Morgunblaðið - 22.05.1979, Page 37

Morgunblaðið - 22.05.1979, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1979 37 valdsins er það sem í raun verður kosið um. Stjórnmál hér eru eins ólík íslenskum stjórnmálum og þjóðirnar tvaer og aðstæður þeirra eru ólíkar enda hljóta stjórnmál frekar flestu öðru að endurspegla þj óðfélagsástand." Hefur konungsdæmið enn mikla þýðingu í Bretaveldi? „Konungdæmið er gífurlega mikilvægur þáttur í Bretlandi og hefur ekki eingöngu tilfinninga- lega þýðingu. Það er oft vanmetið af útlendingum hve miklu hlut- verki konungdæmið gegnir í að halda þjóðum Bretlands saman og í að viðhalda þeim sterku sam- böndum sem Bretland hefur við þær fyrrverandi nýlendur sínar sem byggðar eru fólki frá Bresku eyjunum. Þannig er drottningin einnig drottning Ástralíu, Nýja Sjálands, Kanada og fleiri ríkja. Sambandið milli Bretlands og þessara ríkja er að ýmsu sterkara en samband það sem ísland hefur við hin Norðurlöndin og má meta þýðingu þess eftir því. Hin megin- þýðing konungdæmisins er sú að í stað þess að horfa á sjálfan sig og þjóð sína eingöngu í ljósi tíma- bundinnar frammistöðu á ýmsum sviðum, hafa Bretar eitt tákn fyrir allt sem þeir eru stoltir af og vilja viðhalda. Það tekur langan tíma fyrir útlending að skilja sálfræði- lega og þjóðfélagslega þýðingu konungdæmisins, sem er mun meiri en í fyrstu kann að virðast.“ Nú fara kosningar f hönd, hvernig heldur þú að þa*r íari, og hver er staða flokkanna meðal almennings um þessar mundir? „Öllum skoðanakönnunum ber saman um að Íhaidsflokkurinn muni vinna allstóran sigur í kom- andi kosningum. Það eina sem getur komið í veg fyrir fylgishrun Verkamannaflokksins eru per- sónulegar vinsældir Callaghans. Ljóst er að Frjálslyndiflokkurinn mun gjalda afhroð og mun hann einkum tapa til íhaldsflokksins. Þó að útlit sé fyrir sigur íhalds- flokksins er það eitt sér ekki óblandið fagnaðarefni fylgis- mönnum hans. Til þess að geta stjórnað landinu í andstöðu við verkalýðsfélögin þarf sigur flokks- ins að vera mjög verulegur og afgerandi. Óvinsældir Thatcher og hræðsla við aö flokkurinn lendi í útistöðum við verkalýðsfélögin, sem þýtt gæti allsherjarverkfall, eða langvarandi lömun mikil- vægra iðngreina, eru flokknum erfiðustu tálmarnir á leið til valda. Sjáifum þykir mér líklegast að flokkurinn vinni með 30—40 þingsæta meirihluta, sem ekki er að mínu viti nægilega afgerandi sigur til þess að flokknum takist að stjórna landinu á sterkan og öruggan hátt. Frjálslyndi flokkur- inn mun sennilega fá 6—8 þing- menn af 635 í neðri málstofunni og mun hafa áhrif í samræmi við það. Skoskir Þjóðernissinnar munu sennilega einnig tapa þing- sætum þannig að tveggja flokka kerfið, sem talið var af mörgum vera á síðasta snúningi eftir síð- ustu kosningar virðast ætla að lifa enn um sinn. Kerfið á sér djúpar rætur í tvískiptingu bresks þjóðfé- lags í stéttir og aðlögunarhæfni Ihaldsflokksins hefur gert það að verkum að breytingar á stétta- skiptingu hafa ekki náð að breyta flokkakerfinu. Þrátt fyrir nafnið, fornar hefðir