Morgunblaðið - 20.11.1979, Blaðsíða 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1979
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1979
25
Fyrirliði HK Hilmar Sigurgisla son reynir gegnumbrot i leik FH og HK. Hilmari var vikið af
leikvelli og á yfir höfði sér leikbann. Ljósm. Rax.
HK varð FH
hindrun
Lið HK sótti ekki gull í greipar
FH í Hafnarfirði á laugardag er
liðin mættust í 1. deildinni i
handknattleik. FH sigraði örugg-
lega i leiknum sem var langt frá
því að vera vel leikinn. Lið HK
lék nú mun verr en það gerði á
móti ÍR i fyrsta leik sínum i
mótinu. Og ekki var leikur FH
neitt til að hrópa húrra fyrir.
Bæði liðin gerðu sig sek um mörg
mistök þó sérstaklega leikmenn
HK sem léku oft á tiðum eins og
hreinir byrjendur. Má liðið taka
sig mikið á ef það ætlar sér að
halda sér i 1. deildinni.
Gangur leiksins:
HK náði forystunni í leiknum,
enda var ekki vandasamt að koma
boltanum fram hjá vörn og mark-
verði FH, Sverri Kristinssyni, í
byrjun leiksins. Eftir 8. mínútna
leik var staðan 4—2 fyrir HK!
Leikur FH-inga varð smátt og
smátt beittari og á 15. mínútu
fyrri hálfleiksins höfðu þeir náð
eins marks forystu, 6—5.
Juku þeir síðan forskot sitt í
10—6, en á þeim tíma átti HK
fjölda misheppnaðra sendinga og
mörg færi þeirra fóru forgörðum á
hinn klaufalegasta hátt. Staðan í
S" 23=17
hálfleik var 11—9 FH-ingum í
hag.
FH byrjaði síðari hálfleikinn af
krafti og náði fjögurra marka
forskoti og úr því var sigur þeirra
aldrei í hættu. Síðari hálfleikur
fór mikið í alls kyns óþarfa brot
og pústra milli leikmanna og bauð
leikurinn ekki upp á mikla
skemmtun fyrir þá rúmlega 200
áhorfendur sem leikinn sóttu. Þó
lifnaði aðeins í kolunum í lokin
þegar dómararnir gerðu þau leiðu
mistök að hefja leikinn, þegar
Kristján Þór Gunnarsson einn
skásti leikmaður HK var borinn af
velli eftir meiðsli er hann hlaut,
eftir að hafa lent saman við einn
meðspilara sinn. Tveir leikmenn
HK hjálpuðu við að bera hann af
vellinum og fyrir vikið voru HK
menn tveimur færri er FH skoraði
mark. Hilmar Sigurgíslason mót-
mælti þessu harðlega en var vikið
af velli fyrir bragðið. Strangur
dómur.
engin
Liðin:
Lið FH lék nú mun verr en á
móti Val á dögunum. Allan hraða
og léttleika vantaði í leikinn og
varnarleikurinn var ekki sterkur
þó svo að það hefði ekki komið að
sök að þessu sinni. Pétur Ingólfs-
son var besti maður liðsins að
þessu sinni. Hjá HK var Ragnar
i Ólafsson skástur og var mjög
öruggur í vítaköstum. Mikið mun-
aði um, að Einar Þorvarðarson
markvörður liðsins virtist ekki
finna sig og lék langt undir getu.
I stuttu máli: íslandsmótið 1.
deild íþróttahúsið Hafnarfirði.
FH-HK: 23-17 (11-9)
Mörk FH: Pétur Ingólfsson 5,
Kristján Arason 5(4v), Valgarð
Valgarðsson 3, Guðmundur Magn-
ússon 3, Sæmundur Stefánsson 2,
Geir Hallsteinsson 2, Eyjólfur
Bragason, Hafsteinn og Magnús
allir 1 mark hver.
