Morgunblaðið - 22.05.1979, Síða 4
4
Hópferðabílar
8—50 farþega
Kjartan Ingimarsson
sími 86155, 32716.
Varahlutir
i bílvélar
Stimplar,
slífar og hringir
Pakkningar
Vélalegur
Ventlar
Ventilstýringar
Ventilgormar
Undirlyftur
Knastásar
Tímahjól og keðjur
Olíudælur
Rokkerarmar
ÞJÓNSSON&CO
Skeifan 1 7 s. 84515 — 84516
voss
ELDAVÉLAR-OFNAR-HELLUR
ELDHÚSVIFTUR
Eldavélar: 4 hraðhellur, klukka, hita-
skúffa, stór sjálfhreinsandi ofn með
Ijósi og fullkomnum grillbúnaði.
Hvítar, gulbrúnar, grænar, brúnar.
Innbyggingarofnar: Sjálfhreinsandi
með Ijósi, fullkomnum grillbúnaði og
viftu, sem m.a. hindrar ofhitun inn-
réttingarinnar.
Helluborð: Ryðfrítt Stál, 2 eða 4
hellur, alls 3 gerðir, auk skurðar-
brettis og pottaplötu, sem raða má
saman að vild.
Eldhúsviftur: Útblástur eð hringrás,
geysileg soggeta, stiglaus hraðastill-
ing, Ijós, varanleg fitusía. 4 lltir.
Afbragðs dönsk framleiðsla: Yfir-
gnæfandi markaðshlutur í Danmörku
og staðfest vörulýsing (varefakta)
gefa vísbendingu um gæðin.
/Fúnix
HÁTÚNI 6A • SÍMI 24420
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1979
Þessi mynd er frá landsleik íslendinga og Bandaríkjamanna, sem háður var á Laugardalsvellinum 8.1.
haust.
Útvarp í kvöld kl. 19.35:
ISLAND — SVISS
Á dagskrá útvarps í kvöld kl.
19.3 5 er útvarp frá knattspyrnu-
leik í Evrópukeppni landsliða.
Hermann Gunnarsson íþrótta-
fréttamaður lýsir síðari hluta
leiks Islendinga við Svisslend-
inga, sem háður er á Wankdorf-
leikvanginum í Bern.
Þetta er fyrsti landsleikur
þessara þjóða og fyrri leikur
þeirra í Evrópukeppninni. Síðari
leikurinn verður háður hér á
Laugardalsvellinum 10. júní n.k.
Islendingar eru í riðli með Pól-
verjum, Holllendingum og Sviss-
lendingum.
Útvarp kl. 23.15:
„Tom
Sawyer”
eftir Mark Twain
Á dagskrá útvarps í
kvöld kl. 23.15 er þáttur-
inn „Á hljóðbergi“ í
umsjón Björns Th.
Björnssonar listfræðings.
í þættinum les Ed Begley
kafla úr sögunni af Tom
Sawyer eftir Mark Twain.
Kaflinn ber heitið
„Morðið í kirkjugarðin-
um“.
Sjónvarp kl. 20.55:
Utanríkis-
mál fs-
lendinga
í sjónvarpi í kvöld kl.
20.55 er þátturinn „Um-
heimurinn“ í umsjón
Gunnar Eyþórssonar
fréttamanns. Sagði Gunn-
ar, að í þættinum myndi
hann taka fyrir utanríkis-
mál íslendinga, í hverju
þau væru fólgin, helstu
hagsmuni og hvernig
þeirra væri gætt. „Þór-
hallur Ásgeirsson fjallar
um utanríkisviðskiptin,
Hörður Helgason ráðu-
neytisstjóri í utanríkis-
ráðuneytinu um utan-
ríkisþjónustuna og þátt-
töku íslands í alþjóða-
samtökum. í lokin verða
síðan umræður í sjón-
varpssal og taka þátt í
þeim Benedikt Gröndal,
Einar Ágústsson og
Kjartan Jóhannsson."
