Morgunblaðið - 22.09.1979, Síða 25

Morgunblaðið - 22.09.1979, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979 25 Do Van Tam og kona hans Tran Kom Hoa ásamt börnum sínum fimm: Do Vinh Phinc, Do Thi Thien Huong, Do Tran Phuoc Hio, Do Thi Thien Thao og Do Tran Dhuoc Tai. Ljósm.: Krístján. Fannst þeim heldur kuldalegt að sjá sundgesti svamla í lauginni í svo köldu veðri. Þegar komið var aftur á Hvítabandið litu blm. í eitt herbergið þar sem býr 7 manna fjölskylda, foreldrar með 5 börn sín. Do Van Tam heitir heimilisfaðirinn eða öðru nafni Tómas, konan Tran Kim Hoa eða Hulda og íslensku nöfnin barn- anna Skúli, Kristín, Eggert, Dóra og Pálmi, en þau eru á aldrinum frá eins árs og upp í 12 ára. — Ég hefi verið sjóliðsforingi í Vietnam síðustu árin og starf- að í hernum í alls 12 ár, sagði Tómas. Við fórum frá Vietnam hinn 17. júní sl. og héldum fyrst til Thailands, en þar fengum við ekki að staldra neitt við og urðum að halda áfram til Mala- síu. Ferðin þangað tók langan tíma og var okkur erfið og þegar komið var þangað fundum við að reynt er að ýta flóttafólki sem mest frá Malasíu. Þau Tómas og Hulda kváðust bæði vera fegin því áð hafa lent á Islandi, þau væru viss um að allur hópurinn ætti eftir að Flóttafólkið á ferð um Reykjavik: Skoðuðu höfnina, sundlaugar og vœntanlegan bústað sinn Danski læknlrinn Jörgen Prag. skugga um hvernig líkamlegt ástand fólksins er. Voru í morg- un teknar blóðprufur og rönt- genmyndir og verður haldið áfram við aðrar athuganir á morgun. Hins vegar er fólkið flest þjáð af næringarskorti eftir margra mánaða vist í flótta- mannabúðum og hrakninga frá heimalandi sínu, þannig að ein- hvern tíma tekur að jafna sig, sagði Jörgen Prag. Hann hefur skipulagt móttökur á flóttafólki sem komið hefur til Danmerkur, en það eru kringum 1.000 manns. Fjórar til fimm konur í einu hafa annast um fólkið fyrir utan hjúkrunarlið og sagði ein þeirra, að það væri strax farið að bjóða fram aðstoð sína við hreingern- ingar og annað sem gera þyrfti í húsinu, en fylgjast þarf nokkuð með börnunum, að þau klæðist Flóttafólkið frá Vietnam var í gærmorgun og fram eftir degi í ýmiss konar læknisrannsóknum þar sem það dvelst á Hvítabandinu í Reykjavík, en síðdegis var haldið um borgina í skoðunarferð. Frekari læknisrannsókn fer fram næstu daga, en að þeim loknum flyst fólkið í húsnæðið á Kaplaskjólsvegi 12 svo sem áður hefur verið skýrt frá, en nú er verið að leggja síðustu hönd á lagfæringar þar. Þau voru öll hlýlega klædd er þau komu út úr húsinu og héldu af stað í skoðunarferðina, en fyrst lá leiðin gegnum miðbæinn og út á Granda þar sem staldrað var við um stund og skipin skoðuð. Fóru nokkrir piltanna um borð í einn bátinn og skoð- uðu í krók og kring en margir þeirra hafa lagt stund á sjó- mennsku og hyggjast halda því starfi áfram. Eftir viðdvölina á Granda var ekið að húsinu sem þau eiga að dveljast í fyrst um sinn og var ekki annað að sjá en þeim litist vel á staðinn, en ekki var kostur á að sýna þeim húsið að innan þar sem unnið var enn að lagfæringum. Þá var enn ekið um borgina og leiðin austur undir Elliðaár og síðan í Laugardalinn og höfð stutt viðdvöl við sundlaugarnar. I skoðunarferð um Reykjavík var m.a. ekið framhjá væntanlegum bústað Vietnamanna við Kaplaskjólsveg, en þar er nú að ljúka undirbúningi fyrir komu þeirra þangað. Hjörn Þórieifsson sagði túlknum Hönnu frá þvi sem fyrir augu bar i skoðunarferðinni og endursagði hún siðan fyrir sitt fólk. komast vel af hér, allar móttök- ur Islendinga væru þannig. Danski læknirinn Jörgen Prag var fenginn hingað til lands í sambandi við komu flóttafólks- ins til að hafa umsjón með gangi læknisrannsókna, en hann hefur um árabil starfað í Vietnam og er giftur konu þaðan. — Það hefur ekki virzt að fólk þetta beri með sér hættulega sjúkdóma, en læknisrannsókn- irnar miða að því að ganga úr vel þegar þau fara út og taki af sér yfirhafnir þegar inn er kom- ið o.s.frv. en þau eru vön kring- um 30 stiga hita þar sem þau dvöldu síðast. Þess má að lokum geta, að Rauði krossinn hefur farið þess á leit við Mbl. að því verði komið á framfæri að ýmislegt vantar til að endanlega verði hægt að ganga frá húsnæðinu á Kapla- skjólsvegi. Er þar um að ræða 2 ísskápa, litla eldhúsinnréttingu og eldavél og má þetta að sjálf- sögðu vera notað, en nothæft. Við höfnina brugðu nokkrir piltanna sér um borð i einn bátinn, sem sjómenn voru að dytta að.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.