Morgunblaðið - 22.05.1979, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ1979
23
Frá Guðmundi Guðjónssyni blaðamanni Mbl. í Bern
„Vanmetum ekki
íslenska liðið“
ÞEIR íslensku landsliðsmenn sem ekki eru á mála hjá erlendum liðum
lögðu af stað til Sviss á laugardaginn. Eftir f jögra tíma bið á Kastrup
komst fiokkurinn loks í flugvél til Sviss. Jón Péturson hitti hópinn í
Kaupmannahöfn og hafði hann reyndar beðið allan morguninn á
Kastrup og var því orðinn æði þreyttur. Þegar þetta er ritað vantar
aðeins Jóhannes Eðvaldsson í hópinn, allir aðrir eru mættir í slaginn.
Jóhannes er ekki væntanlegur fyrr en á þriðjudagsmorgun.
Hinir útlendingarnir skiluðu sér á sunnudaginn.
Fylla ekki völlinn?
Landsleikurinn við Svisslend-
inga hefst á Wankdorf-vellinum
kl. 6.15 að staðartíma, en 5.15 að
íslenskum tíma. Kl. 8.15 hefst
síðan leikur Hollands og
Argentínu. Wankdorf-völlurinn
tekur 58 þúsund manns. Heima-
menn reikna samt ekki með nema
20 til 30 þúsund manns á völlinn.
Þetta þótti okkur furðulegt að
heyra en hvort satt er kemur í ljós
í kvöld.
Vekja forvitni
Islenska liðið hefur æft daglega
og í gær á sjálfum Wankdorf-vell-
inum. Hina dagana hefur verið
notast við æfingavelli við hlið
Wankdorf-vallarins. Smáflokkar
heimamanna hafa fylgst með æf-
ingum liðsins af athygli. Pollar
safna eiginhandaráritunum, jafnt
á bolta sem blöð.
Búið er að tilkynna svissneska
landsliðshópinn en hann skipa svo
framandi nöfn að vel flest þeirra
eru ekki nefnandi. Frægasti Sviss-
lendingurinn, markaskorarinn
Zulzer, verður þó ekki með og eru
það slæmar fréttir fyrir Sviss-
lendinga. Zulzer er einn leiknasti
framherji í Evrópu í dag en
meiðsli aftra honum frá því að
leika. Hann var heldur ekki með á
móti Austur-Þjóðverjum fyrir
skömmu. Þá vann þýska liðið
heppnissigur. Svisslendingar léku
þá vel, sköpuðu sér góð færi, en
það vantaði títtnefndan Zulzer til
að reka endahnútinn á sóknirnar.
Svisslendingar smeykir
Dálítið er rætt um leikinn í
blöðum hér í Sviss. Þar er ekki
rætt um að liklega vinni heima-
menn heldur að leikurinn verði að
vinnast. Árangur Svisslendinga í
landsleikjum hefur nefnilega verið
svo lélegur síðustu tvö til þrjú
árin að þeir óttast að þeir verði
settir á bekk með hornsílum
Evrópu á knattspyrnusviðinu,
Möltu, Kýpur, Noregi (og auðvitað
íslandi), næst þegar raðað verður í
riðla í fyrir undankeppni HM.
Verði Sviss fyrir áfalli í leiknum á
móti íslandi í kvöld verður það
einn af síðustu nöglunum í lík-
kistu svissneska landsliðsins því
það er erfitt að vinna sig upp
þegar á botninn er komið.
„Vanmetum ekki
íslenska liðið
Á grasflöt fyrir utan íþrótta-
höllina í Biel, sem er borg skammt
frá Bern, var margt um manninn
áður en hleypt var inn í matinn í
miklu hófi sem ambassador Ar-
gentínu bauð til. Úti voru bæði
veitingar og skemmtiatriði, svo að
fáum hefur líklega leiðst. Auk
þess var sól, hæg gola og um 20
stiga hiti.
Á grasflötinni náði ég tali af
þjálfara Sviss, Walker. Eg ræddi
við hann um leikinn og sagði
hann: „Þetta er leikur sem við
verðum að vinna, og ég hef þá trú
að við gerum það.
Við vanmetum ekki íslenska
liðið því að við vitum að það hefur
komið á óvart oftar en einu sinni,"
sagði Walker. „Ég er að yngja
svissneska liðið upp og því hefur
það litla reynslu í pokahorninu.
Við lékum þó góða knattspyrnu á
móti Þjóðverjum um daginn og ég
held að allir séu á sama máli um
að við vorum óheppnir að sigra
ekki í leiknum.
— Það er slæmt að Zulzer skuli
ekki verða með, en ég er með
varamenn sem ég treysti, og þeir
eiga að geta komið í hans stað þó
að það verði erfitt. Ég veit að
atvinnumennirnir eru lykilmenn í
íslenska liðinu og ég hef aflað mér
mikilla upplýsinga um þá og látið
fylgjast vel með þeim að undan-
förnu, sagði hinn viðmótsþýði
Walker að lokum.
