Morgunblaðið - 22.09.1979, Side 21

Morgunblaðið - 22.09.1979, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979 21 Gunnar Jónasson skoðar skrokkinn á Ögninni. sem nú á að byggja upp á ný. Mynd Mbl. Kristján. Smíðuðu flugvél á fjórða áratugnum: Fór aðeins fjórum sinnum í loftið vegna bannsBreta Á tslandi hefur verið smíðuð flugvél — og það var fyrir tæpum fimmtiu árum, að hafist var handa um þá flugvélarsmið. Það voru þeir Björn heitinn ólsen og Gunnar Jónasson, sem smiðuðu TF Ógn aðailega i tómstundum sinum. „Við byrjuðum á flugvélasmiðinni 1932. Höfðum verið i Alexandersfluginu. Við sáum ekki fram á, að nein flugvél yrði á landinu næstu árin og hófumst því handa.“ sagði Gunnar þegar blaðamaður ræddi við hann. „Við hófumst handa í kjalíaran- um á Laugavegi 17. Byrjuðum þar á skrokknum, og fluttum okkur síðan í Bernhöftsbakarí, sem þá stóð autt. Unnum þar að smíði einstakra hluta í vélina en gátum ekki sett hana saman þar svo við fengum pláss í Þjóðleikhúsinu, sem þá var í byggingu. Þar settum við mótorinn í — átta árum eftir að við hófum smíðina." Höíðud þið erlendar teikn- ingar, eða réð brjóstvitið? „Eg var nú með bók þar sem allar upplýsingar voru um flug- vélasmíði, en jafnframt var þetta smíðað eftir smekk. Við vorum báðir flugvirkjar, höfðum numið í Þýzkalandi. Þetta dróst nú mjög á langinn af ýmsum ástæðum. Lengi vantaði okkur mótor en Erling Smith fann góðan mótor þegar hann var á ferð í Noregi. Nýlegur mótor úr vél, sem hafði hrapað og þennan mót- or keyptum við á sjö þúsund krónur. Alls kostaði vélin okkur um átta þúsund krónur, sem var mikill peningur." Hvenær íór svo vélin í loítið? Það var í september 1940 að hún fór loks í loftið. Við fengum leyfi frá Bretum, sem þá höfðu her- numið landið. Sjálfsagt hafa þeir veitt leyfið þar er þeir töldu að vélin kæmist ekki upp. Það var í raun upp á náð að leyfið fékkst. Örn Johnsen flaug vélinni. Við höfðum útbúið stutta flugbraut þar sem nú er flugturninn. Feng- um leyfi frá Agnari Kofoed-Han- sen, sem þá var lögreglustjóri, til að sprengja þar klappir. Vorum með gamlan Ford, ruddum grjót- inu upp á plötu, sem bíllinn dró síðan frá. Ég man það enn svo glögglega. Við vorum ekki vissir hve vélin þyrfti langa braut. Það var snjór yfir öllu, og við héldum í vélina þar til Órn hafði gefið hreyflinum fullt afl. Þá slepptum við og stóðum í snjókófi. Þegar við komum út úr kófinu þá var vélin komin á loft. Örn flaug hring yfir Öskjuhlíðinni og lenti síðan í Vatnsmýrinni. Voruð þið ekkert hræddir um að vélin færi aldrei í loltið þegar til kæmi? Nei það vorum við ekki. Þegar Lindbergh kom hingað til lands þá fengum við hann til að líta á vélina og honum leist mjög vel á. Hið sama gerði Grierson þegar hann var hér og við höfðum tröllatrú á henni. En því miður þá fór ég aldrei með vélinni í loftið. Henni var aðeins flogið fjórum sinnum og þá skipuðu Bretar okkur að taka hana í sundur og það var vissulega mjög sárt eftir alla þá vinnu sem við höfðum lagt í Ögnina. Hún var mjög vel byggð, traust og góð og gerði allt, sem fyrir hana var lagt. Við fengum krossvið í hana, og grindin va úr tré. Allt mjög traust." Ögnin þeirra Gunnars og Björns heitins er nú geymd á verkstæði Flugmálastjórnar. Nú stendur til að byggja hana upp á nýjan leik, og eftir öll þessi ár í niðurníðslu er mesta furða hvað Ögnin hefur staðist tímans tönn — heilleg og greinilegt að smíði þeirra Gunn- ars og Björns heitins