Morgunblaðið - 22.05.1979, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 22.05.1979, Blaðsíða 48
PLAST ÞAKRENNUR ^ Sterkar og endíngargoðar Hagstætt verð c&Nýborg? O Armúla 23 — Si'mi 86755 J Síminn á afgreiöslunni er 83033 2tWrgunbI«t>it> ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1979 Vinnuveit- endurá fundi með ráðherra- nefnd í dag VINNUVEITENDASAM- BAND íslands heindi því til fulltrúa Alþýðusamhands ís- lands Farmanna- »k íiski- mannasamhands íslands í «ær á fundum. sem aðilarnir sátu í húsakynnum VSÍ, að hvert samhand tilnefndi tvo fulltrúa í nefnd til þess að reyna að finna flöt á vanda- málum aðila vinnumarkaðar- ins með lausn á heildargrund- velli í huKa. Farmanna- »b fiskimannasambandið svar- aði þessum tilmælum VSÍ játandi, en skilyrti þátttöku sína í slíkri neínd við þátt- töku ASÍ. ASÍ hafnaði í fyrstu. en síðan var ákvcðið að um málið yrði fjallað á miðstjórnarfundi ASI í dag. I>á óskaði fjármálaráðherra eftir því síðdeBÍs í Bær, að fulltrúar VSÍ kæmu til við- ræðu við ráðherranefnd. Tillaga VSÍ miðaði að því að í nefndinni yrðu tveir fulltrúar frá VSÍ, tveir frá ASÍ og tveir frá FFSÍ. Á fundi árdegis tóku full- trúar Alþýðusambandsins mjög dræmt í þessa tillögu og nánast FJÖLMENNI tók á móti hinum nýja og glæsilega skuttogara Ólafsfirðinga. Sigurbjörgu ÓF 1, þegar skipið kom í fyrsta skipti til heimahafnar s.l. laugardag. Ólafsfirðingar eru stoltir af þessu nýja skipi, sem er eitt hið fullkomnasta í íslenzka flotanum, smíðað í Slippstöðinni á Akureyri. Eigandi skipsins er Magnús Gamalíelsson og útgerð hans. Barnabörn Magnúsar og Guðfinnu Pálsdóttur voru í hópi þeirra sem fögnuðu skipinu og áhöfn þess með blómum og sjást blómarósirnar á myndinni. Ljósm. Mbl. Sverrir Pálsson. Sigurjón hækkaður i launum LAUNAMÁLANEFND Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að hækka þókn- un Sigurjóns Péturssonar vegna starfa hans sem for- seta borgarstjórnar sem nemur 17 næturvinnutím- um á mánuði. Munu laun hans hækka um sem svar- ar 75 þúsund krónum á mánuði. Sifíurjón fór sjálfur fram á hækkun á þeirri forsendu að forsetastarfið væri svo tímafrekt að það kæmi nið- ur á öðrum störfum. Var það mat launamálanefndar að hækka bæri laun Sigur- jóns sem næmi 17 yfir- vinnutímum á mánuði. Kjaradómur um laun verzlunarfólks: Kauphækkanimar á bilinu 4,6 - 46,8% höfnuðu henni. A fundi eftir hádegið samþykktu farmenn að taka þátt í nefndinni að því tilskildu að fulltrúar ASÍ kæmu einnig í nefndina. Síðdegis var svo beiðnin ítrekuð við fulltrúa ASI og varð að samkomulagi að þátttaka ASÍ í nefndinni yrði borin upp á miðstjórnarfundi ASÍ, sem hald- inn verður í dag. Samkvæmt upp- lýsingum Þorsteins Pálssonar mun VSÍ ekki hafa neitt á móti þátttöku fulltrúa Vinnumálasam- bands samvinnufélaganna, ef þeir óska eftir því, en fulltrúar þess neítuðu að eiga aðild að þeim fundahöldum, sem fram fóru í gær. f’armenn og vinnuveitendur sátu á samning£.'Undi í allan fyrradag og gerðu farmenn þar ákveðið tilboð