Morgunblaðið - 14.09.1979, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979
29
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Keflavík
Til sölu 3ja herb. efri hæö. Stór
bílskúr. 3ja herb. neöri hæö. Allt
sér, ný íbúö mjög vel frágengin,
bllskúrsgrunnur, ræktuö lóö.
Fasteignir s.f. Heiðargarði 3,
SÍmi 92-2269.
Sölumaður Einar Þorsteinsson.
Sauöárkrókur
Óskum eftir 2ja til 3ja herb. íbúö
til leigu sem fyrst. Uppl. í sima
75109, Reykjavík.
SÍMAR 11798 og 1S533.
Föstudagur 14. sept
ember kl. 20.00.
Landmannalaugar — Loömund-
ur. Gist í húsi.
Laugardagur 15. september kl.
08.00 Þórsmörk. Gist í húsi.
Nánari upplýsingar og farmiöa-
sala á skrifstofunni.
Sunnudagur 16. september
1) kl. 09.00 Þórisjökull.
2) kl. 13.00 Hveradalir — Hellur
— Eldborgir.
Farlö veröur í allar ferðirnar frá
Umferöamiöstöðinni, austan-
veröu.
Feröafélag íslands.
ÚTIVISTARFERÐIR
Föstud. 14/9 kl. 20
Snæfellsnes, gist á Lýsuhóli í
góöu húsi. Fararstj. Jón i.
Bjarnas. Uppl. og farseölar á
skrifst. Lækjargötu 6, s. 14606.
Laugard. 15/9 kl. 13
Stampahraun — Reykjanes, far-
arstj. Anton Björnss. Verö kr.
2.500-
Sunnud. 16/9
kl. 9 Hlööufell — Brúarárskörö,
fararstj. Ásmundur Siguröss.
Verö kr. 5.000.-. Kl. 13 Þingvell-
ir, söguskoöunarferö meö Sig-
uröi Líndal prófessor. Verð kr.
3.500 - frítt f. börn m. fullorön-
um. Farið frá B.S.Í. benzínsölu.
Föstud. 21/9 Haustferð á Kjöl
Föstud. 28/9 Húsafell.
Útivist.
/9 ai (;i,vsim;asimi\n kil
22480
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
húsnæöi óskast
■HMHMMeÉKMMMIMMMMHHMHeHMHeMelieeiiMie
Einbýlishús
Höfum veriö beðnir aö taka á leigu einbýlis-
hús í Reykjavík eða nágrenni fyrir erlent
sendiráö.
Málflutningsskrifstofa
Agúst Fjeldsted
Benedikt Blöndal, Hákon Árnason
hæstaréttalögmenn.
Ingólfsstræti 5, sími 22144.
Verslunarhúsnæði
Hef veriö beöinn aö annast útleigu á góðu
verslunarhúsnæöi í miðbænum. Stórt
geymslurými fylgir.
Arnmundur Backman hdl.
lögfræðiskrifstofa
Klapparstíg 27
s. 18960
Útboð — Undirstöður
Prentsmiöjan Oddi h.f. óskar eftir tilboöum í
uppsteypu sökkla og kjallara vegna prent-
smiöjuhúsa aö Höföabakka 7, Rvk.
Utboösgögn veröa afhent á verkfræöistof-
unni Ferli h.f. Fellsmúla 26, gegn 30.000 kr.
skilatryggingu og veröa tilboö opnuð þar
fimmtudaginn 20. september n.k. kl. 11.00
Verklok eru 15. nóvember n.k.
Prentsmiðjan Oddi h.f.
tilkynningar
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiöenda skal vakin á því,
að gjalddagi söluskatts fyrir ágúst mánuð er
15. september. Ber þá aö skila skattinum til
innheimtumanna ríkissjóös ásamt sölu-
skattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytiö
10. september 1979.
Þýzkukennsla fyrir
börn 7—13 ára
hefst laugardaginn 22. sept. 1979 í Hlíöar-
skóla kl. 10—12 (inngangur frá Hamrahlíö)
Innritaö veröur sama dag frá kl. 10. Inn-
ritunargjald kr. 3000.
Bókasafn þýzka
sendikennarans.
Til leigu
Húsnæði í sundaborg
í Sundaborg er til leigu skrifstofu- og
lagerhúsnæði fyrir heildverslun, alls 300 fm.
á tveim hæöum. Húsnæðiö er laust frá og
með 1. janúar 1980.
Upplýsingar eru veittar í síma 81822.
Skrifstofuhúsnæði
Til leigu er gott skrifstofuhúsnæði á góðum
staö stutt frá Hlemmi. Húsnæðiö er 67 fm. og
er á 2. hæö. Upplýsingar í síma 22104 á
venjulegum skrifstofutíma.
Til leigu
85 ferm. skrifstofuhúsnæöi viö Laugaveg.
Uppl. í síma 25143.
Hvöt
Félag sjálfstæðiskvenna
í Reykjavík tilkynnir:
Efnt veröur til markaöshaids á útimarkaönum Lækjartorgi, föstudag-
inn 14. sept. n.k. Söfnun á varningi er hafin. Margt kemur til greina,
svo sem fatnaöur, blóm, búsáhöld. Hafið samband við skrifstofu
félagsins í Valhöll í síma 82900 eöa undirbúningsnefnd:
Þórunn Gestsdóttir sími 13990
Erna Ragnarsdóttir sími 25723 og
Kristín Sjöfn Helgadóttir sími 84870.
Sjálfboöaliöar látiö skrá ykkur.
Innhverf íhugun,
andleg tækni
Á árinu 1978 mynduðu læknar
víða um heim með sér félagsskap
til þess að kynna gagnsemi inn-
hverfrar íhugunar meðal starfs-
bræðra sinna og heilbrigðisyfir-
valda. í mörgum löndum Evrópu
og í Bandaríkjunum eru þessi
samtök allfjölmenn og nýlega
skrifuðu iæknarnir hver í sínu
landi undir áskorun til heilbrigð-
isyfirvalda þar sem þeir bentu á
að innhverf íhugun og innhverf
íhugun-Siddhi-kerfið gætu leyst
mörg vandamál á sviði heilbrigð-
ismála. Bresku læknarnir bentu á
að spara mætti samfélaginu gífur-
legar fjárhæðir ef læknar gæfu út
tilvísanir á innhverfa íhugun og
II-Siddhi kerfið. Áskoranir þessar
vöktu mikla athygli og fjölluðu
t.d. blöð í Bretlandi mikið um
málið.
Bresku læknarnir létu greina-
gerð sem þeir kölluðu „Til vísun á
fullkomna heilsu" fylgja áskorun
sinni og töldu þar upp ýmsar
almennar ráðleggingar um hvern-
ig viðhalda mætti góðri heilsu en í
lokin sögðu læknarnir: „Öll þessi
atriði eru mikilvæg. Við viljum þó
sérstaklega benda á að innhverf
íhugun er grundvöllur góðrar
heilsu því hún kemur á jafnvægi í
taugakerfinu og fjarlægir streitu,
— ein streitan er orsök sífellt
vaxandi hlutfallsvanheilsu í dag.
íhugunina er auðvelt að læra og er
hún iðkuð í tuttugu mínútur tvisv-
ar á dag. Nú hafa verið gerðar
rúmlega 300 vísindarannsóknir á
innhverfri íhugun. Þær sýna að
iðkunin hefur yfirgripsmikil og
jákvæð áhrif. T.d. hefur komið
fram lækkun blóðþrýstings,
minnkuð noktun alkóhóls og tó-
baks, aukið viðnám gegn veikind-
um, vörn gegn svefnleysi, árangur
í meðhöndlun astma, minni kvíði,
bættur árangur í íþróttum, aukin
snerpa og meira skipulag í hugs-
un. Állir geta bætt heilsu sína með
því að fylgja þessari tilvísun."
Undir þetta skrifuðu 120 breskir
læknar.
Tæknin innhverf íhugun
(Transcendental Meditation) er
einföld andleg tækni iðkuð 15—20
mínútur á morgnana og síðdegis.
Tæknin gerir huganum fært að
skynja fíngerðari stig hugsanafer-
ilsins, fara handan við fíngerðasta
stigið og komast í snertingu við
uppsprettu hugsunar, svið
minnstrar örvunar í vitund. Þar
sem tæknin byggir aðeins á eðli-
legri hneigð hugans krefst iðkun
hennar engra breytinga á trúar-
eða lífssskoðunum né matarvenj-
um og þar sem hún er svo einföld
getur sérhver maður tileinkað sér
hana og hana má iðka hvar sem
er.
Dr. Hans Selye við háskólann í
Montreal í Kanada, helsti ser-
fræðingur í heimi um streitu og sá
er fyrstur notaði orðið „stress",
hefur mikið kynnt ser innhverfa
íhugun og segir meðal annars um
hana að áhrif hennar á líkamann
séu þveröfug miðað við áhrif
streitu og að hún svo að sé vitnað
sé beint í orð hans, „hvorki komin
undir, né á móti, neinni trú,
heimspeki eða pólistískri sann-
færingu".
Einhverjar athyglisverðustu
rannsóknir sem hafa verið gerðar
á áhrifum innhverfrar íhugunar á
samfélagið eru rannsóknir sem
sýna að í borgum þar sem 1%
íbúanna iðkar tæknina minnkar
tíðni glæpa verulega. Þó svo að
iðkandinn iðki tæknina fyrst og
fremst fyrir sjálfan sig hefur
hann um leið jákvæð áhrif á
samfélagið með iðkun sinni. Eftir
íhugun er maður miklu færari um
að taka þátt í daglegum störfum í
samfélaginu, eftir að hafa fengið
djúpa hvíld og losað um streitu
eins og fjölmargar rannsóknir
sýna.
Innhverf íhugun er alltaf lært í
sjö skrefum. Fyrsta skrefið er
allmennur kynningarfyrirlestur
um tæknina og áhrif hennar á
andlega möguleika, heilsu og einn-
ig eru sýndar vísindalegar rann-
sóknir. Annað skrefið er undir-
búningsfyrirlestur, sem einnig er
ókeypis og öllum opinn. Hann
fjallar um gangverk innhverfrar
íhugunar og uppruna hennar. Að
þessum tveim fyrirlestrum lokn-
um geta menn skráð sig á nám-
skeið og tekið þátt í síðustu
fjórum skrefunum og lært tækn-
ina. Eftir þessi sjö skref er maður
fær um að iðka tæknina á eigin
spýtur. Næsti kynningarfyrirlest-
ur um tæknina innhverf íhugun
verður á næstkomandi miðviku-
dag 5. september kl. 20.30 á Hverf-
isgötu 18, beint á móti Þjóðleik-
húsinu.
Rafn Valgarðsson
kennari í
Innhverf íhugun.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AUGLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480