Morgunblaðið - 15.05.1979, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 15.05.1979, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 1979 29 íslenzkur iðnaður má ekki sitja við lakaraborð borvaldur Garðar Kristjáns- son mælti í sjær í efri deild Alþingis fyrir frumvarpi til breytinga á löKum (nr. 83/1978) um jöfnunarKjald, sem hann flyt- ur ásamt Jóni Helgasyni (F), Braga Níelssyni (A) og ólafi R. Grímssyni (Abl). Efnisatriði frv. er að 4. Kr. laganna orðist svo að ráðherra ákveður með reKÍugerð. hvaða vörur skuii xjaldskyldar skv. 1. gr. frumvarpsins. Sé vara undanþegin gjaldskyldu skv. 1. gr. skal endurgreiða söluskatt, sem innheimtur hefur verið af aðföngum til framleiðslu sömu vöru innanlands. Ráðherra ákveður með reglugerð um fram- kvæmd laga þessara að öðru leyti. í framsögu Þorv. Garðars og greinargerð komu fram eftirfar- andi efnisatriði: A síðasta þingi voru samþykkt lög um jöfnunargjald. Þar er svo kveðið á, að við innflutning vöru, sem toilar hafa verið lækkaðir eða felldir niður af og tollfrjálsar verða 1. janúar 1980 samkvæmt Góður gangur á málum Meðal mála, sem komu til um- ræðu í deiidinni, voru eftirtalin frumvörp: frv. til breytinga á útvarpslögum vísað til ncfndar og 2. umræðu, frv. um upplýsinga- skyldu banka vísað til 3ju umræðu, frv. um almannatryggingar vísað til nefndar og 2. umræðu, frv. um tekjustofna sveitarfélaga vísað til nefndar og 2. umræðu. Þá voru eftirtalin mál tekin til umræðu en atkvæðagreiðslu frestað til kvöld- fundar: frv. um söluskatt (3ja umræða í síðari deild) frv. um veiðar í fiskveiðilandhelgi Islands (3ja umræða f.vrri deild), frv. um segir Þorvaldur Garðar Kristjáns- son um endur- greiðslu söluskatts af aðföngum ákvæðum samnings um aðild ís- lands að Fríverslunarsamtökum Evrópu (EFTA) og samnings milli íslands og Efnahagsbandalags Evrópu (EBE), skuli greiða 3% jöfnunargjald. Lög þessi voru sett til að jafna samkeppnisaðstöðu íslensks iðnaðar gagnvart iðnaði landa EFTA og EBE vegna ólíkra sölu- skattkerfa. Vegna þeirra upp- söfnunaráhrifa, sem það sölu- skattkerfi, sem í gildi er hér á landi hefur í för með sér, er í verði vöru, sem flutt er út frá íslandi, grunnskóla (2. umr. fyrri deild), frv. um húsaleigusamninga (1. umr. síðari deild), frv. um jarð- ræktarlög (1. umr. síðari deild), frv. um gjaldmiðil íslands (1. umr. síðari deild), frv. um matvæla- rannsóknir ríkisins (2. umr. fyrri deild), frv. um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit (2. umr. fyrri deild) og frv. um aðstoð við þroska- hefta (2. umr. síðari deild). Rökstudd dagskrá Þrjú stjórnarfrumvörp um mat- vælarannsóknir og eftirlit, þ.e. frumvarp um matvælarannsóknir innifalinn ákveðinn söluskattur, en aftur á móti ekki í vöru sem flutt er frá landi þar sem virðis- aukaskattkerfið gildir. Sam- keppnisaðstaða framleiðenda, er búa við svo ólík söluskattkerfi, er því að þessu leyti ójöfn. Ef jafna á stöðu íslenska framleiðandans verður því að þessu leyti ójöfn. Ef jafna á stöðu íslenska fram- leiðandans verður því að