Morgunblaðið - 14.09.1979, Side 20

Morgunblaðið - 14.09.1979, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979 Arnarflug og Flugleidir í pílagrímaflugi FLUGLEIÐIR og Arnar- flug hafa gert samninga um íIur með pílagríma; Flugleiðir um flutning 15—16 þúsund pílagríma milli Surabaya í Indónesíu til Jeddah í Saudi Arabíu og Arnarílug um flutn- inga milli Sanaa í Norður Yemen og Jcddah og er áætlað að heildarvelta flugrekstrarins verði um 500 milljónir króna. Flugleiðir hefja pílagrímaflugið 29. september og stendur fyrri lotan til 25. október og sú síðari frá 7. nóvember til 2. desember. Flugleiðir ætla að nota DC-10 þotu sína í þetta flug og munu um 80 starfsmenn starfa að flutning- unum. Arnarflug notar aðra Boeing- þotu sína í pílagrímaflugið og munu um 20 flugliðar vinna við það ásamt flugvirkjum. Viðræður eru nú hafnar um framlengingu samnings um flug Arnarflugs fyrir Britannia Air- ways, en núgildandi samningur er um flug frá því í maí sl. til 1. desember. Sala sparisjóðs- skírteina hafin Eldur í báti ELDUR kom upp í kabyssu Greips SH 7, þar sem báturinn lá í vesturhöfninni í Reykjavík í gærkvöldi. Reykkafarar fóru niður og slökktu eldinn og gekk slökkvistarf f ljótt Og vel. Ljósm. Mbl.: Kristján. Endurmæla stærð loðnustofnsins LEIÐANGUR íslenzkra og norskra fiskifræðinga til að endurmæla stærð loðnu- stofnsins fyrir norðan og norðvestan land hefst 25. þessa mánaðar. Norska skipið Michael Sars verður þá komið á Jan Mayen-svæðið, en Bjarni Sæmundsson heldur þann dag áleiðis þangað norður. Síðan verður unnið í félagi suður og suðvestur, en leiðangrinum lýkur síðan væntanlega með fundi á ísafirði 8. október. Með þeim fundi lýkur þessum sameiginlegu rannsóknum að sinni a.m.k. Um miðjan mánuðinn heldur Bjarni Sæmundsson síðan í annan leiðangur og er hann sömuleiðis hugsaður til að mæla stofnstærð loðnunnar og á að standa til loka október. A sama tíma í fyrra var farið í sams konar leiðangur og verða niðurstöður milli ára síðan bornar saman. Forystumenn norrænna blindrasamtaka þinga hér UNDANFARNA daga hafa for- ystumenn blindrasamtaka af öll- um Norðurlöndum þingað um málefni samtaka sinna á Hótel Sögu. Norræn blindrafélög hafa haft með sér náið samstarf og halda sameiginlega fundi tvisvar á ári. Fundurinn í Reykjavík að þessu sinni er haldinn í tilefni 40 ára afmæiis Blindrafélagsins. Aðalumræðuefni fundarins að þessu sinni var samstarf norrænu blindrafélaganna, einkum hvernig hægt væri að efna til víðtækara samstarfs en nú er, og þátttaka samtakanna í alþjóðlegu starfi. Samhliða þessum fundi hittust einnig fulltrúar æskulýðssamtaka norrænna blindrafélaga og ræddu þeir m.a. íþróttamál blindra og sjónskertra. Tilnefndir í stjórn verka- mannabústaða BORGARRÁÐ Reykjavíkur til- nefndi á fundi sinum 4. septem- ber sl. eftirgreinda aðila í stjórn verkamannabústaða: Grétar bor- stcinsson, Björgvin Guðmunds- son og Hilmar Guðlaugsson. Minnisvarði um fyrsta landlækninn FIMMTUDAGINN 13. september hófst sala verðtryggðra spari- skírteina rikissjóðs i 2. fl. 1979, samtals að fjárhæð 2,700 milljón- ir króna. Utgáfan er byggð á heimiid í fjárlögum og verður lánsandvirðinu varið til opin- berra framkvæmda á grundvelli lánsfjáráætlunar rikisstjórnar- innar fyrir þetta ár. Kjör skírteinanna eru hin sömu og undanfarinna flokka. Höfuð- stóll og vextir eru verðtryggðir miðað við þær breytingar sem kunna að verða á vísitölu bygging- arkostnaðar, er tekur gildi 1. október n.k. Skírteinin eru bundin fyrstu fimm árin, en frá 15. september 1984 eru þau innleysan- leg hvenær