Morgunblaðið - 28.08.1979, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1979
Mikilvægt
að finna
ný atvinnu-
tækifæri
Spjallað við Roar Nöstvik
bœjarstjóra í Bodö
Loðnulöndun í Bodö.
Á um það hil hálftíma fresti
og jafnvel oftar má heyra drun-
ur mikiar úr lofti I Bodö. Koma
þær frá herfluj?vélum er taka
sig upp og lenda öðru hverju
allan daginn og fram á nótt.
Skýringin er sú að hér eru
aðalstöðvar noskra landvarna
og flugherinn hefur hér aðsetur
sitt. Er umferð um flugvöllinn
af þessum sökum jafnmikil og
um Fornebu flugvöll við Osló. I
dagblöðum í Bodö er einmitt
um þessar mundir rætt mikið
um hvað gera eigi til að draga
úr þessum hávaða. sem yfir-
gnæfir gjörsamlega þá vinalegu
mótorskeili sem fiskibátarnir
hér gefa frá sér þegar þeir eru
á ferð um höfin. Röar Nöstvik
heitir bæjarstjórinn f Bodö og
fer hér á eftir spjall við hann
um atvinnulíf hér og í norður
Noregi.
— Þar sem allar fiskveiðar
Norðmanna fara nú minnkandi
að því er virðist er enginn vafi á
því að loðnuveiðarnar við Jan
Mayen svo og í Barentshafi eru
mjög þýðingarmiklar fyrir sjó-
mennina og allt atvinnulíf í
landi, segir bæjarstjóri. Greini-
legt er að flotinn er orðinn alltof
stór miðað við það magn sem við
megum veiða og á það við um
allar fiskveiðar meira og minna.
Fer þá atvinnulífi hnignandi
hér í Bodö?
—Nei, sem betur fer höfum við
ekki fundið fyrir því enda bygg-
ist atvinnulifið hér ekki ein-
göngu á sjósókn. Hér eru að vísu
margir sjómenn, en margir eru
með sína eigin litlu báta, sem
veiða hér stutt frá og þeim hafa
ekki verið settar takmarkanir
varðandi veiðarnar í soðið handa
okkur. Fiskveiðar allar eru
undirstöðugrein í atvinnulífinu í
Víða á vesturströnd norður Noregs selja rækjusjómenn aflann beint úr bátum sínum
þúsund væru á margan hátt
svipaðir bæir. Þeir hefðu sæmi-
lega fjölbreytt atvinnulíf, en
aftur á móti væru Mo í Rana
með járnvinnslu sína, Kirkenes
með námugröft og Mosjöen með
álvinnslu fremur sérhæfðir bæ-
ir.
—Þessari sérhæfingu fylgir
líka sá annmarki að sífellt færri
starfsmenn þarf til að framleiða
sífellt meira og kemur þetta
reyndar fram í öllu atvinnulíf-
inu, landbúnaði, iðnaði og
sjávarútvegi. Því er mjög mikil-
vægt fyrir þessa sérhæfðu bæi
einkanlega að finna ný atvinnu-
tækifæri og reyndar hina bæina
líka til að taka við auknu fram-
boði á starfskröftum.
—í norður Noregi er aðeins að
finna 3 hráefni: fiskinn, námur
og fallorkuna, sem dregur til sín
stóriðnað. Fjórða hráefnið, oi-
íuna, höfum við ekki enn, en
vonumst þó til að fá hana líka.
norður Noregi, en ekki sérstak-
lega fyrir Bodö.
Atvinnulíf hér einkennist af
verzlun og viðskiptum og margs
konar opinber þjónusta er stað-
sett hér. Má segja að Bodö sé
líka nokkurskonar þjónustubær
fyrir nágrannabæina, en
atvinnulíf hér er ekki eins
sveiflukennt og það getur orðið
hjá þeim sem einhæft atvinnulíf
hafa.
íbúafjöldi Bodö er nú kringum
33 þúsund manns, upplýsir Nöst-
vik og sagði hann að fólksfjöld-
inn stæði nokkurn veginn í stað
en þó væri allmikil hreyfing á
fólki til bæjarins og frá. Flytja
árlega kringum 800 manns tii
bæjarins og álika margir burt.
Þar sem sums staðar er erfitt um samgöngur er þægilegt að geta gripið til sjóflugvélarinnar og lent
næstum hvar sem er í nágrenni bæja.
Þrátt fyrir að Bodö sé ekki hefðbundinn fiskimannabær má þar finna fjölda báta. bæði fiskibáta og
skemmtibáta.
Hver er skýringin á því?
—Hún er m.a. sú að hér eru
tvö stór sjúkrahús og talsverð
hreyfing er á starfsfólki þeirra,
sem er samanlagt kringum 1500
manns. Sama er að segja um
flugherinn, en þar koma nærri
3000 manns við sögu og fara
hermenn mikið milli staða og
hafa stutta viðdvöl hjá okkur. Þá
má einnig nefna að fólk úr
sveitum hér fyrir norðan notar
Bodö fyrir eins konar stökkpall
áfram suður á bóginn.
—Hingað kemur fólk úr sveit-
um hér frá landsbyggðinni, aflar
sér kannski frekari menntunar,
enda er hér að finna skóla af
ölium tegundum, og heldur síðan
áfram suður eftir nokkurra ára
viðdvöl hér, en suður frá er úr
mun fleiri atvinnutækifærum að
velja.
Roar Nöstvik sagði að Tromsö
með 45 þúsund íbúa, Harstad
með 25 þúsund og Bodö með 33
Olíuvinnsla í norður Noregi gæti
hjálpað okkur til að sporna við
fólksflótta suður á bóginn. Gert
er ráð fyrir að leitað verði næsta
sumar á nokkrum stöðum utan
við Tromsö og eru bundnar vonir
við að þar finnist bæði olía og
gas. Að sjálfsögðu verður að fara
með öllu með mikilli gát, því
þarna eru enn mikilvæg fiski-
mið, sem alls ekki má skemma
og því verður að gæta ítrustu
varúðarráðstafana.
Að lokum er Roar Nöstvik
spurður hvort einhver sérstök
vandamál steðji að Bodö um
þessar mundir:
Ekki umfram það sem venju-
lega eru um bæjarfélag. Við
eigum við t.d. sígilt vandamál að
etja, húsnæðisskort, en við von-
umst ann húsakost að nokkru
sem fyrir er og auka, enda verða
kröfur fólks sífellt meiri í þess-
um efnum.
jt.