Morgunblaðið - 22.09.1979, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979
27
Djáknavígsla í
Grensáskirkju
Á morgun vígir biskup íslands,
hr. Sigurbjörn Einarsson, örn
Bárð Jónsson til djáknaþjónustu
i Grensássöfnuði í Reykjavík. Er
það öðru sinni sem biskup vígir
djákna, hið fyrra skipti er Einar
Einarsson var vígður til starfs í
Grímsey.
örn Bárður Jónsson er tæplega
þrítugur að aldri og hefur að
undanförnu starfað sem fulltrúi
við Útvegsbanka íslands í Kefla-
vík. Sagði hann að starf hans yrði
einkum fólgið í aðstoð við sóknar-
prestinn, sr. Halldór S. Gröndal,
m.a. við altarisgöngur, sálgæzlu
og síðan ýmiss konar safnaðar-
starf, m.a. predikunarstörf og
mætti kannski segja að hann væri
eins konar hægri hönd prestsins.
Sóknarnefnd Grensássóknar hefur
kallað Örn Bárð til djáknastarfs-
ins, en það verður fyrst um sinn
ólaunað og vinnur hann það með-
fram sínu aðalstarfi, en hugsan-
legt er að það verði aukið og þá að
einhverju leyti launað þegar fram
i sækir. Kona hans er Bjarnfríður
Jóhannesdóttir og eiga þau fjögur
börn. Hafa þau hjónin verið mjög
virk í samtökunum Ungt fólk með
hlutverk, sem starfað hefur innan
vébanda Grensássafnaðar.
Afmælissýning
TÍU ára afmælissýning félagsins íslensk grafík
stendur nú yfir í Norræna húsinu. Sýning sem var
opnuð 15. september sl. stendur til sunnudagsins 30.
september og er opin daglega frá kl. 14 til 22. Sautján
listamenn eiga verk á sýningunni en sams konar
sýning er einnig í Finnlandi um þessar mundir og
mun síðan verða sett upp í 12 borgum á Norðurlönd-
unum.
Ritsafnið um heimsstyr jöldina
„Leifturstríðið komið
út hjá Bókaklúbbi AB
BÓKAKLÚBBUR Almenna bóka-
félagsins hefur sent frá sér aðra
bókina í ritsafni sínu um síðari
heimsstyrjöldina. Nefnist hún
Leifturstríð og er eftir Robert
Wernick — rithöfund búsettan í
París, sérfræðing í sögu síðari
heimsstyrjaldarinnar í Evrópu.
Þýðandi er Björn Jónsson.
Leifturstríð segir í máli og
myndum frá gangi styrjaldarinn-
ar í Evrópu frá því hún brauzt út í
september 1939 og fram í júní
næsta ár. Á þessum tíma flæddi
vélvæddur herafli Þjóðverja yfir
hvert landið á fætur öðru án þess
að bandamenn fengju rönd við
reist. Bretar og Frakkar voru
búnir undir „hefðbundið" stríð
með sæmilega stöðugum víglínum,
en Þjóðverjar koma þeim í opna
skjöldu með hraðfara brynsveit-
um studdum öflugum og full-
komnum flugher.
Leifturstrið hefst á safni ljós-
mynda af viðbrögðum almennings
víða í Evrópu þegar fréttist að
stríð væri skollið á. Síðan er lýst
upphafi stríðsins: Innrás Hitlers í
Pólland og viðbrögðum banda-
manna, sókn Þjóðverja á vestur-
vígstöðvunum yfir Belgíu, Hol-
land, Luxemburg og Frakkland,
naumri undankomu brezka hers-
ins í Dunkirk og falli Frakklands.
Auk mynda af þessum átökum og
af ýmsum vígvélum eru m.a.
syrpur mynda af frægum flótta-
mönnum undan valdi nazista, af
fyrstu viðbrögðum Bandaríkja-
manna við styrjöld í Evrópu, af
listum undir ríkisforsjá Þriðja
ríkisins, og í bókarlok er röð
mynda af frægri skoðunarferð
Hitlers um París eftir fall borgar-
innar.
