Morgunblaðið - 15.05.1979, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.05.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 1979 5 Norskur kór með Sinfóníu- hljómsveit r Islands Norski kórinn Cæciliaforeningin syngur með Sinfóníuhljómsveit- inni á tónleikum í Iláskólabiöi kl. 20.30 næst- komandi, fimmtudags- kvöld. Á efnisskrá eru verk eftir islenzk og norsk tónskáld, Eivind Groven. Pál ísólfsson. Johan Svendsen og David Monrad Johansen. í frétt frá Sinfóníuhljómsveit Islands segir m.a., að norski kór- inn Cæcilia sé einn elsti og virtasti óratóríukór Norðmanna, stofnað- ur að tilhlutan Edvards Griegs. Stjórnandi hans er nú Arnulf Hegstad, en ásamt kórnum og Elfsabrt SólvelK ErllnKNdóttlr BjörlinK Kristinn Ilall.NNon hljómsveitinni koma fram einsöngvararnir Elísabet Erlings- dóttir, Sólveig Björling og Kristinn Hallson. í frétt Sinfóníu- hljómsveitarinnar segir svo um höfunda: Eivind Groven (1901—1977) er einna þekktastur fyrir þjóðlegan blæ sem verk hans bera með sér, enda hefur hann unnið mikið starf í söfnun og útsetningu á norskum þjóðlögum. Hjalarljóð er verð- launaverk, samið í tilefni 900 ára afmælis Óslóborgar. Páll ísólfsson er þekktastur í Noregi sem organleikari og tón- skáld. Hann hefur m.a. samið tónlist við „Veizluna á Sólhaug- um,“ leikrit Henriks Ibsen. Páll ísólfsson var kjörinn heiðursdokt- or við Óslóarháskóla árið 1945. Johan Svendsen (1840 —1911) var einn af mestu hljómsveitar- stjórum samtíðar sinnar og einn af brautryðjendum norskrar tón- listar. Norsk Kunstnerkarneval var samið árið 1874 í tilefni listamannahátíðar í Ósló. I verk- inu eru tvinnuð saman á listilegan hátt norsk og ítölsk alþýðulög. Davik Monrad Johansen (1888—1974) stundaði tónlistar- nám í Leipzig og París og notaði tónatak samtíðar sinnar í verkum sínum. Sönglög hans og kórlög eru vel metin í Noregi ásamt öðrum verkum hans fyrir ýms hljóðfæri. Þekktust verk hans munu þó vera ásamt Völuspá „Draumkvæðið", „Norðurlandstrómet" -og „Úr Guðbrandsdal". Völuspá hefur verið flutt víða um lönd, síðan það var frumflutt í Ósló árið 1928. Pétur Rafnsson kjörinn formaður Heimdallar AÐALFUNDUR Sparisjóðs Hafn- arfjarðar var haldinn fimmtu- daginn 26. aprfl s.l. Formaður stjórnar. Matthías Á. Mathiesen, flutti skýrslu stjórnarinnar og sparisjóðsstjóri, Guðmundur Guðmundsson, lagði fram og skýrði ársreikninga sjóðsins. Rekstrarleg afkoma sparisjóðs- ins var góð á árinu og nemur eigið fé sprisjóðsins nú 250.5 milljónum króna. Heildarveltan jókst um tæp 60% og sýnir það ásamt mikilli innstæðuaukningu stöðugt og ört vaxandi viðskiptamanna- hóp sparisjóðsins. Innstæðuaukning varð 1 milljarður kr. eða 46.5% pg námu heildarinnstæður 3.148 milljónum um s.l. áramót. Varð hlutfallsleg aukning mest á vaxtaaukainnlán- um, sem tæplega tvöfölduðust á árinu og nema nú rúmlega fjórða hluta heildarinnlána. Útlán sjóðsins hafa í ríkari mæli orðið í samræmi við vaxta- aukainnlánin og námu heildarút- lán um áramótin 2.177 milljónum og höfðu aukist á árinu um 693 milljónir króna eða 46.7%. Staða sparisjóðsins gagnvart Seðlabanka var góð á árinu og námu innstæður á viðskiptareikn- ingi um áramótin kr. 423.6 millj- ónum og á bundnum reikningi kr. 682.6 milljónum. Á árinu 1978 var haldið áfram tölvuvæðingu sparisjóðsins í sam- vinnu við Reiknistofu bankanna, og mun sparisjóðurinn hagnýta sér bestu fáanlegu tækni í bók- haldi sínu. Þá kom fram að útibúi spari- sjóðsins í Norðurbæ, sem opnað var 26. jan. s.l., vegnaði mjög vel. Umsvif og