Morgunblaðið - 22.09.1979, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979
Carter lætur
gæta Kennedys
Washington, 21. sept. AP. Reuter.
EDWARD M. Kennedy öldunga-
deildarmanni hafa borizt fjöl-
margar morðhótanir upp á
siðkastið, eða frá þvi að hann gaf
i skyn að hann kynni að keppa
við Carter forseta um tilnefningu
Demókrataflokksins til forseta-
embættis á næsta ári. Af þessum
sökum hefur Carter forseti fyrir-
skipað að Kennedys skuli gætt og
frá og með deginum i dag munu
fjölmargir starfsmenn leyniþjón-
ustunnar fylgja honum eftir.
Kunnugir skýrðu frá því, að
morðhótanirnar hefðu aukist
verulega síðustu tvær vikurnar.
Ákvað forsetinn að veita hugsan-
legum mótframbjóðanda sínum
vernd og mættu nokkrir lífverðir
við skrifstofu Kennedys skömmu
áður en hann hélt heim í lok
vinnudags í gær.
Tveir bræður Kennedys, John F.
Kennedy fyrrum forseti og Robert
Kennedy fyrrum öldungadeildar-
maður, féllu fyrir kúlum morð-
ingja.
Tveir fórust er
þota féll til jarðar
Wisbech, 21. september
AP. Reuter.
TVÆR brezkar herþotur
rákust saman á flugi yfir
þorpinu Wisbech í Cam-
bridgeskíri í dag. Önnur
þotan féll til jarðar í út-
jaðri Wisbech og fórust
tveir og átta særðust. Báðir
flugmennirnir komust lífs
af. Sáralitlu munaði að
þotan félli á barnaskóla og
menntaskóla, þar sem 800
nemendur stunda nám.
Bokassa keisara
steypt af stóli
Paris. 2i. september. AP.
BOKASSA keisara Mið-Afríkukeisaradæmisins var
steypt af stóli í gærdag og við völdum tók fyrrverandi
forseti landsins, David Dacko, að því er franska
utanríkisráðuneytið tilkynnti í dag. Að sögn talsmanns
sendiráðsins kom ekki til blóðsúthellinga, en Bokassa er
fiúinn til Líbýu á fund Gadafys leiðtoga Líbýumanna
sem hefur alltaf verið vinveittur Bokassa.
Strax og ljóst var að Bokassa
var farinn frá streymdi franskt
herlið inn í höfuðborg landsins,
Bangui, til að aðstoða við að halda
uppi lögum og reglu, því búist var
við að stuðningsmenn keisarans
fallna myndu láta á sér kræla.
Talsmaður franska utanríkis-
ráðuneytisins lýsti yfir ánægju
franskra yfirvalda með hina nýju
valdhafa og sagði, að sendiherra
Frakklands í landinu hefði þegar
átt fund með Dacko hinum nýja
leiðtoga landsins.
Dacko sagði í útvarpsávarpi í
dag, að með falli Bokassa væri
farinn frá óvinur landsmanna
númer eitt. Dacko sagði, að nafni
landsins yrði breytt innan tíðar og
keisaraembættið lagt niður. Búist
er við, að hann taki sér forseta-
nafnbót.
Sérfræðingar telja að tekið hafi
að halla undan fæti fyrir Bokassa
í byrjun árs þegar hann á mjög
vægðarlausan hátt lét berja niður
mótmæli gegn stjórn sinni og
fyrirskipaði m.a. og tók þátt í að
taka fjölda skólabarna af lífi. Um
þverbak keyrði svo þegar Frakkar
tilkynntu í kjölfar þessa að talið
var sannað að Bokassa hefði með
eigin hendi myrt hluta skólabarn-
anna, að allri efnahagsaðstoð
þeirra við iandið væri hætt.
Bandaríkjamenn tóku skömmu
síðar í sama streng.
Bokassa hefur stjórnað mjög
vægðarlaust þau ár sem hann
hefur verið við völd. Hann krýndi
sjálfan sig keisara á árinu 1976 og
Norðmenn auka
sumarloðnukvóta
Frá fréttaritara Morgun-
blaósins í Ósló.
