Morgunblaðið - 22.05.1979, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ1979
Raufarhöfn:
Átök við
hafísinn
Raufarhafnarbátar
hafa síðustu daga landað á
bórshöfn, en á milli þess-
ara staða er illfært. í gær-
kvöldi löjíðu nokkrir vöru-
bflar af stað frá Raufar-
höfn til að sækja fisk til
Þórshafnar.
Stórhríð er bæði á Ytri-
og Fremri Hálsi á heiðinni
á milli staðanna þannig að
bílarnir ætluðu að bíða
þangað til allir væru tilbún-
ir til fararinnar til baka.
Bátar, sem voru staðsett-
ir í Hraunhöfn eftir að ísinn
þrengdi sér undir vírinn á
. laugardag og sleit hann að
lokum, héldu í gær til Kópa-
skers, en hinir ætluðu að
reyna að verjast í Hraun-
höfn. Tjón hafði ekki orðið á
bátum né mannvirkjum í
gærkvöldi. Rauðinúpur
kemst ekki út enn þá vegna
hafíss.
„Ofan gefur snjó á snjó“ var það fyrsta, sem Húsvíkingum kom í hug
er þeir gáðu tii veðurs sfðastliðinn föstudagsmorgun. Við þeim blasti
15 sentimetra jafnfaliinn snjór og það var erfitt að trúa almanakinu,
sem sagði að komin væri fimmta vika sumars.
(Ljósm. Sigurður P. Björnsson).
SAMKVÆMT upplýsingum, sem
Morgunblaðið fékk í gær, mun
bankaráð Seðlabankans væntan-
lega koma saman til fundar á
morgun. þar sem tekin verður
ákvörðun um 2% vaxtahækkun
yfir línuna. í lögum segir að
heimilt sé að verðtrygging verði
með þeim hætti að vextir og
verðbótaþáttur vaxta verði
ákvarðaðir í stað lágra vaxta og
vfsitölutryggingar. Þessa heimild
mun Seðlabankinn ætla að nota
til hins ftrasta og hækka vexti á
þriggja mánaða fresti til 1. des-
ember 1980. Mun hækkunin
hvert sinn fara eftir verðbólgu-
stiginu, en miðað við það nú, þarf
Deildartunguhver:
Tillögur um leigu-
nám voru felldar
STJÓRNARFRUMVARP til laga
um eignarnám á hluta jarðarinnar
Deildartungu í Reykholtsdals-
hreppi ásamt jarðhitaréttindum
kom til atkvæða eftir 2. umræðu f
neðri deild klukkan 22.30 f gær-
kvöldi.
Fyrst fór fram atkvæða-
greiðsla um rökstudda dagskrá
frá Ingvari Gfslasyni um að vfsa
málinu frá vegna þess að ekki væri
fullreynt á frjálsa samninga. Til-
lagan um rökstudda dagskrá var
felld með 31 atkvæði gegn 5 að
viðhöfðu nafnakalli. Breytingartil-
laga frá Gunnari Thoroddsen og
önnur breytingartillaga frá Einari
Ágústssyni og Albert Guðmunds-
syni. sem fjölluðu um leigunám í
stað eignarnáms, voru felldar að
viðhöfðu nafnakalli með 24 at-
kvæðum gegn 12, 1 sat hjá og 3
voru fjarverandi.
Frumvarpsgreinarnar voru síðan
samþykktar ásamt breytingartil-
lögu frá iðnaðarráðherra þess efnis
að afhenda megi Hitaveitu Akra-
ness og Borgarfjarðar verðmæti
þau, sem tekin kunna að verða
eignarnámi eftir því sem almenn-
ingsþörf krefur og um semst, eins
og það er orðað í tillögunni.
Hitaveitan greiði ríkissjóði eign-
arnámsbætur og allan kostnað hans
af aðgerðum þessum. Frumvarpið á
eftir að fara til þriðju umræðu í
neðri deild og síöan til efri deildar
verði það samþykkt í n.d.
hækkunin hvert sinn að vera um
2%.
í aðalatriðum munu þessar til-
lögur vera hinar sömu og Seðla-
bankinn gerði upphaflega. Þær
munu hafa komið nokkuð á óvart,
þar sem menn töldu eftir að lögin
um stjórn efnahagsmála voru
samþykkt, að Seðlabankinn myndi
fara út í verðtryggingu með hefð-
bundnum hætti, þ.e.a.s. að hafa
vexti lága en síðan vísitölu í
líkingu við fjárfestingalánasjóð-
ina og lífeyrissjóðina.
Á sumum útlánum verður verð-
bótaþáttur og verður þá jafnframt
heimilt að bæta honum ofan á
höfuðstól lána, þ.e.a.s. fresta
greiðslum verðbótaþáttarins.
