Morgunblaðið - 14.09.1979, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.09.1979, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979 Þór Sandholt skóla- stjóri — Minning Fæddur 30. mars 1913. Dáinn 29. ágúst 1979. Það kom okkur vinum Þórs ekki á óvart er okkur barst fregnin um andlát hans að morgni 29. f.m. Og þó, við erum sennilega aldrei fyllilega undir það búin, að með- taka fregnina um, að kær sam- ferðamaður sé kvaddur burt úr þessum heimi. Þór var ekki heilsu- hraustur hin síðustu ár, og nokkra mánuði fyrir andlátið varð hann að dvelja meira í sjúkrahúsi en heima. Ég veit að það hefur veitt honum vissa fróun, að hann fékk að dvelja heima síðustu stundirn- ar, svo heimakær og einlægur heimilisfaðir sem hann var. Einn- ig mun það aðeins hafa mildað hinn sára söknuð fjölskyldu hans. Útför hans fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag kl. 13.30. Þór var fæddur hér í Reykjavík 30. mars 1913. Foreldrar hans voru þau hjónin Þórhildur Eiríks- dóttir og Egill V. Sandhold prent- ari í Reykjavík, sem lést er Þór var barn að aldri. Síðar giftist Þórhildur Magga Júl. Magnús lækni, sem reyndist stjúpsyninum sem umhyggjusamur og sannur faðir. Kynni okkar Þórs voru orðin mjög löng, eða allt frá því að hann kom til eins árs smíðanáms á húsgagnavinnustofu Hjálmars Þorsteinssonar, Klapparstíg 28, 1931, en ég var þá einnig þar við nám. Það sem fyrir honum vakti með því námi, var það, að hann hafði sótt um að komast í arki- tektaskóla í Þýskalandi, sem setti það skilyrði um inngöngu nema, að þeir hefðu minnst eins árs nám í smíðum að baki. En örlaga- dísirnar höguðu því þannig, að þegar skyldi halda til náms í hinum þýska skóla, lá leið hans um England, sem varð til þess að hann fór ekki lengra að sinni, en hóf nám í húsagerðarlist við háskólann í Liverpool. Þaðan lauk hann prófi vorið 1937, og síðan námi í skipulagsfræðum frá sama skóla, árið eftir. Það, að hann fór ekki beinustu leið til náms í Þýskalandi, varð til þess að á þessum árum kynntist hann hinni ágætu eftirlifandi konu sinni, Guðbjörgu Hreggviðsdóttur, kaupmanns frá ísafirði, sem hann alla tíð mat mikils, að verðleikum. Þau giftust 19. des. 1937. Þau eignuðust eina dóttur, Þórhildi Maggí, lögfræðing, starfandi sem fulltrúi hjá ríkisféhirði, gift Gísla Sigurbjörnssyni verslunarm. sem starfar hjá Tryggingu h/f. Þau eiga einn son, Þór, sem var mikið yndi afa síns og ömmu. Það vildi þannig til, að við komum samtímis heim frá námi, sumarið 1938, er hin illræmda efnahagskreppa stóð sem hæst. Sennilega hefur því mörgum þótt það bjartsýni, er tveir ungir menn, sitjandi á bekk uppi á Arnarhóli, ákváðu að setja á stofn teikni- stofu, sem við og gerðum og rákum saman í 4 ár. Það var enginn hörgull á húsnæði í þá daga. Við höfðum því litið inn nokkuð víða, er við ákváðum að taka á leigu ágæta stofu á Sóleyj- argötu 9, þar sem við vorum fyrsta árið. Nú var ekki eftir neinu að bíða, — nema viðskiptavinunum — sem létu svolítið á sér standa, þrátt fyrir myndarlega auglýsingu í Morgunblaðinu, þar sem upp var talið hvað teiknistofa þessi hefði upp á margbreytilega þjónustu að bjóða. Það kom þó að því að báðir fengu verkefni, Þór við breytingar á S;í“nska frystihúsinu en ég við að teikna innréttingar og húsgögn í .. hús Kjartans Thors við Sól- argötu 25, er Sigurður heitinn t ðmundson arkitekt fól mér. 