hefur verið hin mesta völundarsmíð. Ögnin var gerðarleg vél - „gerði allt, sem hún átti að gera,“ sagði Gunnar. HELGARVIÐTALIÐI Leiddist heldur að kenna sögu en gaman að þýzku „Mér leiddist heldur ad kenna söguna. Hafdi hins vegar gaman af þýzkunni. Kenndi hana i áratugi í menntaskóla,“ sagói Olafur Hansson prófessor þegar blaóamaóur ræddi við hann á heimili hans á Tómasarhaganum. Ólafur varö sjötugur í vikunni og lét af störfum víö Háskóla íslands í sumar. Hann er þjóösagnapersóna í lifanda lífi, sannkallaöur sagnabrunnur og einstakur kennari, stálminni hans er rómaó. Um þaö vitna nemendur hans allir sem einn. Í áranna rás skipta þeir þúsundum. Hann brosti þegar blaöamaöur spuröi hvernig tilfinning þaö væri aö vera þjóösagnapersóna. „Ég er ekki nein þjóösagnapersóna,“ svaraöi hann um hæl. „Þær sögur, sem ég hef heyrt um mig eru allar hrein lygi. Eíns og sagan um, aö ég þekkti alla kettina á Bókhlööustígnum. Þetta er auövitaö helber lygi. Ég sem aldrei hef getaö kennt tvo ketti í sundur. Enginn veit betur en ég sjálfur hve gloppóttur ég er. Ég hef lært miklum mun meira af nemendum mínum í gegn um árin en þeir at mér. Þeir hafa oft komiö pieö fleti á málum, sem mér ekki einu sinni haföi dottiö í hug og þannig opnaö augun. Anhars þetta meö söguna, ég segi ekki aö mér hafi alltaf leiöst aö kenna sögu, fjarri því, þó að þýzkan hafi falliö mér betur ígeö. Auövitaö voru ánægjulegar stundir í sögunni og svo fór það einnig eftir nemendum. En síöustu árin voru oröin gloppótt hjá mér, minniö farið aö bresta." En svo var ekki að sjá. Hann ræddi um ætt blaöamanns betur en hann sjálfur kunni og um þaðgeta sjálfsagt fleiri boriö. Og spurningin lá beint afaugum. Hefuröu grúskaö mikið í ættfræöi? „Biddu fyrir þér, ég er ekki góöur í ættfræöi og vil ekki vera þaö. Það er alger misskilningur að ég kunni eitthvaö í ættfræði. Þar fyrir utan, mér leiöast menn sem eru manískir." Þú ert Borgfiröingur, ekki aatt? Ég var fæddur í Reykjavík en ólst aö mestu upp í Borgarfiröi og tel mig Borgfiröing. Var á Grund í Skorrádal. Þar hefur sama ættin búið frá upphafi. Brynjólfur biskup Sveinsson settist þar á 17. öld. Árni Oddsson lögmaður var langa- langaafi langa-langaömmu minnar. Núorðið skýst ég ein- stöku sinnum upp í Borgarfjörð en eitt er þaö, sem kemur mér alltaf í vont skap þegar ég kem í Skorradalinn og það er sum- arbústaðafarganið. Þeir hafa spillt dalnum, og náttúrunni. Hverfuröu frá Háskól- anum meö söknuöi? „Þaö er nú bara hugguleg tilhugsun aö vera ekki að hefja einn veturinn enn. Auðvitað er þetta blandið söknuði. í Há- skólanum kynnist maður fjölda fólks og ég hef lært mun meira af nemendum mínum en þeir af mér, eins og ég sagði þér áðan. Það hafa orðið gífurlegar breytingar frá því aö ég byrjaöi sem stundakennari 1951. Sumar til bóta, aörar ekki. Þegar ég byrjaöi þá voru 6—7 menn á ári, nú yfir 50. Manni gefst nú vart tími til að læra nöfnin. Stúdentar taka mun meiri þátt í stjórn skólans nú, þeir sitja deildafundi, svo dæmi sé tekiö og það er mjög jákvætt. Kröfur hafa ekki minnkað svo mjög. Það falla fleiri nú en geröu. En þaö er vegna þess að innan um er fólk sem ekki veit hvað það vill. Innan um eru svo aftur frábærir nemendur. Ég hverf frá Háskólanum bæði með trega og gleði. Hvaö tekur nú iriö? Mín hobbý, lesa og labba. Ég hef mjög gaman af aö lesa kríminalsögur. Það er nú vegna Boga Ólafssonar, kennara míns frá Menntaskólaárunum. Ég var alltaf