í sambandi við vinnutíma. Vinnuveitendur höfðu í gær ekki svarað þessu tilboði og munu hafa það til athugunar. KAUPIIÆKKANIR á töxtum verzlunarfólks samkvæmt úr- skurði kjaradóms, sem kynntur var í gær. eru á hilinu 1,6% til 16.8%, en sú hækkun er bundin 15 ára starfi hjá sama vinnuveitanda. Kauphækkunarúrskurður kjara- dóms er samkvæmt tillögu þriggja dómara. sem tilnefndir voru af yfirborgardómaranum í Reykja- vik. en dómarar tilnefndir af verzlunarmönnum og viðsemj- endum þeirra sátu hjá við at- kvæðagreiðslu um úrskurðinn, en skrifuðu undir tillögu hinna með bókunum; dómarar tilnefndir af verzlunarmönnum vegna framan- greindrar starfsaldurshækkunar eftir 15 ár en dómarar tilncfndir aí hinum málsaðilanum með hliðsjón af nauðsyn þess að niður- staða fengist í málinu. Dómurinn gildir frá 10. apríl sl. til 1. desember n.k. og er miðaður við þau laun og launahlutföll, sem í gildi voru á vinnumarkaðnum 11. marz sl„ þannig að hann tekur ekki til þeirrar 3% launahækkun- ar. sem stjórnvöld hafa rætt um að gengi yfir allan almennan vinnu-^ markað eftir atkvæðagrciðslu B.S.R.B. Kjaradómurinn ákvað kaup í Neðri-deild hafnaði 3,5 milljarða lánsheimild vegna út- flutningsbóta NEÐRI deild Alþingis felldi f gær með 19 atkvæðum gegn 18 atkvæðum að viðhöfðu nafnakalli að veita rfkis- stjórninni heimild til að ábyrgjast allt að 3'Æ milljarða króna lán. er Framleiðsluráð landhúnaðarins tæki til að standa undir vöntun á útflutn- ingsbótafé vegna landbúnað- arafurða og kostnaði vegna mikilla birgða búvara. Það var landbúnaðarnefnd deildarinnar, sem bar fram tillögu um þessa ábyrgðar- heimild. Þingmenn Framsóknar- flokksins í deildinni, þingmenn Alþýðubandalagsins utan tveir, einn þingmaður Alþýðu- flokksins og tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins greiddu atkvæði með ábyrgðarheimild- inni en á móti voru aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokks en tveir þing- menn Alþýðubandalagsins greiddu ekki atkvæði og einn þingmanna Sjálfstæðisflokks- ins var fjarstaddur. launaflokkum, sem málsaðilar höfðu komið sér saman um í samningum 10. apríl sl. en þá varð einnig samkomulag um að vísa kauphækkunarákvörðun til kjara- dóms. Almennar kröfur verzlunar- manna fyrir dómi voru á bilinu 215.920 krónur til 383.670 krónur en vinnuveitendur gerðu þær kröfur að dómurinn ákvæði almennt mánaðarkaup á bilinu 168.236 til 302.757 krónur. Dómur féll um kauphækkanir á bilinu 173.700 krónur til 330.000 krónur auk framangreinds 15 ára flokks upp í 348.700 krónur. Sem dæmi um breytingar sam- kvæmt dómnum má nefna að laun almenns afgreiðsiufóiks hækka úr 196.871 krónu í 206.000 krónur, eða um 4,6%, en nú koma til nýir flokkar fyrir sérhæft afgreiðslu- fólk, 230.600 krónur (17,1% hækkun) og 270.400 krónur (37,3% hækkun). Almennt skrifstofufólk, sem var í 5. og 6. flokki, er nú í 7. og1 8. flokki og hækkar kaup þess úr 190.629 krónum í 230.600, eða um 21%, og úr 196.871 krónu í 270.400 krónur, eða um 37,3%. Símaverðir I, sem voru í 5. flokki með Í90. 