'v;r okkar, sem samstarfs- skildu svo 1942, er Þór réði ,il starfa hjá Reykjavíkurborg. ‘ t í stað starfaði hann sem •oarmaður byggingarfulltrú- en síðar á teiknistofu húsa- meistara borgarinnar. Árið 1949 var hann svo ráðinn skipulags- stjóri Reykjavíkurborgar, þar sem hann vann til 1954, að hann var skipaður skólastjóri Iðnskólans í Reykjavík og gegndi því starfi til dauðadags. Leiðir okkar, sem sam- starfsmanna, lágu því saman að nýju, er hann gerðist skólastjóri. Samstarf okkar við skólann varð mjög náið, sérstaklega seinni árin, og alltaf með ágætum á báða bóga. Ég segi þó ekki að við höfum alltaf verið sammála um hlutina að öllu leyti, og hélt þá hvor sínu fram, eins og gengur um menn sem hafa skoðanir á hlutunum. Það endaði þó einatt með málamiðlun eða samkomulagi, sem engu breytti varðandi vinaböndin. Mikið starf var nú framundan hjá Þór í hinni nýju stöðu, ekki síst vegna þess að á þessum árum voru miklar breytingar og hávær- ar kröfur um bætta aðstöðu varð- andi menntun iðnaðarmanna. Verklegt nám var þá að byrja að færast inn í skólana og hefur aukist síðan jafnt og þétt, þannig að nú er hægt að Ijúka námi í mörgum greinum til sveinsprófs á vegum skólans, sem áður var eingöngu mögulegt í sambandi við hið hefðbundna meistarakerfi. Meðal annars hlaut þetta nýja fyrirkomulag að kalla á aukið húsnæði. Þá hvarflar í huga minn byggingarsaga Iðnskólans í Reykjavík, en hún er svo nátengd starfi Þórs, að ég verð að fara um hana nokkrum orðum. Árið 1940 bauð Iðnaðarmanna- félagið í Reykjavík til samkeppni um teikningu að iðnskólahúsi á lóð er félagið átti við Hallveigarstíg, þar sem nú stendur Hús iðnaðar- ins. Árangur samkeppninnar varð sá, að Þór hlaut 1. verðlaun fyrir sínar tillögur. Þróunin varð þó sú, að hætt var við að byggja á þessari lóð og önnur fengin, við Skólavörðutorg, þar sem hin myndarlega bygging skólans stendur í dag. Þór var nú falið að teikna þarna stærra hús og ýmsar breytingar gerðar, til samræmis við hina nýju lóð. Síðar teiknaði hann og sá um framkvæmdir á tveim stækkunum hússins, sem að mestu leyti eru nýttar til verklegu kennslunnar. Meðal síðustu verka Þórs, sem arkitekts, var að teikna þriggja hæða hús á lóð við Berg- þórugötu, sem honum hafði tekist að tryggja skólanum til að reisa þar hús til afnota fyrir verknám byggingariðnaðarins. Það mun sjaldgæft, ef ekki einsdæmi, að einn og sami maður byggi stofnun sína upp innan frá, um leið og hann formar og sér um byggingu húsa stofnunarinnar. Af öðrum byggingum, sem Þór teiknaði, mætti nefna nýbyggingu Verslunarskólans, byggingar fyrir verklega kennslu við iðnskólana á Akureyri og á Selfossi, viðbygg- ingu og stækkun Oddfellow- hússins í Reykjavík, ýmsar