Morgunblaðið - 22.09.1979, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979
LÍÚ f ellst ekki á
frekari takmark-
anir á þessu ári
Rætt við
Kristján
Ragnarsson
BOTNFISKAFLINN jókst um
75 þú.sund lestir fyrstu átta
mánuði þessa árs miðað við
sama tímahil í fyrra. Þessi
aukning nemur 20,2% og er
aukningin 21,4% hjá bátaflot-
anum, en 19,1% hjá togurunum.
Það er athyglisvert, að aukning
þorskaflans er 17.100 lestir eða
um 6,4% miðað við 1978, en á
sama tima jókst annar botnfisk-
afli um 58.500 tonn eða um 56%.
Kristján Ragnarsson formað-
ur Landssambands íslenzkra út-
gerðarmanna sagði í gær, að á
þessu sæist hver árangur væri af
þeim takmörkunum, sem verið
hafa á þorskveiðunum á árinu.
Sérstaklega með tilliti til þess að
hægt hefði verið að auka annan
afla svo mikið sem raun bæri
vitni. — Þorskaflinn eykst um
17.100 lestir, en það gerist ein-
göngu á vetrarvertíðinni og frá
því í marz hefur þorskaflinn í
hverjum mánuði verið mun
minni en í fyrra, að undanskild-
um júnímánuði þegar hann var
lítið eitt meiri, sagði Kristján
Ragnarsson.
— Stjórn LÍÚ samþykkti til-
lögur um takmarkanir þorsk-
veiða á þessu ári í aprílmánuði
síðastliðnum á grundvelli þess
að það væri endanleg ákvörðun
Kristján Ragnarsson
formaður LÍÚ
um fiskveiðistefnu fyrir árið,
hélt Kristján áfram. — LÍÚ
getur þess vegna ekki fallist á
frekari takmarkanir á árinu
nema eins og í fyrra, 21 dags
þorskveiðibann á togurunum á
tímabilinu frá 15. nóvember til
áramóta og hjá bátunum frá 20.
desember til áramóta.
— Nú standa málin þannig, að
við höfum aukið annan botnfisk-
afla en þorsk um það magn, sem
fiskifræðingar mæltu með að við
mættum veiða af öðrum tegund-
um. Þannig að staðan nú er sú að
við fullnýtum alla stofnana og
stjórn LIÚ samþykkti á fundi
sínum á miðvikudag að ganga til
samstarfs við stjórnvöld um
mótun fiskveiðistefnu fyrir
næsta ár, sem taki gildi strax
um áramótin, en sé ekki ákveðin
einhvern tímann á árinu eins og
verið hefur. LÍÚ leggur jafn-
framt til að við mótun þeirrar
fiskveiðistefnu verði tekið tillit
til þess, að algjört þorskveiði-
bann verði á næsta ári á tímabil-
inu frá 10. júlí til 15. ágúst.
— Rök okkar fyrir þorskveiði-
banni á þessum tíma eru þau, að
þrjú ár í röð hefur verið um
gífurlegan þorskafla að ræða á
þessum tíma. Það hefur reynzt
örðugt að nýta þennan afla og
skapað mjög mikinn þrýsting á
verkafólk til yfirvinnu á þeim
tíma, sem æskilegast er að fólk
geti tekið sér frí. Þetta fólk
verður að eiga rétt á að fá
sumarleyfi eins og annað fólk, en
að undanförnu hefur vinnutími
þess á þessum hásumartíma,
þegar jafnframt er hvað erfiðast
að geyma fisk, verið mestur.
Jafnframt höfum við á þessum
tíma verið að pressa ferskan fisk
inn á erlendan markað umfram
það sem sá markaður hefur verið
tilbúinn til að taka við og því
orðið að sæta lægra verði en
ástæða væri til. Öllu þessu
teljum við verða fullnægt með
þessum aðgerðum yfir hásum-
artímann.
— Vegna þess olíuverðs sem
nú er og umtals um enn frekari
hækkun olíuverðsins þá höfum
við verulegar áhyggjur af því að
nú muni draga úr sókn í aðra
stofna vegna þess að olíukostn-
aður er orðinn svo hátt hlutfall
af aflaverðmætinu að menn velji
fremur þann kost að leggja
skipunum en gera út á þessar
ódýru tegundir, sagði Kristján
Ragnarsson að lokum.
Níðstöng sú sem nokkrir nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð
rístu Herstöðvaandstæðingum til háðungar i gær. Ljósm.: Kristján.
Leiðangur
á slysstað
„Pourquoi
Pas”
Akranesi 17. sept. 1979.