Þessar vaxtareglur munu hafa
verið kynntar í ríkisstjórninni, en
Morgunblaðinu er ekki kunnugt
um viðbrögð hennar við þeim. Inn
í þær reglur, sem verið er að móta,
er talið líklegt að blandist reglur
um meðferð verðbótaþáttar og
vaxta í sambandi við skattalög.
Mun þá þurfa að koma til skatta-
lagabreyting.
15 ára piltur beið
bana í umferðarslysi
MJÖG harður bifreiðaárekstur
varð á Rcykjanesbraut við Fitjar
snemma á sunnudagsmorguninn
og urðu afleiðingarnar þær að 15
ára piltur, sem var farþegi f ann-
arri bifreiðinni beið bana. Piltur-
inn átti heima í Keflavfk, en ekki
er hægt að birta nafn hans að svo
stöddu að ósk ættingja.
Það var klukkan 5.05 á sunnu-
dagsmorguninn að lögreglunni i
Keflavík var tilkynnt um slysið.
Tvær bifreiðar, önnur af Hornet--
gerð en hin af Toyota-gerð óku
Reykjanesbraut í áttina að Keflavík
og var Hornet-bifreiðin á undan.
Þegar bifreiðarnar komu á gatna-
mót Reykjanesbrautar og Flugvall-
arvegar ætlaði Toyota-bifreiðin
framúr en um leið beygði hin
bifreiðin upp Flugvallarveginn og
skullu þær harkaiega saman. Toy-
ota-bifreiðin fór margar veltur og
hafnaði utan vegar. Fjórir piltar
voru í bílnum, ökumaður og þrír
farþegar. Tveir piltanna slösuðust
mikið og voru fluttir á Borgarspítal-
ann í Reykjavík og lézt annar
skömmu eftir að þangað kom. Þá
var þriðji pilturinn fluttur á sjúkra-
húsið í Keflavík en hann var minna
meiddur. í hinni bifreiðinni voru
ökumaður og tveir farþegar og
sluppu án teljandi meiðsla.
Bifreiðarnar skemmdust mikið og
er Toyota-bifreiðin jafnvel talin
ónýt.
Hækka vextír um 2% á
þriggja mánaða fresti?
Stjórnaraðild Alþýðuflokksins:
Getur hvenær sem er
komið til uppgjörs
segir Benedikt Gröndal formaður flokksins
.ÞAÐ KOMU fram hjá nokkrum ræðumanna vangaveltur um þetta,
frekar en beinar tillögur og það var engin samþykkt gerð. Það er hins
vegar ljóst af tóninum í mönnum að spurningin um áframhaldandi
stjórnarþátttöku Alþýðuflokksins er mál, sem getur komið hvenær sem er
til uppgjörs," sagði Benedikt Gröndal, formaður Alþýðuflokksins, er Mbl.
spurði hann í gær, hvort á flokkstjórnarfundi um helgina hefðu komið
fram raddir um að Alþýðuflokkurinn ætti að ganga úr rfkisstjórninni.
»Ég hef ætíð verið bjartsýnis- Á uppstigningardag koma flokks-
maður,“ sagði Benedikt, „en mér stjórn, þingflokkur, verkalýðsmála-
hrýs hugur við þeim erfiðleikum,
sem eru að skapast vegna sjálfskap-
arvíta, þar sem fámennir hópar
knýja fram miklar launahækkanir
eða stöðva mikilsverða starfsemi.
Þingflokkur Alþýðuflokksins hef-
ur gert samþykkt um að láta í ljós
við forsætisráðherra þá skoðun, að
Alþingi eigi ekki að slíta fyrr en séð
verður, hvaða stefna verður ofan á í
atvinnumálunum. Þessi samþykkt
hefur verið kynnt í ríkisstjórninni.
Mbl. spurði Benedikt, hvort hann
teldi að óbrúandi bil hefði myndast
milli Alþýðuflokksins annars vegar
og hinna stjórnarflokkanna hins
vegar vegna mismunandi skoðana á
því, hvernig samningamálum skuli
skipað. Benedikt kvaðst ekki hafa
setið ríkisstjórnarfund eftir að
hann kom heim aftur erlendis frá og
því gæti hann ekki að svo stöddu
lagt svo glöggt mat á hlutina, að
hann vildi segja af eða á. „Það er nú
stóri gallinn á þessu stjórnarsam-
starfi," sagði Benedikt, „að hver er
að bauka í sínu horni og gera
stóryrtar samþykktir og yfirlýsing-
ar, sem menn mæta svo vopnaðir
með á ríkisstjórnarfundi. Forystan
er ekki, eins og var til dæmis í
viðreisnarstjórninni, í ríkis-
stjórninni, sem leitaði síðan út í
þingflokkana eftir stuðningi við
málin. Þetta gerir öll mál miklu
snúnari og má þó vissulega segja, að
þau séu nógu erfið viðureignar
fyrir.“
nefnd og bæjarfulltrúar Alþýðu-
flokksins saman til fundar. Bene-
dikt sagði, að þessi fundur hefði
verið ákveðinn fyrir löngu síðan og
væri ætlunin að „gera þar í róleg-
heitum almenna úttekt á stöðu
Alþýðuflokksins, en hins vegar
hefðu mál nú skipast þannig, að
búast mætti við því að „aðildin að
ríkisstjórninni gleypti þau mál al-
veg“.