Þetta er aðeins annar leikurinn
sem Walker stýrir svissneska
landsliðinu, sá fyrsti var áður-
nefndur landsleikur við Aust-
ur-Þjóðverja. Walker er sagður
kænn þjálfari. Það er því ljóst að
stigin tvö verða ekki seld í Hag-
kaupi. Svisslendingar ætla sér
bæði hvað sem það kostar.
Heimsmet í maraþonknattspyrnu
f
'isl
Þessir átta Þórarar sem sjást á
myndinni settu í gær nýtt heims-
met unglinga í maraþonknatt-
spyrnu innanhúss. Léku þeir
samfellt í 52 kiukkustundir og 15
mínútur. Voru þeir merkilega
sprækir þegar þeir hættu keppni.
Sjúkraþjálfari vakti yfir líðan
piltanna allan tfmann. Haft var á
orði f Eyjum að þetta yrði í
síðasta skipti sem svona keppni
yrði leyfð þar, en eins og áður
hefur verið fjallað um er mara-
þonkeppni komin út f algjörar
öfgar. Væri athugandi fyrir
fþróttafélög hvar sem er að fara
að endurskoða afstöðu sína til
svona keppni. Heilbrigðisráð ÍSÍ
hefur bent á hversu hættulegt
það getur verið fyrir unglinga að
vera í fleiri klukkustundir undir
erfiðu álagi.
Hinn snjalli knattspyrnumaður Rudi Krol fyrirliði knattspyrnulands-
liðs Hollands leikur sinn 65. landsleik í kvöld á Wankdorf-vellinum f
Bern, þegar lið hans mætir Argentfnu f afmælisleik alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins, en leikur íslands og Sviss er forleikur að þeim
stórleik. Krol er álitinn einn besti knattspyrnumaður heims um
þessar mundir.
Frá GG í Bern
9 leikmenn
8 fararst jórar!
íslenska landsliðinu var boðið í glæsilega veislu á sunnudaginn.
Argentfska sendiráðið tók á leigu glæsilega fþróttahöll í borginni Biel
skammt fyrir utan Bern. Þar voru gestirnir um 600 talsins. Þar á
meðal allir leikmenn landsliðanna nema Hollands. Þarna voru m.a.
argentfnsku heimsmeistararnir. Það mátti glöggt sjá að heimsfrægð
hefur sín áhrif, sínar lakari hliðar. Argentínsku leikmennirnir fengu
engan frið fyrir mergð ljósmyndara og fréttamanna. Argentínumenn-
irnir reyndu að geðjast þeim er vildu fá eiginhandaráritanir þeirra og
leystu alla út með nöfnum sfnum en voru eins og sviplaus vélmenni.
Þó að þeir létu á engu bera var þeim greinilega ekki skemmt.
Þegar fslenski hópurinn hélt í veisluna voru ókomnir leikmennirnir
frá Niðurlöndum og Skotlandi. Því voru aðeins 9 leikmenn mættir
(Guðmundur Þorbjörnsson kom einn síns liðs til Sviss þá um kvöldið).
Það vakti því kátfnu þegar svissneskur ljósmyndari bað um að fá að
taka liðsmynd og kom þá fram að það vantaði aðeins einn KSÍ mann
til þess að fararstjórnin væri jafnfjölmenn og leikmennirnir. Eða 9
leikmenn en 8 fararstjórar! Veltu menn því fyrir sér hvort verið væri
að æfa maður á mann leikaðferð.
Óþekktur golfleikar i
sigraði í Skotlandi
ARGENTÍNUMAÐURINN Fernandez sigraði í ga*r í brezku PGA
golfkeppninni sem haldin var á St. Andrews vellinum í Skotlandi.
Fernandez sem er lítt þekktur golfleikari lék 72 holur á 288 höggum
sem er par vallarins. I öðru sæti var líka lítt þekktur kylfingur að
nafni B1 Baldo frá ítalfu. Lék hann á 289 höggum. Gary Player og
Brian Barnes frá Englandi urðu svo í 3.-4. sæti. Margir frægir
golfleikarar kepptu á mótinu en flestum þeirra gekk mjög illa.
Góðir 200 m
hjá Oddi Sig.
ODDUR Sigurðsson KA, frjálsfþróttamaðurinn sem komið hefur á
óvart með ágætum árangri í spretthlaupum í vetur og vor, náði
athyglisverðum tíma í 200 metra hlaupi á innanfélagsmóti ÍR-inga á
Laugardalsvelli á laugardaginn er hann hljóp á 21,8 sekúndum. Þetta
var fyrsta hlaup Odds á vegalengdinni og má fastlega gera ráð íyrir
því að hann eigi eftir að bæta þennan árangur verulega í sumar. þar
sem aðstæður til keppni voru óhagstæðar. Ef svo heldur áfram sem
horfir ætti Oddur að geta veitt þeim Vilmundi Vilhjálmssyni KR og
Sigurði Sigurðssyni Á harða keppni í sumar.
Kristjana Þorsteinsdóttir úr Víði úr Garði kastaði lengst í
kringlukasti kvenna. eða 36,30 motra.