og þá staðreynd að meirihluti þingmanna flokksins eru úr efstu og fámennustu stétt. þjóðfélagsins lýtur flokkurinn að flestu sömu lögmálum og fjölda- flokkar Kristilegra demókrata á meginlandinu. Verkamannaflokk- urinn hefur hins vegar hneigst mjög til vinstri í orði á síðustu árum og byggt á þrengri grunni en áður. Hægrisinnaðir leiðtogar flokksins og þá einkum Callaghan hafa þó enn undirtökin en það gæti auðveldlega breyst ef flokk- urinn tapar kosningunum, sem útlit er fyrir að hann geri. Eins og viðtalið ber með sér er það tekið áður en kosið var í Bretlandi. - AH. Vinsœldalistar England 1. (2) Pop Muzik M 2. (1) Bright Eyes Art Garfunkel 3. (3) Hooray Hooray It’s a Holi-Holiday Boney M 4. (9) Does Your Mother Know Abba 5. (-) Banana Splits Dickies 6. (-) Reunited Peaches & Herb 7. (-) One Way Ticket Eruption 8. (8) Knock on Wood Amii Stewart 9. (-) Dance Away Roxy Music 10. (-) Roxanne Police Bandaríkin 1. ( 2. ( 3. ( 4 5. ( 6 1) 2) ( 3) ( 7) 6) ( 4) 7. (10) 8. ( 9) 9. ( 5) ( 8) Reunited In The Navy Heart of Glass Hot Stuff Shake Your Body Music Box Dancer Goodnight Tonight Take me Home Knock on Wood Peaches & Herb Village People Blondie Donna Summer Jacksons Frank Mills Wings Cher Amii Stewart 10. Stumblin in Suzi Quatro & Chris Norman Sjaldséðir hvítir hrafnar STEINHLJOÐ GEFUR ÚT TVÆR KLASSÍSKAR PLÖTUR • Þótt svo árlega komi út fjöldi breiðskífna. hefur útgáfu klassískrar tónlistar verið lítill gaumur gefinn hingað til. Á þessu varð nokkur breyting nú fyrir skömmu. en þá komu á markaðinn tvær fyrstu plöturn- ar í plöturöð, sem Steinhljóð hyggst gefa út á næstunni. Plöturnar, scm nú komu út, eru með þeim Manuelu Wicslcr og Júlian Dawson Lyell og Gísla Magnússyni go Ilalldóri Haraldssyni. Plata þeirra Manuelu Wiesler og Julian Dawson hefur að ge.vma fimm verk fyrir flautu, eftir innlenda sem erlenda höf- unda. Innlendu verkin eru Intermezzo úr Dimmalimm eftir Atla Heimi Sveinsson og Calais eftir Þorkel Sigurbjörnsson, en þau erlendu eru Divertimento eftir Jean Francaix, Chant de Linos eftir André Jolivet og Sonatine eftir Pierre Boulez. Gísli og Halldór leika saman tvö píanóverkin Tilbrigði um stef eftir Paganini eftir Witold- Lutoslawski og Vorblót eftir Igor Stravinsky, en síðara verkið skiptist i tvo hluta, Dýrkun jarðar og Fórnin. Ekki verður annað sagt en að Steinhljóð fari vel af stað með þessa plöturöð. Allur leikur á plötunum er mjög góður og sama er að segja um upptöku og skurð. Að mati fróðra manna eru fyrr- nefndar plötur vel sambærilegar við erlendar plötur og er það vel. Steinhljóð, sem gefur plöturn- ar út, er í raun tvö fyrirtæki. Annars vegar Hljóðriti h.f. og hins vegar Steinar h.f. í upphafi þegar fært var í tal að rétt væri að gefa út plöturöð á borð við þessa, kom í ljós að Hljóðriti taldi rétt að einhverjir aðrir aðilar tækju að sér útgáfu platn- anna og sölu, þar sem slíkt væri ekki í verkahring stúdíósins. Varð af samkomulag milli Stein- ars h.f. og Hljóðrita h.f. um sameiginlega útgáfu, en nafnið Steinhljóð er dregið af nöfnum