hann varð efstur ásamt Karpov í
Bugojno í fyrra. Þeir Karpov og Tal
sýndu algera yfirburði yfir hann og
unnu hann báðir 2—0. Það var
sérstaklega í seinni viðureign
þeirra Spasskys og Tals sem sá
fyrrnefndi varð illa úti. Reyndar
sýnir skákin mjög vel hversu frá-
bærlega vel upplagður Tal var í
Montreal:
Ilvítt: Bori.s Spassky
Svart: Mikhail Tal
Drottningarindversk vörn.
1. d4 - Rffi. 2. c4 - efi, 3. Rf3 -
b6. 4. e3 - Bb7. 5. Bd3
(Þetta afbrigði á ekki miklum
vinsældum að fagna um þessar
mundir, enda talið fremur bitlaust.
Spassky beitir því þó ætíð af og til,
t.d. vann hann 15. skákina við Hort
með því og einnig Guðmund Sigur-
jónsson í Munchen um daginn. í
huga Tals er afbrigðið vafalaust
einnig tengt góðum minningum, því
að hann vann Petrosjan með því í
25 leikjum á svart árið 1976.)
d5. 6. b3 - Bd6. 7. (M) - (V0, 8.
Bb2 - Rbd7. 9. Rbd2
(Að öllum líkindum er þessi riddari
betur staðsettur á c3, því að þá
verður svartur að eyða tíma í að
leika a7 — a6 síðar)
De7
(Hér er oft leikið 9.... Re4, en Tal
fer sér að engu óðslega og byggir
upp góða stöðu í rólegheitum)
10. IIcl - IIad8.11. Dc2
(Eftir 11. De2 — Re4, er staðan í
jafnvægi)
c5.12. cxd5 — exd5,13. dxc5
(Betra var 13. Hfdl eða 13. Hfel.
Svartur fær nú tvö hangandi peð á
miðborðinu, en þau reynast fremur
styrkja stöðu hans en veikja, því að
í 5. Bd3 afbrigðinu standa menn
hvíts til sóknar á kóngsvæng, en
ekki til þess að tefla stöðubaráttu á
miðborðinu)
Skák
eftir MARGEIR
PÉTURSSON
bxc5,14. Dc3 - IIfe8,15. llfdl
(Með hliðsjón af næsta leik svarts
var betra að leika hér 15. Hcdl og
hafa peðið á f2 áfram valdað)
d4!, 16. exd4 — cxd4.17. Da5?
(Eftir þennan leik álítur Tal að
stöðu hvíts verði ekki bjargað. 17.
Dxd4 gekk að vísu ekki vegna 17... .
Rc5, en 17. Rxd4 kom vel til greina.
Tal gefur eftirfarandi framhald
upp í 64: 17.... Bxh2+!? 18. Kxh2 —
Rg4+ 19. Kgl - Dh4 20. R4f3 -
Botvinnik að velli í einvígi árið
1960.
Dxf2+ 21. Khl - He5 22. Bf5 -
Re3 og vinnur, heldur 19. Kg3! —
Bxh2+! 21. Kxh2 - IIh5+. 22. Kgl
De5+, 20. f4 - De3+, 21. R3f3 -
Rdf6 og svartur hefur sókn fyrir
manninn. Þá getur svartur einnig
eins og Tal bendir á sleppt því að
fórna á h2, en leikið einfaldlega
17... . De5, 18. R4f3 - Dh5 með
góðum möguleikum fyrir peðið)
Re5. 18. Rxc5 — Bxe5. 19. Rc4 —
IId5
(Vegna hins slaka 17. leiks hvíts
vinnur svartur nú leik í sókninni og
þar með eru úrslitin ráðin)
20. Dd2
— Rgl og hvitur gafst upp, þvi að
svartur hótar bæði 23.... Dh4 og
23. ... Hhl+!
h2 reiturinn kom einnig mikið við
sögu í síðari skák þeirra Timmans
og Karpovs. Karpov hefur áreiðan-
lega undirbúið sig vel undir að
mæta Timman, því að fyrir mótið
stóðu leikar jafnir með þeim. Mönn-
um er líklega enn í fersku minni
glæsilegur sigur Timmans yfir
heimsmeistaranum í Bugojno í
fyrra. I Montreal varð annað uppi á
teningnum, því að Karpov vann
báðar skákirnar sannfærandi.
Hvítt: Jan Timman
Svart: Anatoly Karpov
Enski leikurinn
1. c4 - Rffi. 2. Rc3 - e5. 3. Rf3 -
Rcfi. 4. e3
(Þetta afbrigði er í tízku um
þessar mundir, en áður var hér
oftast leikið 4. g3)
Be7.5. d l - exd4.6.Rxd4 - 0-0. 7.
Rxcfi - bxcfi. 8. Be2 - d5. 9. 0-0
- Bdfi. 10. b3 - De7.11. Bb2?
(Eins og kemur í ljós hefði Timman
betur leikið hér 11. cxd5. Hann er
hins vegar að f.vlgja fordæmi Keene
í skák hans við Jansson á Ólympíu-
skákmótinu í Haifa 1976 og á sér
því einskis ills von)
dxcl!
(Þetta er endurbót Karpovs á
áðurnefndri skák, en í undirbúningi
sínum fyrir einvígið við Korchnoi
rannsakaði hann þetta afbrigði
ásamt aðstoðarmönnum sínum)
12. bxc4
Karpov sýndi nýjar hliðar á sér,
en það var ckki fyrr en eftir
næstsíðustu umferð að honum
tókst að ná Tal að vinningum.