sem er næstu fimmtán árin. Skírteinin eru framtalsskyld og eru skattlögð eða skattfrjáls á sama hátt og bankainnstæður. Skírteinin eru nú gefin út í fjórum verðgildum, 10.000, 50.000, 100.000 og 500.000 krónum og skulu skráð á nafn. Sérprentaðir útboðsskilmálar fást hjá söluaðilum, sem eru bankar, sparisjóðir og nokkrir verðbréfasalar í Reykjavík. Athygli skal vakin á því að lokagjalddagi spariskírteina í 1. flokki 1967 er 15. þ.m. og skírteina í 2. flokki 1967 20. október n.k. Eftir lokagjalddaga bera skirtein- in hvorki vexti né bæta við sig verðbótum. Á MÁNUDAGINN var afhjúp- aður minnisvarði um Bjarna Pálsson fyrsta landlækninn, við Nesstofu á Seltjarnarnesi, á 200 ára dánarafmæli hans. Þá er það einnig haldið hátíðlegt að um þessar mundir hefur ríkið eignast alla Nesstofu, og er ætlunin að koma þar upp safni er minni á sögu hússins og læknisfræðinnar hér á landi. Að sögn Sigurgeirs Sigurðs- sonar bæjarstjóra verður þar komið upp lækna- og lyfjasafni, og hugsanlega verður þar einnig rúm fyrir byggðasafn Seltjarn- arness. Þjóðminjasafn íslands hefur nú tekið við Nesstofu til varðveislu, en húsið þarfnast mikillar endurnýjunar og við- gerðar við. Á myndinni til hægri sjást þeir Ólafur Ólafsson landlæknir og Sigurður Sigurðsson fyrrum landlæknir við minnisvarðann um fyrsta landlækninn, en á hinni myndinni sést lúðrasveit leika fyrir framan Nesstofu við athöfnina. Ártalið 1763 er greypt yfir dyr Stofunnar. SUS-þingid hefst í dag ÞING Sambands ungra sjálfstæð- ismanna verður sett á Húsavík síðdegis í dag, en þetta er XXV. þing Sambandsins sem að jafnaði er haldið annað hvert ár. Á setningarfundinum í dag mun formaður S.U.S., Jón Magnússon flytja ræðu og meðal annars skýra frá störfum S.U.S. síðustu tvö ár, þá verður gerð grein fyrir reikningum sambandsins og rætt almennt um starfsemi þess. Einn- ig flytur Halldór Blöndal, for- maður kjördæmissamtaka Sjálf- stæðisflokksins í Norðurlands- kjördæmi eystra, ávarp. Að því loknu munu nefndir hefja störf fram eftir kvöldi. Þing Sambands ungra sjálf- stæðismanna eru sem fyrr segir að jafnaði haldin annað hvert ár, en þau fara með æðsta vald í málefnum þess. Þá er á S.U.S.-þingum kjörinn formaður Sambandsins til tveggja ára, og einnig stjórn þess. Síðasta SUS-þing var haldið í Vestmanna- eyjum árið 1977, og þá var núver- andi formaður kjörinn, og er hann aftur í kjöri nú á þessu þingi. Aukaþing S.U.S. hafa einnig verið haldin alloft á undanförnum ár- um, og síðast var það haldið á Þingvöllum fyrir réttu ári síðan. Að undanförnu hefur verið unn- ið mikið undirbúningsstarf vegna SUS-þingsins, að því er Stefán H. Stefánsson framkvæmdastjóri sambandsins sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, en hann var þá kominn norður til Húsavíkur. Sagði hann meðal annars margar málefnanefndir hafa starfað að undirbúningi ályktana síðustu vikur, og hefur verið fjallað um fjölmarga mála- flokka. Stefán sagði að stjórn SUS hefði samþykkt á fundi srnum nýlega að gera kjörorð Sjálfstæð- isflokksins „Stétt með stétt “ að yfirskrift þingsins á Husavík, enda yrði sérstaklega fjallað um einstaklinginn, rétt hans og stöðu í þjóðfélaginu, um efnahagsmál og verkalýðsmál. og fleiri þau mál er sérstaklega snerta hvern einstakl- ing þjóðfélagsins og nauðsyn sam- stöðu þegnanna. Stefán H. Stefánsson sagði að lokum, að gert væri ráð fyrir því að milli 150 og 170 þingfulltrúar kæmu til Húsavíkur um helgina, ungir sjálfstæðismenn hvaðanæva að af landinu. Þinginu lýkur á sunnudag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.