beggja fyrirtækjanna. Sem fyrr segir eru nýútkomnu plöturnar tvær aðeins byrjunin á plöturöð íslenskra tónskálda og tónlistarfólks og stendur til að gefa út plötur, með verkum eftir Atla Heimi Sveinsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Leif Þórarins- son og fleiri. Plöturnar á að selja bæði á innlendum og erlendum markaði, en til að hægt sé að selja þær erlendis verður að greiða þær allmkiið niður. Er talið að niðurgreiðslurnar geti numið allt að 60%. Upprunalega stóð til að plöt- urnar tvær kæmu út skömmu fyrir jól, en það fórst fyrir og eftir á að hyggja hefðu plöturnar sennilega drukknað í jólaplötu- flóðinu. Önnur platnanna var tekin upp í upptökusölum Ríkis- útvarpsins og Hljóðrita, en hin var tekin upp í Háskólabíói og voru aðeins notaðir um 30 tímar við upptöku hvorrar plötu. Er það mjög lítill tími, miðað við þann tíma, sem upptaka venju- legrar pop-plötu tekur. Þá er upplag platnanna mun minna en gengur og gerist, eða aðeins um 1000 eintök. Segja má með sanni að. það sé að færast mikið í fang að gefa út klassískar plötur hér á Fróni. En þegar jafn vel er að þeim staðið og að þessum tveimur breiðskíf- um, er ekki ástæða til að vera með neina svartsýni, því óneitanlega virðist sem íslenzk- ar klassískar plötur séu fyllilega sambærilegar við erlendar. SA fMMMMMMMmmMM, VOULEZ VOUS A3BA (EPIC/STEINAR HF.1979) Flytjendur: ABBA: Bjcirn Ulvaeús: Siing- ur. gítar og banjó / Benny Anderson: Siingur. hljómborð og synthesiezer / Agnetha I'áltskog: Söngur / Frida Lyngstad: Siingur / auk: Ola Brunkert: Trommur / Rutger Gunnarsson: Bassagítar / Janne Schaffer: Gítar /Mike Watson: Bassagítar /Rolf Alex: Trommur /Lasse Wellander: Gítar / Joe Galdo: Trommur /Arnold Pesciro: Bassagi'tar / Paul Ilarris: Píanó / Ish Ledesma: Gítar /George Perry: Gítar / Halldór Pálsson: Tenór saxófón / Johan Stengaard: Tenór saxófón / Nils Landgren: Básúna / Jan Risberg: Obó / Lars O. Carlsson: Tenor saxóf- ón / Kajtek Wojciechowski: Tenór saxófón /Malando Gass- ama: Slagverk. STJOlíN UPPTÖKU: BENNY ANDERSSON & BJÖRN ULVAEUS. — Það þarf engan spámann til að segja að „Voulez Vous“ með Abba verði vinsæl plata. Plötur Abba hafa ALLTAF orðið vinsæl- ar og þessi verður engin undan- tekning. Það skemmir alls ekki fyrir að þessi Abba plata er líklega þeirra besta sem komið hefur og þar að auki aðgengilegust... Abba hafa haft einfalda tónlist að leiðarljósi, ekki endilega neitt nýtt, heldur sérlega vel upptekið, einfalt og sláandi. Hljóðfæraleik- ur þeirra er vandaður en einfaldur og yfirleitt fá hljóðfæri notuö svo lögin séu nógu grípandi. Raddirn- ar eru líka yfirleitt notaðar sem hluti af hljóðfalli, sérstaklega kvenraddirnar sem eru sérlega kuldalegar og framandi, með öðr- um orðum málmhljómandi. En það er heillandi á sinn hátt. Það eru nú liðin níu ár síðan Abba-söngflokkurinn hóf að svngja saman og þó fvrst undir nafninu TO GANGE FÁSTFOLK, síðan brevttu þau nafninu í BJÖRN BÉNNY AGNETHA & FRIDA, og gáfu út fyrstu litlu plötuna „People Need Love“, sem náði inn á topp 100 í