Morgunblaðið - 15.05.1979, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 4 SIÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
108. tbl. 66. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 15. maí 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Khomeini: „Lokasigur
með ver aldarbyltingu’ ’
Teheran. 14. ma(. Reuter, AP.
KHOMEINJ, íranski trúarlei<V
toKÍnn, hvatti í dax fátækar
þjóðir heims til að reisa sír úr
flaKÍ ok fylsrja fordæmi írana.
Hann sagði að lokasigurinn yrði
ekki unninn fyrr en fslömsk
stjórnskipun hefði skotið rótum
hvar sem er á byggðu bóli.
Byltingardómstóil lét f dag
taka af lífi fyrrverandi borgar-
stjóra í bænum Behbeh.
sakaður var um manndráp og
pyntingar. Ayatollah Khomeini
hefur nú sett hömlur við frjáls
ræði byltingardómstóla og fyrir-
skipað að aðeins megi lffláta þá
óvini rfkisins, sem gerst hafa
sekir um manndráp eða borið
ábyrgð á því.
Yfirlýsing Khomeinis um
heimsbyltingu er djarfara
Skrækti yfír
alla Kýpur
Nfkósíu. Kýpur, 14. ma(. AP
ÞAÐ var ekki músin sem vein-
aði, heldur þulurinn þegar
músin skyndilega bcit hann í
fótinn í miðjum dagskrárlestri
í útvarpsherberginu og er ekki
að spyrja að skrækurinn barst
yfir alla Kýpur.
Ungfrú Walz segist ekki hafa
veitt því eftirtekt að hún æpti
upp og hélt áfram lestrinum.
Hún var síðan flutt á sjúkrahús
í skyndi til sprautunar en út-
varpsráð hefur fyrirskipað
strangar varúðarráðstafanir
tilað koma í veg fyrir að mýs
sletti sér frekar fram í útsend-
ingar útvarps á eynni.
eggjan leiðtogans til trúbræðra
sinna til þessa. Hann notaði til-
efnið í sjónvarpsávarpi frá hinni
heilögu borg, Qom.
„Islam hefur sýnt fólki leiðina
til ljóssins og borgið því við djúpi
myrkursins," sagði Khomeini.
„Við vonum að fátækar þjóðir
heims taki höndum saman og Iran
verði þeim fordæmi.“ Iranir settu
nýlega á fót vopnaðar trúboðs-
deildir með það markmið fyrir
augum að boða íslamska byltingu
um heim allan og til stuðnings
frelsishreyfingum þjóða.
Auk borgarstjórans fyrrverandi
var einn maður tekinn af lífi á
mánudag. Var hann dæmdur fyrir
siðferðisbrot og var það síðasta
aftakan áður en tilskipun
Khomeinis var gefin út.
Trúarleiðtoginn tók einnig á
móti fulltrúum Gyðinga í íran í
dag og lofaði þeim að þeir yrðu
ekki ofsóttir. Um sjötíu þúsund
Gyðingar eru í landinu.
Keisari lét berja
barnaf jölda í hel
París. 14. maí. AP.
IIERMENN Bokassa Mið-Afríku-
keisara kæfðu. stungu og
lemstruðu til dauða um hundrað
skólahiirn í síðasta mánuði fyrir
að mótmæla fyrirskiptun um að
klæðast ákveðnum búningum.
Fréttin er höfð eftir Amncsty
International í París.
Samtökin segja að börn á aldrin-
um sex til átján ára hafi verið flutt
til Ngarangba-fangelsisins í
refsingarskyni vegna framkomu í
mótmælagöngu þar sem sagt er að
þau hafi kastað grjóti að ríkisbif-
reiðum, þ. á m. bifreið Bokassa
keisara.
Unglingar í Bangui hafa þráast
við skipun menntamálaráðuneytis í
landinu síðan í janúar en þá var
ákveðið að háskólanemar skyldu
ganga í skólabúningum. Hafa
nemar jafnan borið við efnaleysi og
gripu þeir til ofbeldisaðgerða í
janúar og skemmdu tvær verk-
smiðjur og nokkrar verzlanir í
nágrenni háskólans. Herma
heimildirnar í París að milli
fimmtíu og hundrað ungiingar hafi
látið lífið í uppþotunum. Segja þær
ennfremur að herdeild frá
nágrannaríkinu Zaire hafi komið á
vettvang skömmu íftir að ófriður
barst út og hafi hún aðstoðað við að
kveða stúdenta niður.