versl- unar- og iðnaðarbyggingar auk margra íbúðarhúsa. Um sama leyti og Þór tók við skólastjórn flutti skólinn stárf- semi sína úr bamla skólahúsinu við Vonarstræti í hið nýja hús við Skólavörðutorg. Stjórnunarstörfin við þennan stóra skóla eru ótrú- lega fjölþætt og mjög ólík því sem er í flestum öðrum skólum lands- ins. Löggiltar iðngreinar eru um 70 talsins, að vísu sumar allt að því „útdauðar" en svo heitir það ef enginn með meistararéttindi í iðninni er á lífi. Þessi fjöldi iðngreina gefur svolitla hugmynd um starfið, þegar haft er í huga að halda ber uppi sérkennslu í hverri grein. Fjöldi kennara við skólann er um 140, sem einnig segir sína sögu. Enda er svo komið nú, að þetta stóra og ágæta hús er orðið ófullnægjandi og húsnæði því víða fengið til að bæta úr brýnni þörf. T.d. er Vörðuskólinn að mestu leyti nýttur fyrir 1. áfanganám fyrir þá sem ætla sér að hefja iðnná og í Ármúlaskóla eru framhaldsdeildir málmiðna o.fl. Það var því ekki að ástæðulausu, að Þór barðist mjög fyrir því að fá leyfi og fjárveitingu til að byggja á áðurnefndri lóð við Bergþóru- götu. Öll stjórnunarstörf hafði Þór einn á hendi þar til 1963, að þrír yfirkennarar voru skipaðir við skólann, sem skipta með sér um- sjón kennslunnar eftir iðngrein- um. Auk þess hefur nokkrum kennurum nýlega verið falin deildarstjórn á nokkrum sérsvið- um. Þetta breytta fyrirkomulag dreifði stjórnunarstörfunum og létti að sjálfsögðu á starfi skóla- stjórans, sem þó voru ærin, þrátt fyrir það. Þór lagði sig alla tíð fram um það, að fylgjast sem best með framþróun iðnmenntunar í öðrum löndum, sérstaklega á Norður- löndunum. Hann tók því að stað- aldri þátt í þingum og mótum, þar sem fjallað var um þessi mál, sem því miður eru orðin sjaldgæfari á seinni árum. Einnig fór hann oft í lengri eða styttri kynnisferðir til ýmissa Evrópulanda og Banda- ríkjanna. Þá sat hann flest Iðnþing frá því hann varð skólastjóri og oftast form. fræðslunefndar þar. Þegar við lítum til baka og leiðum hugann að störfum Þórs á liðnum árum, þá er það með ólíkindum hvað hann hefur komist yfir. Auk þeirra starfa, sem þegar hafa verið nefnd, vil ég nefna nokkur til viðbótar. Hann var kennari við Iðnskólann í Rvk. 1944— 50 og aðstoðarskólastjóri við sama skóla 1953—54. Formað- ur þjóðhátíðarnefndar 1951—58. Þá teiknaði hann árlega merki, sem seld voru á þjóðhátíðardag- inn, til ágóða fyrir væntanlegt minnismerki um stofnun lýðveld- isins 1944. í samvinnunefnd um skipulagsmál Rvk. 1948—54. í stjórn Arkitektafélags íslands 1945— 47, form. 1946—47. í bygg- ingarnefnd Rvk. 1948—52. Full- trúi á iðnþingum íslendinga frá 1955. Varaborgarfulltrúi í Rvk. 1958—62, og borgarfulltrúi 1962—66. í byggingarnefnd Sund- laugar vesturbæjar 1955—61. Þór var aðal hvatamaður að stofnun Sambands iðnskóla á íslandi og Iðnskólaútgáfunnar, sem stofnuð var nokkru síðar, formaður beggja frá stofnun. Þessar stofnanir, sem báðar hafa dafnað mjög vel og elfst, urðu til þess að auka mjög samvinnu og samræmingu í kennslu iðnskólanna, auk þess sem bætt var