Morgunblaðið - 14.09.1979, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979
35
Aö snæöingi á Horninu.
,f I
Mm
«aVita’á
t>*>
"
— ' ;•*«*>**». t
-•V.-N '»***,v «*v4k. X
vv*sf\ *
-v> MWvKt#*! *
-<«*«*»« X
___„ »*»£»* *
— **
v,
L ..4L|
I I jj n I tHT*-
: \ mr á r t
[
Aö snæöingi á Borgaranum, allt eins einfalt og kostur er.
Nessý er fyrst og síðast staður
að kröfum nútímans, hraða nú-
tímans. Staðurinn sérhæfir sig í
framleiðslu kjúklinga, hamborg-
ara og þjóðarréttar Breta, “fish
and chips", og svo auðvitað
Haggisborgarans. Nessý er dæmi-
gerður skyndibitastaður, þar
gengur afgreiðsla fljótt fyrir sig
— enda réttir tilbúnir. Enginn
uppþvottur, gert er ráð fyrir að
gestir noti guðsgaflana. Þó fylgja
plasthnífapör og fáir þú þér öl
fylgir plastglas. Þú getur fengið
þér morgunkörfu svokallaða, 2
hluta af kjuklingi, vestra eins og
það er kallað, franskar kartöflur
og hrásalat á 2050. Nú eða viljir
þú meira, þá færðu þér Nessý-
körfu á 2750 krónur, 3 hluta
vestra, franskar og salat. Sértu
verulega svangur færðu þér
greifakörfu, 5 hluta vestra með
frönskum og hrásalati, á 4100
krónur. Einnig er á boðstólum
Nessýborgari, með lauk, osti, tóm-
ötum og salatblaði á 1130, eða
venjulegur ostborgari á 1010.
Haggisborgara að skozkum hætti
getur þú fengið á 900 krónur. Þá er
á boðstólum fiskur og franskar að
hætti Breta á 1350 og svokölluð
rækjukarfa, djúpsteiktar rækjur
með hrísgrjónum á 1550, svo dæmi
seú tekin. Að sjálfsögðu er hægt
að fá með ýmsar sósur, gosdrykki,
öl og kaffi.
Næst lá leiðin á Hornið. Ákaf-
lega ólíkt Nessý. Það er ekki vítt
til veggja á Horninu en hátt til
lofts. Innréttingar hafa verið
færðar til hins upprunalega horfs.
Á Horninu er gengið til beina og
staðurinn er alls ekki hugsaður
sem neinn „skyndibitastaður",
fjarri því. Þar á fólk að geta sest
niður, virkilega dregið sig í hlé frá
amstri hversdagsins og látið dekra
við sig, við undirleik sjálfspilandi
píanós.
Matseðillinn er mjög frábrugð-
inn þeim, sem aðrir matsölustaðir
bjóða uppá. Hvað segirðu um að fá
þér, svo dæmi séu tekin, ofnbak-
aða rauðsprettu í hvítvíni með
sveppum og osti á 2400 krónur?
Eða ofnbakaðar pönnukökur með
rækjufyllingu og bræddum osti á
2750 krónur? Nú eða pönnusteikt-
an hörpuskelfisk með hrísgrjón-
um, ananas og karrýsósu á 2850
krónur? Svo er það pizzan, sem
staðurinn leggur mikla rækt við.
Pizza Calzone, það er pizza með
tómat, osti og skinku á 1750
krónur, Pizza Sicilana, með tómat,
osti, skinku og sveppum á 1900.
Pizza il Angelo, með tómat, krækl-
ingi, osti og rækjum á 2100 svo
dæmi seú tekin. I eftirrétt færðu
þér svo djúpsteiktan camenbertost
með jarðaberjamauki á 1050...
mmmm!!
Öðruvísi ekki satt? Þá var að
halda á Borgarann. Við inngang-
inn stendur „skyndibitastaður" og
það nafn ber staðurinn með rentu.