velta þar væru sívax- andi. Ábyrgðarmenn á aðalfundinum kusu 3 menn í stjórn, þá Matthías Á. Mathiesen, alþingismann, Ólaf Tr. Einarsson, framkvæmdastjóra Alan Boucher deildarforseti heimspekideildar DR. Alan E. Boucher hefur verið kjörinn forseti heimspekideildar í Háskóla Islands. Deildarfor- seti er kjörinn til tveggja ára í senn, en fráfarandi deildarfor- seti er Páll Skúlason. Alan E. Boucher var skipaður prófessor við Háskóla íslands árið 1972. Hann er fyrsti maðurinn af erlendu bergi, sem er kjörinn deildarforseti í Háskóla íslands. og Guðmund Guðmundsson, spari- sjóðsstjóra. Kosnir af bæjarstjórn eru Stefán Gunnlaugsson, deildar- stjóri, og Stefán Jónsson, for- stjóri. Endurskoðendur kosnir af bæj- arstjórn voru þeir Árni Friðfinns- son og Stefán Halldórsson. PÉTUR Rafnsson var kjörinn formaður Heimdallar S.U.S. í Reykjavík á aðalfundi félagsins á sunnudaginn. Fundurinn var haldinn f Valhöll við Háalcitis- braut. og var geysifjölmennur. Komu nærri fjögur hundruð manns á fundinn. Formaður var sem fyrr segir kjörinn Pétur Rafnsson. Hlaut hann 190 atkvæði, en Hreinn Loftsson hlaut 171 atkvæði. Tveir seðlar voru ógildir og einn auður. Fráfarandi formaður, Kjartan Gunnarsson, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Aðrir í stjórn voru kosnir: Marta Guðjónsdóttir nemi í M.R. hlaut 125 atkvæði, Sverrir Jónsson bankamaður hlaut 111 atkvæði, Ragnheiður Gísladóttir húsmóðir hlaut 106 atkvæði, Guðmundur Bergþórsson tæknifræðingur 106, Arngrímur Þorgrímsson nemi hlaut 96, Gunnar Þorsteinsson nemi í M.H. 91, Erlendur Nýja kökuhúsið við Austur- völl mun frá og með degin- um í dag hafa opið til kl. 23.30 á kvöldin, en þegar líður á sumarið mun Köku- Pétur Rafnsson Kristjánsson fasteignasölumaður 90, Jóhanna Gísladóttir nemi í M.R. 90, Bárður Steingrímsson fisksali 88, Gunnlaugur Snædal nemi í M.H. 84 atkvæði og Guðmundur Már Engilbertsson starfsmaður borgarfógeta hlaut 80 atkvæði. húsið einnig hafa borð utan dyra fyrir þá sem vilja fá veitingar út þegar veður leyfir. Þaðerekkí sama meó hverjum þú feróast Urvalsferð er örugg ferð Það er ekki sama með hverjum þú ferðast. Við tryggjum ferð þína fyrirfram. Þú færð því örugglega þann gististað og annað sem þú biöur um. Við stöndum viö það sem við bjóðum Úrvalsgistingu á Úrvalsstööum og stöndum við það. Sérlega hagstæð bamaverð Þaö felst í því aukin ánægja að laka börnin með í ferðina. Eins og undanfarin ár bjóðum við sérstök barnaverð og einmitt núna eru þau sérlega hagstæð Kynntu þér okkar verð og gerðu síðan verðsamanburð á Úrvalslerð og venjulegri sólarlandaferð. FERDASKRIFSTOFAN URVAL VIÐ AUSTURVÖLL SÍMI 26900 Sólskinsferðir I sumar leggjum við áherslu á ferðir beint í sóls'kinið á Mal- lorka og Ibiza, án millilendinga. Ferðir þessar eru fyrir löngu orðnar landsþekktar, enda koma Orvalsfarþegar sælir og ánægðir heim. Við erum líka reynslunni ríkari og reynum stöðugt að auka við og bæta þjónustu okkar. ykkar vegna. Traustir fararstjórar Á bæði Mallorka og Ibiza eru íslenskir Úrvalsfararstjórar, sem búa yfir áralangri reynslu í fararstjórn. Þeir leysa úr öllum vandamálum, auk þess sem þeir aðstoða viö val á skoðunarferðum. Á Mallorka og Ibiza höfum við okkar eigin skrifstofu, sem tvímælalaust eykur öryggi Úrvalsfarþega. 1 ' j l ; L " r-íiM : M 1 í I j , 1111 'á,, ríflU i li!: i ; í i jjpI. ^ it j|| i I mpm- Heildarvelta Spari- sjóðs Hafnarfjarð- ar jókst um tæp 60% Nyja kökuhúsið opið á kvöldin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.