Morgunblaðið - 14.09.1979, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 14.09.1979, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979 37 Minning: Þorsteinn Klemens- son frá Hreimsstöðum Hinn 25. ágúst 1979 fór fram útför hans frá Hvammskirkju í Norðurárdal, að viðstöddu miklu fjölmenni. Skartaði sveitin sínu fegursta á heitasta og blíðasta degi sumarsins. Þorsteinn lézt að heimili sínu 18. ágúst s.l. og vantaði 5 daga upp á 87 ára aldur, en hann var fæddur 23.ágúst 1892. Faðir hans, Klemens Baldvins- son, fluttist með fjölskyldu sína vestan úr Dölum að Hvassafellí Norðurárdal árið 1908. Ekki ætla ég að rekja ætt Þorsteins frekar, en að honum stóð kjarnafólk. Hafa öll börn Klemensar Baldvinssonar verið með afbrigð- um dugandi, en tvær dætur hans, Guðríður og Kristín , dóu ungar. Það fyrsta sem ég man eftir Þorsteini var í sambandi við vinnu hans hjá föður mínum. Faðir minn réðst í það að veita vatni á engi. Það var í kring um 1922 sem það verk hófst, að mig minnir. Þá voru engar vélar til að grafa skurði eða ýta upp görðum. Varð að stinga allt efni með skóflum og hlaða því upp með göfflum. Meðal þeirra manna sem að þessu unnu var Þorsteinn Klemensson. Vitn- aði faðir minn oft til þess hverjum firnum Þorsteinn hafði afkastað í þeirri vinnu, sagðist hann tæplega hafa þekkt annað eins. Árið 1917 giftist Þorsteinn Sigurrós Jónsdóttur, mikilli dugn- aðar og starfskonu. Hn lézt árið 1974 og voru nákvæmlega liðin 5 ár frá útfarardegi hennar daginn sem Þorsteinn lézt. Sigurrós og Þorsteinn voru með eindæmum samhent í öllu er laut að þeirra störfum. Þau bjuggu á nokkrum stöðum hér um slóðir: Hafþórs- stöðum, Múlakoti, Brekku og er Hvassafelli í litlum bæ sem þau nefndu Lækjarbug. Þessi litli bær er á Tunguengi, en það hafði hann áður keypt. Tunguengi liggur að Hvassafellsengjum, svo þangað var stutt að sækja til heyskapar. Jafnframt þessum búskap stund- aði Þorsteinn allskonar vinnu utan heimilis, mest vegavinnu á ýmsum stöðum. Einnig vann hann oft hjá sveitungum, því að hann var eftirsóttur til verka, enda sérstaklega greiðvikinn og hjálp- samur. Þáttaskil verða í lífi Þorsteins 1937, þá kaupir hann Hreimsstaði og flytur þangað frá Hvassafelli um vorið. Má segja að á Hreimsstöðum voru öll hús komin að falli eða ónýt. Þorsteinn hófst strax handa við að reisa nauðsynlegustu pen- ingshús. Var það allt af vanefnum gert, en ekki um annað að ræða en hafa hraðan á, því segja má að um algjört landnám væri að ræða, og fjárráðin lítil til framkvæmda. Enginn véltækur blettur var í Hreimsstaðatúni og hófst hann einnig handa á næstu árum að slétta túnið eftir því sem hægt var, en það var bæði blautt, stórþýft og grýtt. Þá voru engar gröfur eða ýtur komnar og ekki verkfæri nema fyrir hesta og svo handaflið. Það var í kring um 1940 einn síðsumardag í sláttarlok að ég plægði með Þorsteini í gamla túninu á Hreimsstöðum. Höfðum vð tvo hesta fyrir plóginum. Stýrði hann hestunum en ég plóginum, þó skiptumst við eitthvað á um það. Var hann þá kominn hátt á