Mörk HK: Ragnar Ólafsson 8
(6v), Hilmar Sigurgíslason 3,
Kristján Gunnarsson 3 (1 v),
Bergsveinn Þórarinsson 1, Krist-
inn Ólafsson 2.
Brottvísun af leikvelli: Pétur
Ingólfsson í 4 mín. og Guðmundur
Magnússon FH í 2 mín. Hilmari
Sigurgíslasyni vikið af leikvelli
fyrir fullt og allt og á yfir höfði
sér leikbann.
Dómarar: Óli Olsen og Björn
Kristjánsson og dæmdu þeir leik-
inn sæmilega. — Þr.
EYja-Þór í kennslustund
Það er ótrúlegt að Þór frá
Vestmannaeyjum hafi verið feti
frá þvi að komast i 1. deild á
siðasta keppnistímabiii. Ótrúlegt
ef horft er á leiki liðsins nú.
Auðvitað hefur margt gerst siðan
i fyrra, félagið hefur misst lyk-
ilmenn og svo er að sjá sem
enginn sé fær um að fylla þau
skörð sem Hannes Leifsson og
Andrés Bridde skildu cftir sig.
Ekki enn a.m.k. Þór hrá sér upp
á fastalandið um helgina og var
þar tekinn í kennsjustund i
handknattleik af liði Ármanns i
2. deild íslandsmótsins i hand-
bolta, lokatölur urðu 30—15
Ármanni i hag, eftir að staðan i
hálfleik hafði verið 16 — 4.
Svo sem sjá má af framansögðu,
er ekki ástæða til að eyða plássi í
gang leiksins, hann er ljós, en
mestur varð munurinn 15 mörk
þegar lokatölurnar blöstu við.
tTT 30:15
Síðari hálfleikur hefur endað
14-11.
Hjá Þór báru tveir leikmenn af,
þeir Ásmundur Friðriksson og
Ragnar Hilmarsson, en þetta ber
ekki að skilja sem svo að þeir hafi
átt flekklausan leik, það átti
enginn í liði Þórs. Liðið virðist
skorta flest þessa dagna, skipulag
í vörninni, án þess mega mark-
verðirnir sín lítils þó að góðir séu.
Þá var sóknarleikur Þórs lengst af
ein allsherjarleikleysa. Þáttur
Sigmars í marki Þórs var ein-
kennilegur. Hvað eftir annað átti
hann ekkert svar er leikmenn
Ármanns komu æðandi inn í
vítateiginn, en þegar að vítaköst-
unum kom, varði hann tvö afar
auðveldlega og það þriðja fór í
stöng.
Ætti að nefna besta mann
Ármanns, kemur nafn Þráins
Ásmundssonar upp í hugann. Auk
hans voru mjög góðir markverð-
irnir Heimir og Einar. Flestir
Ármenninga lögðu auk þess sitt af
mörkunum, léku upp til hópa vel.
Mörk Ármanns: Björn Jó-
hannesson 7(3 víti) Þráinn
Ámundsson 7, Friðrik Jóhannes-
son 6, Jón Viðar 4, Smári Jósa-
fatsson og Valur Valsson 2 hvor,
Einar Þórhallsson, Bragi Sigurðs-
son og Kristinn Ingólfsson eitt
hver.
Mörk Eyja-Þórs: Ásmundur
Friðriksson 6(2 víti), Ragnar
Hilmarsson 4, Herbert Þorleifsson
2, Haraldur Óskarsson, Guðmund-
ur Jensson og Gestur Matthíasson
eitt mark hver. — gg.