Leifturstríð er 208 bls. að
stærð. Textinn er settur í Prent-
stofu G. Benediktssonar, en bókin
er prentuð i Toledo á Spáni.
Veitinga-
menn ræða
um aðild
aðVSÍ
Á nýlegum aðalfundi Sambands
veitinga og gistihúsaeigenda var
m.a. rætt um aðild sambandsins
að Vinnuveitendasambandi
íslands og segir í frétt frá
sambandinu að sú skoðun eigi
vaxandi fylgi meðal veitinga-
manna að ekki sé lengur rétt að.
standa utan heildarsamtaka
vinnumarkaðarins.
„Veitingahús búa enn við það
óréttlæti að matarsala þeirra er
söluskattskyld meðan öll önnur
matarsala í landinu, þ.e. í mat-
vöruverzlunum og mötuneytum, er
undanþegin söluskatti. Margítrek-
uðum beiðnum til fjármálaráð-
herra um leiðréttingu hefur enn
ekki verið sinnt," segir einnig í
frétt sambandsins og ennfremur:
„Á undanförnum árum hefur
færzt í aukana, að orlofshús
verkalýðshreyfingarinnar séu
leigð út yfir vetrarmánuðina til
funda og ráðstefnuhalds. Þessi
starfsemi, sem er utan við ætlun-
arverk orlofsbyggðanna og engan
fjármagnskostnað þarf að bera,
tekur viðskipti frá landsbyggðar-
hótelunum. Þau þurfa hins vegar
á þeim að halda til stuðnings við
þá þjónustu, sem veitt er gestum
og gangandi á erfiðum árstímum.
Er þarna í raun komin viðbót við
starfsemi félagsheimilanna, sem
alls staðar eru rekin við önnur
skilyrði hvað fjármagn, eftirlit og
skattaálögur snertir en almennur
veitingarekstur, en þó í samkeppni
við hann.“
Stjórn sambandsins var end-
urkjörin og skipa hana: Bjarni I.
Árnason, formaður, Einar 01-
geirsson, Emil Guðmundsson, Jón
Hjaltason, Skúli Þorvaldsson,
Steinunn Hafstað og Tómas Guð-
mundsson. Framkvæmdastjóri er
Hólmfríður Árnadóttir.
4IMNLEN"T
Fundur í
FEF um
dagvistar-
málámánu-
daginn
FÉLAG einstæðra foreldra heldur
fyrsta almcnna félagsfund sinn á
haustinu á Hótel Esju 2. hæð mánu-
daginn 24. sept. og hefst hann ki.
20.30. Á fundinum munu flytja
stutt framsöguerindi um dag-
vistunarmál Gerður Steinþórsdótt-
ir, form. Félagsmáiaráðs, Bergur
Felixson, frkv., fulltrúi frá Samtök-
um dagmæðra og fulltrúar frá
Félagsmálastofnunum Kópavogs og
Hafnarfjarðar. Að þeim loknum
munu gestir fundarins ganga milli
borða og ræða við félaga og svara
spurningum. Stjórnin bendir á að
nýir félagar cru velkomnir og
hvetur til að menn mæti vel og
stundvislega þar sem hér er um
mikiisháttar mál að ræða mörgum
einstæðum foreldrum.
Geta má þess að alveg á næstunni
er að oma út postulinsplatt FEF,
sem gefinn er út i tilefni tiu ára
afmælis þess i nóvember og vegna
barnaárs. Baltasar gerði plattann,
ljóðlinur á honum eru eftir Jakob-
inu Sigurðardóttur og Gler og
postulin framleiddi.
Busavígsla fór fram í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti s.l. miðvikudag. Yngstu nemendur skólans voru þá
formlega teknir í nemendatölu og sáu elstu bekkingar skólans um þá athöfn með tilheyrandi látum. Lj^m: GuAjón.