Útvarp ReykjavíK
ÞRIÐJUDKGUR
22. maí
MORGUNNINIM
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Leikfimi
7.20 Bæn
7.25 Morgunpósturinn. Um-
sjónarmenn: Páll Ileiðar
Jónsson og Sigmar B. Hauks-
son. (8.00 Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir
ýmis lög að eigin vali. 9.00
Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Steinunn Jóhannesdóttir
heldur áfram lestri þýðingar
sinnar á sögunni „Stúlkan.
sem fór að leita að konunni í
hafinu“ eftir Jörn Riel (7).
9.20 Leikfimi. 9.30. Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Morgunþulur kynnir ým-
is lög; frh.
11.00 Morguntónleikar: Sin-
fóníuhljómsvcit finnska út-
varpsins leikur „Andante
festivo“ eftir Jean Sibelius;
höfundurinn stj./ Fflharm-
oníusveit Lundúna leikur
„Falstaff“, sinfóníska etýðu í
e-moll eftir Edward Elgar;
Sir Adrian Boult stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
SÍÐDEGIÐ____________________
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar.
Á frívaktinni
Sigrún Sigurðardóttir kynn-
ir óskalög sjómanna.
14.30 Miðdegissagan: Þorp í
dögun eftir Tsjá-sjú-lí
Guðmundur Sæmundsson les
(11).
15.00 Miðdegistónlcikar; Rob-
erto Szidon leikur Píanósón-
ötu nr. 1 í f-moll op. 6 eftir
Alexander Skrjabín/ Karl
Frisell syngur lög eftir
Agathe Backer-Gröndahl;
Liv Giaser leikur á píanó.
15.45 Neytendamál
Umsjónarmaðurinn. Rafn
Jónsson. talar við Bryndfsi
Steinþórsdóttur námsstjóra
um neytendafræðslu í skól-
um.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 E’opp
17.20 Sagan: „Mikael mjögsigl-
andi“ eftir Olle Mattson
Guðni Kolbeinsson les þýð-
ingu sina (4).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÓLDIÐ____________________
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Knattspyrnuleikur í
Evrópukeppni landsliða:
Svissland — fsland
Ilermann Gunnarsson lýsir
síðari hálfleik frá Wank-
dorf-leikvangnum í Bern.
20.30 Útvarpssagan: „Fórnar-
lambið“ eftir Ilermann Hesse
Hlynur Árnason les þýðingu
sína (9).
21.00 Kvöldvaka
a. Einsöngur: ólafur Þor-
steinn Jónsson syngur lög
eftir Björgvin Guðmundsson,
Pál ísólfsson o.fl.; ólafur
Vignir Albertsson leikur á
píanó.
b. Bcrnskuár við Berufjörð
Torfi Þorsteinsson bóndi í
Haga í Ilornafirði flytur
fyrsta hluta frásöguþáttar
síns.
c. „Víða ljómar rós hjá rein“
Sigríður Jónsdóttir frá Stöp-
um fer með frumort kvæði og
stökur.
d. Þá varð mér ekki um sel
Frásöguþáttur eftir Halldór
Pétursson. óskar Ingimars-
son les.
f. Kórsöngur: Blandaður kór
syngur lög eftir ísólf Páls-
son.
Söngstjóri: Þuríður Pálsdótt-
ir.
22.30 Fréttir. Veðurfregnir.
Dagskrá morgundagsins.
22.50 Víðsjá; Ögmundur Jónas-
son sér um þáttinn.
23.05 Harmonikulög
Tríó frá Hallingdal í Noregi
leikur.
23.15 Á hljóðbergi. Umsjónar-
maður: Björn Th. Björnsson
listfræðingur.
„Morðið í kirkjugarðinunT:
Ed Begley les kafla úr sög-
unni af Tom Sawyer eftir
Mark Twain.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
22. maí 1979.
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dag-
skrá
20.30 Orka
Annar þáttur er um orku-
notkun íslendinga og inn-
lendar orkulindir.
Umsjónarmaður Magnús
Bjarnfreðsson.
Stjórn upptöku örn Ilarð-
arson.
20.55 Viðræðuþáttur um er-
lenda viðburði og málefni.
Umsjónarmaður Gunnar
Eyþórsson fréttamaður.
21.45 Hulduherinn
Breskur myndaflokkur.
Staðgengillinn.
Þýðandi Ellert Sigur
björnsson.
22.35 Dagskrárlok.