Morgunblaðið - 28.08.1979, Qupperneq 46
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1979
ÍR varð hinn öruggi sigurvegari í Bikarkeppni FRÍ í 1,
deild sem fram fór um helgina í Laugardalnum. Áttundi
sigur ÍR-inga í 1. deild — og allir hafa sigrarnir unnist
á siðustu átta árunum. Glæsilegur árangur hja ÍR, sem
teflir fram góðum einstaklingum og mikilli breidd og
þar liggur iykillinn að velgegni félagsins í frjálsum
íþróttum síðustu árin undir styrkri stjórn hins ötula
þjálfara, Guðmundar Þórarinssonar. ÍR hlaut 145 stig,
varð 17 stigum á undan Ármanni er hlaut 128 stig. KR
varð í þriðja sæti með 109 stig, UMSK með 107 stig, FH
88 en Þingeyingar féllu í 2. deild — hlutu 65 stig. í
karlaflokki hlaut ÍR 92 stig en Ármann varð efstur í
kvennaflokki með 58 stig.
Baráttan í Laugardal stóð fyrst
og síðast um sæti — að safna
stigum til félagsins. Baráttan um
sekúndubrot og sentimetra sat því
ekki eins í fyrirrúmi og árangur
var fremur slakur þegar á heild-
ina er litið. Þó leit heimsmet
ölduga dagsins ljós — og auðvitað
var þar að verki hinn síungi
„öldungur", Valbjörn Þorláksson.
Hann hljóp 400 metra grinda-
hlaup á 56.1 og varð í öðru sæti á
eftir Þráni Hafsteinssyni er hljóp
á 55.2. En Valbjörn er nú hálf-
fimmtugur og árangur hans sér-
lega glæsilegur því 400 metra
grindahlaup er einhver erfiðasta
grein frjálsra og reynir mjög á
þolrif ungra manna — hvað þá
hálffimmtugra. „Ég vissi eiginlega
ekki við hverju átti að búast,"
sagði Valbjörn eftir hlaupið. „Ég
hljóp 400 grind síðast 1964 og þá á
56.6 svo árangurinn er betri nú.
Mér fannst við fara of rólega af
stað, allt of rólega.“ Nú er NM
öldunga framundan, ferðu þang-
að? „Ég hef vissulega hug á því en
FRÍ á alveg eftir að taka ákvörðun
um það. Eftir hinn góða árangur
minn í Þýzkalandi þá finnst mér
sjálfsagt að senda 2—3 keppendur.
Það yrði góð landkynning því
staðreyndin er að við vinnum ekki
allt of marga sigra erlendis. Þessi
mót eru orðin það umfangsmikil
og vekja það mikla eftirtekt að við
getum vart staðið utan við,“ svar-
aði Valbjörn.
Það var ekki bara í 400 metra
grindahlaupi, sem Valbjörn sýndi
snilldartakta. Hann sigraði einnig
í 110 metra grindahlaupi, hljóp á
15.0 samkvæmt handklukku. En
tími hans á rafmagnsklukku, sem
einnig var tekinn var 15.29 og
teldist Islandsmet á rafmagns-
tæki. Tækni Valbjarnar fyrst og
fremst færir honum sigrana —
þar geta ungu mennirnir margt af
honum lært.
Lára Sveinsdóttir hljóp 100
metra grindahlaup vel innan við
Islandsmet Ingunnar Einarsdótt-
ur, sem er 13.9. Lára hljóp á 13.7
en klaufaskapur mótshaldara ger-
ir það að verkum að íslandsmet
hennar fékkst ekki staðfest.
Sífelld vandræði með rafmagns-
tækin gerðu það að verkum að
tími Láru var aðeins tekinn á eina
klukku en minnst tvær þarf til að
viðurkenna met. Sárt fyrir Láru
sem var mjög sár vegna þessara
mistaka — Islandsmet beinlínis
tekið af henni. „Ég varð fyrir
gífurlegum vonbrigðum. Þeir
mega víst ekki staðfesta metið þar
sem aðeins ein klukka tók tímann.
Þó á eitthvað að funda um það. Ég
náði góðu hlaupi, startið að vísu
ekki alveg nógu gott en síðan
small allt saman. Þá hjálpaði
veðrið — aldrei þessu vant var það
eins gott og bezt verður á kosið.
Það hefur því miður ekki verið allt
of oft, sem veðrið hefur leikið við
okkur svo mistökin eru nánast
ófyrirgefanleg. Ég kenni ekki
tímavörðum um — heldur leik-
stjóra, mótshöldurum sem eiga að
sjá um að hafa svona hluti í lagi,“
sagði Lára og var ekki furða þó
hún væri vonsvikin — gífurleg
vinna að baki og loks þegar me.t-
tími náðist þá brugðust menn
utan brautarinnar. Lára var í
miklu stuði í Bikarkeppni FRÍ —
hún sigraði í 100 metra hlaupinu á
12.24 sem er met á rafmagnstíma-
töku. Hið sama var uppi á ten-
ingnum í 200 metra hlaupinu, þar
var met á rafmagnsklukku, 25.23,
auk boðhlaupsmets.
En ÍR varð hinn öruggi sigur-
vegari og þegar í fyrstu grein kom
ÍR sigur, í 400 metra grindahlaup-
inu þegar Þráinn Hafsteinsson
sigraði. Þórdís Gísladóttir sigraði
örugglega í hástökkinu, 1.74.