NORSKA sjávarútvegsráðu-
neytið hefur ákveðið að auka
kvóta sem taka þátt í sumar-
loðnuveiði á Barentshafi um 17
af hundraði að meðaltali miðað
við þá kvóta sem voru ákveðnir
fyrr á þessu ári.
Seinna getur reynzt nauðsyn-
legt að fella úr gildi reglugerðar-
ákvæði þannig að Norðmenn geti
fyllt kvóta sinn á Barentshafi
sem er 5,4 milljónir hektólítra.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins í Harstad hafa
Norðmenn veitt 2,4 milljónir
hektólítra af þessum kvóta til
þessa.
Loðnan er væn og feit en
dálítil áta er í henni. — Lauré.
Hungur sverfur
að Kampútseu
Bokassa
hefur safnað að sér mjög miklum
auði víða um heim, sérstaklega í
Frakklandi þar sem hann á bæði
miklar húseignir og fjármuni í
bönkum. Talið er líklegt að Bo-
kassa hafi í hyggju að setjast að í
kastala einum í Frakklandi sem
hann á. Frönsk yfirvöld vildu í dag
ekki tjá sig um hvort honum yrði
leyft að koma inn í landið, hvað þá
að setjast þar að. Falli hans hefur
víðast hvar verið fagnað.
Washinjfton, 21. september. AP.
ALLT útlit er fyrir að verulegur
fæðu- og næringarskortur muni
hrjá hina stríðshrjáðu Kambódíu-
menn á næstu mánuðum að þvi er
haft var eftir taismanni
bandariska utanríkisráðuneytis-
ins i dag.
Talsmaðurinn sagði einnig, að
mjög erfitt væri að fá leyfi
þarlendra stjórnvalda fyrir
matarflutningum frá ýmsum góð-
gerðarstofnunum i
Bandarikjunum.
Ríkisstjórn Heng Samrins
forsætisráðherra sem studd er af
Víetnömum hefur til þessa verið
mjög treg til þess að hleypa
starfsmönnum Alþjóðastofnana
inn í landið, eins og Rauða kross-
ins. Einungis hefur verið heimiiað
flug með matvæli, lyf og nauðsyn-
legan klæðnað sem tekið hefur
verið á móti á flugvellinum í
Pnom Phnem.
Talsmaður bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins sagði í dag, að
ekki kæmi til greina að
Bandaríkjastjórn sendi matvæli
eða annað til landsins nema það
væri undir ströngu eftirliti Al-
þjóða Rauða krossins eða hlið-
stæðrar stofnunar.
Er sovézkur k jarnorkukafbát-
ur týndur í norskri landhelgi?
UMRÆÐUR hafa á ný orðið í Noregi um með hvaða
hætti fiskveiðiskipið „Utvik Senior“ hafi sokkið, en
skipið fórst með níu manna áhöfn skammt frá eynni
Senja við Norður-Noreg 17. febrúar 1978. Tilefni
þessarar umræðu er, að svissneska blaðið „Neue
Ztircher Zeitung" hefur nýverið skýrt frá því, að
rússneskur kjarnorkukafbátur hafi að öllum líkind-
um farist í landhelgi Noregs, en ein kenningin um
hvarf Utvik Senior, að skipið hafi lent í árekstri við
óþekktan kafbát. Svissneska blaðið hélt því fram, að
skýringin á auknum fjölda sovézkra skipa í norskri
landhelgi væri sennilega sú, að Sovétmenn væru að
leita að kafbáti á sjávarbotni.
Opinberlega var frá því skýrt,
að Utvik Senior hefði annað-
hvort siglt á sker eða hvolft á
úfnu hafi. En sjómenn frá Senja
hafa hins vegar haldið því fram
frá upphafi, að skipið hafi sokkið
eftir árekstur við kafbát og
hvika hvergi frá þeirri skoðun.
