Morgunblaðið - 14.09.1979, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979
21
Smygl
f annst í
tveimur
skipum
í VIKUNNI íann Tollgæzlan
smyglvarning í tveimur skipum,
Skógafossi og Lagarfossi. Alls
hafa fundizt 50 kassar af bjór, 36
flöskur af vodka, tveir útvarps-
magnarar og nokkuð af skinku.
Nýtt fíkni-
efnamál i
rannsókn
1 Reykjavik
FÍKNIEFNADEILD lögreglunn-
ar í Reykjavík hefur nú til rann-
sóknar umfangsmikið
fíkniefnamál.
Fimm ungmenni voru handtek-
in í byrjun vikunnar og úrskurðuð
i 10 til 30 daga gæzluvarðhald en
tveimur þeirra hefur nú verið
sleppt. Fíkniefnadeildin mun hafa
gert upptækt nokkuð af fíkniefn-
um við rannsókn málsins.
Blönduós:
70.000 fjár
slátrað í haust
Geitaskarði, Langadal. 13. september.
SAUÐFJÁRSLÁTRUN hófst hjá
Sölufélaginu á Blönduósi í gær,
en reiknað er með að rösklega
70.000 fjár verði slátrað í haust,
sem er 8% meira en í fyrra. Um
400 nautgripum var slátrað áður
en sauðf járslátrun hófst og verð-
ur flciri slátrað að lokinni sauð-
fjárslátrun. Þá er fyrirsjáanlegt
að mikið af hrossum verður skor-
ið niður í haust.
Víðast hvar í sýslunni er eftir
hey á túnum, en undanfarna 10
daga hefur ekki verið hægt að eiga
við heyskap vegna úrfellis og
síðastliðna viku hefur snjóað
meira og minna á hverjum sólar-
hring.
Gangnamenn eru nú á fjöllum
og má reikna með að þeir fái mjög
harða útivist.
Laxveiði úr Miðfjarðará, Blöndu
og Svartá er nú lokið. Ur Mið-
fjarðará fengust 2156 laxar, sem
er heldur minna en í fyrra, sem
stafar af því að takmark var sett á
veiðina síðustu dagana. Úr Blöndu
komu tæplega 1000 laxar og um
500 úr Svartá. í Vatnsdalsá hafa
veiðzt 13—1400 laxar, en veiði er
ekki lokið.
— Ágúst
Heldur fleiri
ferðamenn nú
en í fyrra
ELLEFU þúsund fimm hundruð
og áttatiu útlendingar komu til
íslands i ágústmmánuði sl„ en í
sama mánuði í fyrra heimsóttu
okkur 10.337 útlendingar. Það
sem af er árinu hafa rösklega
61.000 útlendingar heimsótt
ísland en á sama tíma i fyrra
urðu gestirnir rösklega 59 þús-
und.
Af þeim, sem hingað komu í
ágúst sl. voru Bandaríkjamenn
flestir, 2982, V-Þjóðverjar voru
1.713, Bretar 1.035, Danir 1.023 og
Frakkar 1.007 en alls komu gestir
okkar frá 63 löndum.
Sad al Faisal prins (annar frá hægri) ásamt Ingólfi Guðbrandssyni forstjóra Útsýnar, Yones ráðgjafa
prinsins, Emil Guðmundssyni hótelstjóra á Hótel Loftleiðum, Sveini Sæmundssyni blaðafulltrúa
Flugleiða ok Valgerði Kristinu Brynjólfsdóttur en hún hefur skipulagt innanlandsferðir prinsins
fyrir hönd Utsýnar.