ÞAÐ verður að teljast til tiðinda,
þegar siglari frá Paris kemur í
Akraneshöfn, þar sem jarðnesk-
um leifum dr. Jean Charcots og
áhöfn hans, sem fórust með haf-
rannsóknaskipinu „Pourquoi
Pas„ við Mýrar árið 1936, átti að
umskipa úr vs Ægi AK um borð i
Hvidbjörnen (danskt herskip).
En einn tiigangur ieiðangurs
skútunnar var einmitt að fara á
slysstaðinn við Straumsfjörð á
Mýrum, skoða hann og taka
kvikmynd. — Einnig var tilgang-
urinn landfræðilegur og að
kanna lífríki i sjónum á norður-
slóðum og áhrif issins á skútuna.
Skútan heitir „Vagabond", eig-
andi og leiðangursstjóri er Kam-
usz Kurbiel, áhöfnina skipa 7
manns og þar af 2 konur. —
Skútan er 20 rúmlesta, með tvær
japanskar hjálparvélar, mjög vel
búin öllum tækjum og fullkomn-
um seglaútbúnaði. Hún var
smíðuð fyrir 4 mánuðum.
„Vagabond" kom hingað frá
Austur-Grænlandi, eftir rúml.
mánaðar úthald. — Ferðinni var
heitið héðan til Frakklands með
viðkomu í Reykjavík. Björn H.
Björnsson hafnsögumaður fór með
leiðangursstjórann og kvikmynda-
tökumann hans landleiðina að
Straumsfirði og greiddi götur leið-
angursmanna hér á Akranesi, en
þeir voru afar ánægðir með árang-
ur ferðarinnar.
Július
'
Skútan „Vagabond**, farartæki franska leiðangursins, í höfn á
Akranesi. Ljósm. Július Þóröarson.
Málverkasýning íAsmundarsal
INGVAR Þorvaldsson opnar málverkasýningu í dag,
laugardaginn 22. september, kl. 16 í Ásmundarsal við
Freyjugötu. Sýningin er opin frá kl. 16 til 22 daglega en
henni lýkur 30. september. Á sýningunni eru 40
vatnslitamyndir. Þetta er 9. einkasvning Ingvars.
Ristu Herstöðvaandstæðingum níðstöng:
„Tilefnið er óskin um
fækkun á grjótköstur-
um og hrossaníðingum
„TILEFNI þessarar níðstangar er óskin um fækkun á grjótkösturum
og hrossaniðingum. Sjaldan hafa jafn fáir skemmt svo mörgum jafn
lítið,“ segir í texta á niðstöng sem nokkrir nemendur i Menntaskólan-
um við Hamrahlið ristu Herstöðvarandstæðingum i gær.
Á níðstönginni er einnig þessi
texti: „Er níðstöng fyrirboði? Áð-
ur en Járnblendiverksmiðjan var
reist, ristu andstæðingar hennar
níðstöng. En upp reis Járnblendið
með Hjörleif iðnaðarráðherra í
fylkingarbrjósti. Gegn NATO-
herskipunum ristu andstæðingar
þeirra níðstöng. Á henni trónaði
blóði drifinn hrosshaus; vanvirð-
ing við þarfasta þjón Islendinga
um aldir. Eru þeir nú að panta
hingað NATO-flotastöð?“
Morgunblaðið í gær og sögðu að
tilefnið hefði í raun verið, að gera
gys að Herstöðvaandstæðingum í
skólanum sem þekktust af mynd-
um úr ólátunum í Sundahöfn.
Níðstöng þessi vakti mikla at-
hygli nemenda skólans og margir
veltu því fyrir sér hverjir staðið
hefðu fyrir þessu athæfi. „Huldu-
mennirnir" höfðu þó samband við
INNLENT
Dregið í happdrætti Hjartaverndar
DREGIÐ hefur verið í Happ-
drætti Hjartaverndar 1979 hjá
borgarfógetanum í Reykjavík, eft-
irtalin númer hlutu vinning:
1. Chevrolet Citation nr. 28863
2. Lada Sport nr. 75793
3. -32. Þrjátíu eitt hundrað þús-
und króna vinningar komu á miða
nr. 1635, 3940, 4285, 4855, 7830,
11139, 12526, 15913, 16199, 22087,
22149, 24690, 36993, 38977, 46699,
48190, 55491, 67464, 73,417, 74266,
76303, 85043, 85043, 85061 85106,
98168, 98551, 109242, 111594,
111773,111798.
Vinninga má vitja á skrifstofu
Hjartaverndar að Lágmúla 9, 3.
hæð.