Morgunblaðið - 22.09.1979, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979
3
Síldarselj-
endur á fund
ráðherra
Um 50 bátar liggja
bundnir við bryggju
áHöfn ogíEyjum
FULLTRÚAR seljenda í Yfir-
nefnd sjávarútvegsins, sem
undanfarið hefur fjallað um
síldarverðið, ganga í dag á fund
Kjartans Jóhannssonar sjávar-
útvegsráðherra og gera honum
grein fyrir stöðunni í þessum
málum og þeim vandamálum sem
hafa skapast.
Þessar upplýsingar fékk Morgun-
blaðið hjá Jóni Sveinssyni útgerðar-
manni á Höfn í Hornafirði í gær-
kvöldi, en nú liggja um eða yfir 40
reknetabátar bundnir við bryggju á
Höfn og munu ekki róa fyrr en
viðunandi síldarverð liggur fyrir.
Við bryggju í Vestmannaeyjum
Iiggja þeir sjö bátar, sem þaðan eru
byrjaðir á síldveiðunum, og að sögn
Jóns Sveinssonar er algjör samstaða
meðal sjómanna og útgerðarmanna
um þessar aðgerðir meðan síldar-
verðs er beðið. Á hverjum síldarbát
eru að meðaltali 9 manns þannig að
sjómennirnir á þessum flota eru
nokkuð á fimmta hundraðið.
Fundur var í Yfirnefndinni síð-
degis í gær, en hann varð árangurs-
laus. Nýr fundur heur verið boðaður
síðdegis í dag, en eins og áður sagði,
ganga fulltrúar seljenda, þ.e. sjó-
manna og útgerðarmanna, á fund
sjávarútvegsráðherra í dag.
R. Buckminister
Fuller í heim-
sókn til Islands
ARKITEKTINN og heimspeking-
urinn nafnkunni R. Buckminster
Fuller mun heimsækja ísland
dagana 23.-25. september n.k. i
boði Spilaborgar h.f. og Menn-
ingarstofnunar Bandarikjanna.
Fuller mun flytja hér fyrirlest-
ur er nefnist „Mannveran í um-
heiminum". Fyrirlesturinn flytur
Fuller í Menningarstofnun Banda-
ríkjanna og hefst hann klukkan
20.30 n.k. þriðjudagskvöld og er
öllum opinn.
R. Buckminster Fuller er fædd-
ur í Milton, Massachusettes í
Bandaríkjunum 12. júlí árið 1895.
Hann stundaði nám við Har-
vardháskóla og Akademíu banda-
ríska sjóhersins. Auk þess hefur
hann hlotið yfir 40 heiðursdokt-
orsnafnbætur við ýmsa háskóla í
Bandaríkjunum.
Stanzlaus
lodnuveiði
MJÖG góð loðnuveiði hefur verið
tvo síðustu sólarhringa og skipin
fyllt sig á skömmum tíma. Á
fimmtudag var Loðnunefnd til-
kynnt um samtals um 7420 lestir
og þar tií í gærkvöldi höfðu
skipin tilkynnt nefndinni um
tæplega 14.400 lestir. Skipin hafa
fengið þennan afla á Kolbeinseyj-
arsvæðinu, þar sem er gott veður
og stanzlaus veiði. Skipin landa
flest á Siglufirði og austur um til
Reyðarfjarðar. Löndunarbið er á
Bolungarvík til þriðjudags, en
þau sem fara til Siglufjarðar og
Raufarhafnar fá löndun á sunnu-
dag þau fyrstu.
Fimmtudagur: ísleifur 460,
Gullberg 600, Óskar Halldórsson
400, Jón Finnsson 580, Hafrún 640,
Sigurður 1400.
Föstudagur: Seley 440, Sæbjörg
620, Óli Óskars 1350, Faxi 350,
Hákon 800, Svanur 680, Helga
Guðmundsdóttir 750, Súlan 750,
Sæberg 560, Börkur 400, Sigurfari
850, Ljósfari 550, Loftur Bald-
vinsson 770, Bjarni Ólafsson 1050,
Húnaröst 620, Víkingur 1350,
Skarðsvík 630, Þórshamar 540,
Helga II 530, Guðmundur 800.
Dr. Gunnar Thoroddsen, fyrrverandi félagsmálaráðherra:
Breytingar á bygginga-
lánum undirbúnar
í fyrrverandi
„MEST aí þeim hug-
myndum sem virðast
vera uppi hjá núverandi
ríkisstjórn í húsnæðis-
málum er byggt á þeirri
vinnu sem unnin var í tíð
fyrrverandi stjórnar,“
sagði dr. Gunnar Thor-
oddsen, fyrrverandi
félagsmálaráðherra, í
samtali við Morgunblað-
ið í gær. Dr. Gunnar var
inntur álits á frumvarpi
sem ríkisstjórnin hyggst
leggja fyrir næsta Al-
þingi og felur í sér breyt-
ingu á lánakerfi Bygg-
ingarsjóðs til húsbygg-
inga og íbúðakaupa eins
og fram kom í frétt
Morgunblaðsins í gær.
„Á árunum 1974—1978 fór
ég með húsnæðismál sem
félagsmálaráðherra. Á þeim
tíma voru skipaðar tvær
nefndir til þess að gera til-
lögur um breytta skipan og
umbætur í húsnæðismálum.