Jafntefli
hjá íslend-
ingunum
ÞRIÐJA umferð svæðamótsins í
Luzern f Sviss var tefld í gær.
Úrslit urðu m.a. þau f A-riðli að
Guðmundur Sigurjónsson gerði
jafntefli við vestur-þýzka stórmeist-
arann Hiibner en Margeir Péturs-
son á mjög jafnteflislega biðskák
við Svisslendinginn Wirthensohn. (
B-riðli sat Heigi yfir.
í 1. umferð urðu úrslit m.a. þau að
Margeir og Guðmundur gerðu jafn-
tefli og Helgi Ólafsson gerði jafn-
tefli við Hug frá Svisslandi. í 2.
umferð sat Margeir yfir en
Guðmundur gerði þá jafntefli við
Wirthenson og Helgi gerði jafntefli
við Rantanen frá Finnlandi.
Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri:
Ekki ætlunin að sjúkling-
ar verði sendir heim í
sumarleyfum starfsfólks
- SJÚKLINGUM á Kópavogshæli
hefur ekki verið fækkað og
stjórnarnefnd Rfkisspftalanna hef-
ur ekki fyrirhugað að svo verði í
sumarleyfum starfsfólks, sagði
Páil Sigurðsson ráðuneytisstjóri f
Heilbrigðisráðuneytinu og for-
maður stjórnarnefndar Rfkis-
spftalanna f samtali við Morgun-
blaðið f gær. Undir hann voru
bornar fréttir um að vegna sam-
„Þakka árangur
minn góðri ástund
un og tímasókn”
segir dúxinn í MH, Elísabet Waage
dráttar f fjárvcitingum þyrfti að
senda sjúklinga af barnadeild
heim f sumarleyfi starfsfólks.
Hins vegar sagði Páll að í sumar
þyrfti að draga úr starfi almennu
sjúkrahúsanna og yrði það gert
með að ráða ekki að fullu starfs-
fólk í afleysingar í sumarieyfum.
Deildum yrði lokað á Landspítal-
anum og væntanlega einnig á
Kleppsspítala.
„Ég þakka árangur minn góðri
tfmasókn og ástundun," sagði
Elfsabet Waage, dúxinn í MH
þegar Mbl. spjallaði við hana í
gær, en Elfsabet hlaut 175 eining-
ar, sem er bezti árangur sem
náðst hefur sfðan nýtt áfanga-
kerfi var tekið upp f skólanum.
Elísabet, sem er á nítjánda ári,
lauk skólanum á þremur árum auk
þess sem hún tók próf úr tveimur
sviðum, nýmála- og tónlistarsviði.
Aðspurð kvaöst hún ekki hafa
vakað myrkranna á milli við
lestur heldur hafa nýtt sér tímann
vel, notað þær stundir sem gáfust
á milli tíma til hins ýtrasta, svo og
reynt að koma lesin í kennslu-
stundir. Auk menntaskólanámsins
stundar Elísabet nám við Tón-
listarskólann í Reykjavík, leggur
hún þar stund á píanóleik sem
aðalgrein en að auki lærir hún á
hörpu. Hún hefur lokið 8 stigi í
píanóleik en hyggst ljúka
kennaraprófi á hljóðfærið á vetri
komanda. Éinnig hefur Elísabet
sungið með kór Hamrahlíðarskól-
ans undanfarin þrjú ár. Telur hún
slíkan félagsskap sem annað
félagsstarf örva mjög tengsl
nemenda innbyrðis, enda ekki
vanþörf á, þar sem eiginlegt
bekkjakerfi er ekki í skólanum
heldur nokkurs konar hópar þar
sem hver einstaklingur sækir tíma
Elfasabet Waage.
í þeirri grein sem hann hefur valið
og því undir hælinn lagt hvort
hann er í tímum með sömu aðilum
í fleiri greinum. Næsta vetur
kemur Elísabet til með að stunda
nám í Háskóla íslands auk tón-
listarnámsins og hyggst hún nema
þar tungumál.