Morgunblaðið - 14.09.1979, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979
I eldhúsinu á Bakkakoti, þar sem Einar býr með íöður sinum Ólafi. Á myndinni f.v. Friðrik Stefánsson
hljóðupptökumaður, Guðný Ragnarsdóttir. Ágúst Guðmundsson leikstjóri, Sigurður Sverrir Pálsson
kvikmyndatökumaður ok Hjörtur Gislason sem sér um ljós og rafmagn. . . ....
Ljósm.: Knstmn.
•rlygur frá Máná er ieikinn af
'orvarði Helgasyni. Hann er
káldið, sem kemur frá útlöndum
I að vitja æskustöðvanna og
mnfærast um það að ekki sé
ess virði að vera i sveitinni. Með
onum í ferðinni er innfluttur
anskur bílstjóri, sem leikinn er
f Steindóri G. Steindórssyni.
arartækið, sem þeir félagar aka
um sveitina er árgerð 1919 af
'ixie Flyer.
Sveita-
maðurinn
vill
komast
á mölina
Fylgst med kvikmyndatöku
á Land og synir
Margrét (Guðný Ragnarsdóttir) undirbúin fyrir upptöku. í atriðinu á
hún að heimsækja Einar í Bakkakoti og þarf því auðvitað að líta vel
út. Hárgreiðsludaman heitir Fríða borsteinsdóttir.
í rigningarsudda og niðamyrkri
er ekið sem leið liggur í norðurátt
frá Akureyri, en ferðinni er heitið
að Húsabakkaskóla í Svarfaðar-
dai. Er blaðamaður og ljósmynd-
ari Mbl. aka í hlað tekur hundur-
inn Dýri vingjarnlega á móti
okkur er við göngum í bæinn. Þar
eru flestir gengnir til hvílu, því
morguninn eftir er áætlað að
byrja daginn snemma.
Norður í Svarfaðardal er nú ’
unnið að kappi að kvikmyndun á
„Land og synir“, og var ætlun
okkar með heimsókninni að fyigj-
ast þar með gangi mála. Kvik-
myndin Land og synir er unnin
eftir samnefndri sögu Indriða G.
Þorsteinssonar og fjallar hún um
tengsl mannsins við sveitina, dýr-
in og náttúruna og hvernig hann
reynir að slíta sig burt. Sögu-
persónan er ungur maður, að
nafni Einar. Hann stundar búskap
með gömium dauðvona föður sín-
um, en hefur mikinn áhuga á að
komast á mölina og er reiðubúinn
að fórna öilu til þess. Inn í þennan
efnisþráð fléttast ástamál Einars
og Margrétar, dóttur bóndans á
næsta bæ.
Mikið af
óreyndum leikurum
Um hundrað manns koma fram
í myndinni og fara þeir með
mismunandi stór hlutverk. Margir
hafa aldrei leikið áður og hefur
fólk af bæjum í Svarfaðardal og
frá Dalvík fengið til að vera með í
mannmörgum atriðum. Til dæmis
þurfti fjölmenni að vera viðstatt
útför föður Einars og á sveitaballi,
sem haldið er í myndinní.
Flestir þeir, sem fara með
stærri hlutverk í myndinni, hafa
eitthvað komið nálægt leiklist
áður, þó mismunandí mikið. Með
aðalhlutverk í myndinni fer
Sigurður Sigurjónsson, sem leikur
Einar. Ólaf föður hans leikur
Jónas Tryggvason, en Margréti
unnustu Einars leikur Guðný
Ragnarsdóttir. Þetta er hennar
fyrsta hlutverk, og hefur hún lítið
sem ekkert komið nálægt ieiklist
áður. Hlutverk Tómasar, föður
Margrétar, er í höndum Jóns
Sigurbjörnssonar en Guðrúnu
móður hennar leikur Sigríður
Hafstað.
Framkvæmdaraðili myndarinn-
ar Land og synir er ísfilm sf., en
að því fyrirtæki standa þeir
Indriði G. Þorsteinsson, Jón Her-
mannsson og Ágúst Guðmunds-
son. Sögðu þeir að markmiðið með
gerð myndarinnar væri að reyna
að gera sér grein fyrir því hvort
hægt sé að gera mynd á íslandi á
venjulegum viðskiptagrundveili.
Upphafleg kostnaðaráætlun við
gerð myndarinnar hljóðaði upp á
50 milljónir, en gert er ráð fyrir að
kostnaðurinn verði meiri, þótt
ekkert endanlegt verði um það
vitað, fyrr en verkinu er lokið.
Kvikmyndasjóður veitti 9 milljón
króna styrk til kvikmyndagerðar-
innar, en afganginn sögðust þeir
félagar hafa fengið lánað, gegn
veði í íbúðarhúsum þeirra.
Framkvæmdastjóri við kvik-
myndagerðina er Jón Hermanns-
son, en handritshöfundur og leik-
stjóri er Ágúst Guðmundsson.
Sagðist Ágúst hafa byrjað á að
semja handritið í fyrrahaust, en
ráðgert væri að frumsýna mynd-
ina samtímis á þrem stöðum á
landinu í febrúar á næsta ári en
ekki væri enn búið að ákveða hvar
það yrði.
Að sögn Jóns Hermannssonar
er kvikmyndatakan nú vei
hálfnuð, en hún e mjög árstíða-
bundin og er að taka atriði, sem
fjalla um smaiamennsku og réttir,
en slikt er mjög erfitt að setja á
svið bg því er ráðgert að nota
alvöruréttir við kvikmyndatök-
una. Sagði Jón ennfremur að
veðrið hefði verið þeim dálitiil
höfuðverkur, því varla væri hægt
að tala um að það hefði verið
sumar fyrir norðan, og ekki hefði
komið svo slæmt sumar á þessum
slóðum í manna minnum. Að öllu
forfallalausu er búist við því að
kvikmyndatökunni verði lokið upp
úr 20. september.
ólíkt skemmtilegra
en að vinna í banka
Guðný Ragnarsdóttir var í hópi
margra stúlkna, sem prófaðar
voru í hlutverk Margrétar.
Upphaflega var ráðgert að Ragn-
hildur Gísladóttir færi með hlut-
verkið, en þar sem útköll Bruna-
liðsins fóru ekki saman við æf-
ingar Ragnhiidar var Guðný
fengin í staðinn. Guðný er sextán
ára nemi í Menntaskólanum við
Hamrahlíð, og er þetta -í fyrsta
sinn, sem hún kemur nálægt
leiklist. Að sögn Ágústs
Guðmundssonar var mikið lagt
upp úr því að fá rétta „týpu“ til að
leika hlutverkið.
„Við vorum að leita að holdtekju
Skagafjarðar. Margrét er stúlka,
sem heldur tryggð við sveitina og
heimabyggð sína og stúlkan, sem
við leituðum að þurfti að vera
nokkurs konar ímynd sveitalífs,"
sagði Ágúst.
„Ég hef alltaf haft áhuga á
leiklit, en þetta er mitt fyrsta
hlutverk," sagði Guðný. í fyrra
vetur hafði ég leiklist sem val-
grein í skólanum, og hefur það
komið mér að dálitlu gagni í
hlutverki Margrétar."
Guðný sagði að Margrét ætti að
vera frekar ákveðin manngerð, en
þó ekki hryssingsleg.
„Margrét á að vera svona 17 til