Allt miðast við skjóta afgreiðslu,
gestir fá hamborgarana sína í
poka, geta hvort heldur er snætt á
staðnum eða tekið með sér. Á
Borgaranum er, eins og nafnið
bendir til, aðeins boðið upp á
hamborgara. Þrjár tegundir og
þar er fyrstan að telja Kansas-
borgara, sem er sinnepsteiktur
með rifnu hvítkáli, hráum lauk,
tómatsneið, súrsætri gúrku og
sósu. Einfaldur kostar 900, einnig
er hægt að fá tvöfaldan á 1200
krónur. Þá er það New Yorker,
með rifnu hvítkáli, hráum lauk,
tómatsneið, súrsætri gúrku og
sósu — einfaldur kostar 800,
tvöfaldur 1100 krónur. Loks er á
boðstólum Frisco — ber nafn sitt
eins og hinir af amerískri stór-
borg. Frisco er með osti, rifnu
hvítkáli, hráum lauk, tómatsneið,
súrsætri gúrku og sósu — einfald-
ur kostar 900, tvöfaldur 1200.
Þessir þrír staðir eru hver um
sig ólíkur hinum. Þó eru annars
vegar tveir staðir, Nessý og Borg-
arinn, sem bjóða upp á skjóta
þjónustu og ljúffengan mat, — þar
sem allt miðast við hraða nútím-
ans. Hins vegar Hornið — þar á
fólk að setjast inn, taka lífinu með
ró, láta þjóna stjana í kringum sig
og borða ljúffengan mat. Þessir
staðir endurspegla þjóðlífsbreyt-
ingu. íslendingar snæða í auknum
mæli á matsölustöðum í amstri
dagsins. Það er fljótlegt, þægilegt
og fólk losnar við að fara í langar
bílferðir heim, upp í Breiðholt eða
Árbæ. Á tímum hækkandi benzín-
verðs er einfaldlega ódýrara að
snæða úti í hádeginu. Fólk vill
þægilegt og notalegt umhverfi, við
viljum fegra mannlíf okkar —
miðbærinn hefur komist í brenni-
depil. Mannlífið í miðbænum hef-
ur tekið stakkaskiptum. Og í
ljóðabók sinni, Fögru veröld, orti
Tómas Guðmundsson um Austur-
stræti.
„Nú verftur aftur hfýtt og bjart um ha inn.
Af bornskuKlftftum hlátri strætift ómar.
þvi vorift kemur sunnan yfir sæinn.
Sjá sóiskinið á Kangstéttunum Ijómar.
Og daprar sálir söngvar vorins yngja.
og svo er mikill ljóssins undrakraftur.
að jafnvel Kamlir slmastaurar syngja
i sólskininu og verfta grænir aftur.
Og þúsund hjórtu gripur gðmul kæti.
Og gðmul hjðrtu þrá á ný og sakna.
ó, bernsku vorrar athvarf. Austurstræti,
hve endurminningarnar hjá þór vakna.“
H. Halls.
Útsala — Útsala
Kjólar, dragtir, blússur, pils. Allt nýjar og nýlegar
vörur. 20—80% afsláttur.
Dragtin,
Klapparstíg 37.
jakkarnir
komnir
einnig
húfur og önnur
pelsvara.
Feldskerinn,
Skólavöröustíg 18.
Sími10840.
Safir
Safir veggsamstæöan uppfyllir kröfur nútímans um
gæöi, útlit og notágildi. Hún er framleidd úr
dökkbæsaöri eik, fáanleg á sökkli eöa fótum. Hægt
er aö velja um 4 gerðir af efri skápum og 3 gerðir af
neöri skápum. Lengd 2.70 cm (3x90 cm). Hæö 180
cm.
Ennfremur er hægt aö fá 50 cm einingar
Fallegu norsku veggsamstæðurnar eru
komnar Lengd 2,70 metrar. Hæð 1,73 metri.
VERIÐ
VELKOMIN
DON
SMIÐJUVEGI 6 SIMIU5U
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU