Morgunblaðið - 14.09.1979, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979
13
Lif og f jör á sveitaballi.
Mjólkurbillinn er árgerð 1928 af Chervolet. F.v. á myndinni er Jón Þórisson leikmyndagerðarmaður og Jón
Hermannsson framkvæmdastjóri myndarinnar.
Slene 38, slate 197 take 1 æpti Ingibjörg Briem aðstoðarmaður leikstjóra og stökk siðan i burtu um leið og
kvikmyndatakan hófst.
19 ára gömul einkadóttir hjón-
anna í Gilsbakka, þar sem Einar
býr með föður sínum. Þegar Einar
ákveður að selja Gilsbakka og
flytjast í kaupstaðinn, gerir hann
það án þess að ráðgast við
Margréti, en þegar hann vill að
hún komi með sér er hún á báðum
áttum,“ sagði Guðný.
Guðný sagðist læra hlutverkið
jafnóðum fyrir hverja myndatöku
þannig að hún þyrfti ekki að læra
langar rullur í einu.
„Þetta er auðvitað mjög gaman,
en mikil vinna,“ sagði Guðný, er
við spurðum hana hvernig hún
kynni við sig sem leikkona.
„Allavega er þetta mun skemmti-
legra en að vinna í banka,“ sagði
Guðný hlæjandi, en hún vann við
bankastörf áður en hún fór norð-
ur, til að leika hlutverk
Margrétar. Guðný sagðist stefna
að því að skila hlutverki sínu eins
vel og hún gæti, en hún hefði
engin framtíðarplön varðandi
leikstörf.
„Það væri þó gaman að prófa
eitthvað meira á þessu sviði, en ég
geri ekki ráð fyrir að fara út í það
fyrr en að loknu stúdentsprófi."
Vill á mölina
Sigurður Sigurjónsson fer með
hlutverk Einars, sonar Ólafs á
Gilsbakka. Sagði hann að þetta
væri fyrsta alvörubíómyndin, sem
hann léki í, en hann hefði áður
leikið í sjónvarpsmyndinni
Skrípaleikur, sem sýnd var í
sjónvarpinu í fyrra, auk þess sem
hann leikur hjá ÞjóÖIeikhúsinu.
„Ég gæti vel hugsað mér að
verða kvikmyndastjarna, þó að ég
hafi nú engin ákveðin markmið í
þeim efnum,“ sagði Sigurður hlæj-
andi.
„Einar er ágætisstrákur, sem
vill komast á mölina sem fyrst.
Hann fórnar öllu fyrir þá löngun
sina og drepur allt og selur allt til
að losna burt úr sveitinni. Ég skil
hann að mörgu leyti ekki. Þó býst
ég nú frekar við að ég hefði gert
það sama og hann í hans sporum."
En hvernig skyldi vera að leika í
svona kvikmynd?
„Skemmtilegt erfiði,“ sagði
Sigurður og við verðum að trúa
honum, því hann hefur reynsluna.
„Tekur mikið
á þolinmæðina"
Eitthvað kom Ólafur, faðir
Einars okkur kunnuglega fyrir
sjónir, en hann er sem áður segir
leikinn af Jónasi Tryggvasyni.
Málið skýrist þegar það upp-
götvaðist að Jónas er bróðir Árna
Tryggvasonar, en þeir bræður eru
nauðalíkir.
Jónas sagðist lítið hafa komið
nálægt leiklist áður, en í fyrra fór
hann með hlutverk í Skrípaleik
Gísla Ástþórssonar.
„Mér finnst mjög gaman að
þessu, en það tekur mikið á þolin-
mæðina,“ sagði Jónas.
„Ég hef aldrei lært neitt I
leiklist, svo að segja má að ég sé
áhugaleikari. Það eina sem ég
kann lærði ég fyrir mörgum árum,
þegar Ævar Kvaran kom norður
tii Siglufjarðar og setti upp leikrit
með áhugaleikurum á Siglufirði.“
Jón Þórisson leikmyndagerðarmaður málar númer á eitt ökutækið,
sem notað er i myndinni.
Bílar og hundar
íara líka
með hlutverk
Það eru fleiri en mennirnir, sem
fara með hlutverk i Land og sýnir,
því að hundurinn Kolur ogetveir
fornlegir bílar koma þar líka við
sögu.
Kolur er leikinn af hundinum
Dýra, en hann er frá Ytra-Garðs-
horni í Svarfaðardal. Dýri mun
hafa skiiað hlutverki sinu mjög
vel, en er þó stundum tregur til að
taka þátt í æfingum. Um leið og
kvikmyndatökuvélarnar fara í
gang færist hann allur í aukana og
skilar hlutverki Kols eins og best
verður á kosið.
Bílarnir tveir, sem um ræðir,
eru komnir nokkuð til ára sinna.
Sá eldri er árgerð 1919 af Dixie
Flyer og er talið að hann sé næst
elsti bíll á íslandi. Töluvert þurfti
að lagfæra hann, áður en hægt var
að nota hann í myndinni. Til
dæmis þurfti að panta undir hann
hjólbarða alla leið frá Indlandi.
Hinn bíllinn er njólkurbíllinn,
sem ekur um sveitina. Það er
árgerð 1928 af Chevrolet, en það
voru algengir mjólkurbílar á þeim
tíma sem myndin gerist. Bíllinn er
ættaður frá Espigerði frammi í
Eyjafirði.
Alíslensk
framkvæmd
Kvikmyndin Land og synir er
íslensk sveitasaga, sem gerist á
kreppúarunum og eru það
eingöngu íslendingar, sem að
henni vinna.
Kvikmyndin er ætluð til sýn-
inga í kvikm.vndahúsum og er hún
tekin á 35 mm filmu. Kvikmynda-
tökustjórinn er Sigurður Sverrir
Pálsson, en aðstoðarmaður hans
er Ari Guðmundsson. Hljóð-
upptaka er í höndum Friðriks
Stefánssonar, en aðstoðarmaður
hans er Hjörtur Gíslason, sem
jafnframt sér um rafmagn og ljós.
Leikmyndagerðamaður er Jón
Þórisson, en honum til aðstoðar er
búningameistari og
hárgreiðsludama.
- A.K.
Kvikmyndatakan tók langan tima og kalt var að standa úti. Sumir
brugðu þvi á það ráð að hlaupa til að halda á sér hita. Hér sjást þeir
Jónas Tryggvason (í gervi ólafs) og Friðrik Stefánsson hljóðupptöku-
maður hlaupa saman.
Hundurinn Dýri leikur Kol í myndinni. Hann er iítið fyrir að taka
þátt í æfingum, en leikur þess betur þegar kvikmyndatökuvélarnar
fara í gang.