Morgunblaðið - 14.09.1979, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979
31
árum síðan. Eiginkona hans, frú
Lovísa Ágústsdóttir var þar á ferð
með honum. Hún var góð vinkona
móður minnar, sem mun hafa
valdið því að þau Lárus og hún
komu heim til okkar í þetta sinn.
Mér er enn í fersku minni hversu
glæsileg þau voru þessi reykvísku
hjón, hafði vart séð önnur glæsi-
legri.
Nokkrum árum síðar dvaldi ég
vetrarlangt á heimili þeirra að
Tjarnargötu 33 hér í Reykjavík.
Vetur sá verður mér jafnan minn-
isstæður fyrir margra hluta sakir
og þá ekki síst vegna lærdóms-
ríkra kynna við þau hjón, frú
Lovísu og Lárus Fjeldsted. — Þótt
aldursmunur væri mikill á okkur,
mér seytján ára og hinum virta og
virðulega lögmanni, varð ég aldrei
hans var.
Heimilisbragurinn var eftir-
minnilegur og lærdómsríkur. Hús-
bóndinn glæsimenni, ekki einvörð-
ungu að vallarsýn, heldur og í allri
framkomu. Um hann mátti segja,
að hann var hógvær og af hjarta
lítillátur. Ég heyrði hann aldrei,
þá þrjá áratugi sem ég þekkti
hann, mæla styggðaryrði til nokk-
urs manns, heldur færði hann
jafnan allt til betri vegar. Það var
góður og gagnlegur skóli, seytján
ára pilti að umgangast Lárus
Fjeldsted og heimili hans. Fram-
koma hans öll og viðbrögð voru
vissulega til eftirbreytni.
Hjónaband þessara elskulegu
hjóna var einstakt að mínu mati.
Þar bar þó hæst hin sérstaka
umhyggja, er hjónin báru hvort
fyrir öðru, eftirtektarverð var
virðingin og hlýjan er þau mæltu
hvort til annars. Frú Lovísa var
vel menntuð gáfukona og með
mikilli sæmd stjórnaði hún heim-
ili þeirra hjóna í 52 ár. Þau voru
fjögur börnin sem áttu því láni að
fagna að eiga að foreldrum, Lárus
Fjeldsted og frú Lovísu, konu
hans.
Barnanna er getið í grein hér að
framan og verður ekki endurtekið
hér.
Lárus og frú Lovísa létust sama
daginn, 7. nóvember 1964. Hún
nokkru fyrir dögun, hann um
miðaftan þessa sama dags. Brott-
för Lárusar kom flestum á óvart
svo hress sem hann var, þrátt
fyrir háan aldur. Vafalaust má
telja að helfregn morgunsins hafi
stuðlað að skjótri brottför hans.
Þau höfðu unnast í meir en hálfa
öld og vart mátt af öðru sjá, hvað
var þá eðlilegra en þau yrðu
samferða síðasta spölinn.
Með þakklæti hugsa ég til Lár-
usar fyrir áratuga kynni. En
hugsun mín er einnig hjá Lovísu
konu hans, sem var lífsförunautur
hans í 52 viðburðarík ár. Ég hef
áður látið í ljós að mér fannst
eftir að ég kynntist þeim, að líf
þeirra hafi verið ein samfelld
brúðkaupsferð. Svo litrík var hún
og laus við allan hversdagsleika að
aldrei gleymist þeim er til þekktu.
Blessuð sé minning þeirra
hjóna, Lárusar Fjeldsted og frú
Lovísu konu hans.
Jón Kjartansson.
traust vináttubönd, sem ekki rofn-
uðu upp frá því þótt leiðir skildu.
Og ófáir voru þeir er leituðu
trausts og halds hjá Valgerði er
þeir voru í vanda staddir og gengu
ekki bónleiðir til búðar. Þannig
var Valgerður síupptekin af hugs-
un um aðra, skylda sem óskylda,
sívinnandi og óhlífin við sjálfa sig.
Vinir og vandamenn heimsóttu
hana og fóru léttari í lund af
hennar fundi en þegar þeir komu.
Barnabörnin, sem eru þrettán,
nutu ástar og umhyggju ömmu
sinnar og áttu alltaf athvarf hjá
henni. Þannig fórnaði Valgerður
kröftum sínum fyrst og fremst
fyrir aðra og það gaf lífi hennar
fyllingu. Þá hvarflaði hugur henn-
ar sí og æ til ástvinarins góða.
Hann var henni ávallt nálægur
enda trúði hún á lífið eftir dauð-
ann og var sannfærð um endur-
fundi sem hún þráði því meir sem
á ævina leið þegar þreyta og
lasleiki fór að ásækja hana. Svo
fór að kraftana þraut til að standa
í umfangsmiklu heimilishaldi.
Heilsunni hrakaði en þó var hún
Aðalheiður Erla Gunn-
arsdóttir - Kveðja
U)tt vér hljótum hér að kvrðja
hjartans vini kærustu þrátt.