629 krónur eru nú í 5. flokki með 206.000 krónur og er kauphækkun þeirra 8,1%.. Gjald- kerar II, sem voru í 5. flokki eru nú í 8. flokki með 243.800 krónur, sem er 27,9% kauphækkun. Lyfja- tæknar voru í 9. flokki með 223.082 krónur en eru nú í 11. flokki með 283.700 krónur og er þeirra kaup- hækkun 27,2%. Bókarar I, sem voru í 7. flokki með 205.721 krónur eru nú í 11. flokki með 283.700 krónur, sem er 38% kauphækkun. Laun flugafgreiðslufólks og fólks, sem selur farmiða til útlanda, hækka um 18,6% úr 205.611 krónur í 243.800 krónur og er þar einnig um hækkun um einn flokk að ræða. Sjá: Samkomulag um breytta flokkaskipan fyllt út með kaup- tölum bls. 18. Fundur um Jan Mayen-loðnuna Geta Norðmenn takmarkað veið ar sinna skipa? ÓFORMLEGUR fundur fulltrúa úr íslenzka og norska sjávarút- vegsráðuneytunum verður hald- inn í Reykjavík í vikunni, þar sem einkum verður rætt um loðnuveiðar við Jan Mayen. Fiski- íræðingar þjóðanna hafa lagt til að á sumarvertíð í ár og vetrar- vertíð 1980 verði ekki veiddar meira en 600 þúsund lcstir úr íslenzka loðnustoíninum. Hins vegar hefur komið fram að Norð- menn gætu hugsanlega verið búnir að veiða mikinn hluta þessa magns við Jan Mayen áður en fslenzku skipin héldu til veiða. Að sögn Þórðar Ásgeirssonar skrifstofustjóra í Sjávarútvegs- ráðuneytinu er þarna mikið al- vörumál á ferðinni og verulegt áhyggjuefni ef Norðmenn hafa mikinn viðbúnað ,við veiðarnar í sumar. Með veiðum Norðmanna við Jan Mayen í fyrra hafa skap- ast ný viðhorf og meðal þeirra atriða, sem rædd verða á fundin- um í Reykjavík, er hvort Norð- menn hafa löggjöf, sem getur takmarkað veiðar norskra skipa á svæðinu við Jan Mayen, en það er alþjóðlegt hafsvæði. 01. R. Grímsson upplýsir á Alþingi; Ráðherramir létu ríkið endumýja gömlu bílana BÍLAMÁL ráðherra komu til umræðu á Alþingi í gær þegar Ólafur Ragnar Grímsson kvaddi sér hljóðs utan dagskrár í efri deild og gerði þessi mál að umtalsefni. I umræðunum kom m.a. fram í máli Tómasar Árnasonar fjármála- ráðherra, að hann hefði nýtt sér heimild til þess að taka 3 milljónir króna að láni hjá ríkissjóði til bílakaupa, en ráðherrann hefur ítrekað verið spurður um þetta mál að undanförnu en færst undan að svara. Þá kom það ennfremur fram hjá Olafi Ragnari Grímssyni að hann hefði óskað eftir því við yfir- skoðunarmenn ríkisreikninga að sérstaklega yrði athugaður við- gerðar- og endurnýjunarkostnaður þeirra bifreiða, sem nokkrir ráð- herrar í núverandi ríkisstjórn áttu, áður en þeir urðu ráðherrar, og þeir létu endurnýja á ýmsan hátt á kostnað ríkisins og seldu þannig uppgerða nokkrum vikum síðar. I bréfi þingmannsins til skoðunar- manna stendur orðrétt: „Söluverð hinna gömlu einkabifreiða var þá vegna endurnýjunarinnar orðið mun hærra og kom allur söluhagn- aður í hlut þessara ráðherra sem svo létu flestir ríkið kaupa handa sér nýjar bifreiðar." Sjá nánar um bílamál ráðherra á bls. 30.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.