F aisal prins enn á íslandi
SAD al Faisal prins af Ferðaskrifstofan Útsýn skipu- auk þess farið til Vestmanna-
Saudi-Arabíu kom til Reykjavík- leggur ferð prinsins til íslands eyja, Gullfoss og Geysis. í gær
ur 4. september s.l. ásamt fjöl- en hann dvelst á Hótel Loftleið- fór prinsinn til Hafnar í Horna-
skyldu sinni og fylgdarliði. um. Faisal hefur notað tímann firði og fer til Norðurlands áður
Prinsinn er í einkaheimsókn og til þessa til skoðanaferða um en dvöl hans hér lýkur.
dvelst hér fram í næstu viku. Reykjavík og nágrennis og hefur
Réttir í nágrenni Reykjavíkur
RÉTTUM í landnámi Ing-
ólfs hefur almennt verið
frestað um viku frá því
sem tíðkast hefur. Var
þetta ákveðið með tilliti til
þess, að féð fór frekar
seint á f jall í vor og ástand
afréttarlandanna er gott.
Samkvæmt venju hefðu
réttir í landnámi Ingólfs
átt að vera um næstu helgi
en þeim hefur nú öllum
verið frestað nema Kjós-
arrétt, sem verður þriðju-
daginn 18. september, og
Þingvallarétt.
í Hafravatnsrétt verður
réttað mánudaginn 24.
september og í Kollafjarð-
arrétt miðvikudaginn 26.
sept. Sunnudaginn 23. sept.
verður réttað í Fossvallar-
étt fyrir ofan Lögberg, Há-
smúlarétt og Kaldárrétt
fyrir ofan Hafnarfjörð.
Fimmtudaginn 27. sept-
ember verður réttað í Ölf-
usréttum.
Verðlags-
grundvöll-
urinn hækkar
um 19,72%
VERÐLAGSGRUNDVÖLLUR
landbúnaðarafurða hækkar sam-
kvæmt því samkomulagi, sem
orðið hefur í sexmannanefnd í
heild um 19,72% frá síðasta
grundvelli, sem gilti frá 1. júní sl.
Hefur verðlagsgrundvöllurinn því
hækkað um 53,6% á einu ári eða
frá 1. september 1978. Þeir út-
gjaldaliðir, sem hækka mest í
grundvellinum nú eru vextir, sem
hækka um 47,87%, fasteignaskatt-
ar, rafmagn og ýmis útgjöld
hækka um 32,49%, kostnaður við
vélar hækkar um 31.83% og hefur
sá kostnaður hækkað um 80% á
einu ári. Viðhald og fyrning úti-
húsa hækkar um 29,15%, flutn-
ingskostnaður um 26,15%, fóður-
bætir um 22,12% og launaliður
grundvallarins hækkar um
16.74%.
Selfoss:
Ekki atkvæða-
greiðsal um
ÁTVR
BÆJARSTJÓRN Selíoss sam-
þykkti í fyrradag með 6 atkvæð-
um gegn 3 að láta ekki að sinni
fara fram atkvæðagreiðslu meðal
bæjarbúa um opnun áfengisút-
sölu á staðnum.
Erlendur Hálfdánarson bæjar-
stjóri sagði í samtali við Mbl. í
gær, að af þeim 300 manns, sem
hefðu skrifað undir áskorunar-
skjal um atkvæðagreiðsluna, hefði
„þó nokkur fjöldi" ekki verið íbúar
á Selfossi. Til þess að atkvæða-
greiðsla yrði að fara fram þarf
undirskriftir lA íbúanna og hefði
því þurft 628 undirskriftir að sögn
Erlends.
OMIC reiknivélin
hefur slegið sölumet
312PD 210PD 210P
OMIC reiknivélin kom á markaðinn fyrir
einu ári, ný vél sérhönnuð samkvæmt
óskum viðskiptavina Skrifstofuvéla h/f.
Móttökurnar voru frábærar. Á örfáum
vikum varð OMIC metsöluvél.
I framhaldi af þessum afburða góða
árangri bjóða Skrifstofuvélar h/f tvær
nýjar gerðir af OMIC reiknivélum: OMIC
210 PD OMIC 210 P
OMIC vélar í einfaldari útfærslu en
OMIC 312 PD.
Komið og kynnist kostum OMIC:
33
Við byggjum upp framtíð fyrirtækis þíns.
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
+ ~x + ^ Hverfisgötu 33
Simi 20560
HVERFISGATA