fimmtugsaldur. Landið sem plægt var bæði stórþýft og grýtt. En áhugi Þorsteins og atorka við þetta verk var einstök. Var gaman að vinna að þessu með honum. Er þetta með skemmtilegri dögum, sem ég á í sjóði minninganna, dagurinn sem ég plægði með Þorsteini á Hreimsstöðum. Þorsteinn var um margt sér- stakur og minnisstæður persónu- leiki. Stálgreindur og hafði sínar skoðanir á hlutunum. Meðal sam- ferðamanna var hann kunnur fyrir sín hnyttilegu tilsvör. Ekki naut hann skólagöngu, hann óx upp á þeim tíma að ekki var um slíkt að ræða. En hann mun hafa lesið allmikið af bókum, og minnist ég þess að hann fékk mikið lánað af bókum frá Lestrar- fél. Norðdælinga. Hann var ein- lægur áhugamaður um velferð sveitarinnar og að þar ættu sér stað framfarir á öllum sviðum. Eina dóttur eignuðust þau Þor- steinn og Sigurrós, Aðalheiði. Hefur hún alla tíð verið þeim til mikillar hjálpar. Hefir alltaf verið heima heyskapartímann, en var annarsstaðar á vetrum. Síðustu árin hefur hún verið alveg heima og annast öll störf, bæði úti og inni, og séð um foreldra sína í veikindum þeirra. Aðalheiður er óvenju dugleg að hvaða verki sem hún gengur. Þorsteinn var góður húsbóndi, það sést á því að sömu drengirnir voru hjá honum sumar eftir sum- ar. Sannar það hve gott hann átti með að umgangast unglinga og ná til þeirra. Einnig held ég að hann hafi notið almennra vinsælda af öllum sem kynntust honum. Síðustu árin var Þorsteinn þrot- inn að heilsu og kröftum, einnig var heyrnin farin að bila. En hann fylgdist þó með öllu og áhuginn ótrúlegur hjá jafn þreyttum manni og hann var orðinn. Fyrir tveim árum lá hann lengi þungt haldinn á Akranessjúkra- húsi. Kom ég þá tvisvar til hans. Sagðist hann þá vonast til þess að þessu færi að ljúka, það hefði ekki tilgang að lifa svona lengur. En það fór á annan veg, hann komst til furðu góðrar heilsu og kom aftur heim að Hreimsstöðum. Laugardaginn 18. ágúst fór hann út á Akranes að fylgja vinkonu sinni, Oddrúnu í Mýrar- húsum til grafar. Þegar hann var að ganga til hvílu heima hjá sér um kvöldið var hann skyndilega allur. Þorsteins er minnst með velvild og vinarhug af öllum sem hann þekktu. Guðmundur Sverrisson Síðsumardagur, sólbjartur og fagur, yljar Hveragerði svo hlíðin fyrir ofan byggðina ilmar. í tilefni afmælis Garðyrkjuskólans hafa hagleikshendur blómaræktar- bænda byggt fagra gróðrar- og blómaveröld, þar sem í Miðjarðar- hafsloftslagi má reika um stíga milli skemmtilegra gróðurreita, eða þá tylla sér á bekk í fögru rjóðri og njóta þess að horfa á fegurð blómanna. Hver hugleiðir á slíkri stundu að hann sé í síðasta sinn að tala við vin sinn og starfsbróður? Við Ingi sáumst seinast á afmælissýn- ingu Garðyrkjuskólans í Hvera- gerði. Taldi hann þá heilsu sína eftir vonum, og horfði björtum augum fram á veturinn og kennslustarfið. Það var aldrei háttur hans að kvarta, en við sem þekktum hann vissum, að hann sagði heilsufarið jafnan betra en það var. Hitt kom á óvart að hann átti aðeins eftir hálfan mánuð, þá er okkar samtal fór fram. Ingi