ÍR-ingurinn Friðrik Þór Óskars-
son sigraði örugglega í langstökki
og þrístökki, 7.03, og 14.60. Ágúst
Asgeirsson sigraði bæði í 3000
metra hindrunarhlaupi og 5000
metra hlaupi, í spjótinu og kringl-
unni sigraði Óskar Jakobsson.
Hann var annar í kúluvarpinu á
eftir félaga sínum, Hreini
Halldórssyni. Hreinn varpaði
19.72 en Óskar 19.04 og greinilegt
að stíll hans hefur lagast verulega
en hann hefur dvalist í Banda-
ríkjunum við æfingar. Hins vegar
var Óskar lítt ánægður með ár-
angurinn í kringlunni — 55.39.
Gunnar P. Jóakimsson sigraði
bæði í 800 og 1500 metra hlaupun-
um. Og Erlendur vann sleggjuna
— sterkir mennirnir í IR.
Þeir voru ekki margir keppend-
ur KR — en það sópaði að þeim.
Vilmundur Vilhjálmsson
ósigrandi í spretthlaupunum, auk
þess að hreppa annað sætið í 800
• Það er enginn sældarsvipur á hlaupurunum í hindrunarhlaupinu
FRÍ, en þeir urðu að stíga æ dýpra í vatnsgryf juna er á leið hlaupið og
— Ljðsm. Emllla.
í Bikarkeppni
þreytan jókst.
Bikarinn til IR
í áttunda sinn
— Valbjörn Þorláksson setti heimsmet öldunga
og Lára Sveinsdóttir hljóp undir gildandi
íslandsmeti í 100 metra grindarhlaupi en
handvömm mótshaldara rændi hana metinu.
metra hlaupinu, Valbjörn
Þorláksson með sín einstæðu af-
rek, Hreinn sigraði örugglega í
kúluvarpinu og Helga Halldórs-
dóttir var drjúg. íslandsmethaf-
inn, Sigurður T. Sigurðsson varð
að gera sér annað sætið að góðu í
stangarstökkinu, varð á eftir vini
sínum og félaga úr Ármanni,
Kristjáni Gissurarsyni, báðir
stukku 4.20. Þeir sigruðu einnig i
boðhlaupum karla. Þar hlupu þeir
Vilmundur, Valbjörn, Sigurður og
Bjarni Stefánsson var dubbaður
upp í gamla KR-búninginn og
skilaði sínu með sóma. En KR
sendi ekki keppendur í allar grein-
ar — og er það lítt til eftirbreytni,
auk þess að ólöglegur keppandi
tók þátt í tveimur greinum undir
merki KR.
Sveit Ármanns setti íslenskt
félagamet í 4x100 metra boðhlaupi
kvenna þegar þær Lára Sveins-
dóttir, Sigurborg Guðmundsdótt-
ir, Jóna Björk Grétarsdóttir og
Katrín Sveinsdóttir hlupu á 48.8.
Þá setti hin bráðefnilega Helga
Halldórsdóttir úr KR meyjamet í
100 metra grindahlaupi þegar hún
hljóp á 14.4, og varð í öðru sæti.
Keppnin í hástökkinu var mjög
jöfn og tvísýn, Karl West
Fredriksen sigraði en hann stökk
1.90. Annar varð Stefán Stefáns-
son úr ÍR, sem stökk 1.90 en þurfti
fleiri tilraunir. Guðmundur R.
Guðmundsson, stökk aðeins 1.80
en hann hefur tekið þátt í 25
mótum í ár og aldrei stokkið undir
1.95. Eftir keppnina brá Guð-
mundur sér í gallann — stillti
rána á 1.90 og fór vel yfir.
H.Halls.
Stigin
BARATTAN um stig var geysihörö
— ÍR hafði vinninginn an stigin
deildust pannig, samanlagt,
ÍR-ingar sigruðu < 11 greinum af
32.
1. ÍR 145 3. Ármann 60
2. Ármann 128 4. FH 58
3. KR 109 5. UMSK 56
4. UMSK 107 6. HSÞ 32
5. FH 88 i kvennaflokki urðu úrslit:
6. HSÞ 65 1. Ármann 58
2. UMSK 45
í karlaflokki urðu ÍR- ■ingar efetir 3. ÍR 44
en stigin deildust: 4. HSÞ 32
1. ÍR 92 5. FH 27
2. KR 78 6. KR 22
UIA vann
3. deildina
AUSTFIRÐINGAR (UÍA) sigruðu
örugglega í þriðju deild Bikar-
keppni FRÍ, sem haldin var að
Breiðabliki í Miklaholtshreppi á
Snæfellsnesi um helgina. Hlaut
UÍA 89 stig, heimamenn (HSH)
urðu í öðru sæti með 69'i stig,
USAH varð í þriðja sæti með 60
stig, Dalamenn (UDN) í fjórða
með 38'á stig og lestina ráku
USVH með 24 stig. Á mótinu, sem
fram fór í fegursta veðri setti
Helga Unnarsdóttir UÍA héraðs-
met í kúluvarpi, varpaði 10,78
metra, og Hreinn Jónasson HSH
setti héraðsmet í spjótkasti, kast-
aði 60,12 metra.