Víkingarnir bitu
í skjaldarrendurnar
Víkingur:
Haukar
25:17
VÍKINGUR var ekki í miklum
vandræðum eð að sigra Hauka í
íslandsmótinu i handknattleik,
en liðin öttu kappi í Laugardals-
höllinni á sunnudagskvöldið. Á
sjöunda hundrað áhorfendur
urðu vitni að snarpri viðureign,
en engum gat dulist hvort liðið
var betra og hvar sigurinn mundi
hafna. Haukunum var af mörg-
um spáð miklum frama í vetur,
en svo er að sjá, að ekkert verði
úr. Liðið hefur verið ósannfær-
andi í tveimur fyrstu leikjum
sínum i haust og átti varla
nokkurn tíma möguleika gegn
Víkingi. Lokatölur leiksins urðu
25—17 Víkingi í vil, átta marka
sigur, en staðan i hálfleik var
heldur jafnari, 11—9 fyrir Vik-
ing.
Það leit sannarlega ekki út fyrir
spennandi leik í byrjun, Víkingar
komust snarlega í 3—0 og síðan
4—1, burst í aðsigi. Haukarnir
voru samkvæmt þessu seinir í
gang, en þeir slepptu Víkingi
a.m.k. ekki lengra frá sér strax.
Söxuðu Haukarnir smám saman á
forskot Víkings og tókst loks að
jafna þegar staðan var 7—7. 7
mínútur voru til leikhlés og
skömmu áður hafði Hörður Harð-
arson látið verja hjá sér víti, en
Haukar héldu boltanum og Þor-
geir Haraldsson jafnaði. Ólafur
Jónsson skoraði fyrir Víking, en
Sigurgeiri Marteinsson jafnaði
enn og voru nú stangarskot á báða
bóga og mikið fjör í leiknum.
Víkingar tóku á sig rögg, skoruðu
tvö í röð, Haukar svöruðu, en
VKingar áttu síðasta orðið, 11—9 í
hálfleik.
Víkingar virtust vera að stinga
af snemma í síðari hálfleik, en
þeir náðu þá fljótlega fjögurra
marka forystu, 14—10. Haukarnir
minnkuðu muninn með tveimur
mörkum í röð, 14—12, en þá kom
leikkafli hjá Víkingum sem gerði
endanlega út Um leikinn. Á sex
mínútum skoruðu Víkingarnir 7
mörk gegn einu og breyttu stöð-
unni úr 14—12 í 21—13 og var þá
ekkert gaman að þessu lengur.
Það sem eftir var leiksins skiptust
liðin á um að skora og lokatölur
urðu eins og áður sagði 25—17.
Víkingsliðið átti mjög góðan
leik að þessu sinni, gerði ekki þau
mistök að vanmeta Haukana, það
hefði auðvitað verið út í hött.
Leikmenn liðsins gengu ákveðnir
til leiks og slökuðu ekki á í lokin
þó að sigurinn væri í höfn. Vörnin
var sterk, svo og markvarslan og í
sókninni gengu kerfin upp, eða þá
að leikmenn skoruðu upp á eigin
• ólafur Jónsson æðir inn úr vinstra horninu, og
skorar, Ljósm. RAX.
Léttur sigur Fylkis
FYLKIR var ekki í vandræðum
með lið UMFA i leik liðanna i 2.
deild að Varmá í Mosfellssveit á
sunnudag. Leiknum lauk með sjö
marka sigri Fylkis, 24—17, eftir
að staðan hafði verið 10—6 í
hálfleik. Þrátt fyrir að sigur
Fylkis væri stór og sanngjarn
sýndi Iið Aftureldingar ágæta
leikkafla og er ekki nokkur vafi
á að liðið á eftir að spjara sig vel
í 2. deildinni i vetur. Lengi
framan af leiknum gátu þeir
haldið í við Fylki og veitt liðinu
verðuga keppni. Fylkismenn
höfðu samt yfirburði og aldrei
var neinn vafi á hvorum megin
sigurinn lenti.
Það var sérstaklega í síðari
hálfleiknum sem lið Fylkis fór að
síga verulega fram úr og skoraði
þá hvert markið af öðru án þess að
UMFA fengi rönd við reist. Mesti
munur á liðunum í síðari hálf-
leiknum var 10 mörk.