Eyvinds var fæddur á Eyrarbakka 18/2 1922. Þar ólst hann upp til 11 ára aldurs, en fluttist þá til Reykjavíkur og átti þar heima alla tíð síðan. Verkleg og tæknileg viðfangs- efni áttu snemma huga hans og valdi hann sér framhaldsnám samkvæmt því. Hann innritaðist í Iðnskóla Reykjavíkur og nam járnsmíði og vélvirkjun í vélsmiðj- Á einum fegursta degi á þessu sumri, laugardaginn 25. ágúst s.l. var til moldar borinn aldurhnig- inn borgfirskur bóndi, Þorsteinn Klemensson frá Hreimsstöðum í Norður árdal. Hann var jarðsettur í Hvammi í sömu sveit að við- stöddu miklu fjölmenni. Nágrann- ar hans og vinir voru þar mættir til þess að votta hinum aldraða og vegmóða bónda hinstu virðingu sína. Allir höfðu þeir þekkt hann að góðu einu, hjálpfýsi og greiðvikni og hinu létta glaðlega yfirbragði, sem svo mjög ein- kenndi hann í daglegri umgengni. Borgarfjörðurinn skartaði sann- arlega sínu fegursta á þessum sólríka ágúst-degi þegar Þorsteinn var kvaddur, en í Norðurárdalnum átti hann heima í 70 ár, yrkti jörðina og vann hörðum höndum meðan heilsa og kraftar leyfðu. Þorsteinn var Dalamaður að ætt og uppruna. Af honum stóðu merkar þændaættir í Dalasýslu. Fæddur var hann í Fremri-Hundadal í Miðdölum þann 21. ágúst árið 1892 og skorti því nokkra daga til þess að ná 87. aldursárinu þegar hann lést. For- eldrar hans voru hjónin Klemens Baldvinsson og Dómhildur Gísla- dóttir, sem þar bjuggu og var Þorsteinn fjórða barn þeirra hjóna. Alsystkini Þorsteins voru alls sex, en þau voru: Arndís sem lengi bjó í Króki í Norðurárdal, Sæunn, sem bjó í Klettstíu í Norðurárdal, Kristín ljósmóðir, Ólafur sem bjó í Borgarnesi, unni Héðni — einnig lauk hann prófi í rennismíði. Að iðnnámi loknu hélt hann áfram námi í Vélstjóraskóla ís- lands og lauk þaðan vélstjóraprófi úr rafmagnsdeild. Ingi stundaði einnig nám við Teknologisk Institut í Stokkhólmi. Að námi loknu hóf hann störf við kennslu og vélfræðileg störf. Hann kenndi tvo vetur við Iðn- skólann á Eyrarbakka og vann hjá Vélasjóði að niðursetningu og viðgerðum á vélum á ýmsum stöðum á landinu. Árið 1954 gerðist hann kennari við Gagnfræðaskóla Verknáms, sem nú ber nafnið Ármúlaskóli, og var þar kennari alla tíð meðan skólinn starfaði sem gagnfræða- skóli. Þær breytingar urðu á kennsluháttum vegna nýrra fræðslulaga, að verknámsdeildir voru lagðar niður og 1978 réðst Ingi kennari að Iðnskólanum í Reykjavík. Jafnframt kennarastarfinu vann hann hjá Brunabótafélagi Islands. Mörg sumur ferðaðist hann vítt og breitt um landið við endurmat á húseignum. En þótt starfið væri mikið, gaf hann sér tíma til að sinna öðrum hugðarefnum. Áhugamálin voru mörg. íþróttir áttu hug hans. Hann var knattspyrnudómari í mörg ár, formaður handknatt- leiksdeildar Vals í eitt ár, gjald- keri skíðaráðs Reykjavíkur 3 ár, Kjartan sem lengi bjó í Sveina- tungu, nú búsettur í Reykjavík og yngst þeirra var Guðríður. Öll eru þessi systkini nú látin nema Sæ- unn og Kjártan, sem bæði eru háöldruð. Níu ára að aldri missti Þorsteinn móður sína og stóð þá faðir hans uppi