úr brýnni þörf fyrir námsbækur og önnur kennslugögn fyrir iðnnámið. Á yngri árum starfaði Þór mikið innan skátahreyfingarinnar og var alla tíð annt um þann félagsskap. Hann var félagsfor- ingi Skátafélags Rvk. um árabil. Þór gekk ungur í Oddfellow- regluna og vann henni vel og einlæglega. Þau störf verða ekki tíunduð hér, en þess má þó geta, að nú á Reglan þó nokkuð mynd- arlegt minjasafn um starfsemi sína hér á landi, sem ekki mundi vera til, ef framsýni og mikil vinna Þórs hefði ekki komið til. Iðnskólinn í Reykjavík á 75 ára afmæli 1. okt. n.k. Um sama leyti hefði Þór átt 25 ára starfsafmæli sem skólastjóri. Hann hafði ákveðið fyrir nokkuð löngu, að efnt skildi til hátíðar vegna þessa tímamóta í starfsemi skólans og undirbúið það á ýmsan hátt ásamt skipaðri afmælisnefnd. Meða). annars hafði hann nýlega lokið við að taka saman, að nokkru leyti í sjúkrahúsinu, mjög góða greinar- gerð um starfsemi skólans á síðastliðnum 25 árum, en fyrir þann tíma hefur saga hans verið skráð af öðrum. Þessarra tíma- móta mun sennilega verða minnst á einhvern hátt, þótt að blærinn yfir þeirri samkomu verði nú annar heldur en við höfðum von- að. Fyrir störf sín varð Þór aðnjót- andi áþreifanlegra viðurkenn- ingar af ýmsu tagi. Honum var veitt hin ísl. fálkaorða, heiðurs- merki skáta, gullmerki v/100 ára afmælis Iðnaðarmannafélagsins í Rvk., auk ýmissa heiðursmerkja frá Oddfellowreglunni. Þegar ég nú, að leiðarlokum, hugsa um vin minn Þór Sandholt, get ég í einlægni sagt að hann var mjög velviljaður, alltaf glaðvær og léttur í lund, hafði góð áhrif á þá sem umgengust hann, hvort sem það var á vinnustð eða í einka- lífinu. Hann var vel hagortur og nutu þau félög, sem hann starfaði mest fyrir, oft góðs af því við ýms tækifæri. Snyrtimenni var hann í hvívetna. Hann var hugmyndarík- ur og upphafsmaður að mörgum góðum hlutum, sem oft var hægt að hrinda í framkvæmd. Hans mun því sárt saknað af mörgum. Margra góðra stunda eigum við, ég og kona mín, að minnast á heimili þeirra Þórs og Guðbjarg- ar, sem við þökkum þeim fyrir. Að endingu vottum við þér, Guðbjörg, og allri fjölskyldunni, okkar innilegustu samúð í sorg ykkar og biðjum Alföður að gera ykkur hana sem léttbærasta. Helgi Hallgrímsson. Með Þór Sandholt er hniginn merkur forustumaður úr röðum íslenskra skáta. Þór ólst upp í Reykjavík og gerðist skáti ungur að árum. Hann starfaði í skátafélaginu Væringj- um uns hann hvarf til náms í húsagerðarlist og skipulagsfræð- um erlendis 1932. Að námi loknu stofnaði Þór og starfrækti um skeið teiknistofu í Reykjavík. Meðal fjölmargra við- fangsefna hans voru húsateikn- ingar, skipulags og byggingarmál og starfaði hann m.a. að þeim málum fyrir Reykjavíkurborg. Þór starfaði einnig mikið að fræðslumálum iðnaðarmanna. Ár- ið 1954 varð hann skólastjóri Iðnskólans í Reykjavík og gegndi því starfi til dauðadags. Ýmis félagssamtök nutu starfs- krafta Þórs og t.d. sönnuðust einkunnarorð rovers skáta; „Eitt sinn skáti, ávallt skáti", á honum. Þór var ávallt viðbúinn að aðstoða skáta, væri