Bestu menn i annars frekar
jöfnu Fylkisliði voru þeir Jón
Gunnarsson markvörður og Gunn-
ar Baldursson og Guðni Hauksson
Fylkir:
UMFA
24-17
sem var tekinn úr umferð um tíma
í leiknum. Hjá UMFA var Gústaf
bestur en margir sýndu góða
takta. I liðinu leika Emil Karlsson
fyrrverandi landsliðsmarkvörður
en hann er greinilega langt frá því
að vera í góðri æfingu. Þá var
Björn Bjarnason fyrrum leik-
maður með Víkingi og bróðir
Péturs þjálfara Fylkismanna
drjúgur og sýndi að lengi lifir í
gömlum glæðum.
Mörk Fylkis: Guðni Hermanns-
son 5, Gunnar Baldursson 5, Ás-
mundur Kristinsson 3, Magnús
Sigurðsson 3, Guðmundur Krist-
insson 3, Ragnar Hermannsson 2,
Óskar Ásgeirsson 2, Einar
Ágústsson 1.
Mörk UMFA: Gústaf 4, Björn 4,
Lárus 4, Þórður 2, Ingvar, Sigur-
jón og Steinar 1 mark hver. Og
Þórður með 2. -þr
spýtur, en liði Víkings tekst ágæt-
lega að samræma kerfisbundinn
handbolta og frjálsa aðferð. Þá
skoraði liðið að venju mikið úr
hraðaupphlaupum, ekki síst í hin-
um umrædda leikkafla þegar
Haukunum var endanlega sökkt.
Varla er hægt að gera upp á milli
manna í liði Víkings að þessu
sinni, svo sterk var liðsheildin.
Steinar var áberandi í leiknum,
skoraði mikið af mörkum með
þrumuskotum, þá voru Þorbergur
og Árni Indriðason mjög góðir, en
Erlendur er kannski sá sem leikur
eitthvað undir getu þessa dagana.
En ekki svo að liðið líði fyrir það.
Kristján og Jens skiptust á í
markinu og stóðu sig báðir vei.
Haukarnir voru einkennilega
taugaslappir framan af, mjög oft
lauk sóknarlotum þeirra á þann
hátt, að einhver greip ekki knött-
inn sem fór þar af leiðandi
rakleiðis út af vellinum eða í
hendur Víkinga. Sóknarleikurinn
var einhæfur og byggðist of mikið
á að Andrés gerði einhverjar
kúnstir. Andrés var besti maður
Hauka ásamt Ólafi markverði,
hann átti margar klókar send-
ingar og skoraði með laglegum
gegnumbrotum. En Víkingarnir
gættu hans vel og klipptu þar með
broddinn af sóknarleik Hauka.
Annars er Andrés betri línumaður
en útispilari, en hver ætti að taka
söðu hans fyrir utan?
Auk Andrésar og Ólafs, áttu
þokkalegan leik þeir Árni Sverr-
isson og Stefán Jónsson, en í heild
var lið Hauka slakt.
í stuttu máli:
íslandsmótið í handknattleik, 1.
deild Víkingur — Haukar: 25—17
(11-9).
Mörk Víkings: Steinar Birgisson
7, Árni Indriðason 5 (3 víti),
Þorbergur Aðalsteinsson 4, Páll
Björgvinsson 3, Ólafur Jónsson 2,
Erlendur Hermannsson, Guð-
mundur Guðmundsson og Sigurð-
ur Gunnarsson eitt mark.
Mörk Hauka: Hörður Harðar-
son 6 (4 víti), Andrés Kristjáns-
son, Stefán Jónsson, Sigurgeir
Marteinsson og Árni Sverrisson 2
hver, Þorgeir Haraldsson, Árni
Hermannsson og Ingimar Har-
aldsson eitt mark hver.