með stóran barna- hóp í ómegð. Klemens Baldvinsson kvæntist aftur árið 1905 Kristínu Jónsdóttur, mikilli myndar- og mannkosta konu og reyndist hún hinum ungu börnum sem besta móðir. Kristín og Klemens eignuð- ust þrjár dætur, en þær eru: Guðlaug og Sveinbjörg þáðar bú- settar í Reykjavík og Dómhildur, sem er yngst þeirra systra búsett í Bolungarvík. Árið 1908 fluttist Klemens Baldvinsson burt úr Dölunum með fjölskyldu sína og keypti jörðina Hvassafell í Norður árdal. Þar rak hann stórbú ásamt nokkrum af börnum sínum fram til ársins 1929. Þorsteinn vann á búi föður síns allt til ársins 1919, en þá hóf hann búskap á Hafþórsstöðum í Norður árdal með konu sinni Sigurrósu Jónsdóttur. Þar dvöld- ust þau hjón í aðeins eitt ár. Flytjast þá að Múlakoti í Staf- hoitstungum og eru þar næstu tvö árin. Aftur flytjast þau hjónin í Norðurárdalinn og dveljast í nokkur ár á Brekku í þeirri sveit en síðar á Hvassafelli. Á þessum árum átti sveitabú- skapurinn erfitt uppdráttar, eins og svo oft í þessu harðbýla og hrjóstruga landi. Árin milli heimsstyrjaldanna voru engin sældarár fyrir islenskan landbún- að. Erfiðar samgöngur, lágt af- urðaverð og heimskreppan mikla í algleymingi um allan heim. Það er fyrst eftir 1940, sem eitthvað fer að rofa til í þessum málum. Á þessum árum stundaði Þorsteinn oft vinnu utan heimilis til að drýgja tekjur sínar. Hann var eftirsóttur til allra starfa, af- kastamikill verkmaður, ósérhlíf- inn og lagtækur. Léttur var Þor- steinn í lund og glaðvær og fylgdi honum jafnan ferskur andblær hvar sem hann kom. Árið 1937 verða mikil þáttaskil í lífi þeirra hjóna. Þ‘á festa þau kaup á jörðinni Hreimsstöðum í Norðurárdal og þar dvöldust þau hjón til æviloka, en Sigurrós andaðist fyrir fimm árum. Þor- steinn og Sigurrós eignuðust eina dóttur, Aðalheiði að nafni, og er formaður knattspyrnudómara um nokkurt skeið. Félagar hans mátu störf hans og var hann gerður heiðursfélagi í knattspyrnuráði Reykjavíkur. Tafl og spil voru kærkomin dægrastytting. Ingi stjórnaði um tíma spilak.völdum Bridge-félags Reykjavíkur, spilaði hann með því félagi í mörg ár og hlaut þar mörg verðlaun fyrir sína frammistöðu. Ingi var vel gerður maður, eiginleikar hans, skapgerð og fé- lagslund hlutu að leiða hann á hamingjubraut. En stærsta gæfu- spor í lífi sínu steig hann 1950, er hann giftist konu sinni Elísabetu Helgadóttur, ágætis konu, bráð- myndarlegri í sjón og raun. Voru þau hjón mjög samhent og studdu hvort annað í gleði og sorg. Báru þau hvort tveggja með sömu ró og jafnaðargeði. Þeim hjónum varð 6 barna auðið — og eru fjögur á lífi. Öllum hún fædd árið 1925. Aðalheiður hefur ávallt dvalið hjá foreldrum sínum og reyndist þeim sönn stoð og stytta þin síðari ár, þegar heilsu þeirra og kröftum fór hrak- andi. Þegar Þorsteinn og Sigurrós komu að Hreimsstöðum voru allar byggingar þar mjög úr sér gengn- ar og ræktun lítil. Tvívegis mun Þorsteinn hafa byggt upp öll penings- og útihús á jörðinni og reisulegt íbúðarhús reistu hjónin þar skömmu eftir að þau fluttust