Morgunblaðið - 15.05.1979, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ1979
Brezhnev
& sonur
Veikindi Leonid Brezhnevs, forseta Sovétríkjanna, vekja stöðugt athygli. Þau komu
berlega í Ijós í Moskvu-heimsókn Giscard d’Estaings Frakklandsforseta á dögunum þótt
heimsóknin geti verla hafa krafizt mikils af sovézka forsetanum. Læknar Brezhnevs
hafa ráðlagt honum að ferðast ekki með flugvélum. Á ferðum til Azerbaidzhan og
Búlgaríu nýverið hefur hann ferðazt með járnbrautarlestum, jafnvel þótt það kostaði
hann þau óþægindi að fara um Rúmeníu.
Brezhnev er ekki nógu góður til heilsunnar til að fara til Washington til að undirrita
nýjan Salt-samning. Þess vegna varð Vín fyrir valinu og þar fer undirritunin fram 15.
júní n.k.
Þegar þannig er ástatt aukast
allar vangaveltur um hugsanlega
eftirmenn Brezhnevs og auðvelt er
að benda á menn eins og Kiril-
enko, Chernenko og nokkra aðra
yngri menn sem koma sterklega
til greina. En minna hefur verið
fjallað um fjölskyldur sovézku
leiðtoganna. Brezhnev hefur kom-
ið mörgum vinum sínum og sam-
starfsmönnum fyrir í æðstu stjórn
kommúnistaflokksins. Fjölskyldu-
sambönd hafa mikil áhrif á stöðu-
veitingar í Sovétríkjunum og
frændsemissjónarmið eru oft látin
ráða.
Heiðursmerki
Athyglin hefur beinzt mikið að
undanförnu að syni Brezhnevs,
Yuri Leonidovich Brezhnev, sem
nýlega fékk enn eitt heiðursmerki.
Hann gegnir nú starfi fyrsta
varautanríkisviðskiptaráðherra.
Hann virðist eiga föður sínum
skjótan frama sinn að þakka, enda
er ráðherrann sjálfur, Nikolai
Patolichev, sjötugur að aldri.
Yuri Leonidovich Brezhnev er
fæddur í Deprodzerzhinsk 1933 og
útskrifaðist frá málmfræðistofn-
uninni í Denpropetrovsk 1955.
Yuri ákvað að íiann skyldi njóta
allra þeirra lífsgæða, sem börnum
sovézkra forystumanna standa til
boða, og þá ekki síður þeirra gæða,
sem vestræn ríki geta boðið. Hann
ákvað því að fá sér starf, sem gæti
gefið honum kost á utanlandsferð-
um. Árið 1960 útskrifaðist hann
frá utanríkisviðskiptastofnuninni
og hóf störf hjá ríkisfyrirtæki sem
flytur inn tæki og vélar til létta-
iðnaðarins.
Þannig átti hann kost á við-
skiptaferðum til útlanda og 1965
varð hann deildarstjóri í sovézku
viðskiptanefndinni í Svíþjóð þar
sem hann varð síðan sovézkur
viðskiptafulltrúi. Hann var hækk-
aður í tign 1970 og skipaður
formaður innflutnings- og út-
flutningsfyrirtækis, sem útvegar
hráefni til iðnaðar og það táknaði
að hann hafði bækistöð í Moskvu,
en gat haldið áfram að ferðast til
útlanda í viðskiptaerindum með
öllum þeim forréttindum sem því
fylgir.
Ferill hans fram til þessa var
ekki frábrugðinn ferli annarra
sona sovézkra valdamanna, en í
febrúar 1976 var hann kosinn einn
nokkura þúsunda fulltrúa á 25.
þingi sovézka kommúnistaflokks-
ins og þann heiður hlaut hann
greinilega frekar út á nafnið en
fyrir hæfileika sína. Og í desem-
ber sama ár var hann skipaður
varautanríkisviðskiptaráðherra,
án þess að það væri tilkynnt
opinberlega eins og venja er,
sennilega til að vekja ekki grun-
semdir um að annarlegar ástæður
hafi búið á bak við. En óvíst er að
Brezhnev hafi beinlínis fyrirskip-
að stöðuveitingu sonar síns: alveg
er eins líklegt að valdamenn, sem
gátu skipað hann í stöðuna, hafi
gert það til að koma sér í mjúkinn
hjá forsetanum.