Brottrekstrar: Ólafur Jónsson,
Páll Björgvinsson, Steinar Birg-
isson, Guðmundur Skúli og Þor-
bergur Aðalsteinsson, Víkingi, í 2
mínútur hver, Hörður Harðarson
og Stefán Jónsson, Haukum einnig
í tvær mínútur hvor.
Víti í vaskinn: Kristján Sig-
mundsson varði tvívegis vítaköst
Harðar Harðarsonar og Jens varði
einnig frá Herði. Þorbergur skaut
einu sinni í stöng og Ólafur
Guðjónsson varði vítakast Páls
Björgvinssonar. gg-
Valsstúlkurnar léku
sér að FH-dömunum
Valur:
FH
21:17
VALUR vann öruggan sigur á
FH í 1. deild íslandsmótsins í
handknattleik kvenna um helg-
ina. lokatölurnar urðu þegar upp
var staðið 21 — 17 Val í hag.
Góður sigur og öruggur. Minni
heldur en efni stóðu til, þar sem
FH-ingar skoruðu þrjú siðustu
mörk leiksins, er Valsstúlkurnar
nenntu þessu ekki lengur og
sýndu umtalsvert áhugaleysi.
Staðan i hálfleik var 11—9 fyrir
Val.
Ef drepið er á nokkra punkta í
gangi leiksins, má segja að FH
hafði tvívegis forystuna í leikn-
um, fyrst þegar staðan var 1—0
og siðan er staðan var 4—3. Það
var fljótlega ljóst, að það yrði
ekki FH sem myndi enda með
forystuna sin megin. Eins og frá
hefur verið skýrt, vantar margar
af þeim stúlkum sem gerðu FH
að einu sterkasta kvennaliði
landsins síðustu tvö árin eða svo.
Nýliðarnir hafa enga leikreynslu
og eiga eftir að þroskast sem
handboltakonur.
En það væri ósanngirni að segja
að þetta væri skýringin á tapi FH.
Sannleikurinn er nefnilega sá, að
Valur lék lengst af stórgóðan
handbolta, einhvern besta hand-
knattleik sem undirritaður hefur
séð til kvennaliðs. Að vísu hefði
yfirvegun í sókninni mátt vera
meiri og alltaf er leiðinlegt að sjá
lið slaka á undir lok leikja og
missa þar af leiðandi af því að
ljúka leiknum með stórsigur í
vasanum.
Ekki er útlit fyrir því að FH
blandi sér í baráttuna um íslands-
meistaratitilinn að þessu sinni, en
Valur ætti að geta veitt Fram
harða keppni. Liðið lék sem sterk
heild að þessu sinni. Þrjár dömur
sáu um flest markanna, þær Erna
Lúðvíksdóttir, Harpa Guðmunds-
dóttir og Ágústa Dúa Jónsdóttir.
Jóhanna Pálsdóttir var eins og net
á marklínunni, lokaði markinu
langtímum saman og auk þess var
þáttur þeirra Elínar og Hönnu
Rúnu á línunni stór. Vert er einnig
að geta ungs línumanns, Kristínar
Ólafsdóttur.
Hjá FH var ekki um jafn
auðugan garð að gresja. Kristjana
er hættuleg skytta, en var nokkuð
fjarri sínu besta, sömu sögu er að
segja um Svanhvíti. Katrín er
alltaf sami járnhrammurinn í
vörninni, en atkvæðaminni í sókn-
inni heldur en oftast áður. Mark-
varslan var slök, vörnin í heild
slök, sóknin slök, þarna þarf að
gera stórátak.
Mörk Vals: Harpa og Erna 5
hvor, Ágústa Dúa 4, Kristín og
Elín 2 hvor, Björg eitt mark.
Mörk FH: Kristjana 8 (3 víti),
Ellý Erlings 3, Svanhvít og Katrín
2 hvor, Sólveig Birgisdóttir og
Margrét Brandsdóttir eitt hvor.
gg.