Fyrri nefndin var skipuð í
samráði við Alþýðusamband
íslands og Bandalag starfs-
manna ríkis og bæja með
fulltrúum frá þeim samtök-
um. Formaður þeirrar nefnd-
ar var Ólafur Jensson.
Nefndin átti að endur-
skoða húsnæðismálalöggjöf-
ina í heild. Hún hafði ekki
lokið störfum við stjórnar-
skiptin í fyrra, en formaður
nefndarinnar hafði áður
skýrt mér frá hugmyndum
sínum og tillögum og mun
einnig hafa gert núverandi
félagsmálaráðherra grein
fyrir þeim. Þessi nefnd var
lögð niður skömmu eftir
stjórnarskiptin.
Hina nefndina sem átti að
fjalla sérstaklega um félags-
legar íbúðabyggingar skipaði
ég nokkru eftir kjarasamn-
ingana 1977, einnig í samráði
við alþýðusamtökin. For-
maður þeirrar nefndar var
Gunnar Helgason. Sú nefnd
skilaði tillögum sínum í
fyrrahaust.
í álitum frá báðum þessum
nefndum voru margar mjög
athyglisverðar hugmyndir og
nýmæli.
Við því var búist að núver-
andi ríkisstjórn legði fram
frumvarp á síðasta þingi um
húsnæðismálin í framhaldi
af þessari miklu undirbún-
ingsvinnu, en svo varð þó
ekki. Og vinnubrögð núver-
andi ríkisstjórnar hafa verið
þannig að starfshópar frá
stjórnarflokkunum hafa
fjallað um þessi mál án
nokkurs samráðs við Sjálf-
stæðisflokkinn eða fulltrúa
frá honum. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur því undanfarna
mánuði látið vinna að frum-
varpi um húsnæðismál. Mál-
efnanefnd flokksins og sér-
fræðingar hafa lagt þar fram
mikla vinnu og er þessu
starfi nú langt komið“.
— En hver er þá í megin-
dráttum stefna Sjálfstæðis-
flokksins í húsnæðismálum?
„Grundvallarstefna okkar
sjálfstæðismanna er sú að
stuðla að því, að sem flestir
stjórn
landsmenn geti eignast sitt
eigið húsnæði. Að þessu
marki höfum við sjálfstæðis-
menn unnið á Alþingi, í
ríkisstjórnum og sveitar-
stjórnum með þeim árangri
að hlutfallslega miklu fleiri
búa í eigin íbúðum hér á
landi en í nokkru öðru landi.
Á síðasta landsfundi
flokksins voru samþykktar
ályktanir sem miða að því að
greiða fyrir fólki að eignast
eigin íbúðir, annaðhvort með
því að byggja nýjar eða
kaupa eldri íbúðir. Þar var
meðal annars sett fram það
markmið sem raunar hafði
einnig verið samþykkt á
landsfundi tveimur árum áð-
ur, að fólk skyldi fá 80%
byggingarkostnaðar að láni
út á fyrstu íbúð. Þessi regla
skyldi einnig látin ná til
kaupa á eldri íbúðum. Gert
var ráð fyrir því að þessu
marki yrði náð innan fimm
ára.
Þá var lögð áhersla á það
að tryggja nægilegt og sam-
fellt framboð á hentugum
byggingarlóðum, að tryggja
sem best samkeppni bygg-
ingaraðila, að efla rannsókn-
arstarfsemi í byggingariðn-
aði, að koma á samstarfi
milli Húsnæðisstofnunar
annars vegar og banka og
sparisjóða hins vegar um að
þessir aðilar taki að sér
viðskiptahlutverk Húsnæðis-
stofnunar og greiði út lán í
samræmi við byggingar-
hraða.
Sjálfstæðisflokkurinn
leggur einnig áherslu á að
bæta aðstöðu þeirra sem eru
með sérþarfir og greiða fyrir
félagslegum íbúðabygging-
um vegna þeirra sem erfiðast
eiga í þjóðfélaginu og að lán
til félagslegra bygginga verði
allt að 90% eins og sú nefnd
lagði til sem ég minntist á
áðan.“
Víetnömum
boðið að
Gullfossi
og Geysi
„VIÐ viljum reyna að
gleðja hina nýju samborg-
ara okkar frá Asíu með
því að bjóða þeim í skoð-
unarferð að Gullfossi og
Geysi," sagði Kjartan
Lárusson forstjóri Ferða-
skrifstofu ríkisins í sam-
tali við Mbl. í gærkvöldi,
en ferðin sem verður
væntanlega farin n.k.
sunnudag, verður fyrsta
ferð hinna nýju borgara
út fyrir Reykjavík.
I rútunni verður leiðsögu-
maður sem talar bæði ensku og
frönsku og m.a. verður áð á
Flúðum þar sem boðið verður í
mat. Er reiknað með að boðið
verði upp á lúðu með græn-
meti, kjúklingasúpu og
hrísgrjón, sem sagt eitthvað
sem gestirnir í ferðalaginu
þekkja frá sínum heimaslóð-
um.
Sparivelta Samvinnubankans:
Lánshlutfall allt
Fyrirhyggja í fjármálum er
það sem koma skal. Þátttaka
í Spariveltu Samvinnubank-
ans er skref í þá átt. Verið
með í Spariveltunni ogykkur
stendur lán til boða. Láns-
hlutfall okkar er allt að
200%. Gerið samanburð.
Upplýsingabæklingar liggja frammi
í öllum afgreiðslum bankans.
Samvinnubankinn
og útibú um land allt.