Daginn sem Utvik Senior sökk
kom stórt skip, er sigldi í norður,
fram á ratsjá togarans „Svein
Roger“ í aðeins einnar sjómílu
fjarlægð. Þetta sama skip kom
einnig fram á ratsjá í landi. Af
opinberri hálfu hefur frá því
verið skýrt í Noregi, að engin
skip úr flota Noregs né Nato
hefðu verið á svæðinu á þeim
tíma er Utvik Senior fórst. Þá
bar það til á sömu slóðum, 10
dögum áður en Utvik Senior
fórst, að annað norskt fiskiskip
varð skyndilega að breyta um
stefnu til að forðast árekstur við
kafbát.
Samkvæmt heimildum Neu
Zúrcher Zeitung hófu Rússar
umfangsmiklar og kerfisbundn-
ar athuganir á hafsbotninum við
Norður-Noreg og notuðu til þess
bergmálstæki, sjónvarpsmynda-
vélar og tæki til að mæla geisla-
virkni. Blaðið sagði að kafbátar
Rússa færu venjulega um norska
landhelgi á leið sinni til og frá
Murmansk.
Norsk stjórnvöld hafa þótt
sýna mikið andvaraleysi og lítið
gert í að krefja Rússa skýringa.
Johan Jörgen varnarmálaráð-
herra lét svo um mælt í vikunni,
að hann hefði engar fregnir
fengið frá Rússum þess efnis, að
þeir hefðu tapað kafbáti. Ráð-
herrann taldi fullyrðinguna um
týnda kjarnorkukafbátinn á
norskum hafsbotni ákafletra
fjarstæða, en vildi að öðru leyti
ekkert fjalla um þögn stjórn-
valda í málinu.
Daniel Heradstveit forstöðu-
maður norsku utanríkismála-
stofnunarinnar sagði einnig í
viðtali, að draga mætti kenning-
una um árekstur Utvik Senior og
kafbáts í efa. Hann sagði að
Rússar hefðu þá aldrei notað
fragtskip og aðra báta við leit-
ina, og ef kafbátur hefði sokkið
þá hefðu þeir haldið stöðugri
vakt á svæðinu til að koma í veg
fyrir að Nato-skip kæmust yfir
leynileg tæki er hefðu hernaðar-
lega mikilvægu hlutverki að
gegna. Heradstveit gagnrýndi
hins vegar stjórnvöld fyrir að
hafa ekki mætt átroðslu Rússa í
norskri landhelgi með meiri
hörku en raun varð á.
Sovézkur kjarnorkukafbátur á siglingu, en kenningar eru uppi um að einn slikur hafi sokkið eftir
árekstur við norskan fiskibát.
Taler
efstur
Riga, 21. september. AP.
GHEORGHIU frá Rúmeníu beið í
dag fyrsta ósigur sinn á svæða-
mótinu í Riga þegar hann tapaði
fyrir Trois frá Brazilíu.
Larsen tapaði fyrir Romanishin.
Allar aðrar skákir enduðu með
jafntefli eða fóru í bið.
Staðan eftir 12 umferðir: Tal 9
vinningar, Polugayevsky Vh, Lar-
sen 7%, Gherghiu 7 og Ribli 7 v.
Olíuskip
strandar
Koreör, Danmörku, 21. september. AP.
GRÍSKT oliuflutningaskip,
Yankilas, 29,000 lestir, strandaði
1 dag fullhlaðið hráoiíu á skeri á
Stóra-Belti, en fyrst i stað benti
ekkert tii þess að oliuleki hefði
átt sér stað að sögn danskra
yfirvalda.
Yankilas er sjöunda og stærsta
flutningaskipið sem hefur strand-
að á Stóra-Belti á þessu ári.
Danski sjóherinn segir, að þunn
olíubrák hafi sést í námunda við
Yankilas en óvíst sé að hún stafi
frá olíuieka. Skipið var á suðurleið
til austur-þýzkrar hafnar.
Danskur dráttarbátur var send-
ur á vettvang og í varúðarskyni
sendi danska umhverfisverndar-
stofnunin skip sem er búið tækj-
um til að berjast gegn olíuleka.