Bandaríkjun- um. Skömmu síðar breyttu þau nafninu í ABBA og gáfu út litlu plöturnar „Ring Ring“ og „Water- loo“ en það síðarnefnda varð hlutskarpast í Eurovision-söngva- keppninni 1974. Síðan hefur saga þeirra verið stráð gullplötum. Á eftir „Water- loo“ komu litlu plöturnar „Honey Honey", „S.O.S,“ „Mamma Mia“, „Fernando", „Dancing Queen“, „Money, Money, Money", „Know- ing Me Knowing you“, „The Name of the Game", „Take a Chance on Me“, „Summer Night City, og I I I „Chiquitita". Það síðastnefnda er ^ reyndar líka á „Voulez Vous“. Auk þess hafa stóru plöturnar ^ þeirra notið sömu vinsælda en ^ þær hafa verið „Ring Ring“ (1973), J „Waterloo“ (1974), „Abba“ (1975),® „Arrival (1976) og „ABBA the ^ Album“ (1978). Þar fyrir utan ^ hafa nokkrar samansafnsplötur fc eins og „Greatest Hits“ og „Great- w est Double“ náð mjög miklum ® vinsældum. Þeir félagar Björn Ulvaeus og ^ Benny Andersson hafa alltaf sam- ^ ið og útsett lögin og stjórnað upptokum á plölunum, þó fyrst w með hjálp Stikkan Andersson. Þeir hafa oftast verið í bak- í grunni í söng en í þeim lögum sem ^ Björn hefur sungið hefur honum ^ alltaf tekizt vel til. Á „Voulez k Vous“ syngur hann einmitt lagið 5 sem er áberandi best og er reynd- ® ar komið á litla plötu „Does Your ^ Mother Knöw“. Það sem er ^ skemmtilegast við það er hversu vel það er blandað þannig að úr k því fæst mjög hresst og fjörugt 5 ekta Abba „danslag". „Chiquitita“ J fannst mér alltaf vera fyrir neðan 9 þeirra meðallag og hefur sú skoð- ^ un ekkert breyst. Þó eru flest laganna fyrir ofan meðallagið og ^ eiga án efa þó nokkuð fleiri en 5 þessi tvö eftir að verða vinsæl. ® Líklegastur arftaki „Does Your ^ Mother Know“, á vinsældalistun- ^ um er „Angeleyes“ sem er hresst ^ samsöngs-Abhalag, fjörugt og líf- k legt. Titillagið „Voulez-Vous“ 5 vinnur á við hverja spilun, en í því J lagi bre.vta þau út af venjunni og 9 eru mjög margir aðstoðarmenn í ^ laginu, þar á meðal okkar eigin ^ íslenzki saxófónleiari Halldór ^ Pálsson sem leikur á tenór i þessu 5 lagi ásamt einum öðrum, Johan J Stengaard. Halldór er þó ekki sá ^ eini sem ísienzkir tónlistarunn- ^ endur ættu að kannast við í þessu h lagi því í því leika t.d. Paul Harris ^ (Crosby, Stills, Nash & Young, 5 Neil Young) og George Terry (Eric ^ Clapton Band). Halldór kemur út ^ með sinn sérstaka stíl, en þó er ^ mun skemmtilegra að heyra í k honum á plötum Mannakorns og ^ fleiri sem hérlendis hafa komið út, 5 þar sem þá hefur hann fengið að ^ njóta sín frekar og þá yfirleitt ^ leikið á alt-saxoþfón. ^ „Kisses Of Fire“ er þegar komið út á bakhlið „Does Your Mother ^ Know“ en það lag hefði vel getað J staðið undir sér sjálft, enda sæmi- ^ legt diskólag. Ein sérstök ballaða ^ „I Hava A Dream", sem sungin er ^ af Frida Lyngstad er á plötunni og k er það eina lagi sem heldur ekki S klassísku Abba-línunni. Líklega er Abba komin yfir sitt ® besta skeið í vinsældum en með ^ þessari plötu ættu þau allavega ^ ekki að missa neitt. «• IIIA. j MMMMMMMMMMMM5

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.