til hans leitað. Hann hafði óbilandi trú á skátastarfi sem þroskandi tómstundaiðju fyr- ir ungmenni. Ósjaldan gat hann þess að hann teldi skátastarf sitt sem unglings hafa orðið sér gæfu- spor og gott veganesti síðar á lífsleiðinni. Það var einlæg ósk hans að sem flestir unglingar kynntust og tækju þátt í skáta- starfi. Árið 1961 leituðu reykvískir skátar til Þórs með ósk um að hann tækist á hendur forustu í Skátafélagi Reykjavíkur. Viðbú- inn kalli skátanna gerðist Þór félagsforingi eins fjölmennasta skátafélags landsins. Með glæsilegri framgöngu og Ijúf- mannlegu viðmóti ávann félags- foringinn sér traust og virðingu ungra og lítt reyndra leiðbeinenda hinna ýmsu sveita og deilda félagsins. Fundir, ráðagerðir, áætlanir og skipulag hér og þar. Mest var þetta kvöldvinna eftir erilsaman starfsdag, ýmist heima eða heiman. Stundum boðaði félagsforinginn samstarfsmenn sína heim á heimili þeirra hjóna við Laugarásveg og leiddi þá til stofu eða inn í vinnustofu sína, en frú Guðbjörg bar fram kaffi og kökur. Þegar Þór tók við forustu Skátafélags Reykjavíkur hafði það alllengi verið áform forustumanna reykvískra skáta að skátafélögin tvö, Kvenskátafélag Reykjavíkur og Skátafélag Reykjavíkur, mynd- uðu með sér samband undir sam- eiginlegri stjórn. Aðstæður í ört vaxandi borg kröfðust endur- skipulagningar á starfseminni til að gera börnum og unglingum í hinum ýmsu borgarhverfum kleift að sækja skátafundi. Það kom í hlut Þórs að hrinda 7essum áformum í framkvæmd. Við stofnun Skátasambands Reykjavíkur skiptust Kvenskáta- félag Reykjavíkur og Skátafélag Reykjavíkur 7annig, að stofnuð voru mörg skátafélög, sameiginleg fyrir stúlkur og drengi, í hinum ýmsu borgarhverfum. Á stofn- fundi Skátasambandsins var Þór kjörinn fyrsti formaður þess. Skipulag það, sem skátar í Reykjavík búa nú við, var mótað undir stjórn &órs og mun minna á forustu hans um ókomin ár. Þór Sandholt er farinn heim. Við samstarfsmenn hans úr Skátasambandi Reykjavíkur vilj- um að leiðarlokum, um leið og við vottum honum virðingu okkar, koma á framfæri með þessum fátæklegu orðum, 7ökkum okkar fyrir starf hans í þágu reykvísks æskufólks í röðum skáta. Eiginkonu Þórs, Guðbjörgu Sandholt og dóttur þeirra, Þór- hildi, er vottuð dýpsta samúð. Jón Mýrdal. Kveðja frá Kennarafélagi Iðnskólans i Reykjavík Miðvikudaginn 5. þ.m. kvöddum við hinstu kveðju skólastjóra okk- ar, Þór Sandholt, sem lést 29. ágúst s.l. Þór Sandholt var skólastjóri Iðnskólans í Reykjavík frá 1954 eða í 25 ár. Á þessu tímabili hefur iðnfræðslan breyst svo mjög að ekki er hægt að tala um þróun, heldur byltingu. Á slíkum tíma er mikið starf að vera skólastjóri, mörg verkefni þarf að leysa og í mörg horn er að líta. Jafnframt þessum miklu breytingum hefur starfsemi Iðnskólans í Reykjavík margfaldast. Þór Sandholt stjórn- aði ekki með einhliða ákvörðunum eða skipunum, hann leitaði álits og hjá honum var alltaf rúm fyrir skoðanir og hugmyndir annarra í leit að bestu lausn á hverju máli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.