Sterkir
Sovétmenn
SOVÉTMENN unnu stórmótið í
handknattleik sem fram hefur
farið í Sviþjóð siðustu dagana, en
þar hafa keppt átta af bestu
handknattleiksþjóðum veraldar.
Sovétmenn sigruðu Pólverja í
úrslitaleiknum 25—17 eftir að
staðan i hálfleik hafði verið
11—7. Virðast Rússar vera feiki-
sterkir um þessar mundir.
Austur-Þjóðverjar höfnuðu í
þriðja sætinu með því að sigra
Ungverja 24 — 19 (11—9) og Dan-
ir sigruðu Vestur-Þjóðverja í leik
um 5.-6. sætið með 18 mörkum
gegn 15. Júgóslavar urðu í
sjöunda sæti, þeir sigruðu Svia
29-21.
• Hannes Leifsson lyftir sér upp með tilþrifum fyrir framan vörn Vals, en ekki
skoraði hann. Ljósm. RAX.
Enn hrundi Fram
á lokasprettinum
VALUR vann mikilvægan sigur
gegn Fram í þunglamalegum leik
i Höllinni á Laugardaginn. Loka-
tölur leiksins urðu 19—16 Val í
vil, en staðan í hálfleik var 10—7
fyrir Fram. Eins og í leik Fram
og Hauka i siðustu viku, náðu
Framarar góðum tökum á leikn-
um framan af, en magalentu
siðan þegar liða tók að lokum
leiksins. Merkilegt er að skoða
gang leiksins siðustu 17 mínút-
urnar, en á 13. mínútu siðari
hálfleiks var staðan 13—10 fyrir
Fram. Lokakaflan skoruðu
Valsmenn hins vegar 9 mörk
gegn þremur og hrökk þvi
þriggja marka forysta Fram
skammt.
Þrátt fyrir að Fram hefði töglin
og hagldirnar í leiknum lengst af,
sýndi liðið aldrei sama góða leik-
inn og gegn Haukum í síðustu
viku. Varnarleikur beggja liða var
í góðu lagi og það var fyrst og
fremst betri nýting á þeim fáu
færum sem buðust sem mótaði
markatöluna. Framarar léku þó
mun léttari og frískari handbolta,
en Valsmenn aftur á móti lengst
af sinn gamalkunna hnoðbolta.
Undir lokin reyndu Valsmenn hins
vegar að láta boltann ganga og
kom þá í ljós að það er sterkari
leikur.
Valur skoraði fyrsta markið, en
Fram næstu þrjú. Valur skoraði
annað mark sitt, en Fram jók
muninn smátt og smátt, þar til
staðan var orðin 9—4 þegar sjö
mínútur voru til leikshlés. Síðustu
mínúturnar skoruðu Valsmenn
19:16
hins vegar þrjú mörk gegn einu og
lögðu stöðuna nokkuð sér í hag.
Síðari hálfleiknum hefur þegar
verið lýst að nokkru leyti, þriggja
marka munurinn hélst þar til
fram undir miðjan hálfleikinn, en
þá hættu Framarar að leika hand-
knattleik að einhverju viti og
Valsmenn kræktu í tvö stig sem
þeir áttu varla skilin ef litið er á
leikinn í heild. Segja má kannski,
að Valsmenn hafi flotið á reynsl-
unni að þessu sinni, því að ekki
flutu þeir á snillinni. Klaufaskap-
ur Framara hjálpaði að sjálfsögðu
mikið til.