(Þvingað, því að eftir 12. Bxc4
vinnur svartur á hefðbundinn hátt
eftir 12.... Bxh2+! 13. Kxh2 —
Rg4+)
Hb8.13. Dcl - Rg4.14. g3 - He8,
15. Rdl?
(Karpov taldi eftir skákina að
hvítur hefði betur leikið hér 15. c5.
Sennilega hefur hann haft í huga
framhaldið 15. . .. Bxc5, 16. Rdl og
nú er 16.... Rxe3 vafasamt, því að
eftir 17. fxe3 — Bxe3+, 18. Rxe3 —
Dxe3+, 19. Dxe3 - Hxe3, 20. Kf2 -
Hxe2+, 21. Kxe2 - H:.b2+, 22. Ke3
gengur 22.... Hxh2? ekki vegna 23.
Hfdl)
Rxh2!. 16. c5
(Eina vonin, því að eftir 16. Kxh2
- Dh4+, 17. Kgl - Bxg3, 18. fxg3
- Dxg3+, 19. Khl - He4, 20. Hf4 -
Bh3, 21. Bfl - Bxfl, 22. Dd2 -
He6, 23. Bf6 - Hxf6, 24. Hxf6 -
Dh4+ verður svartur þremur peðum
yfir)
Rxfl. 17. cxdfi — Rxg3!
(Kjarninn i áætlun Karpovs.
Svartur hefur nú þrjú peð fyrir
liðsmuninn og sókn að auki. Hvitur
stendur því uppi með tapað tafl.)
18. Íxg3 - Dxdfi. 19. KÍ2 - Dhfi.
20. Bd t - Dh2+, 21. Kel - Dxg3+.
22. Kd2 - Dg2. 23. Itb2 - Bafi. 24.
Rd3 - Bxd3. 25. Kxd3 - Ilbd8.
2fi. Bfl - Dc4+. 27. Kc3 - c5!. 28.
Bxc5 - Dcfi. 29. Kh3 - IIb8+, 30.
Ka3 - IIe5. 31. Bhl - Dbfi og
hvítur gafst upp.
Frá Bridgesambandi
Reykjanesumdæmis
Úrslit í Reykjanesmóti í
tvímenning voru spiluð 4. og 5.
maí. Til úrslita spiluðu 24 pör.
Reykjanesmeistarar í
tvímenning 1979 urðu Jón
Andrésson og Garðar Þórðarson,
eftir mjög jafna og tvísýna
keppni.
Röð efstu para varð þessi:
1. Jón Andrésson
Garðar Þórðarson 101
2. Björn Eysteinsson
Magnús Jóhannsson 97
3. Sigurður Vilhjálmsson
Runólfur Pálsson 95
4. Jón Gíslason
Þórir Sigursteinsson 93
5. Halldór Einarsson
Friðþjófur Einarsson 81
6. Logi Þormóðsson
Þorgeir Eyjólfsson 67
7-8. Gísli Torfason
Einar Jónsson 63
7-8. Sigurður Davíðsson
Gísli Davíðsson 63
Brldge
Umsjóns ARNÓR
RAGNARSSON
9. Gylfi Sigurðsson
Sigurberg Elentínusson 45
Ólafur Lárusson
Hermann Lárusson 32
11. Gróa Jónatansdóttir
Kristmundur Halldórss. 22
12. Þórarinn Sófusson
Bjarnar Ingimarsson 10
13. Sigurjón Tryggvason
Skúli Einarsson 4
Meðalskor 0.
Átta stigahæstu pörin hafa
unnið sér þátttökurétt í úrslitúm
íslandsmótsins í tvímenning,
sem verða spiluð í þessum
mánuði. Starfsárinu hjá BRU er
nú lokið og vill stjórnin þakka
bridgeþáttum dagblaðanna góða
samvinnu. Stjórn BRU.
Tilboö óskast
í stálpramma (vélalausan) stærö 54x14 fet, þyngd um
9 tonn. Pramminn veröur til sýnis á svæði okkar á
Keflavíkurflugvelli föstudaginn 25. maí kl. 14—16.
Tilboð veröa opnuö á skrifstofu vorri aö Klapparstíg
26 miövikudaginn 30. maí kl. 11.
Sala Varnaliðseigna.
%
Keflvíkinaar!
Fararstjórar Olympo verða í
Bergási í kvöld kl. 20-22.
Komið og kynnið ykkur
Benidormferðir sumarsins.
FERÐASKRIFSTOFAN
QiYimm
Norðurver/Nóatún, símar 29930 og 29830
Evrópumarkaðsdeild
Laser.
seglbátanna óskar eftir umboðsmanni til að
annast dreifingu á íslandi.
Allir áhugamenn um siglingar vita að Laser hefur
aflað sér heimsfrægðar. Laser er í aljóðaflokki
seglbáta, sem einn maður getur stjórnað, og
auðvellt er að koma honum fyrir á bílþaki.
Báturinn er mjög vinsæll hjá þeim sem stunda
siglingar að staðaldri ekki síður en þeim sem
skreppa á sjó öðru hvoru. Yfir 70.000 Laserbátar
hafa þegar selst um heimallan.
Áhugasamur og virkur kunnáttumaður óskast
sem gæti varið nokkru af tíma sínum til sölu og
markaðsþjónustu á framleiðslu sem áreiðanlega
ryður sér til rúms á Islandi.
Sendið bréf (tilboð) með upplýsingum um fyrir-
fppU 1 \rAov Í-!!
PERFORMANCA SAILCRAFT SA
Quai Suchard 20, 2003 Neuchatel/Switzerland
sími 038/25 52 52, telex 35659 pssa ch