lélegur í enskum stíl svo hann sagði mér að fara að lesa reyfara. Þar meö komst ég á bragðið. Ég hef gaman af Sherlock Holmes, og Agöthu Christie, hún er alltaf skemmti- leg. Ellery Queen er einnig góö en beztur er þó GK Chester- ton, hann er snillingur, feiki- góður. Annars er 90% af reyf- urum rusl. Svo eru þaö göngutúrarnir. Já, eitthvert bezta inntak lífsins er að ganga. Ég hef gert mikið af því um ævina. Ég gekk mikiö með dr. Birni heitnum Aðalbjarnarsyni, á Hornstrand- ir, Fljótdalshéraö og Snæfells- nes. Þá gisti maður á sveita- bæjum, og talaöi viö fólkiö — það var gaman. Nú svo hef ég einnig ferðast mikið með Ferðafélaginu, meö mönnum eins og Kristjáni Skagfjörð, Helga í Brennu. Elsta stúdent íslands sem á lífi er, Skúla Skúlasyni í Ósló, en hann varö stúdent 1910. Hin síöari ár hef ég einkum gengið um í ná- grenni Reykjavíkur. Sumir segja að Mosfellssveitin sé ekki falleg sveit — en hún er einhver fallegasta sveit á ís- landi. Það eru ótrúlega margir fallegir staðir, maöur finnur sífellt eitthvað nýtt. Hvaö kom til aö þú fórst í söguna? Ja, það er saga frá því aö segja. Eiginlega var ég platað- ur í söguna, og sökudólgurinn var Siguröur Nordal. Mig lang- aöi alltaf í náttúrufræði. Hafði tjaman af grasafræöi, flóru Islands. Þegar ég var í skóla þá hafði ég mun meira gaman af að lesa grasafræði en sögu, þó Árni Pálsson hafi kennt mér og að hann hafi verið skemmtileg- asti maður á íslandi. Svo þegar ég lauk stúdentsprófi þá ætlaði ég í lögfræðina. Þá voru erfiðir tímar og Sigurður Nordal kom til mín og sagöist ætla útvega mér styrk — það geröi hann og í söguna fór ég. Og í söguna fórstu — allir sagnfræöingar eiga sín uppáhaldstímabil. Hver eru þín? Ég hef lagt mig eftir síðari heimsstyrjöldinni, lesið það sem ég hef komist yfir. Skömmu eftir stríð þá skrifaði ég bók um síðari heimsstyrj- öldina. Það þarf ekki að taka fram að ef ég skrifaði hana í dag þá væri hún allt ööruvísi. Þá var skortur á heimildum, eins og gefur að skilja. í ís- landssögunni hef ég mest gaman af 13. öldinni — Sturl- ungaöldinnif Eins og öðrum þá auðvitaö leiðist mér sumt, hef gaman af öðru. Ertu bjartsýnn á framtíöina? Nei, þaö er ég ekki. í eðli mínu er ég kærulaus en ég er svartsýnn á framtíöina. Maður- inn hefur ekki þróast á sama hátt og tæknin, og hún á eftir að drepa hann. Þá á ég ekki við risaveldin. Eins og Lúðvík XV sagöi: Eftir okkar daga kemur syndaflóö. Einhvejs konar syndaflóð og ég held að 21. öldin verði ekki skemmti- leg. Hvað mína framtíð varðar, þá er ég ekki einn þeirra, sem halda því fram að tilveran hér hafi einhvern tilgang í sjálfu sér. Hugmyndir um annaö líf eru oskhyggja ein en þar með er ég ekki aö segja aö ekki sé líf eftir þetta líf. Mig hefur dreymt drauma, sem segja má að setji spurningamerki um líf eftir þetta líf. En ég er fjær að leysa lífsgátuna en ég var þegar ég var tvítugur. Þó auö- vitað hafi maður hugmyndir um hvernig frelsa ætti heiminn. Ég hef enga lífsskoðun, hef þó lengst af kosið krata. En mér finnst pólitík leiðinleg, sérstak- lega haröir flokkslínumenn. Ib- sen sagði einhverju sinni, að lífshamingjan væri fólgin í því aö geta blekkt sjálfan sig. En ég veit ekki neitt, flokksmenn hafa lífsskoðun, þó að hún sé blekking — en það er ákveöin kjölfesta og að vissu leyti öfunda ég þá. En ég held að það sé viss lífshamingja aö verða bráðkvaddur upp úr sjötugu. H.Halls

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.