Morgunblaðið - 22.05.1979, Síða 17

Morgunblaðið - 22.05.1979, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1979 17 aræmi tilutana framboð sé svipað frá ári til árs og fullnægi eftirspurn. Úthlutanir þurfa að vera í stærri eininíium og úthlutun til einstaklinga að fækka. Aukning atvinnutækifæra Hamla þarf gegn innflutningi húsa, húshluta og húsgagna, og gæta þess að íslensk fyrirtæki njóti ekki lakari aðstöðu en innflutningur í tolla og skattamálum. Sem dæmi um óæskilegan innflutning má nefna vinnubúðir við Hrauneyjarfoss sem keyptar eru frá útlöndum á sama tíma og atvinna dregst saman í byggingariðnaði. Endurnýjun og viðhald eldri húsa þarf að sinna betur en gert hefur verið. Til þess að svo megi verða þarf einkum tvennt að koma til: Stóraukin lánafyrirgreiðsla og að stéttarfélögin auki þekkingu og áhuga félagsmanna sinna fyrir þessu viðfangsefni. Jöfnun atvinnutækifæra Undanfarin ár hefur eftirspurn hins opinbera eftir vinnuafli haldist í hendur við eftirspurn einstaklinga. Þessu þarf að snúa við þannig að ríki og sveitarfélög auki umsvif sín þegar atvinna minnkar á almennum markaði. Síðan fer álit umræðuhóps um fjármögnun húsnæðismálakerfisins: Biðtúni lána styttist Að koma í veg f.vrir fyrirhugaða skerðingu á tekjustofnun Byggingasjóðs og sjá til þess að nægjanlegt fjármagn sé til staðar svo biðtími eftir lánum styttist svo þær lóðir sem þegar hefur verið úthlutað nýtist til atvinnuaukningar. 1. Að úthlutun Húsnæðisstjórnarlána fari fram í tveim áföngum í stað þriggja eins og nú er og að fyrri áfangi úthlutunarinnar komi miklu mun fyrr á byggingartímanum en nú er. 2. Að opinbert framkvæmdafé sé notað til að koma í veg stórar sveiflur og spennu í atvinnulífinu. 3. Að auknu lánsfjármagni verði varið til endurbóta á eldra húsnæði. 4. Að nú þegar verði staðið við fyrri yfirlýsingar og loforð um félagslegar íbúðabyggingar. FRAMTÍÐIN. 1. Að hið opinbera setji reglur fyrir sveitafélögin um skipulag lóðaúthlutana til langs tíma, svo lánastofnunum takist að verða sér úti um næganlegt fjármagn til byggingarframkvæmda á hverjum tíma og þannig verði gert kleift að úthluta lóðum í stærri einingum en nú er. 2. Að úthlutun lána til íbúðabugginga verði komið á eina hendi og að lán til þeirra sem kaupa eða byggja í fyrsta sinn verði hlutfallslega hærri en til þeirra, sem þegar eiga húsnæði 3. Að lánstíminn verði lengdur verulega frá því sem nú er svo hagsmunir lánadrottins og lántaka verði sem best tryggðir. 4. Að hagsmunir þeirra, sem vilja fremur leigja, verði tryggðir í lánakerfinu. Vel heppnaður Dagur hestsins á Melavelli ÁHORFENDUR höfðu sannarlega ástæðu til að klappa fyrir glæsi- legri sýningu á Melavellinum á sunnudag, þegar þar var haldinn Dagur hestsins. Óhætt mun að fullyrða að sjaldan eða aldrei hefur sýning íslenska hestsins hérlendis tekist með jafn miklum ágætum og á þessari sýningu. Þarna voru sýndir flestir bestu stóðhestar landsins, margt frægra góðhrossa og fram komu flestir kunnustu knapar landsins. Hópur unglinga sýndi einnig hesta sína. Um 3000 manns komu á sýning- una, sem stóð í tvo tíma, en veður var með eindæmum gott þó hita- stigið væri ekki hátt. Um 3000 manns komu á völlinn Að mótinu stóðu deild Hags- munafélags hrossabænda á Suð- vesturlandi ásamt Félagi tamn- ingí.manna, ýmsum félogum úr Fáki og fleiri aðilum. Ragnar Tómasson var formaður sýningar- nefndarinnar og sagðist hann að lokinni sýningunni vera stoltur fyrir hönd þeirra, sem að sýning- unni stóðu. . „Eg tel að þessi sýning eigi eftir að marka tíniamót hvað snertir fyrirkomulag sýninga á hrossum hérlendis. Viðbrögð áhorfenda sýndu að okkur tókst með þessari sýningu að kynna töfra íslenska hestsins og ég er þess fullviss að með þessari stund á Melavellinum vann íslenzki hesturinn stórkostlegan sigur", sagði Ragnar. Félagar úr Félagi tamningamanna sýndu atriði sem þeir nefndu samspil manns og hests. Ljósm. Gunnbjörn Marinósson. Einn af mörgum skeiðsprettum, sem teknir voru ð enda hugsað, pegar Viðar Halldórsson hleypti Melavellinum á sunnudaginn. Sigurður Sæmunds- Blesa frá Kirkjubæ að hindruninni. Og honum tókst son leggur hór Þór frá Akureyri. pað. OKKAR VERÐ KR. 2400 á 20 mynda filmu VERÐ ANNARS KR. 3700 á 20 mynda filmu Litmyndir eru 35% ódýrari Austurstræti Simi 10966

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.