Morgunblaðið - 22.09.1979, Qupperneq 48
\ Sími á afgreióslu:
83033
JVIvrBnnblnbib
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979
Finnska fyrirtækið Neste
er reiðubúið til viðræðna
um olíusölu til íslands
FINNSKA fyrirtækið Neste sendi í gær Jóhannesi Nordal formanni oliuviðskiptanefndar skeyti, þar sem
fyrirtækið lýsti sijf reiðubúið til samningaviðræðna um oliusölu til tslands og þá ekki aðeins þannig, að við
útvegum hráoliu, sem yrði hreinsuð hjá Neste, heldur kveðst fyrirtækið einnig afiögufært með olíu, sem það
hingað til hefur selt á Rotterdamverði, en er jafnframt reiðubúið til viðræðna um langtimasamning og þá með
breyttri verðmiðun.
Fyrst þegar olíuviðskiptanefnd
kannaði möguleikana hjá Neste
lýsti fyrirtækið sig strax reiðubúið
til að hreinsa fyrir okkur olíu. Síðar
lýsti forstjóri þess, Uolevi Raade,
því yfir í samtali við Davíð Schev-
ing Thorsteinsson, formann
íslenzkra iðnrekenda, að Neste
hefði áhuga á frekari olíuviðskipt-
um við ísland, eins og Davíð lýsti í
samtali við Mbl.
Olíuviðskiptanefnd sendi svo
skeyti til Raade, þar sem spurzt var
ákveðið fyrir um möguleikana og
barst svarskeytið í gær, sem fyrr
segir. Er Neste reiðubúið til við-
ræðna um að annars vegar kaupum
við hráolíu t.d. af rússum og Neste
hreinsi hana. Gefur fyrirtækið kost
á viðræðum um að við annaðhvort
tökum allt það, sem út kemur, en
það myndi þýða að við sætum til
dæmis uppi með meiri svartolíu en
við þurfum en vantaði meira
bensín, eða að þannig semdist að
Neste reyndist okkur hjálplegt við
að losna við umframmagn og útveg-
un þess, sem við þyrftum til viðbót-
ar af vissum tegundum.
Einnig kveðst Neste reiðubúið til
viðræðna um að fyrirtækið selji
okkur umframolíu sína; bensín,
dísilolíu og svartolíu. Þessa olíu
selur Neste nú á Rotterdammarkaði
og er okkur gefinn kostur á að
ganga inn í slík kaup, eða að um
langtímasamning verði að ræða og í
því tilfelli er fyrirtækið reiðubúið
til viðræðna um breytta verðmiðun.
LIU
bann
STJÓRN LlÚ hefur gert
það að tillögu sinni, að á
timabilinu frá 10. júlí til
15. ágúst á næsta ári verði
algjört þorskveiðibann. Á
stjórnarfundi Lands-
sambands íslenzkra
útvegsmanna á miðviku-
daginn var samþykkt að
ganga til samstarfs við
stjórnvöld um mótun fisk-
veiðistefnu fyrir næsta ár,
sem taki gildi strax um
áramótin, en sé ekki
ákveðin einhvern tíma á
árinu.
Að sögn Kristjáns Ragnarssonar
samþykkti LÍÚ tillögur um tak-
markanir þorskveiða á þessu ári í
aprílmánuði síðastliðnum á grund-
velli þess, að það væru endanlegar
ákvarðanir um fiskveiðistefnu fyr-
ir þetta ár. LÍÚ getur þess vegna
ekki fallist á frekari takmarkanir á
árinu nema eins og í fyrra, þ.e. 21
dags þorskveiðibann á togurunum
leggur til þorskveiði-
í 37 daga næsta sumar
á tímabilinu frá 15. nóvember tii
áramóta og þorskveiðibann
bátaflotans frá 20. desember til
áramóta, sagði Kristján Ragnars-
son.
Eins og fram hefur komið í
fréttum hefur sjávarútvegsráð-
herra Kjartan Jóhannsson rætt við
hagsmunaaðila í sjávarútvegi um
frekari takmarkanir á árinu. Um
síðustu mánaðamót var þorskafl-
inn á árinu orðinn 17.100 lestum
meiri en á sama tíma í fyrra, en
stefnt var að því að þorskafli þessa
árs yrði um 40 þúsund tonnum
minni í ár, en hann varð í fyrra.
Sjá nánar blaðsíðu 26 LÍÚ féllst
ekki á frekari . . .
Þessi voldugi hákarl kom nýlega i vörpuna hjá Ingólfi Arnarsyni,
þegar togarinn var á veiðum útaf Vikurál. Hákariinn mældist um
6 metrar en hákarlar geta orðið 8 metra langir. Það er Valur
Kristinsson háseti sem gerir þarna að hákarlinum.
Ljósm.: Bjarni Guðmundsson.