Undirskrift
Síðasta stöðuhækkun Yuris
varð kunn þegar hann skrifaði
undir grein í Pravda 22. marz sl.
sem fyrsti varautanríkisviðskipta-
ráðherra. Undirskriftin var að
heita má það eina markverða, er
birtist í greininni. Hún var upp-
full af útjöskuðum slagorðum og
laus við allan frumleika og rökvísi,
sem gæti réttlætt skjótan frama
hans.
Auk þess var hann sæmdur orðu
búlgarska lýðveldisins í janúar
fyrir þátt hans í því að koma á
ferjusamgöngum milli Sovétríkj-
anna og Búlgaríu. í marz var
honum veitt orða októberbylting-
arinnar fyrir framlag hans til
nýtingar gassvæðanna í Orenburg
í þágu Comecons. Það er frekar
fágætt að ungur skrifstofustarfs-
maður fái slíka viðurkenningu
fyrir venjuleg skyldustörf.
Drykkjuskapur Yuris á ferðum
erlendis hefur vakið athygli, en
Galina systir hans hefur sætt
miklu meiri gagnrýni fyrir lífs-
hætti sína. Ahrif föður hennar
virðast vera skýringin á aðdrátt-
arafli hennar eftir myndum að
dæma. Hún er þrígift og núver-
andi eiginmaður hennar, Yuri
Churbanov, er varainnanríkisráð-
herra og yfirmaður stjórnmála-
deildar MVD. Sjálf hefur Galina
Leonidovna mikilvæga stöðu hjá
Novosti-fréttastofunni. Þriðja
barn forsetans, Mikhail, fékk upp-
töku í háskólann í Moskvu þrátt
fyrir harða samkeppni og er tal-
inn leggja fyrir sig blaðamennsku.
Brezhnev er ekki einn um það að
hjálpa börnum sínum að komast
áfram. Dóttir Kosygins forsætis-
Pabbi Brezhnev
Blómlegt
fyrír-
greióslu-
kerfi
í Sovét-
ríkjunum
ráðherra, Lyudmila, er kandídat í
ensku og stundar rannsóknarstörf
í Vísindaupplýsingastofnuninni.
Eiginmaður hennar, Dzermen
Gvishiani, er forstöðumaður Rík-
isvísinda- og tækninefndarinnar
og er talinn háttsettur í KGB. Þau
ferðast líka óft til útlanda. Önnur
dóttir Kosygins er sögð forstöðu-
kona ríkisbókasafns erlendra bóka
ríkisins.
Gromyko Jr.
Sonur Andrei Gromykos utan-
ríkisráðherra, Anatoly, hefur
gegnt ýmsum mikilvægum emb-
ættum í utanríkisþjónustunni,
meðal annars eftirsóttri stöðu í
sendiráðinu í Washington, og
dóttir hans lagði stund á ensku í
háskólanum í Moskvu og Alþjóða-
málastofnuninni, sem mikil að-
sókn er að. Sonur Ivan Kapitobovs
flokksritara er diplómat, en Igor
sonur Yuri Andropovs, yfirmanns
KGB, hefur fengið að stunda
framhaldsnám í Bandaríkjunum
og dóttir hans hefur lagt stund á
erlend tungumál í háskólanum í
Moskvu.
Vert er að hafa í huga að
flokksleiðtogar hvetja ekki börn
sín að fá sér framtíðaratvinnu í
flokkskerfinu og vilja heldur að
þau fái sér áhugaverð störf hjá
hinu opinbera, í blaðamennsku
eða rannsóknarstörf, þar sem
breytingar á pólitískum völdum
feðra bitni ekki á þeim, en þeim
verði tryggð forréttindi til lang-
frama. Að vísu eru sum störf
viðkvæmari en önnur og tengda-
sonur Krúsjeffs, Alexei Adzhubei,
varð ekki langlífur í starfi rit-
stjóra Izvestia eftir fall Krúsjeffs.
Hins vegar hafði fall hans ekki
áhrif á son hans Sergei Krúsjeff,
sem er verkfræðingur, þótt mögu-
leikar hans á stöðuhækkunum séu
minni en áður.
Sama máli gegnir með Mikhail
Mazurov, son Kiril stjórnmála-
ráðsfulltrúa, sem var nýlega sett-
ur af og hann nýtur sem fyrr
forréttinda sem vísindalegur emb-
ættismaður og dýrafræðingur og
Feðurnir