Morgunblaðið - 20.11.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1979
Kaupfélag Rang-
æinga sextugt
KAUPFÉLAG Rangæinga á Hvolsvelli með útibúi á
Rauðalæk er 60 ára í dag. Fyrrum daga voru verzlanir á
öðrum stöðum í héraðinu. Núverandi kaupfélagsstjóri
er Ólafur ólafsson og hefur hann gegnt því starfi síðan
1965.
Hinn 1. október 1930 var opnað
útibú í Hvolsvelli. ísleifur Ein-
arsson var útibússtjóri og fór
hann niður að Vestri-Garðsauka
til að gista því ekkert hús var þá í
Hvolsvelli annað en búðin.
Vorið 1933 voru svo aðalstöðv-
arnar fluttar frá Hallgeirsey í
Hvolsvöll og nú starfa hjá Kaup-
félagi Rangæinga 160—170
manns. Arið 1930 var stofnað
Kaupfélag Rangæinga að Rauða-
læk fyrir útsýsluna, kaupfélags-
stjóri var Helgi Hannesson.
Kaupfélag Rangæinga og Kaup-
félag Hallgeirseyjar voru samein-
uð 1. júlí 1948, síðan ber félagið
nafnið: Kaupfélag Rangæinga með
útibúi að Rauðalæk, þar sem
byggt hefur verið myndarlega yfir
starfsemina. Á vordögum árið
1957 var opnuð stórglæsileg verzl-
un og skrifstofur í Hvolsvelli. Var
það með fyrstu kjörbúðum á
Islandi, síðan hefur þetta hús
verið stækkað og breytt eftir
kröfum tímans, og er nú verið að
ljúka við stækkun á því, sem er
255 fermetra bygging á tveimur
hæðum eða alls 510 fermetrar.
Á Hvolsvelli rekur félagið um-
fangsmikla verzlun, sem skiptist í
nokkrar deildir. Hinar helstu eru:
matvörudeild, vefnaðarvörudeild,
byggingarvörudeild, pakkhús, bú-
vélasala, varahlutaverzlun og
söluskáli, þar sem seldar eru
ferðamannavörur, bensín og olíur.
Á Hvolsvelli rekur félagið um-
fangsmikinn þjónustuiðnað, svo
Víetnamarnir;
Umhleyp-
ingar og
kvef hrjá
mann-
skapinn
„ÞAÐ ER einvörðungu
hin umhleypingasama
veðrátta og kvef sem
raskar ró Víetnam-
anna síðan þeir flutt-
ust til landsins,“ sagði
Björn Þórleifsson hjá
Rauða krossi íslands í
samtali við Mbl. þegar
hann var spurður að
því hvernig Víetnöm-
unum reiddi af.
„Krakkarnir hafa verið
með kvef og nokkur veik-
indi hafa fylgt því, en þeir
sem vinna gengur vel og
það er látið vel af þeim.
Þá gengur fólkinu vel að
læra íslenzku," "agði
Björn og nefndi sem dæmi
að þegar hann spurði með
aðstoð kínverskumælandi
túlks hvar einn Víetnam-
inn hefði fengið hlut sem
hann var með þá hafði sá
sami snúið sér beint að
honum og sagt á íslenzku:
Ég fór út að dansa og
íslendingur gaf mér þetta.
„Vinna fólksins og nám
gengur vel,“ sagði Björn,
„en fólkið býr þröngt og á
erfitt um vik á margan
hátt. Það vantar því
leiguíbúðir fyrir fólkið og
við erum að leita að þeim.
En það er greinileg harka
í þessu fólki að koma sér
áfram í námi og vinnu."
sem bifreiðaverkstæði, vélsmiðju,
trésmiðju, rafvélaverkstæði og
raflagnir. Kaupfélagið annast
mikla vöruflutninga og á myndar-
legan vörubílakost, sem flytur
vörur og olíur til félagsins og
dreifir þeim um verslunarsvæði
þess.
Á síðustu árum hefur félagið
byggt upp framleiðsluiðnað á
Hvolsvelli, þar á meðal húsgagna-
verksmiðju, sem framleiðir fjöl-
breytt húsgögn, aðallega til heim-
ilisnota, prjónastofu sem fram-
leiðir ullarvoðir, saumastofu sem
framleiðir aðallega fatnað úr ull-
arvoðum til útflutnings og sauma-
stofu, sem framleiðir fatnað úr
mokkaskinnum.
Jónas Ingimundarson
á hádegistónleikum
SJÖUNDU hádegistónleikar
Söngskólans á þessum vetri
verða á morgun. miðvikudag, í
Tónleikasal skólans og hef jast kl.
12:10. Jónas Ingimundarson
pianóleikari flytur þá tvær pól-
Jónas Ingimundarson
píanóleikari
ynesur op. 40 eftir Chopin, ung-
verska rapsódíu nr. 11 eftir Liszt
og sónötu eftir Ginastera.
Jónas Ingimundarson stundaði
nám við Tónlistarskólann í
Reykjavík og framhaldsnám við
Tónlistarháskólann í Vínarborg.
Eftir að heim kom kenndi hann
við Tónlistarskólann á Selfossi og
var þar skólastjóri, en kennir nú
við Tónlistarskólann í Reykjavík
og Tónmenntaskólann.
Jólafundur Samtaka sykursjúkra í kvöld
SAMTÖK sykursjúkra efna til
jólafundar síns í Domus Medica í
dag, þriðjudag, og hefst hann kl.
20:30. Meðal efnis er erindi dr.
Jóns Óttars Ragnarssonar,
Kristinn Hallsson syngur og
Svavar Gestsson stjórnar jóla-
happdrætti.
Á fundinum verður afhentur
jólapappír, kort og merkimiðar
til sölu, en það er liður í
fjáröflun samtakanna. Hefur
þegar verið ákveðið að verja
tekjum af sölunni til tækjakaupa
fyrir göngudeild og stefnt er að
stofnun styrktar— og vísinda-
sjóðs innan samtakanna. Þeir
félagar, sem ekki komast á
fundinn, geta snúið sér til gjald-
kera félagsins vilji þeir aðstoða
við söluna.