Morgunblaðið - 15.05.1979, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 15.05.1979, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 1979 37 Kuldalegar vor- kappreiðar Fáks Utigangshestur sigraði í brokki Vorkappreiðar Fáks voru haldn- ar sl. sunnudag 13. maí. Veður var fremur óhagstaett til kappreiða- halds, norðaustan strekkingur með smáskúrum og kom það niður á árangri keppnishrossa. Óvenju lítið var um fræg hlaupahross, t.d. var hinn kunni skeiðhestur Fann- ar ekki með. I brokkinu voru aðeins tveir hestar, sem eitthvað hafa látið að sér kveða á undan- förnum árum. Kappreiðarnar hófust með keppni í 800 m brokki. Til leiks voru skráðir 9 hestar, en tveir féllu úr. Merin Þön fékk ekki að keppa í fyrri umferð, þar sem knapinn var ekki orðinn 16 ára og þurfti hann því skriflegt leyfi foreldra til þess að taka þátt í keppninni. Allt voru þetta lítið eða óreyndir hestar, að undanskildum Blesa frá Miðey og Smyrli, sem verið hafa framarlega í brokki á undanförnum árum. Hlutskarp- astur varð Blesi, eigandi og knapi Valdimar Guðmundsson. Fór hann vegalengdina á 1:56:6 mín., sem verður að teljast slakur tími, enda hesturinn nýkominn á hús og þar af leiðandi óþjálfaður. Annar varð Styrmir á 1:59:4, eigandi og knapi Júlíus Hafsteinsson. í þriðja sæti varð Þön á 2:17:7 mín., eigandi og knapi Þórdís Hauks- dóttir. I 800 m stökki sigraði Þróttur nokkuð örugglega, eigandi og knapi Tómas Ragnarsson. Tími hans var 65,2 sek. Vakti það nokkra athygli hvað hesturinn hljóp iétt, þegar í markið kom og er sennilegt að hann eigi eftir að láta að sér kveða á kappreiðum komandi sumars. Geysihörð keppni var um annað sætið milli Gusts eig. Björn Baldursson, knapi Baldur Baldursson, og Tinnu, eig. Þórdís H. Albertsson, knapi Hörður Harðarson, sem er óþekkt á hlaupabrautinni. Gustur var sjónarmun á undan í markið. Að venju mætti Þorgeir í Gufu- nesi með hesta í skeiðið. Að þessu sinni sat Sigurður Sæmundsson hesta Þorgeirs, en þeir voru Þór og Trausti. Þór sigraði skeiðið á 24,2 sek., sem verður að teljast góður árangur, því að aðstæður voru frekar slæmar til skeiðkeppni. Ekki er ólíklegt, að Þór eigi eftir að skipa sér á bekk með fremstu skeiðhestum landsins í sumar. Annar í skeiðinu varð Villingur eign Bergljótar Leifsdóttur, knapi Trausti Þór Guðmundsson á 24,4 sek. Þessir tveir hestar hlupu báða sprettina af öryggi, og virtust þeir í mjög góðu formi. Seinni sprett- inn hljóp Þór á 24,4 sek. og Villingur á 24,6. Þriðji varð Vafi Erlings Sigurðssonar á 24,6 sek. Athyglisvert var hversu rólegur Vafi var á ráslínu og mættu knapar og aðrir þeir, sem þjálfa kappreiðahesta, taka Erling sér til fyrirmyndar í þessum efnum. Segja má að skeiðið hafi verið besti hluti mótsins. Sáust oft á tíðum skemmtileg tilþrif, t.d. þeg- ar Aðalsteinn Aðalsteinsson sýndi mikla keppnishörku á Hrólfi, nýjum skeiðhesti frá Sigurbirni Bárðarsyni. Keppni í 350 m stökki varð ekki eins spennandi og oft áður, enda vantaði hlaupadrottningarnar, Loku, sem hætt er keppni, Glóu, Nös, Gjálp, Mæju og Blesu. Þó voru nokkrir þekktir hestar eins og Reykur og Stormur, sem keppti í folahlaupi í fyrra og Blákaldur, sem keppt hefur í 800 m stökki. Sigurvegari í hlaupinu varð Óli 7 vetra hestur í Landssveit, eigandi Guðni Kristinsson, knapi Þórður Þorgilsson. Óli hljóp á 26,2 sek. Annar varð Stormur, eigandi og knapi Hafþór Hafdal, á 26,7 sek. og þriðji Reykur, eigándi Hörður G. Albertsson knapi Vilhjálmur Hrólfsson, á 27,3 sek. Bestum tíma í 250 m folahlaupi náði Don, Harðar G. Albertssonar 29,8 sek, knapi var Hörður Harðarson. Annar varð Sáttur Margrétar Jónsd, knapi Valdimar Guðmundss. á 19,9 sek. og þriðji varð Leó Baldurs Baldurssonar á 20,0 sek., knapi var Björn Baldurs- Á síðasta landsþingi L.H. var samþykkt að fella niður þyngdar- mörk knapa í kappreiðum og virðast eigendur keppnishrossa notfæra sér það, með ungum og léttum knöpum. Voru þarna nokkrir mjög efnilegir kanpar á ferðinni. Má þar nefna t.d. Baldur Baldursson og Hörð Harðarson. V.K./G.M. Blesi kemur fyrstur í mark í 800 m brokki. Oft var hörkukeppni í skeiðinu. Hér sést Aðalsteinn Aðalsteinsson á Hrólfi (nær) draga á Gunnar Arnarson á Geysi. Þróttur sigrar hér af öryggi í 800 m stökki. Ljósmyndir: Gunnbjörn Ályktanir ASÍ og VMSÍ um launaþróun: Stef nir í ný ja ódaverdbólguhol- skeflu - aukinn launamismunur Alþýðusamband íslands og Verkamannasamband íslands sendu í gær frá sér yfirlýsingar f sambandi við þróun kjaramála og stefnu rikisstjórnarinnar. Fara tilkynningarnar hér á eftir: Ályktun framkvæmdastjórnar VMSÍ 10. maí 1979: Verkamannasamband íslands hefur frá upphafi stutt eindregið þá launastefnu, sem núverandi ríkisstjórn setti sér, en hún var í því fólgin að vernda kaupmátt allra almennra launa, tryggja aukið launajafnrétti, berjast gegn verðbólgunni og lögfesta ýmiss þau félagslegu réttindi, sem verkalýðshreyfingin hefur barist fyrir í áratugi. VMSÍ lýsir áhyggjum sínum af þróun mála nú að undanförnu, þar sem hálaunastéttir hrifsa til sín umtalsverðar launahækkanir og verðlagsþróun er geigvænleg. VMSÍ telur ef svo heldur áfram, sem nú horfir, aukist launamis- rétti, ný óðaverðbólguholskefla skelli á, er leikur harðast almennt verkfólk og veldur þar að auki atvinnuleysi. Því krefst VMSÍ þess að ríkis- stjórnin verji þá launastefnu, sem hún boðaði í upphafi ferils síns, af fullri einurð og hörku. Geri hún það hins vegar ekki, glatar hún því trausti sem verkafólk bar til hennar í upphafi, og kjörum og lífsafkomu þess er stefnt í voða um ófyrirsjáanlega framtíð. Sinni ríkisstjórnin ekki þessum viðvörunarorðum VMSI, hefur hún brugðist þeim stefnumálum, sem henni var ætlað að fram- kvæma og tilvera hennar byggist á. Ályktun miðstjórnar Alþýðusam- bands íslands 10.5. 1979: Vegna þeirrar þróunar í kaup- gjalds- og kjaramálum, sem orðið hefur að undanförnu, gerir mið- stjórn Alþýðusambands íslands eftirfarandi ályktun: Fyrsta verk þeirrar nýju ríkis- stjórnar sem tók við völdum sl. haust, í kjölfar alþingiskosning- anna, var að gera ráðstafanir til að kjarasamningarnir frá í júní 1977 kæmu að fullu gildi fyrir þorra félagsmanna innan ÁSÍ. Með þessu lauk sjö mánaða varn- arbaráttu verkalýðssamtakanna gegn kjaraskerðingarlögunum frá því í febrúar og mai á sí^sta ári. Á sameiginlegum fundi mið- stjórnar og stjórna landssam- banda innan ASÍ var fjallað um fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórn- arinnar og því fagnac að ; sjón- máli var að samníngar tækju gildi á ný. Þótt ljóst væri að aðgerðir ríkisstjórnarinnar í september og desember væru bráðabirgðaúr- ræði en ekki varanleg lausn á þeim efnahagsvanda sem við er að etja, lýsti sambandsstjórnarfund- ur ASI, sem haldinn var í desem- ber, skilningi á nauðsyn aðgerð- anna. Ýmislegt hefur áunnist í sam- skiptum verkalýðshreyfingarinn- ar við ríkisstjórnina og ber þar sérstaklega að minna á aukin félagsleg réttindi, ekki síst nýsam- þykkt lög um rétt verkafólks í veikinda- og slysatilfellum. Með þessum lögum er verið að koma til móts við ítrekaðar kröfur verka- lýðssamtakanna um jöfnun á kjör- um launafólks, með því að auka réttindi þeirra, sem verst hafa verið settir í þjóðfélaginu. En þess ber að minnast að vegna fyrirhug- aðra féiagsiegra umbóta voru með lögum felld niður 3% af kaup- hækkun sem koma átti 1. desem- ber sl. Þótt nokkuð hafi áunnist, hefur ríkisstjórnin í ýmsum veigamikl- um atriðum brugðið frá yfirlýs- ingum sínum sl. haust og við síðustu efnahagsaðgerðir var ekki tekið tillit til vilja ASÍ varðandi fyrirkomulag verðbóta. Að undanförnu hefur verðbólga magnast og miklar verðhækkanir gengið yfir, sem ekki er hægt að rekja til hækkana á kaupi al- menns launafólks. Má í þessu sambandi sérstaklega minna á hinar miklu hækkanir á verðlagi opinberrar þjónustu. Nú er ljóst að allir opinberir starfsmenn munu fá 3% grunn- kaupshækkun frá 1. apríl nk. að telja. Vísitöluþakið hefur verið afnumið með þeim afleiðingum að þeir launahæstu hafa fengið mest- ar launahækkanir og launamis- munur þannig aukist í þjóðfélag- inu. Við þessar aðstæður getur almennt launafólk ekki beóið að- gerðarlaust. Miðstjórn Alþýðusambands ís- lands krefst þess að launakjörin verði jöfnuð með kauphækkun til almenns launafólks.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.