Indæl von sú oss má slrðja
aftur heilsum vér þeim brátt.
Elsku Heiða litla mun lifa
áfram í hjörtum okkar og við
munum hugga okkur við minning-
una um allar yndislegu samveru-
stundirnar sem við áttum með
henni og sem eru okkur nú svo
óumræðilega dýrmætar.
Hafi hún þökk fyrir allt.
Jórunn. Þórhildur. Jón Ævar.
Fædd 4. febrúar 1967.
Dáin 26. ágúst 1979.
Hví fölnar jurtin frlða
ok fcllir blóm svo skjótt?
Hví sveipar barnið blíða
svo brátt hin dimma nótt?
Hví verður von og yndi
svo varpað niður í gröf?
Hví berst svo burt í skyndi
hin besta lífsins gjöf?
I þessum ljóðlínum Björns
Halldórssonar frá Laufási felast
nokkrar af þeim ótal spurningum
er leituðu á hugi okkar sunnud. 26.
ágúst s.l. er okkur bárust hin
hörmulegu tíðindi um andlát
Heiðu litlu í Vallholti.
Það var svo ótrúlegt að hún
væri horfin, þessi litla 12 ára
stúlka. Hún sem var svo hlaðin
lífi, þrótti og atorku, hún sem
ætlaði að framkvæma svo ótrú-
lega margt.
I lífi hennar skipaði allt er
viðkom tónlist og búskap æðsta
sess.
Öllum sínum frístundum eyddi
hún við orgelið, sama var hvort
um löng eða stutt lög var að ræða,
allt nam hún og lék af fingrum
fram, og ekki var hún há í loftinu
er hún fór sjálf að semja lög og
vísur.
Við höfðum þá trú að hún ætti
eftir að na langt á þessu sviði og í
byrjun ágúst s.l. færðum við það
einmitt í tal við hana eftir að hafa
hlýtt á eitt af hennar eigin
frumsömdu lögum.
Hún var fljót að svara því til að
þetta væru einungis hjáverk og
tómstundagaman hjá sér, sinn
æðsta draum kvað hún vera að
taka við búi föður síns. Hún taldi
upp ótal margt sem hún ætlaði að
breyta og koma í framkvæmd á
því sviði. Það var svo mikil einurð
og festa í svip hennar og lýs-
ingarnar svo lifandi að við sáum
fyrir okkur framkvæmdirnar
jafnóðum og hún taldi þær upp.
Vissa okkar var sú að það sem
Heiða ætlaði sér það mundi henni
takast.
alltaf söm við sig. Hin sjálfstæða
kona undi ekki veikindum og
vanmætti og vildi ekki vera öðrum
til byrði. Enginn greinir fyllilega
innstu hugsanir annarra en
merkja mátti nokkuð ótvírætt að
dauðinn var henni ekki óvelkom-
inn. En hann lét á sér standa og
biðin var löng og ströng. Um það
bil fjögur ár stóð það stríð á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri.
Lífi hennar er nú lokið og má
e.t.v. segja að það hafi ekki verið
neinn dans á rósum fremur en svo
margra annarra. Áhugamál henn-
ar mörg urðu að sitja á hakanum
og hér eru ekki öllu gerð skil sem
vert væri að minnast, svo sem
áhuga hennar á ljóðum og listum.
Við vinir hennar óskum henni
velfarnaðar og þökkum henni af
alhug allan velgjörning og sam-
veru, sem aldrei gleymist. Við
sendum börnum hennar innilegar
samúðarkveðjur og gleðjumst með
þeim í minningunni um góða og
göfuga móður.
Skúli Magnússon.
En á örfáum mínútum er
draumurinn brostinn, fjörugur og
athafnasamur lífsneisti slokkn-
aður.
Eftir sitja harmi slegnir for-
eldrarnir, Stefanía Sæmundsdótt-
ir og Gunnar Gunnarsson, og eldri
systirin Jónína sem tilbað litlu
systur sína og bar hag hennar
mjög fyrir brjósti.
Við biðjum góðan Guð að halda
verndarhendi sinni yfir syrgjandi
ástvinum, lina trega þeirra og
styrkja í þessari þungbæru raun
og biðjum þau að minnast orða
Helga Hálfdanarsonar!
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og
minningargreinar verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast
á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir
hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra
daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með
góðu línubili.
Kjúklingar
Aðeins 1.850 pr. kg.
Franskar kartöflur kr.975.-
Kebab
grillteinn
kryddaður og tilbúinn
á grillið eða í ofninn
Lambakjöt, svínakjöt
og nautakjöt blandað
með lauk og papriku.
Tilbúið meðlæti
sérlagað:
Bernaisesósa
Kokteilsósa
Kryddsmjör
Hrásalat
Hvítkálssalat
Lambageiri
á teini.
Barbecuesósur í úrvali
Úrval af grillkryddi
Víðiskaffi á sérverði...
Aðeins 795 pakkinn
Opið til hádegis á laugardaginn
STARMYRI 2 AUSTURSTRÆTI 17