Morgunblaðið - 15.05.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 1979
13
Hjólastæðin eru auðveldari viðtangs en bílastæðin.
Frá breiðgötunni fyrir traman Peking-hótelið
ættstofninn þar. Þar höfðu nokkr-
ir safnað vel utan á sig.
í þessu sambandi er rétt að geta
eins, sem vakti athygli gestsins,
þegar litið var út um gluggann á
Ching Chiang-hóteli í Shanghai
árla morguns. Á gangstéttinni
gegntliótelinu var fjöldi Kínverja,
karlar og konur, i morgunleikfimi,
við einskonar Mullers-æfingar.
Þetta virtust bæði hópæfingar,
eða menn stunduðu þær einir sér
óháðir öðrum. Var þetta nær
eingöngu roskið fólk. Þarna þurfti
engan Valdimar Örnólfsson. Bezt
gæti ég trúað að í einhverjum
ritum Maos formanns væri hvatt
til líkamlegrar þjálfunar.
Bannað að
aka með ljós
Hjólin eru mörg í Kína, en að
sama skapi lítið um bíla. Bílar í
einkaeign eru engir, ríkið á þá
alla. Kínverjar hafa nú hafið
nokkurn bílainnflutning frá Jap-
an, en annars eru þeir framleiddir
í landinu sjálfu. Eftir útliti að
dæma eru þeir flestir ef ekki allir
rússneskir að langfeðgatali. Bezt
gæti ég trúað að verksmiðjurnar
væru sniðnar að rússneskri fyrir-
mynd eða fengnar þaðan á meðan
allt lék í lyndi með þeim þjóðum.
Það vakti athygli okkar að
bílarnir óku ljóslausir, eða í bezta
tilfelli með stöðuljós, jafnt í
björtu sem myrkri. Hvernig á því
stóð? Það var vegna slysahætt-
unnar, sem af því stafaði að aka
með ljós. Bílljósin blinduðu hjól-
reiðamennina, sem rákust hver á
annan og allt lenti í kös. Já, það er
að mörgu að hyggja. Hið sama á
ekki við alls staðar.
Ar og skurðir
mikilvæg
samgönguleið
Það leiðir af sjálfu sér, að hyggi
Kínverjar á aukna bílaeign verða
þeir að gera stórátak í vegafram-
kvæmdum. Á þeim ferðamanna-
slóðum, sem við fórum út fyrir
borgir, voru vegirnir að vísu að
mestu malbikaðir, en þar voru
einnig kaflar, sem minntu á okkar
„ágætu" íslenzku vegi. Rétt er þó
að minna á að ár og bát- eða
skipgengir skurðir eru mikilvægar
samgönguleiðir þar í landi.
Við ókum alllangan spöl með-
fram einum skipaskurðinum og
var þar mikil umferð fljótabáta.
Var ekki óalgengt að fremsti
báturinn væri með marga í togi,
þannig að myndaðist löng lest.
Virtist búið í fjölda þessara báta,
að minnsta kosti var þar þvottur á
snúrum og konur og börn auk
karla.
Það má skjóta því hér inn í, að
við sáum enga bensínstöð í Kína,
hvorki meðfram vegum né í borg-
um, enda þeirra sennilega ekki
þörf. Þar verður ekki komist langt
á eigin bíl.
Leigubila er hægt að fá, að
minnsta kosti á stöðum þar sem
reiknað er með að útlendingar geti
verið einir á ferð. í Shanghai
kostuðu þeir 35 jiao (100 jiao eru í
einu jean) fyrir hvern ekinn kíló-
metra.
Launin
Það gefur að skilja að launa-
greiðslur eru ekki háar í þróunar-
landi eins og Kína. Okkur var sagt
að meðallaun verkamanns væru
um 60 yean á mánuði (láta mun
nærri að einn Bandaríkjadalur sé
1 */2 yean). í skipasmíðastöð sem
við heimsóttum í Shanghai var
okkur sagt að launin væru frá 41
yean upp í 124 yean hjá skipaverk-
fræðingum. — í samyrkjubúinu,
sem við heimsóttum, var okkur
sagt, að meðallaunin væru 212
yean fyrir hvert hálft ár. Launin
væru þó nokkuð misjöfn eftir
afköstum. Peningana notar fólkið
til matar og klæða.
Auk þess hefur hver bóndi 66
fermetra reit þar sem hann getur
ræktað fyrir sjálfan sig.
Hvernig fólkið færi að lifa af
þessum tekjum? Jú, það hafði vel í
sig og á og „80 prósent af bændum
eiga meira að segja peninga á
banka til þess að mæta óvæntum
útgjöldum". Annars geta menn
fengið lán, ef í harðbakka slær.
Fáir írídagar
Þess ber þó að geta að ýmsa
félagslega þjónustu frá Kínverjar
ókeypis eða við vægu verði. Túlk-
urinn vakti t.d. sérstaka athygli
okkar á nýju sambýlishúsi í Pek-
ing. Hann sagði að þeir, sem þar
ættu heima, borguðu 5% af laun-
um sínum í húsaleigu.
Vinnudagurinn í Kína er 8 klst.
á dag í sex daga vikunnar. Frí er í
einn dag. Hjá flestum er það
sunnudagur, en þó skiptist það
dálítið eftir störfum. Verzlanir
eru t.d. opnar á sunnudögum og í
mörgum verksmiðjum er ekki
sami frídagur. Er það gert til þess
að nýta orkuna sem bezt. Auk
þessara vikulegu frídaga, er frí 1.
maí, á þjóðhátíðardaginn og 4 eða
5 aðra hátíðisdaga. Um sumarfrí
eða önnur frí er ekki að ræða.
„Vináttu-
búðirnarét
Verðið í „Vináttubúðunum",
sem ætlaðar eru útlendingum, er
örugglega ekki dæmigert fyrr
verðlag í Kína, til þess er það allt
of hátt. Við komumst meira að
segja að því, þegar við komum
aftur til Hong Kong, að verðið á
kínverskum vörum í þessum
búðum í Kína var allt að helmingi
hærra en í Hong Kong. En nóg um
það.
Allir hafa heyrt talað um vegg-
spjöldin í Kína þar sem ósjaldan
hefur verið greint frá þeim í
fréttum. Ég hafði gert mér í
hugarlund að „veggurinn" í Pek-
ing væri háreistari en hann er, en
auðvitað skiptir það ekki máli, ef
hann er nógu langur og ekki þýðir
að líma spjöldin ofar en í leshæð. í
hvert sinn, sem við fórum fram-
hjá, var þar múgur og margmenni.
Menn lásu það sem á spjöldunum
stóð og ræddu málin.
„Hverjir skrifa þessi spjöld?"
spurði ég túlkinn. „Hver sem er“,
var svarið. „Ef þú hefur til dæmis
yfir einhverju að kvarta í sam-
bandi viö vistina á Peking-hóteli,
þá geturðu bara skrifað vegg-
spjald og límt það upp.“
Nýtt
símanúmer
á afgreiöslu
blaösins
83033
(rompton Porkinson
Enskir rafmótorar
einfasa 0-33—3 HÖ
þrífasa 0.5 — 25 HÖ
Gírmótorar
0.5 —7.5 HÖ
VÖNDUÐ VARA
HAGSTÆTT VERÐ
VALD. POULSEN -f
SUÐURLANDSBRAUT1Ú —
SÍMAR: 38520-31142