þangað. Segja má að hver ræktan- legur blettur í landareigninni sé orðinn að túni og allt var þar snyrtilega umgengið og ber fagurt vitni um framtak og atorku þess- ara dugandi hjóna, sem aldrei létu erfiðleikana þuga sig. Þau voru alla tíð mjög samhent og gestrisin og eignuðust þar af leiðandi marga vini, sem héldu tryggð við þau. Þess naut Þorsteinn líka hin síðari ár hjá nágrönnum þegar hann gerðist vegmóður og hrumur eftir langan og strangan vinnu- dag. Barn að aldri kynntist ég Steina frænda mínum, en hann var móð- urbróðir minn. Oft kom ég ásamt bræðrum mínum, en við vorum þá allir ungir sveinar, á heimili þeirra hjóna bæði að Hvassafelli og að Hreimsstöðum. Síðar eru liðin nær því 50 ár. Ég minnist þeirra heimsókna allra með mik- illi ánægju. Vel var tekið á móti okkur og hlýhugur og glaðværð ríkti jafnan á heimili þeirra. Steini frændi var mjög barnelskur maður og kunni að ræða við börn. Hann umgekkst okkur sem jafn- aldra sína og tókst allt til fullorð- insára að varðveita barnseðlið í sinni eigin sál. Slíkir menn verða manni minnisstæðir þegar árin færast yfir. Nú að leiðarlokum þakka ég Steina frænda mínum fyrir sam- fylgdina og minnist með þakklæti í huga allra þeirra ljúfu stunda, sem ég naut í samvistum við hann. Lífið verður auðugra og betra við að kynnast slíkum mönnum. Við hjónin og Sæunn móðir mín sendum Aðalþeiði dóttur hans innilegar samúðarkveðjur. „Dala- drengurinn“ sem 16 ára að aldri flyst til Borgarfjarðar og dvaldist þar í rösklega 70 ár er nú aftur kominn heim. Blessuð sé minning hans. Klemenz Jónsson. er þeim gefinn myndarbragur foreldranna. Helgi er elstur, hann er vélvirki, Magnea Ingibjörg lýkur prófi frá Kennaraháskólan- um á komandi vori, Elín Anna er skrifstofustúlka og yngst er Auð- ur, sem er að verða 10 ára. Tvo börn misstu þau, Ingibjörgu 10 mánaða og Svein Friðrik, sem fórst af slysförum síðastliðið haust, 17 ára, mikill efnispiltur með áberandi listmálarahæfileika. Fyrir 15 árum veiktist Ingi af kransæðastíflu, síðan hefur hann aldrei gengið heill til skógar. Hans ágæta eiginkona var honum ómet- anleg stoð í þeim erfiðleikum. Veikindi sín bar hann með karlmennsku og æðruleysi. Þrátt fyrir erfitt heilsufar var vinnan ávallt stunduð með sömu stundvísi og samviskusemi. Meðal nemenda sinna var hann ekki aðeins góður kennari, heldur einnig félagi og vinur. Var oft ánægjulegt að sjá hversu innilega gamlir nemendur fögnuðu Inga, þá er þeir hittu hann. Meðal starfsbræðra í skólanum var hann alla tíð sami trausti félaginn. Hann annaðist margs- háttar félagsstörf fyrir kennar- ana, og var trúnaðarmaður kenn- arafélags Ármúlaskóla í mörg ár. Við samkennarar Inga eru þakklátir fyrir margra ára gott og traust samstarf, og fyrir velvild þá og hlýleika, er hann ávallt bar með sér. Konu hans, börnum og öðrum ástvinum, sendum við innilegustu samúðarkveðjur. Minning um sannan, góðan dreng græðir sár og glatast aldrei. Magnús Jónsson skólastjóri. Ingi Eyvinds kennari—Minning

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.