í heild lék Valur ekki vel,
leikurinn var ákaflega slakur,
mest bar á hnoði og pústrum og
gekk Stefán Gunnarsson ötullega
fram í þeim efnum, en aðrir voru
skammt á eftir. Valur lék án
Stefáns Halldórssonar og má
segja að sá léttleiki sem liðið
hefur til að bera bafi þar með
fokið. Jón Karlsson kom skemmti-
lega á óvart og sýndi að lengi lifir
í „gömlum" glæðum. Hann átti
stórleik og skoraði mörg falleg
mörk. „Jón kom okkur í opna
skjöldu, hann er leikmaður sem
menn voru farnir að halda að væri
búinn að vera, en þá kom hann
aftan að okkur og skoraði mikil-
væg mörk fyrir Val,“ sagði Theo-
dór Guðfinnsson eftir leikinn. Auk
Jóns átti Brynjar Harðarson góð-
an sprett í síðari hálfleik og hvatti
það félaga hans til dáða.
Þrátt fyrir góða spretti, var
þetta ekki góður leikur hjá Fram
frekar en hjá Val. Áhyggjuefni
fyrir liðið er, að aðeins fjögur
mörk voru skoruð utan af velli af
langskyttum liðsins. Þeir Sigur-
bergur og Andrés Bridde áttu
báðir góðan leik fyrir Fram og
sýndi Ándrés mikið öryggi í víta-
köstunum. Aðrir í liði Fram léku
undir getu, en vert er að geta
tveggja ungra stráka í liðinu,
þeirra Erlends Davíðssonar og
Egils Jóhannessonar, sem báðir
léku bærilega þegar þeir fengu á
annað borð að vera með.
I stuttu máli:
Islandsmótið í handknattleik, 1.
deild í Laugardalshöll.
Valur—Fram: 19—16 (7—10)
Mörk Vals: Jón Karlsson 6,
Brynjar Harðarson 4 (1 víti),
Þorbjörn Guðmundsson 4 (3 víti),
Steindór Gunnarsson 2, Björn
Bjarnason, Þorbjörn Jensson og
Bjarni Guðmundsson eitt hver.
Mörk Fram. Andrés Bridde 6
(allt víti), Atli Hilmarsson 3,
Sigurbergur Sigsteinsson og Egill
Jóhannesson 2 hvor, Theodór Guð-
finnsson og Birgir Jóhannsson eitt
hvor.
Brottrekstrar: Jón Karlsson í 4
mínútur, Þorbjörn Guðmundsson,
Bjarni Guðmundsson og Erlendur
Davíðsson í 2 mínútur hver.
Víti í vaskinn: Þorbjörn Guð-
mundsson gerði eitt ógilt og Sig-
urður Þórarinsson varði vítakast
Brynjars Harðarsonar í síðari
hálfleik. — gg-
Víkingur hafði ekkert í Fram
l.deildarlið Víkingskvenna átti
ekki glætu gegn hinu nánast
ósigrandi liði Fram er liðin
mættust í Höllinni um helgina.
Víkingsliðið kann að vera í mik-
illi framför, en svo góðar eru þær
ekki enn orðnar, að þær geti veitt
Fram keppni. það er heilagur
sannleikur og það varð fljótlega
ljóst er leikurinn var hafinn.
Lokatölur leiksins urðu 18—11,
en staðan í hálfleik var 9—6 fyrir
Fram.
Oddný Sigsteinsdóttir náði sér
vel á strik í þessum leik, en annars
var meiri breidd í markaskorun-
inni hjá Fram en lengi hefur sést,
en sjö stúlkur komust á blað. Hjá
Víkingi báru þær íris og Eiríka af,
en aðrar gerðu hvað þær gátu með
takmörkuðum árangri.
Mörk Fram: Guðríður Guðjóns-
dóttir 6 (5 víti), Oddný Sigsteins-
dóttir 5, Jenný Grétudóttir 2,
Jóhanna Halldórsdóttir, Guðrún
Sverrisdóttir, Helga Magnúsdóttir
og Margrét Blöndal eitt hver.
Mörk Víkings: íris 5 (1 víti),
Eiríka og Metta Helgadóttir 2
hvor, Sigurrós Björnsdóttir, Guð-
rún Sigurðsdóttir og Ingunn Bern-
ódusdóttir eitt hver.
—gg.
HandknattielKur
.. ............ .... ^