endur- greiða honum þann söluskatt sem innifalinn er í útflutningsverði, eins og nú er gert með tilkomu tekna af jöfnunargjaldi. Við skattkerfi eins og það, sem við búum við, uppsafnast sölu- skattur einnig á margvíslega framleiðslustarfsemi og þjónustu fyrir innlendan ■ markað. Þegar hliðstæð vara er flutt inn frá landi, þar sem virðisaukaskatt- kerfi gildir, þá flyst hún inn í landið án uppsöfnunaráhrifa sölu- skatts og er að því leyti betur samkeppnisfær í verði en innlenda varan, þar sem í verði hennar gætir uppsöfnunaráhrifa sölu- skatts vegna þess skattkerfis sem ríkisins og tvö hliðarfrumvörp um eftirlit með matvælum og neyzlu- og nauðsynjavörum og frv. um bre.vtingu á lögum um hollustu- hætti og heilbrigðiseftirlit, voru á dagskrá deildarinnar. Heilbrigðis og trygginganefnd skilaði svo- hljóðandi nefndaráliti, er spannaði frumvörpin öll: „Nefndin hefur athugað frum- varpið og kvatt til fundar við sig ýmsa aðila er mál þetta snertir öðrum fremur. Niðurstaða nefnd- arinnar er sú að leggja til að málið verði afgreitt með svofelldri rökstuddri dagskrá: Þar eð upplýst er að nefnd sú, er skipuð var hinn 9. apríl 1978 til að endurskoða lög nr. 12 frá 1969 með hliðsjón af fenginni re.vnslu og til að semja drög að nýrri heilbrigðis- reglugerð, mun skila niðurstöðum sínum mjög bráðlega, og í fullu trausti þess, að fjárveitingavaldið sjái til þess að þessari afar þýðing- armiklu starfsemi verði séð fyrir nauðsynlegu fjármagni á fjárauka- lögum yfirstandandi árs, tekur við búum við. Ef jafna ætti sam- keppnisaðstöðu vara þessara hér á innlendum markaði hvað sölu- skattsáhrif á verð snertir, verður að leggja gjald á innfluttu vöruna er svarar til þess uppsafnaða söluskatts, sem falinn er í verði innfluttu vörunnar. Þyki hins vegar ástæða til að undanþiggja innfluttar vörur, sem íslenskur iðnaður á í samkeppni við, frá jöfnunargjaldi, eins og nú á sér stað t.d. að því er varðar veiðarfæri og fiskumbúðir, verður samkeppnisaðstaða þeirrar fram- leiðslu ójöfn samkeppnisaðstöðu annarrar iðnaðarframleiðslu sem keppir við innflutning. Er því eðlilegt aö ná hliðstæðum jöfnuði með því að endurgreiða uppj- afnaðan söluskatt á framleiðslu þessara vara séu þær framleiddar innanlands, svo sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir. Þorv. Garðar sagði að lokum að ekki væri hægt að una því, að ísl. iðnaðurinn sæti við lakara borð en erlendur og því væri þetta frv. flutt. deildin fyrir næsta mál á dagskrá." Undir þetta álit rita: Einar Agústsson, Jóhanna Sigurðardótt- ir, Vilmundur Gylfason, Garðar Sigurðsson, Matthías Bjarnason, Bjarnfríður Leósdóttir. Einar Ágústsson (F). framsögumaður nefndarinnar, sagði hina rökstuddu dagskrá flutta í þeirri trú, að viðbótarfjár- magn fengist til þessarar mikil- vægu starfsemi, ella væru líkur á að segja þyrfti upp allt að 4 starfsmönnum eftirlitsins. I>ingílokksfundir Enn voru nokkur mál á dagskrá (og atkvæðagreiðsla eftir í nokkr- um málum sem umræðu var lokið í) er fundi deildarinnar var frestað um kl. 4 síðdegis til kl. 9 um