Kaupmáttur verkamannakaups lækkar:
Er tveimur stigum lægri
en hann var í marz 1978
I nóvember verður hann 5,9 stigum lægri
KAUPMÁTTUR verka- I niður í 108,9 stig og er nú
mannakaups var nú í tveimur stigum lægri, en
ágústmánuði kominn | hann var í marz 1978, er
Vladimir Bukovsky
kemur til íslands
VLADIMIR Bukovsky, hinn
hcimskunni sovézki andófsmað-
ur, kemur til Reykjavíkur 6.
október næstkomandi. Hann
dvelst hér á landi í nokkra
daga, en hingað kemur hann i
boði Samtaka um vestræna sam-
vinnu. Bukovsky talar á
almennum fundi, sem samtökin
efna til ásamt Varðbergi að
Hótel Sögu sunnudaginn 7.
október.
Mál Bukovsky vakti heimsat-
hygli er Sovétstjórnin féllst á að
láta hann lausan úr fangelsi og
sleppa honum úr landi gegn því að
stjórnin í Chile sleppti kommún-
istaleiðtoganum Luis Corvalan og
leyfði honum að fara til Sovétríkj-
anna. Áttu þessi einstæðu fanga-
skipti sér stað í Sviss, en auk
Vlaidmir Bukovskys sjálfs fengu
móðir hans, systir og systursonur
að fyigja honum úr landi. Móðir
Bukovskys og systir hafa setzt að í
Vladimir Bukovsky
Sviss, en Vladimir Bukovsky hefur
lengst af dvalist í Cambridge þar
sem hann stundar nám í líffræði.
Bukovsky var fyrst handtekinn er
hann var 18 ára að aldri, en þá
hafði hann staðið fyrir ljóðalestri
á Majakovskí-torgi í Moskvu.
Hann var rekinn úr skóla, var
misþyrmt af KGB-mönnum og
tveimur árum síðar var hann
dæmdur án réttarhalda til vistar í
fangelsissjúkrahúsi í Leningrad,
en þar voru fjölmargir pólitískir
fangar. Upp frá því. var líf hans
samfelld barátta við sovézk yfir-
völd og árum saman sat hann í
Ljúbjanka-fangelsinu illræmda í
Moskvu. Stopulum stundum utan
fangelsismúranna varði hann að
mestu til andófsaðgerða, vitandi
að slíkt leiddi óhjákvæmilega til
nýrrar fangelsunar.
Áður en sovézk yfirvöld féllust á
fangaskiptin hafði heilsu Bu-
kovskys hrakað mjög og var jafn-
vel óttazt um líf hans, en linnu-
lausar tilraunir til að fá hann
látinn lausan á þeirri forsendu
urðu árangurslausar.
Nýlega kom út bók, sem Vladi-
mir Bukovsky hefur skrifað um
lífsreynslu sína, en titill bókarinn-
ar er „To Build a Castle".
svokölluð febrúarlög
höfðu tekið gildi. Þá var
kaupmáttur verkamanna
110,9 stig. Fyrirsjáanlegt
er nú að þessi sami kaup-
máttur verðu í nóvember
kominn niður í 105 stig.
Kaupmátturinn er miðaður við
100 árið 1971. í febrúar 1978 var
hann 109,4 stig og í marz eins og
áður sagði, er febrúarlögin höfðu
tekið gildi var hann kominn í 110,9
stig. Þegar komið var fram í júní
1978 var kaupmáttur verka:
mannakaups kominn í 118,8 stig. í
júnímánuði þessa árs var kaup-
máttur þessi 114,4 stig og nú í
ágúst var hann eins og áður sagði
108,9 stig.
Við vísitöluhækkun launa nú 1.
september mun kaupmátturinn
hafa hækkað eitthvað í bili, en ef
tekið er tillit til allra þeirra
verðlagshækkana, sem dunið hafa
yfir að undanförnu, svo sem
hækkun söluskatts, hækkun vöru-
gjalds og nú síðast hækkun bú-
vara, mun sú hækkun hafa horfið
með öllu. Það er mat kunnugra, að
kaupmáttur verkamannakaups
verði í nóvembermánuði kominn í
105 stig.
Benzínið hækkar
í 353 krónur í dag
RÍKISSTJÓRNIN hefur
staðfest samþykkt verð-
lagsnefndar um hækkun á
benzíni og svartolíu og
taka nýju verðin gildi frá
og með deginum í dag.
Benzínlítrinn hækkar úr
312 í 353 krónur en tonnið
af svartolíu hækkar úr
67.200 í 89.300 krónur.
örn Guðmundsson aðstoðar-
framkvæmdastjóri Olíuverzlunar
íslands hf. sagði í samtali við Mbl. í
gær að verðlagsnefndin hefði við
verðákvörðunina ekki reiknað með
jafn miklu gengissigi og olíufélögin
og einnig hefði ekki verið tekin til
greina ósk olíufélaganna um hækk-
un magnálagningar en hún hefur
ekki breytzt í tæpt ár. Benzínið
hækkar því minna en olíufélögin
vildu, en þau töldu nauðsynlegt að
hækka benzínlítrann í 379 krónur.