Hinn átjánda apríl sl. segir
Amnesty að varðsveitir keisarans
hafi svo ruðst inn í nokkur hverfi í
Bangui og tekið hundruð barna
höndum. „Voru sum þeirra grýtt í
hegningarskyni fyrir að hafa varp-
að steinum að keisarabifreiðinni,“
segir Amnesty, „önnur voru stungin
með byssustingjum og enn önnur
barin til dauða með naglakylfum.
Líkur benda til að nærri hundrað
börn hafi verið drepin og grafin í
sama reit að næturlagi.“
Daginn eftir tilkynnti Bokassa,
sem áður hefur lýst sig „föður og
verndara barna, sem eru framtíð
landsins“ að hann ætlaði að leysa
úr haldi þau börn, sem enn sætu í
gæzluvarðhaldi. Amnesty Inter-
national hefur kært mál þetta fyrir
þeim aðilum er skipulagt hafa ár
barnsins. . Ferðamenn frá
Mið-Afríkukeisaradæminu segja
ógnarstjórn hafa ríkt í Bangui
síðan í janúar.
Bretar
ætla að
láta til
síntaka
BrUttsel. Búdapest. London. 14. maí.
Reuter. AP.
Varnarmálaráðherrar aðildar-
rikja Atlantshafsbandalagsins.
að Frakklandi og íslandi undan-
töldum. réðu í dag ráðum sínum í
Briissel um framtíð Evrópu í ljósi
nýs afvopnunarsamnings. SALT
2. Einnig funduðu utanríkisráð-
heyar Varsjárbandalagsríkja
fyrir luktum dyrum í Búdapest.
Stjórn brezka íhaldsflokksins
hefur lýst því yfir að hún muni
láta að sér kveða um varnarsam-
starf Atlantshafsbandalagsrikja
og Carrington lávarður, utan-
ríkisráðherra, sagði á sínum
fyrsta blaðamannafundi að Bret-
ar myndu hafa vaðið fyrir neðan
sig í málefnum
slökunarstefnunnar.
Varnarmálaráðherrarnir ræddu
^innig þörfina á að endurnýja
kjarnorkuvopn bandalagsins til að
jafnbrýna Sovétmönnum, sem þeir
telja að geti nú hæft hvaða skot-
mark í Evrópu sem er. Varnar-
málaráðherra Breta, Francis Pym,
sagði brýnt úrlausnar að sam-
komulag næðist um staðsetningu
kjarnorkuvopnanna og lofaði
hann að Bretar myndu beita sér
mjög á þessum vettvangi.
Ekkert hefur verið látið uppi
um innihald viðræðna utanríkis-
ráðherra Austur-Evrópuríkjanna,
en spurzt hefur að Gromyko,
utanríkisráðherra Sovétmanna og
Bandaríkjamanna, hafi skýrt ráð-
herrunum frá áhrifum af-
vopnunarsamnings Sovétmanna
og Bandaríkjamanna, sem
væntanlega verður undirritaður
um miðjan júní.
Carter Bandaríkjaforseti sagði
um helgina, að samskipti stórveld-
anna tveggja biðu „mikinn
hnekki" ef öldungadeildin hafnaði
samningnum. Fyrrverandi ritari
bandaríska flotans, Paul Nitze,
hefur sagt að samningurinn geri
Bandaríkjamönnum mjög örðugt
að verjast langdrægum eldflaug-
um Sovétmanna.
Carrington lávarður sagði í dag,
að mikilvægt væri að stuðla að
slökunarstefnunni, en þó yrði að
gæta þess að aðilarnir hefðu gagn-
kvæm not af.
Nafnið er
Karl Filip
Stokkhólmi. 14. maí. AP.
SILVÍA Svíadrottning ól á
sunnudag svcinharn fyrir tím-
ann. en prinsinn dafnar vel og
hefur hlotið nafnið Karl Filip
Edmund Bertil. Karl Gústaf
Svíakonungur var staddur í
Vestur-Þýzkalandi er prinsinn
fæddist og dróst því að til-
kynnt yrði um fæðinguna í sex
klukkustundir þar sem biða
þurfti konungs í Stokkhólmi.
Hann tilkynnti tíðindin síðan
sjálfur. Samkvæmt núgildandi
lögum er hann réttborinn til
krúnunnar en búist er við
nýjum lögum. er gefa systur
hans, Viktoríu, erfðaréttinn.