kvöldið. I millitíð voru ráðgerðir þingflokksfundir. í lofti lá í þing- sölum að þingflokksfundur Al- þýðubandalags gæti orðið vísbend- ing um framtíðarstöðu stjórnar- samstarfsins. Fékk 300 tonn á 4 dögum Siglufirði, 11. maí. AKUREYRARTOGARINN Harð- bakur kom inn til Siglufjaröar með 300 tonn af karfa og grá- lúöu. sem togarinn fékk á aðeins 4 dögum útaf Vestfjörðum. Er víst óhætt að kalla þetta mok- fiskerí. Togarinn landaði hér 150 tonnum en afgangnum landar hann í heimahöfn. Sigluvíkin og Sigurey eru lögð af stað í söluferð til Bretlands. Togararnir eru með 160—180 tonn af fiski, sem þeir fengu útaf Austfjörðum, aðallega þorsk og ýsu. Hjá þeim var einnig mok- fiskerí, t.d. fengu þeir 70—80 tonn á 12 tímum! — m.j. 90 tonn af ufsa á 48 tímum FJORIR færeyskir togarar voru við veiðar hér við land í síðustu viku, en einnig átta línuveiðarar og átta handfærabátar. Einn tog- aranna, Hallaklettur, hélt í viku- lok heimleiðis til Færeyja með góðan afla og hafði hann fengið um 90 tonn á síðustu 48 tímunum áður en lagt var af stað heimleiðis. Samkvæmt upplýsingum Land- helgisgæzlunnar hafa Færeyingar veitt liðlega 4200 tonn hér við land á árinu, þar af um 1200 tonn af þorski. Nýr hótelstjóri í Borgarnesi JÓHANNES B. Sigurðsson hefur tekið við starfi hótelstjóra í Borg- arnesi. Ólafur Ingi Reynisson, sem verið hefur hótelstjóri Hótels Borgarness síðastliðin tvö ár, hætti 1. maí síðastliðinn og tók Jóhannes þá við hótelinu. Svœðamótið hefst á laugardag SVÆÐAMÓT í skák hefst í Lusanne í Sviss n.k. laugardag. Keppendur eru 22 og verður þeim skipt í tvo 11 manna riðla. Fjórir skákmenn komast áfram úr hvorum riðli og keppa þeir um 3 sæti á milli- svæðamóti. Þrír íslenzkir skák- menn verða meðal keppenda, Guðmundur Sigurjónsson stór- meistari og alþjóðlegur meist- ararnir, Margeir Pétursson og Helgi Ólafsson. Tvö skip seldu í Hull TVÖ íslenzk skip seldu afla í llull í Hretlandi í gær og var meðal verð fyrir aflann 10fi og 300 krónur kflóið. Heimaey VE seldi 64 tonn og fékk fyrir aflann 26 milljónir króna, meðalverð 406 krónur. Sigurey SI seldi 76 tonn fyrir 27 milljónir króna, meðalverð 360 krónur. Uppistaðan í afla skipanna var þorskur og ufsi. Sigurey var einnig með 90—100 tonn af frystum fiski, sem verður seldur í dag. Forseti neðri deildar: Æskilegt að þingmenn sæki fundi í upphafi fundar í neðri deild í gær ávarpaöi forseti hennar, Ingvar Gíslason. þingmcnn og sagði æskilegt, að þeir sæktu þingfundi. — Það stóð svo á á síðasta þingfundi. sagði hann, að það var ekki hægt að afgrciöa mál með cölilcgum hætti vegna fjarveru þingmanna. Og ég vil taka fram. að það var ekki stjórnarandstööunni að kenna. Síðan hélt atkvæðagreiðsla um framhaldsskólafrumvarpið áfram og var það samþykkt mcð breytingartillögum meiri hluta mennta- málanefndar. en oft varð að endurtaka atkvæðagrciðslu þar sem þátttaka var ónóg. 21 þingmaöur þarf að taka þátt í atkvæðagreiöslu til þess að hún sé lögleg. Frumvarpinu var sfðan vfsað til 3. umræöu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.